Tíminn - 01.07.1988, Side 15
Föstudagur 1. júlí 1988
Tíminn 15
;i MINNING i ^ __________
Svavar Guðnason
listmálari
Svavar Guðnason var fæddur 18.
nóvember 1909 á Höfn í Hornafirði,
einn fjögurra barna hjónanna Ólafar
Þórðardóttur og Guðna Jónssonar,
verslunarmanns. Lauk Samvinnu-
skóla 1929 og vann síðan þá vinnu,
sem bauðst í Reykjavík. Árið 1935
sigldi hann til Kaupmannahafnar til
náms hjá Kræsten Iversen við Lista-
háskólann. Gerði þar stuttan stanz,
því hefðbundin módelvinna og
steinrunnið skólaformið var honum
lítt að skapi. Honum tókst þó að
sýna nokkur verk á Kunstnernes
Efterársudstilling þetta sama ár. En
hann bjó við léttan mal í tómri
þakkytru. Hitti þá Skúla Þórðarson
magister á förnum vegi, og gat hann
greitt götu Svavars og selt mynd, og
veitti ekki af, því hann varð að fara
á sjúkrahús vegna vannæringar, þótt
dvölin yrði skömm. Leit hann ævin-
legaá Skúlasem lífgjafa sinn síðan.
Næstu ár voru erfið, en hann tók
þátt í samsýningum og kynntist
dönskum málurum, sem síðar urðu
fremstir í flokki. Árið 1938 fær hann
loks íslenzkan styrk og fer til Parísar
á skóla Fernand Léger. Var þar í
viku. Hitt var þó meira um vert, að
þar hitti hann aftur ýmsa kunningja
úr hópi danskra málara.
Árið 1939 kvæntist Svavar Ástu
Eiríksdóttur, f. 28. jan. 1912, dóttur
hjónanna Marinar Sigurðardóttur og
Eiríks kaupmanns Sigfússonar á
Borgarfirði eystra. Sama ár tók hann
þátt í sýningunni Skandinaverne,
sem sýnd var árið eftir í Stokkhólmi.
Heimsstyrjöldin síðari braust út í
september, og hernám Danmerkur,
sem sylgdi í kjölfarið, gerbreytti
högum manna. Sýning var haldin í
Bellavue árið 1941 í geysistóru
tjaldi, og sýndi Svavar með ýmsum
kunnustu abstraktmálurum Dana og
seldi nokkrar myndir. Sýningin var
tengd þeim hópi listamanna, sem
stóðu að útgáfu tímaritsins Helhest-
en og voru skoðanabræður hans og
baráttufélagar. Vá stríðsins þjapp-
aði mönnum saman og mótaði betur
þær hugmyndir, sem Cobramenn
kynntu betur síðar og leiddu til
heimsfrægðar.
Að loknu stríði efndi Svavar til
sýningar í Listamannaskálanum árið
1945. Viðtökur voru vinsamlegar,
en þó blendnar. Mjög er mér minni-
stætt að heyra málara, sem þá voru
ungir, minnast sýningarinnar. Þeir
fóru þangað í marggang og voru á
eftir sem í leiðslu, slík var opinber-
unin.
Cobrasamtökin urðu til um þetta
leyti, og fóru Asger Jorn og Carl-
Henning Pedersen frá Danmörku,
Karel Appel frá Hollandi og Corn-
eille frá Belgíu þar fremstir í flokki.
Svavar og Ásta sneru heim í hús-
næðisleysið, sem hér var lengi eftir
stríð. Þar kom þó, að þau fengu inni
á Grettisgötu, þar sem þau bjuggu,
þar til þau fluttu í góða íbúð, þar
sem hæst ber í Háaleitinu, og útsýn
er til allra átta.
Svavar var formaður Félags ís-
lenzkra myndlistarmanna og ís-
landsdeildar Norræna listbandalags-
ins 1954-58 og forseti Bandalags
íslenzkra listamanna 1959-61. Var í
forsvari, er Rómarsýningin var hald-
in og þótti standa fast á réttinum.
Árið 1960 var stór sýning á verkum
hans í Kunstforeningen í Kaup-
mannahöfn og svo síðar í Listasafni
fslands. Hann varð félagi í Grönn-
ingen og sýndi 5 sinnum með þeim,
m.a. myndina stóru, Veðrið, sem
hann gerði að tilhlutan Statens
Kunstfond og nú er í Árósaháskóla.
Hann var fulltrúi íslands á Tvíær-
ingnum í Feneyjum 1972. Auk þess
tók hann þátt í fleiri samsýningum
en ég hef tölu á. Sýningar hans hér
voru það kunnar og töldust til slíkra
tíðinda, að ég tíunda þær ekki
frekar. Þessi öld er senn á enda
runnin, og vant að vita, hvernig
málverk hennar íslensk verða metin.
Ég er þó sannfærður unt, að verk
Svavars verða meðal þeirra, sem
lengst munu lifa.
Svavari kynntist ég 1962, en þó
öllu nánar nokkrum árum síðar, er
ég settist þar að í Skeifunni, sem
hann kallaði í Betrekkjarkoti. Fór-
um þá oft í gönguferðir um nágrenn-
ið um lágnættisbil að lokinni vinnu.
Fylgdist hann þá grannt með veðri,
skýjafari og var athugull svo af bar.
Á stundum var setzt á rökstóla.
Svavar tók fram vindil, handlék
hann sem veiðimaður flugustöng,
skar endann með læknistilburðum
og kveikti í. Bólstraský hrönnuðust
upp, og stórfenglegur sögumaður
fór á kreik, og fór reykurinn eftir
stígandi frásagnarinnar. Þegar hann
kvaddi, varð eftir ilntur af vindlareyk
og maríutjásur hljóðnaðs hláturs.
Hann var vinur í raun, hjálpfús og
vildi hag málara sem mestan. í
málverki annarra sá hann oft feitara
í stykkinu en efni stóðu til, oger mér
ekki grunlaust um, að þar hafi
velvild ráðið.
Svavar fylgdist grannt með veðri í
útvarpi og hvernig það samræmdist
horfum. Og víst var þessi Ijóssins
maður birtunni háður, og hans veður
var ekki alltaf veður heimsins. Lærð-
ir menn hafa greint myndir hans og
stíl, séð áhrif birtu og landslags á
bernskustöðvunum. Mér sýnist
myndirnar frekar vera veðurfréttir
úr huga dirfskufulls og djarfhuga
heimsmanns, þar sem gætni og varúð
sveitamannsins heldur öllu í
skefjum.
Ellin varð Svavari erfið. Alzheim-
erveiki greip hann óblíðum tökum,
pensill féll úr hendi. Ljós heimsins
dvínaði, og laust eftir Jónsmessuna
sofnaði Svavar inn í sóllaust sumar-
ið. í stríðinu gerði Svavar mynd,
sem heitir Jónsmessudraumur. Eng-
inn þekkir annars draum. Þó finnst
mér eg sjá kvikan mann lyfta græn-
um hatti stuttlega, sveifla stafnum í
kveðjuskyni og ganga léttum skref-
um upp himinbogann innan um öll
þau ský, sem finnast í veðurfræði, og
hverfa á vit þess jökuls, sem er
uppljómaður af þeim litum, sem
aldrei sjást.
Ástu Eiríksdóttur og öðrum að-
standendum votta ég innilega samúð
mína og okkar málaranna í Listmál-
arafélaginu. Hún á ómældan skerf í
því lífsverki, sem hér er skilað.
Einar Þorláksson
'lllillllllll LESENDUR SKRIFA ■ ; "q.' . .■ ' .
DRAUMAR VÍSA LEID
TIL STJARNANNA
Sýn til annarlegs stjarnhimins er ekki óalgeng í draumi.
Hvar í alheimi gæti líf þróast
annarsstaðar en á okkar jörð? Oft
má sjá þessa spurningu í blöðum og
bókum þeim, sem um heimsfræðileg
efni fjalla. Og svarið er iðulega á þá
leið, að um þetta sé ekkert vitað og
verði aldrei vitað með vissu.
Á íslandi hefur uppgötvun verið
gerð, sem tekur af allan vafa í þessu,
efni, uppgötvunin um sambandseðli
lífsins: Á jarðstjörnum hinna ýmsu
sólhverfa þróast lífið og hvergi ann-
arsstaðar. Líf er bundið efni órjúfan-
legum böndum.
Svo má heita að ýmsir draumar
okkar sanni þessa kenningu. Þegar
okkur t.d. dreymir tvær sólir á lofti
eða fleiri en eitt tungl, þá má telja
alveg víst, að um sé að ræða sýn til
himins frá öðru sólhverfi en okkar.
Og er við í draumi sjáum dýr, sem
hér eru óþekkt, eða menn með öðru
útliti en hjá okkur jarðarbúum
gerist, þá er hið sama uppi á ten-
ingnum og sýnir að draumsamband
hefur orðið við íbúa annars hnattar.
Okkur dreymir aldrei án sambands
við draumgjafa.
Draumar vísa leið til stjarnanna.
Þeir sýna okkur samtímafyrirbæri
sem mörg hver gerast á öðrum
hnöttum og veita okkur nokkra
möguleika til að rannsaka lífið ann-
arsstaðar í geimi, og hafa oft í sér
fólgna raunverulega sönnun um
sambandseðli lífsins.
Ingvar Agnarsson.
Til sölu fasteignir á Siglufirði
og í Borgarnesi
Tilboð óskast í eftirtaldar húseignir: Hvanneyrarbraut 27, Siglufirði.
Stærð hússins er 1254 m3. Húsið verðurtil sýnis í samráði við Erling
Óskarsson, sýslumann, sími (96) 71150.
Brákarbraut 13, Borgarnesi. Stærð hússins er 2489 m3. Húsið
verðurtil sýnis í samráði við RúnarGuðjónsson, sýslumann, sími (93)
71209.
Tilboðseyðublöð liggja frammi í húseignunum og á skrifstofu vorri.
Kauptilboðum sé skilað á skrifstofu vora, Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir
kl. 14:00 f.h. þriðjudaginn 12. júlí n.k., en þá verða þau opnuð í
viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAURASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 t_
Stjórn verkamannabústaða í Garðabæ
Umsókn um íbúð
Stjóm verkamannabústaða í Garðabæ óskar eftir
umsóknum um eina eldri íbúð í Krókamýri. Um
ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessarar íbúð-
ar gilda lög nr. 60/1984, nr. 77/1985, nr. 54/1986
og nr. 27/1987.
Umsóknareyðublöð verða afhent á bæjarskrifstof-
um Garðabæjar, Sveinatungu, frá 1. júlí 1988.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 21. júlí 1988.
Stjórn verkamannabústaða í Garðabæ
BILALEIGA
með útibú allt i kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi?
interRent
Bilaleiga Akureyrar
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða. Fast verð. Afsláttur
ef samið er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224.
Lokað í allan dag vegna jarðarfarar
Svavar Guðni Svavarsson
múrarameistari,
Miklubraut 50
t
Móðursystir mín
Ingveldur Elimundardóttir
andaðist á Elliheimilinu Grund 29. júní.
Fyrir hönd aðstandenda
Erlingur Runólfsson
LM ^ Massgv Ferouson
P9SMH8Í
Fáðu þér sæti.
Dráttarvélasæti
Hagstætt verð
/S BUNABARDEILO
59 BAMBANDBIMB
ARMULA3 REYKJAVlK SfMI 38800