Tíminn - 01.07.1988, Qupperneq 16
16 Tíminn«
Föstudagur 1. júlí 1988
DAGBÓK
nniiii
„Frá Kaldadal" eftir Ásgrím Jónsson.
Gömlu meistararnir
í Gallerí BORG
Nú er hafin í Gallerí Borg í Pósthús-
stræti sölusýning á verkum eldri meistar-
anna. Á sýningunni er stórt olíumálverk
eftir Ásgrím Jónsson, „Frá Kaldadal"
82x120 sm.
Af öðrum verkum á sýningunni má
nefna uppstillingu eftir Jón Stefánsson,
blómamynd eftir Kristínu Jónsdóttur,
fjögur Kjarvalsverk, myndir eftir Gunn-
laug Blöndal, Nínu Tryggvadóttur,
Gunnlaug Scheving og söguleg olíumynd
af Glerárfossi á Akureyri eftir Kristínu
Jónsdóttur.
Stöðugt berast Galleríinu verk gömlu
meistaranna og er skipt um myndir á
veggjunum svo til daglega, því um leið og
mynd sclst er hún tekin niður og ný sett í
staðinn.
Sýningin mun standa yfir í allt sumar
og er opin kl. 10:CXJ—18:00 virka daga.
Bjarni Sigurbjörnsson sýnir
í Bókasafni Kópavogs
Föstudaginn 1. júlí hefst sýning á
málverkum eftir Bjarna Sigurbjörnsson í
listastofu Bókasafns Kópavogs. Á sýning-
unni, sem er fyrsta sýning Bjarna, eru tíu
olíumálverk, öll máluö á þessu ári.
Bjarni er fæddur áriö 1966 og starfar
sem bílasmiður, en mun hefja nám í
Myndlista- og handíðaskóla íslands í
haust.
Sýningin er opin á sama tíma og
bókasafnið, mánudaga til föstudaga kl.
09:00-21:00 og stendur til 31. júlí. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Breyttur opnunartími
á Þjóðminjasafni íslands
Opnunartíma Þjóðminjasafnsins var
breytt frá og mcð 15. maí sl., og er safnið
nú opið alla daga vikunnar - nema
mánudaga - kl. 11:00-16:00. Gildir þessi
tími til 15. september, en á veturna
verður safnið opið fjóra daga í viku, þ.e.
laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 11:00-16:00.
Laugardaginn 4. júní verður opnuð í
safninu (Bogasalnum) sýning á myndum
eftir W.G. Collingwood, sem ferðaðist
um landið árið 1897, og mun sú sýning
standa til haustsins.
Sumartónleikar
í Skálholtskirkju 1988
Hinir árlcgu sumartónlcikar í Skálholti
hefjast nú í 14. sinn fyrstu hclgina í júlí.
Að þessu sinni er um átta tónlcika að
ræða sem skiptast niður á fjórar tónleika-
helgar. Efnisskrá cr fjölbreytt og taka
bæði innlendir og erlendir listamenn þátt
í flutningi.
2. og 3. júlí - Gítartónleikar og þýsk og
ítölsk tónlist.
Jósef Ka-Chcung-Fung lcikur á gítar
bæði samtímatónlist og frá barokktíman-
um og nýtt eigið verk.
Cantilla Söderberg, Helga Ingólfsdótt-
ir, Marta Halldórsdóttir. Olöf S. Óskars-
dóttir og Sverrir Guðmundsson flytja
tónlist frá 18. öld á barokkhljóðfæri.
Á laugardögum eru haldnir tvennir :
tónleikar, kl. 15:00 og kl. 17:00. Á >
sunnudögum kl. 15:00 eru seinni tónleik-
ar laugardagsins endurteknir. Messa er
haldin kl. 17:00 sama dag og flytja þá
tónlistarmenn þætti úr tónleikaskrám
helgarinnar.
Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugard. 2.
júlí. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl.
10:00.
„Bætum upp sólarleysið í sumar í
skemmtilegu bæjarrölti í góðum félags-
skap. Allir, ungir og aldnir eru velkomnir.
Nýlagað molakaffi," segir í fréttatilkynn-
ingu frá Frístundahópnum Hana nú.
Digranesprestakall
Sumarferð safnaðarins verður sunnu-
daginn 3. júlí nk. Farið verður í Þjórsár-
dal og síðan austur yfir Þjórsá og niður
Landsveit. GuðsþjónustaverðuríHrepp-
hólakirkju, þar sem Halldór Reynisson
messar.
Þátttaka tilkynnist f. fimmtudag 30.
júní í síma 42759 (Guðlaug) og 41845
(Elín).
Sumarferðalag Verkakvenna-
félagsins Framsóknar
Hið árlega sumarferðalag Verka-
kvennafélagsins Framsóknar verður farið
7.-9. ágúst nk. Farið verður um Skaga-
fjörð og gist á Sauðárkróki.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félags-
ins. Sími er 688930.
Hallgrímskirkja
- Starf aldraðra
Föstudaginn 8. júlí verður lagt af stað
í 5 daga hringferð um Norðausturland.
Flogið verður til og frá Húsavík. Gist í 2
nætur í Lundarskóla í Öxarfirði og 2
nætur á Vopnafirði. Þaðan verður ekið og
skoðaðir áhugaverðir staðir, svo sem
Ásbyrgi - Hljóðaklettar- Hólmatungur-
Dettifoss og Mývatnssveit.
Allir lífeyrisþcgar geta tekið þátt i
þessari fcrð.
Tvö sæti eru laus í Noregsferð 27.
júlí-16. ágúst.
Nánari upplýsingar gefur Dómhildur
Jónsdóttir í síma 39965.
Félag eldri borgara
Athugið að skrifstofa félagsins, Nóa-
túni 17, er opin frá kl. 10:00-14:00 frá I.
júlí til 2. ágúst. Síminn er 28812.
Gallerí Gangskör
1 júlímánuði verður Gallerí Gangskör
opið sem hér segir: Á þriðjudögum til
föstud. kl. 12:00-18:00.
Verk Gangskörunga eru til sýnis og
sölu á staðnum.
Ferðafélag íslands í Þórsmörk
Ferðafélag fslands vill vekja athygli
ferðamanna á að virða náttúru Þórsmerk-
ur, sýna tillitssemi á tjaldsvæðinu í
Langadal og forðast hávaðamengun.
Vegna hættu á gróðurskemmdum verð-
ur fjöldi þeirra sem næturdvöl hafa í
Langadal í Þórsmörk takmarkaður við
350 manns. Þeim sem gista vilja í Langa-
dal um næstu helgar er því bent á að fá
leyfi hjá Ferðafélagi íslands áður en lagt
er í Þórsmerkurferð. Símar á skrifstofu
Ff að Öldugötu 3 eru: 19533 og 11798.
Skálaverðir í Þórsmörk svara Gufunes-
radíói kl. 09:00-09:30 og kl. 16:00-17:00.
Tjaldsvæði í umsjón Ferðafélags íslands
eru einnig í Endunum og er vist þar
heimil eftir því sem rými leyfir.
Að gefnu tilefni hafa svofelldar um-
gengnisreglur verið settar:
Akstur bifreiða yfir Kpossá fyrir mynni
Langadals er óheimil frá kl. 00:30-07:00.
Á sama tíma er umferð'um Langadal
óheimil öðrum en dvalargestum í dalnum,
svo að að hafa bifreiðar með ljósum eða
í gangi á bifreiðastæðinu í Langadal.
Notkun hástilltra hljómtækja að nóttu
til, í kyrrð óbyggðanna, er orðið vanda-
mál. Ferðafélagið og starfsfólk þess óskar
eftir samvinnu við gesti félagsins í
Þórsmörk.
LYKILL að Austurtandi
Iðnþróunarfélag Austurlands hefur
gefið út upplýsingarit til þess að mönnum
verði ljóst hvað Austurland hefur upp á
að bjóða í vörum og þjónustu. Bókin
sýnir fjölbreytni atvinnulífsins á Austur-
landi „og er tilgangurinn með útgáfu
hennar, að auka sölu á austfirskum vörum
og þjónustu,"
segir Jón Guðmundsson, formaður Iðn-
þróunarfélags Austurlands í formála.
Upplýsingaritið er þrískipt. í fyrsta
kaflanum eru hagnýtar upplýsingar um
atvinnu- og mannlíf á Austurlandi. Annar
kaflinn er þungamiðja ritsins, en þar er
að finna upplýsingar um fyrirtæki, stofn-
anir og félagasamtök í fjórðungnum o.fl.
Þriðji kaflinn nefnist þjónustuskrá og þar
má finna nafn, póstnúmer og símanúmer.
Þess má geta að við samningu bókar-
innar var haft samráð við Kjördæmisráð
Framsóknaraflokksins, sem hóf í fyrra
útgáfu fyrirtækjaskrár, sem var með
nokkuð öðru og einfaldara sniði.
Iðnþróunarfélag Austurlands, Hafn-
argötu 44, Seyðisfirði, segir að allar
athugasemdir og ábendingar um það,
sem betur má fara í næstu útgáfu, væru
vel þegnar og sími félagsins er 97-21287.
Dagsferðir F.í.
Laugard. 2. júlí Id. 08:00: Baula -
Bjarnardalur - Bjarnardalsá. Baula er
keilumyndað líparítfjall (934 m) vestan
Norðurárdals, við sýslumörk Dala- og
Mýrasýslu. Baula er bratt fjall, skriðu-
runnið og seinfarið uppgöngu en torfæru-
laust. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Frítt fyrir börn í fylgd
fullorðinna. Farmiðar við bíl (1200 kr.).
Sunnud. 3. júlí kl. 08:00: Þórsmörk -
dagsferð. Miðar við bíl við Umferðarmið-
stöðina (1200 kr.).
Sunnud. 3. júlí kl. 13:00: Selatangar -
fjölskylduferð.
Ekið verður um Grindavík áleiðis að
Selatöngum. Selatangar eru gömtrl ver-
stöð miðja vegu milli Grindavíkur og
Krýsuvíkur. Þar eru verbúðarústir, tófu-
gildrur o.fl. forvitnilegt að skoða. Farið
frá Umferðarmiðstöðinni austanmegin.
Farmiðar við bíl (800 kr.). Frítt fyrir börn
í fylgd fullorðinna.
Sumarieyfisferðir F.f.
6.-10. júlí (5 dagar):
Landmannalaugar - Þórsinörk. Gcngið '
verður milli sæluhúsa F.í. Fararstjóri er
Dagbjört Óskarsdóttir.
8.-11. júlí: Landmannalaugar - -
Þórsmörk. Fararstjóri er Páll Ólafsson.
Helgarferð F.í. 8.-10. júlí:
Hagavatn - Jarlhettur. Gist í sæluhúsi
Ferðafélags fslands við Einifcll og í
tjöldum.
Gönguferð F.í. 8.-10. júlí:
Hagavatn - Hlöðuvellir - Geysir.
Sumarleyfisferðir Útivistar
1.- 6. júlí: Sumar á Suð-Austurlandi (6
d.) Gist í svefnpokaplássi í Stafafelli í
Lóni, eða í tjöldum. Brottför kl. 8,1. júlí.
Gönguferðir og skoðunarferðir um
Suðurfirði. Bátsferð í Papey. Fararstjóri
Bergsveinn Ólafsson.
7.-15. júlí:Hornstrandir 1, Hornvík:
Tjaldað í Hornvík. Gönguferðir, m.a. á
Hornbjarg og í Hlöðuvík. fararstjórar
Óli G.H. Þórðarson og Lovísa Christian-
sen.
7.-12. júlí: Hornstrandir I-Hornvík.
7.-15. júlí: Hornstrandir II - Hesteyri
- Aðalvík - Hornvík. Skemmtileg bak-
pokaferð. Fararstjóri Þráinn Þórisson.
6.-10. júlí: Landmannalaugar -
Þórsmörk. Gengið milli skála. Fararstjóri
Rannveig Ólafsdóttir. Aukaferð 28. júlí
til I. ág.
Dagsferðir Útivistar
Laugard. 2. júlí kl. 08:00 - Hckla.
Gangan tekur 7-8 klst. (1.400 kr.)
Sunnud. 3. júlí - Þórsmörk Einnig
tilvalin ferð til sumardvalar, t.d. frá
sunnud. til miðvikud. (1.200 kr.)
Strandganga í landnámi Ingólfs 16.
ferð a. og b.
a. kl. 10:30 Háleyjaberg - Hópsnes.
Gengið um Mölvík, Staðarberg og Gerð-
istanga.
b. kl. 13:00 Arfadalsvík - Hópsnes. f
gönguna mætir staðkunnugt fólk og fræðir
um leiðina. Viðurkenning veitt fyrir góða
þátttöku í strandgöngunni.
Brottförfrá BSI, bensínsölu. (Kl. 13:15
v/Sjóminjasafnið í Hafnarfirði) Farmiðar
við bíl (900 kr.) frítt fyrir börn með
fullorðnum.
Miðvikudagur 6. júlí kl. 20:00 Lundeyj-
arsigling - Viðey.
Helgarferðir Útivistar
Helgarferðir 1.-3. júlí: Þórsmörk. Gist
í skálum Útivistar í Básum. Fjölbreyttar
gönguferðir. Básar eru tilvalinn sumar-
dvalarstaður fyrir alla fjölskylduna. Til
boða standa afsláttarkjör.
Eiríksjökull. Gengiðájökulinn. Einnig
skoðaður Surtshellir, farið að Húsafelli
og víðar.
Sértilboð til nýrra félagsmanna á ársrit-
um Útivistar frá upphafi: kr. 5780 fyrir 13
rit (ársrit 1988 innifalið).
Úpplýsingar og farmiðar á skrifstof-
unni, Grófinni 1. Símar eru 14606 og
23732.
I!l!l!l!l
ÚTVARP/SJÓN VARP
o
Rás I
FM 92,4/93,5
Föstudagur
1. júlí
6.45 Veöurfregnir. Bæn, séraGylfi Jónsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku að loknu
fréttayfirliti kl. 7.30. Lesið úr forustugreinum
.dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fvrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00. 9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna. Meðal efnis er
saga eftir Hrafnhildi Valgarðsdóttur, „Kóngar í
ríki sínu og prinsessan Petra". Höfundur les (5).
Umsjón: Gunnvör Braga. (Einnig útvarpað um
kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Bjöms-
dóttir.
9.30 Úr sögu siðfræðinnar. Vilhjálmur Árnason
flytur fyrsta erindi sitt af sex: Sókrates og Platón.
(Endurtekið frá þriðjudagskvöldi).
10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Lífið við höfnina. Umsjón: Birgir Svein-
bjömsson. (Frá Akureyri)
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómpr l Jmsión: Ásgeir Guðjónsson.
11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.35 Miðdegissagan: „Lyklar himnarikis“ eftir
A.J. Cronin. Gissur Ó. Erlingsson þýddi. Finn-
borg örnólfsdóttir les (33).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Föstudagssyrpa. - Edvard J. Frederiksen.
(Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags að
loknum fréttum kl. 2.00). 15.00 Fréttir.
15.03 Land og landnytjar. Umsjón: Finnbogi Her-
mannsson. (Frá Isafirði) (Endurtekinn þáttur frá
laugardagskvöldi). 16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Barnaútvarpiðtalarvið unga
byggingamenn! 5. lestur sögunnar „Mamma á
mig“. Umsjón: Kristín Helgadóttir og Sigurlaug
Jónasdóttir. 17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi. a. „Core n'grato" eftir
Cardillo. Magnús Jónsson syngur; Ólafur Vignir
Albertsson leikur á píanó. b. „Ti voglio tanto
bene“ eftir De Curtis. Magnús Jónsson syngur;
Ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó. c.
„Marechiare" eftir Tosti. Magnús Jónsson
syngur; Ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó.
d. „A la Barcillunisa", bjóðlag frá Sikiley.
Magnús Jónsson syngur; Ólafur Vignir Alberts-
son leikur á píanó. e. „Pecche?" eftir Pennino.
Magnús Jónsson syngur; Ólafur Vignir Alberts-
son leikur á píanó. f. „Mon Coeur" og „Amor
Vieder" úr „Samson og Dalila" eftir Saint-
Saéns. Guðrún Á. Símonar syngur ásamt
Útvarpshljómsveitinni; Hans Wunderlich
stjórnar. g. „Una voce poco fa“ cavatína úr
„Rakaranum í Sevilla" eftir Rossini. Þuríður
Pálsdóttir syngur; Fritz Weisshappel leikur á
píanó. h. Dúett úr „Töfraflautunni" eftir Mozart.
Þuríður Pálsdóttir og Kristinn Hallsson syngja;
Fritz Weisshappel leikurá píanó. i. Aría Micaelu
úr „Carmen" eftir Bizet. Þuríður Pálsdóttir
syngur ásamt Sinfóníuhljómsveit islands;
Bruckner Rúggenberger stjórnar. j. Cavatína úr
„Rakaranum í Sevilla“eftirRossini.Guðmundur
Jónsson syngur ásamt Sinfóníuhljómsveit
íslands; Bohdan Wodiczko stjórnar. k. Söngur
nautabanans úr „Carmen" eftir Bizet. Guð-
mundur Jónsson syngur ásamt Sinfóníuhljóm-
sveit Islands; Bohdan Wodiczko stjórnar. I.
Ölsöngur úr óperunni „Marta" eftir Flotow.
Guðmundur Jónsson syngur ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Islands; Bohdan Wodiczko stjórnar.
m. „Parisiamo" úr „Rigoletto" eftir Verdi. Guð-
mundur Jónsson syngur ásamt Sinfóníuhljóm-
veit íslands; dr. Victor Urbancic stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Hringtorgið. Sigurður Helgason og Óli H.
Þórðarson sjá um umferðarþátt.
Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar.
19.35 Náttúruskoðun.
20.00 Morgunstund barnanna. Umsjón: Gunnvör
Braga. (Endurtekin frá morgni).
20.15 Tónleikar. a. „Symphonie Espagnole" fyrir
fiðlu og hljómsveit eftir Edouard Lalo. Sinfóníu-
hljómsveit Parísarborgar leikur; Daniel Baren-
boim stjórnar. b. „Reverie et Caprice" fyrir fiðlu
og hljómsveit eftir Hector Berlioz. Sinfóníu-
hljómsveit Parísarborgar leikur; Daniel Baren-
boim stjórnar.
21.00 Sumarvaka. a. „Lyftist signuð sólin" Sigurð-
ur Óskar Pálsson les Ijóð eftir Jóhann E.
Magnússon og frásögn um hann eftir Braga
Björnsson frá Surtsstöðum. b. Elín Sigurvins-
dóttir syngur lög eftir Sigfús Halldórsson. Höf-
undur leikur á píanó. c. Minningar önnu Borg
Edda V. Guðmundsdóttir les þriðja lestur þýð-
ingar Árna Guðnasonar. Kynnir: Helga Þ. Step-
hensen.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir.
22.20 Vísna- og þjóðlagatónlist.
23.10 Tónlistarmaður vikunnar- Pétur Grétars-
son slagverksleikari Umsjón: Edvard J.
Frederiksen. (Endurtekinn Samhljómsþáttur
frá desember). 24.00 Fréttir.
00.10 Tónlist á miðnætti. a. Konsert nr. 1 í d-dúr
op. 99 fyrir gítar og hljómsveit eftir Mario
Castelnuovo-Tedesco. Pepe Romero leikur á
gítar með St.Martin-in-the-Fields hljómsveitinni;
Sir Neville Marriner stjórnar. b. Sónata fyrir fiðlu
og píanó í g-moll eftir Claude Debussy. Shlomo
Mintz leikur á fiðlu og Yefim Bronfman á píanó.
c. Þrír söngvar við Ijóð Stéphanes Mallarmé
eftir Maurice Ravel. Elly Ameling syngur með
fólögum úr Viotti-kvartettinum og einleikurum úr
Orchestre National de France.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
&
FM 91,1
01.00 Vökulögín. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00.
Veðurfregnir kl. 8.15.
9.03 Viðbit. - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri)
10.05 Miðmorgunssyrpa. - Eva Ásrún Alberts-
dóttir, Valgeir Skagfjörð og Kristín Björg Þor-
steinsdóttir.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. - Eva Ásrún Albertsdóttir,
Valgeir Skagfjörð og Kristín Björg Þorsteinsdótt-
ir.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp.
18.00 Sumarsveifla með Gunnari Salvarssyni.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Snúningur. Rósa Guðný Þórsdóttir ber
kveðjur milli hlustenda og leikur óskalög.
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri og flugsamgöngum kl.
5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands.
Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir.
SJÓNVARPIÐ
Föstudagur
1. júlí
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Sindbað sæfari. Þýskur teiknimyndaflokkur.
Leikraddir: Aðalsteinn Bergdal og Sigrún
Waage. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
19.25 Poppkorn. Umsjón Steingrímur Ólafsson.
Samsetning Ásgrímur Sverrisson.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Basl er bókaútgáfa (Executive Stress)
Breskur gamanmyndaflokkur um hjón sem
starfa við sama útgáfufyrirtæki. Aðalhlutverk
Penelope Keith og Geoffrey Palmer. Þýðandi
Ýrr Bertelsdóttir.
21.00 Pilsaþytur (Me and Mom) Bandarískur
myndaflokkur af léttara taginu um mæðgur sem
reka einkaspæjarafyrirtæki í félagi við þriðja
mann. Aðalhlutverk Kate Morgan og Zena
Hunnicutt. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
21.50 Við landamærin (Borderline) Bandarísk
bíómynd frá árinu 1980. Leikstjóri Jerrold
Freedman. Aðalhlutverk Charles Bronson og
Bruno Kirby. Landamæravörður við landamæri
Mexíkó og Bandaríkjanna kemst á snoðir um
glæpahring sem svífst einskis við að koma
ólöglegum innflytjendum yfir til Bandaríkjanna.
Þýðandi Steinar V. Ámason.
23.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
áL.
§.
Föstudagur
1. júli
16:20 Dísa. I Dream of Jeannie - 15 Years Later.
Dísa er andi í flösku sem tók upp sambúð við
geimfara og var ákaflega vinsæl í samnefndum
sjónvarpsþáttum. Hér hittum við Dísu og fjöl-
skyldu hennar 15 árum síðar. Aðalhlutverk:
Barbara Eden og Wayne Rogers. Leikstjóri: Bill
Asher. Framleiðandi: Barbara Corday. Þýðandi:
Björn Baldursson. Columbia 1985. Sýninqartími
90. mín.
17.50 Silfurhaukarnir. Teiknimynd. Þýðandi: Bolli
Gíslason. Lorimar.
18.15 Föstudagsbitinn. Vandaður tónlistarþáttur
með viðtölum við hljómlistarfólk, kvikmyndaum-
fjöllun, og fréttum úr poppheiminum. Þýðandi:
Ragnar Hólm Ragnarsson. Musicbox 1988.
19.19 19:19. Fréttir og fréttaskýringaþáttur ásamt
umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á
baugi.
20.30 Alfred Hitchcock. Nýjar, stuttar sakamála-
myndir sem gerðar eru í anda þessa meistara
hrollvekjunnar. Þýðandi: Pálmi Jóhannesson.
Sýningartími 30 mín. Universal 1986.
21.00 í sumarskapi. Með íþróttamönnum. Stöð
2, Stjarnan og Hótel Island standafyrirskemmti-
þætti í beinni útsendingu sem útvarpað verður
samtímis í stereó á Stjömunni. Að þessu sinni
verður þátturinn helgaður í þróttum og verða
gestir á Hótel Islandi úr hópi íþróttamanna.
Kynnar: Jörundur Guðmundsson og Saga Jóns-
dóttir. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Stöð
2/Stjaman/Hótel Island.________________________
21.55 Ljúfa frelsi. Sweet Liberty. Prófessor Mic-
hael er illa brugðið þegar hópur kvikmynda-
gerðarfólks flykkist til heimabæjar hans með
það fyrir augum að gera kvikmynd eftir metsölu-
bók hans um frelsisstríð Bandaríkjanna gegn
Bretum. Kvikmyndaleikstjórinn hefur sínar hug-
myndir um hvernig frelsisstríðið skuli túlkað en
þær ganga gjörsamlega í berhögg við hug-
myndir prófessorsins. I þessari hispurslausu
gamanmynd eru margir góðir sprettir sem verl
er að veita athygli. Aðalhlutverk: Alan Alda,
Michael Caine, Michelle Pfeiffer og Bob
Hoskins. Leikstjóri: Alan Alda. Framleiðandi:
Martin Bregman. Þýðandi: Ólafur Jónsson.
Universal 1986. Sýningartími 100 mín. (A) 15/8
23.40 Hinn ótrúlegi Nemo kapteinn. Amazing
Captin Nemo. Það er undraverð sjón sem blasir
við sjóliðsforingjunum Tom og Jim árferð þeirra
neðansjávar. Listilega skreyttur salur frá Viktor-
íutímabilinu og maður í tuttugustualdar-kafara-
búningi lokaður í fljótandi köfnunarefnishylki er
jú ekki algeng sjón á þessum slóðum. Félagamir
bjarga manninum og þeim tekst að lífga hann
við. Þetta er Nemo kapteinn, uppfinningamaður
og skipstjóri á Nautilusi. Hann býður bjargvætt-
unum að fylgja sér í leit sinni að Atlantis. Ferðin
hefst en hún gengur ekki áfallalaust. Þessi
ævintýramynd er fyrir alla fjölskylduna. Góða
skemmtun! Aðalhlutverk: Jose Ferrer, Tom
Hallick, Burgess Meredith og Mel Ferrer. Leik-
stjóri: Alex March. Framleiðandi: Arthur Wiess.
Þýðandi: Jónína Ásbjörnsdóttir. Wamer 1978.
Sýningartími 100 mín. (A) 12/8.
01.20 Lögreglusaga. Confessions of a Lady Cop.
Evelyn Carter hefur starfað með lögreglunni í
sextán ár. Hún stendur á tímamótum í lífi sínu,
vinkona hannar fremur sjálfsmorð, elskhugi
hennar vill slíta sambandi þeirra og hún efast
um að hún hafi valið sér rétt ævistarf. Aðalhlut-
verk: Karen Black, Don Murray, Eddie Egan og
Frank Sinatra Jr. Leikstjóri: Lee H. Katzin.
Framleiðandi: Hugh Benson. Þýðandi: Bjöm
Baldursson. Alls ekki við hæfi bama.
02.55 Dagskrárlok.