Fréttablaðið - 24.02.2009, Side 12
12 24. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 58 Velta: 194 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
248 +0,22% 840 -0,13%
MESTA HÆKKUN
ATLANTIC PETROL. +4,24%
STRAUMUR-BURÐ. +0,56%
ÖSSUR +0,32%
MESTA LÆKKUN
FØROYA BANKI -1,48%
MAREL FOOD SYS. -0,10%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,25 +0,00% ... Atlantic
Airways 167,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 443,00 +4,24% ...
Bakkavör 1,90 +0,00% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,90 +0,00% ... Føroya Banki 100,00 -1,48% ... Icelandair Group
13,40 +0,00% ... Marel Food Systems 49,85 -0,10% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,81 +0,56% ... Össur 94,10 +0,32%
Íslandsbanki (áður Nýi Glitnir)
hefur ákveðið að fresta endurskoð-
un á vaxtaálagi erlendra húsnæð-
islána um eitt ár, fram til 1. mars
2010.
„Nú eru liðin fimm ár frá því
að bankinn hóf að veita húsnæð-
islán í erlendri mynt. Í skilmálum
vegna erlendra húsnæðislána er
kveðið á um endurskoðun á vaxta-
álagi lánanna eftir fimm ár, sem
nú hefur verið frestað,“ segir í til-
kynningu bankans, en erlend hús-
næðislán bera breytilega LIBOR-
millibankavexti, sem vaxtaálagið
er svo lagt ofan á.
LIBOR-vextir hafa lækkað
mikið á erlendum mörkuðum síð-
ustu misseri, voru um 1,9 prósent
núna í janúarbyrjun, miðað við 4,3
prósent ári fyrr. „Fjölmörg heimili
hafa þó á undanförnum mánuðum
þurft að glíma við aukna greiðslu-
byrði vegna veikingar krónunnar,“
segir í tilkynningu bankans og til-
tekið að með frestun á endurskoð-
un vaxtaálags erlendra húsnæðis-
lána vilji bankinn koma til móts
við þá viðskiptavini sem séu með
húsnæðislán í erlendri mynt.
„Frestunin er til komin vegna
almennrar óvissu á fjármála-
mörkuðum,“ segir Una Steinsdótt-
ir, framkvæmdastjóri viðskipta-
bankasviðs Íslandsbanka, og bætir
við að mat bankans hafi verið að
betra væri að bíða, en að festa við-
skiptakjör þessara lána til fimm
ára í efnahagsumhverfi dagsins.
„Við vildum frekar taka óvissuna
á okkur en velta henni yfir á lán-
takendur,“ segir hún.
Hefði verið farið út í endurskoð-
un nú segir Una líklegt að hækka
hefði þurft vaxtaálagið. „Grunn-
vextirnir breytilegu hafa hins
vegar verið að lækka og tengjast
vaxtastiginu erlendis og þess njóta
lántakendur í erlendum húsnæðis-
lánum. Vaxtaálaginu höldum við
svo óbreyttu til 1. mars 2010, en
þá gæti verið komin meiri vissa
í þetta umhverfi og jafnvel hægt
að lækka álagið, því endurskoðun
tekur bæði til hækkunar og lækk-
unar.“ - óká
Endurskoðun álags á
erlenda vexti frestað
Breski bankinn Northern Rock,
sem þjóðnýttur var fyrir ári, hefur
gengið í endurnýjun lífdaga en
stefnt er að því að hann hefji fljót-
lega aftur að veita viðskiptavinum
sínum fasteignalán.
Reiknað er með því að heildar-
lánveitingarnar muni nema fjór-
tán milljörðum punda, jafnvirði
2.300 milljörðum króna. Einn
þriðji verður lánaður á þessu ári
en afgangurinn að ári. Gangi allt
eftir mun bankinn veita allt að níu-
tíu prósenta lán af markaðsverði
fasteigna.
Lánveitingarnar eru liður í við-
leitni ríkisstjórnar Gordons Brown
forsætisráðherra að endurreisa
breska fjármálageirann og blása
þannig nýju lífi í lánamarkaðinn.
Vonast er til að hjól efnahagslífs-
ins hökti í gang í kjölfarið.
Breska ríkisútvarpið hafði í gær
eftir Alistair Darling, fjármálaráð-
herra Breta, að bankinn hafi gert
skurk í málum sínum og greitt til
baka 18 milljarða af þeim 27 sem
ríkið hefði lagt honum til. - jab
VIÐ ÚTIBÚ NORTHERN ROCK Banka-
áhlaup gerði út af við breska bankann
Northern Rock haustið 2007.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Northern Rock rís
upp frá dauðum
ÍBÚÐIR Í BYGGINGU Til þess að festa ekki óhagstæð vaxtakjör í fimm ár hefur
Íslandsbanki ákveðið að fresta endurskoðun á vaxtaálagi erlendra húsnæðislána.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta er ótrúlegur þungavigtarmaður,“
segir Jón Ólafsson, forstjóri og stjórnarfor-
maður Icelandic Water Holdings, sem fram-
leiðir átappað vatn í landi Hlíðarenda í Ölf-
usi undir merkjum Icelandic Glacial.
Fyrirtækið hefur ráðið John K. Sheppard í
stöðu forstjóra fyrirtækisins og kemur hann
til starfa um miðjan næsta mánuð.
Sheppard er reynslubolti í drykkjarvöru-
geiranum en hann starfaði um nítján ára
skeið hjá Coca Cola, meðal annars sem for-
stjóri fyrirtækisins í Evrópu og yfirmaður
alþjóðasviðs fyrirtækisins.
Sheppard hætti hjá drykkjarvörurisan-
um um aldamótin og stýrði eftir það nokkr-
um fyrirtækjum, nú síðast í fjármálageiran-
um. Þar af var hann meðal æðstu stjórnenda
um fjögurra ára skeið hjá Cott Corporation,
einum af umsvifamestu drykkjarvörufram-
leiðendum heims. - jab
VATNSVERKSMIÐJAN SÝND Jón Ólafsson sýnir
Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra átöppun-
arverksmiðju Icelandic Water Holdings í Ölfusi í lok
september í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Úr kókinu í íslenskt vatn
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | notadir.brimborg.is
-15%
-18%
Semdu við okkur um verð
selja gamla
kaupa nýjan
notaðan
Nýtt tákn um gæði
Nýtum það sem við eigum
Komdu í Brimborg í dag
Fjöldi annarra Ford bíla í boði.
Hringdu núna í síma 515 7000.
Áfram Ísland
Smelltu á notadir.brimborg.is
og veldu notaðan bíl fyrir þig
– farðu síðan á bgs.is og
sannreyndu tilboð dagsins.
Komdu í Brimborg í dag.
C
ohn &
W
olfe P
ublic R
elations Íslandi
Við erum á
tánum í dag
– fyrir þig
-27%
eða
* Tilboðsverð er nettóverð með afslætti. Á sumum myndum af nýjum Transit í þessari auglýsingu er sýndur aukabúnaður sem ekki er innifalinn í verðinu. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
-30%
-20%
-10%
Semdu við
okkur um
gott verð
www.ford.is
Nýr
NýrN
ýr
C
h
&
W
lf
P
bli
Notað
ur
Notað
ur
Notað
ur
Ford Transit 220S Sendibíll
1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 3,4 m3, 6 dyra, þaklúga
Ásett verð með vsk 3.005.000 kr.
Afsláttur með vsk 545.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 2.460.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.975.903 kr.*
Ford Transit 220L Sendibíll
1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 4,4 m3, 6 dyra
Fast númer KZ075
Skrd. 06/2005. Ek. 81.300 km.
Ásett verð með vsk 1.690.000 kr.
Afsláttur með vsk 340.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 1.350.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.084.337 kr.*
Ford Transit 300M DC Pallbíll
2,0TDCi 85 hö dísil beinskiptur
Lengd álpalls 2,54 m, 4 dyra, 6 manna
Fast númer RL692
Skrd. 10/2004. Ek. 56.900 km.
Ásett verð með vsk 2.020.000 kr.
Afsláttur með vsk 202.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 1.818.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.460.241 kr.*
Ford Transit 300M Sendibíll
2,0TDCi 85 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 9,07 m3, 6 dyra
Fast númer PN789
Skrd. 09/2005. Ek. 91.300 km.
Ásett verð með vsk 2.150.000 kr.
Afsláttur með vsk 645.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 1.505.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.208.835 kr.*
Ford Transit 280S Sendibíll
2,2TDCi 85 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 6,55 m3, 6 dyra
Ásett verð með vsk 4.215.000 kr.
Afsláttur með vsk 635.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 3.580.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 2.875.502 kr.*
Ford Transit 220L Sendibíll
1,8TDCi 75 hö dísil beinskiptur
Hleðslurými 4,4 m3, 6 dyra
Ásett verð með vsk 3.397.000 kr.
Afsláttur með vsk 917.000 kr.
Tilboðsverð með vsk 2.480.000 kr.
Tilboðsverð án vsk 1.991.968 kr.*
Hagnaður MP banka eftir skatta
nam 860 milljónum króna á árinu
2008, samanborið við tæplega 1,8
milljarða árið áður. Bankinn birti
uppgjör sitt á föstudag.
Í tilkynningu bankans kemur
fram að skýringa á minni hagnaði
sé að leita í afskriftum í kjölfar
falls stóru íslensku bankanna og
gjaldþrots Lehman Brothers.
Þá segir að samtals hafi bankinn
lagt til hliðar 2.248 milljónir króna
vegna afskrifta og telur hann sig
þar með hafa mætt allri afskrifta-
þörf sem leiddi af bankahruninu.
Gengishagnaður jókst á árinu og
nam 1,8 milljörðum króna í árslok
2008 samanborið við 159 milljónir
í árslok 2007. - óká
Hagnaður MP
dregst saman