Tíminn - 09.07.1988, Blaðsíða 13
Naumt tap gegn
V-Þjóðverjum
íslenska landsliðið í handknattleik
tapaði með eins marks mun, 19-18,
fyrir V-Þjóðverjum í Hamborg í
gær.
Leikurinn var hluti af opinberri
heimsókn forseta íslands frú Vigdís-
ar Finnbogadóttur til V-Þýskalands
Valur fékk
Frammara
Stórleikur verður í 8-liða úrslit-
um mjólkurbikarkeppni KSÍ,
Valsmenn drógust gegn Frömm-
urum og eiga Valsmenn heima-
leik.
Drátturinn fór annars þannig:
Leiftur-Tindastóll 19. júlí
ÍA-ÍBK............. 20. júlí
Valur-Fram ........ 20. júlí
FH-Víkingur ....... 21. júlí
BL
og var forsetinn heiðursgestur á
leiknum.
íslendingar höfðu frumkvæðið
mest allan leikinn og voru yfir í
hálfleik 12-10. Um miðjan síðari
hálfleik komust Þjóðverjarnir yfir
og á spennandi lokamínútum náðu
þeirað sigra meðeinu marki, 19-18.
„Þetta var góður leikur tveggja
sterkra handknattleiksliða og nokk-
urs konar prófraun á leikæfingu
okkar manna“, sagði Guðjón
Guðmundsson liðstjóri íslenska liðs-
ins í samtali við Tímann í gærkvöldi.
„Við höfum verið í mjög erfiðum
þrekæfingum að undanförnu og lítið
komið við bolta. Við erum því
tiltölulega ánægðir með útkomuna,
þó aldrei sé gaman að tapa. Strák-
arnir eru ekki alveg tilbúnir í boltann
ennþá en löng leið er fram að
Ólympíuleikum til að kippa þeim
hlutum í lag. V-þýska liðið er mjög
gott, þeir hafa bæði unnið World-
cup og Super-cup og eru mjög
sterkir. Framundan eru 21 leikur og
hátt í hundrað æfingar fram að ÓL,
þannig að við höfum góðan tíma enn
til laga hluti. Takmarkið er að vera
á toppnum í september og ná einu
af 6 efstu sætunum í Seoul.“ sagði
Guðjón.
Þjálfari V-Þjóðverja, Ivanoascou,
sagði á blaðamannafundi eftir leik-
inn, að það hlyti að vera mótherjum
íslendinga í Seoul mikill höfuðverk-
ur að þurfa að leika gegn
íslandi, því liðið væri geysisterkt.
Einar Þorvarðarson stóð í mark-
inu allan leikinn og stóð sig vel að
vanda, varði alls 13 skot. Kollegi
hans í marki V-Þjóðverja átti einnig
góðan dag og varði meðal annars 4
vítaköst.
Mörk íslands skoruðu: Þorgils
Óttar Mathiesen 5, Kristján Arason
4, Karl Þráinsson 2, Atli Hilmarsson
2, Jakob Sigurðson 2, Alfreð Gísla-
son 2 og Guðmundur Guðmundsson
1. BL
ÍÞRÓTTIR
HELGARINNAR
Knattspyrna
Laugardagur:
1. d. kl. 4.30 . ÍA-Fram
1. d. kv kl. 14.00 . KA-ÍBK
2. d. kl. 14.00 . ÍR-Tindastóll
2. d. kl. 14.00 . Víðir-ÍBV
2. d. kl. 16.00 . KS-Afturelding
3. d. A Id. 14.00 . .... Grótta-Stjaman
3. d. A kl.14.00 . ÍK-Víkverji
3. d.B Id. 14.00 . Þróttur-UMFS Dalvík
3. d. B kl.14.00 . Sindri-Hvöt
3. d. B kl. 14.00 . . . . Reynir Á-Einherji
4. d A kl. 14.00 . . . . Snæfell-Augnablik
4. d B U. 14.00 . . . . Vík. Ól.-Fyrirtak
4. d. B kl. 14.00 . . . . Hverag.-SkaUagr.
4. d. B kl.14.00 . Hafnir-Ármann
4. d. C kl.14.00 . . . Geislinn-Bfldudalur
4. d. C kl.17.00 . Vaskur-Efling
4. d. D kl.14.00 . . . Kormákur-UMSE b
4. d. E kl.14.00 . Höttur-KSH
4. d. E kl.14.00 . Neisti D-Valur Rf.
4. d. E kl.14.00 . . . Austri E-Leiknir F.
Ath. Breyttan leiktíma á leik ÍA
og Fram, en sá leikur átti að vera á
mánudag.
Sunnudagur:
1. d. kl. 17.00 .... Leiftur-Völsungur
1. d. kl. 20.00 Valur-KA
1. d. kv Id. 14.00..............ÍBi-KR
4. d. A kl. 14.00..... Skotfél.R.-Ægir
Þúfærð
meira
ogmeira
ogmeira..
Bónusreikningur gefur þér möguleika
sem ekki hafa þekkst áður á óbundnum
bankareikningi.
Þú færð hærri vexti
eftir því sem innstæðan vex. Vaxta-
þrepin eru 4 talsins: Að 50 þúsundum
kr., 50 - 200 þúsund kr. ,200-500
þúsund kr. og upphæðir yfir 500
þúsund kr. Vextir umfram verðbólgu
fyrir hæsta þrep a.m.k. 7%.
Þú færð alltaf betri kjörin
þegar verðtryggð og óverðtryggð kjör
hvers vaxtaþreps em borin saman á 6
mánaða fresti.
Peningarnir eru alltaf lausir
hvenær sem þú þarft að grípa til þeirra.
Kostnaði við úttekt er haldið í lágmarki,
en vexti má taka út kostnaðarlaust.
EUilífeyrisþegar fá vexti 2. þreps
strax þó upphæðin sé undir þeim
mörkum, sama gildir um hluthafa
bankans.
Þú færð afslátt
hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum
með því að framvísa Bónuskorti sem
fylgir reikningnum. Auk þess færðu
möppu fyrir pappíra reikningsins o.fl.
«■ •'
Laugardagur 9. júlí 1988
Tíminn 13
ÍÞRÓTTIR
Mánudagur:
1. d. kl. 20.00 Vikingur-ÍBK
1. d. kl. 20.00 Þór-KR
2. d. kl. 20.00 UBK-Fylkir
Fram-dagurinn verður á sunnudag.
Dagskráin verður með hefðbundnu
sniði. Leikir verða í yngstu flokkun-
um í knattspyrnu þ.e.a.s. í 5. flokki
og í 6. flokki, en Pollamót KSÍ í 6.
flokki fer að hluta til fram á Fram-
deginum, en reyndar einnig í dag.
Dagskráin á morgun hefst kl. 12.00,
en síðasta leik dagsins lýkur kl.
17.30. Glæsilegar kaffiveitingar
Fram-kvenna verða á boðstólnum
frá kl. 14.00.
Frjálsar íþróttir:
Bláskógaskokk HSK fer fram í
dag. Hlaupið er í þremur aldurs-
flokkum karla og kvenna, og boðið
er uppá tvær vegalengdir. 15,5
km .en þá er ræst við rimlahlið austan
Gjábakka og 5,5 km. en þá er ræst
við Vallalæk. Hlaupið hefst kl.
14.00.
Pá er Öldungamót á Eiðum, ung-
lingamót á Skagaströnd og héraðs-
mót á Húsavík, í Pétursey og hjá
UDN, á morgun verður síðan fjöl-
þrautarmót á Selfossi.
Golf:
Meistaramótum klúbbanna verð-
ur framhaldið um helgina, en þeim
lýkur á morgun.
Ibretti:
dag verður haldinn seglbretta-
dagur á Hafravatni, rétt utan við
Reykjavík. Tilgangurinn með þess-
um degi er að safna saman sem
flestum seglbrettaáhugamönnum og
koma þeim í kynni hverjum við
annan, auk þess sem almenningi
gefst kostur á að kynnast þessari
forvitnilegu og suðrænu íþrótt. Á
staðnum verður j úgóslavneskur segl-
brettakennari, sem hingað er kom-
inn til að halda námskeið hjá sigl-
ingaklúbbnumWogi í Garðabæ. Ef
veður og aðstæður leyfa, mun hann
leiðbeina almenningi um undir-
stöðuatriði íþróttarinnar. Aðstand-
endur dagsins skora á alla seglbretta-
eigendur og áhugamenn að mæta á
staðinn og gera hann sem skemmti-
legastan. Áætlað er að sem flestir
verði komnir út á vatn upp úr hádegi.
Skíði:
Já, skíði um mitt sumar, því
hjólaskíðaboðgöngu landsliðsins í
göngu, sem hófst á fimmtudag verð-
ur fram haldið um helgina og lýkur
ekki fyrr en á þriðjudag. Alls verða
gengnir 1500 km og skiptast menn á
um að ganga. Tilgangurinn er í senn
fjáröflun fyrir landsliðið og einnig
kynning á fþróttinni, en margir halda
að skíðagöngumenn liggi í dvala yfir
sumartímann, en svo er nú ekki.
Altobelli til
Juventus
Italski landsliðsmaðurinn Ales-
sandro Altobelli, sem nú er 32 ára
gamall, var fyrir helgina seldur til
Juventus, eftir 11 ára veru hjá Inter
Milano. Inter lét hann fara fyrirekki
neitt, en Altobelli hefur verið
óánægður hjá félaginu að undan-
förnu og oft þurft að verma vara-
mannabekkinn. Altobelli gerði eins
árs samning við kappann, með
möguleika áöðru ári. Altobelli hefur
leikið 61 landsleik fyrir ítali, nú
síðast í Evrópukeppninni í V,-
Þýskalandi, en þar lék hann sína
síðustu landsleiki. BL
Lands-
keppni við
Skota og
íra í dag
íslenska landsliðið í frjálsum
íþróttum keppir í dag í landskeppni
þriggja þjóða, semfram fer í Grang-
emouth (rétt utan við Edinborg) í
Skotlandi. Mótherjar íslendinga
verða heimamenn, Skotar, og
frændur okkar írar.
Það er harðsnúin sveit sem skipar
landslið íslands að þessu sinni og má
þar til nefna þá Einar Vilhjálmsson
og Sigurð Einarsson, sem keppa í
spjótkasti og Véstein Hafsteinson
og Eggert Bogason, sem keppa í
kringlukasti. Einar á reyndar við
smá meiðsli að stríða, en ætlar samt
að gera sitt besta fyrir íslands hönd.
Landsliðið er annars skipað eftir-
töldu íþróttafólki:
Kaitar.
Bessi Jóhannsson ........... 1500 m
Daníel Guðmundsson.... 3000 m hindr.
Eggert Bogason..........kringlukast
Egill Eiðsson .... 200 m 400 m gr.4x400 m
Einar Vilhjálmson....... spjótkast
Einar Þ. Einarson....4x100 m boðhl.
Frímann Hreinsson............. 5000 m
Guðmundur Karlsson ....sleggjukast
Guðmundur Sigurðs. . 400 m 800 m 4x400m
Gunnar Guðmundson . 200 m 4x400 m boð.
Gunnlaugur Grettisson......hástökk
Hannes Hrafnkelsson......... 800 m
Helgi Þ. Helgason ....... kúluvarp
Hjörtur Gíslas. . . . 400m gr llOm gr 4x400
Jóhann Ingibergsson ... 3000m hindr.
Jóhann Jóhannsson . lOOm 4xl00m boðhl.
Jón A. Magnússon .. lOOm 4xl00m langst.
Jón A. Sigurjónsson ...sleggjukast
Kristján Gissurarson..stangarstökk
Már Hermannsson............. 5000m
Oddur Sigurðsson. . . 400m 4x400m boðhl.
Ólafur Guðmundsson ..... langstökk
Ólafur Þórarinsson .......þrístökk
Pétur Guðmundsson........ kúluvarp
Sigurður Einarsson...... spjótkast
Sigurður T. Sigurðsson.stangarstökk
Steinn Jóhannsson........... 1500m
Unnar Vilhjálmsson . . . þrístökk, hástökk
Vésteinn Hafsteinsson...kringlukast
Konun
Birgitta Guðjónsdóttir.. spjótkast
Björg össurardóttir........ hástökk
Bryndís Hólm............ langstökk
Fríða Rún Þórðardóttir...... 1500m
Guðbjörg Gylfadóttir .... kúluv.kringluk.
Guðrún Arnard. . 200m 4xl00m 4x400m b.
Helga Halldórs. ... lOOm gr. 400m grínd.
......4x1 OOm boðhlaup 4x400m boðhlaup
Ingibjörg ívarsdóttir .... 400m gr 4x400m
írís Grönfeldt spjótkast.. kúluvarp
Margrét Brynjólfsdótir...... 3000m
Margrét Óskarsdótir.....krínglukast
Marta Emstdóttir............ 3000m
Oddný Árnadóttir . 400m 4x400 boðhlaup
Rakel Gylfadótir ...... 800m 1500m
Súsanna Helgad. . lOOm 4xl00m langstökk
Svanhildur Krístj.d. 200m 4x1004x400
Unnur Stefánsdóttir ......... 800m
Þórdis Gísladóttir .lOOm gr.. hástökk
Þjálfarar eru Eyjólfur Magnússon
og Gunnar Páll Jóakimsson og Helga
Alfreðsdótir. BL
Sektirnar
staðfestar
Enska knattspyrnusambandið
hefur staðfest dóm yfir 9 leikmönn-
um bikarmeistara Wimbledon, en
þeir voru sektaðir um 750 pund
hver, fyrir að viðra á sér óæðri
endann í minningarleik í maí sl.
Einnig var staðfest að Wimbledon
þarf að greiða 5 þúsund pund í sekt
fyrir athæfi leikmannanna. BL
%
,5QreVt»s*u
FYRlálJ
wk,<u****.
»00.00°
50-0°°_
yLOOO
IR stGUKPSSON
„ÖRNSBOVnR
, ÖRN W.VNVOUSSON
..--r
iwviyyy* \ •
261062-25" i
1110*100-2579'
08055>2’59 ....]
\ 130455-0009
\ »5096^3/29
1 210239-3349
•»5.000
13.000
H3.000
■ ábahhUt
KytwUÖ y^’
RSK6.06
STAÐGREÐSLU
BERAÐ
SUNDURUÐA
og skila mánaðariega
Launagreiðendum ber að skila
sundurliðun á staðgreiðslu opinberra
gjalda launamanna. Sundurliðuninni ber
að skila mánaðarlega með skilagrein
vegna launagreiðslna fyrir næstliðinn
mánuð.
Heimilt er að senda útskrift úr launa-
bókhaldi launagreiðanda, þar sem fram
koma sömu atriði og krafist er á sundurlið-
unaryfiriiti.
Eyðublað fyrir sunduriiðun verður sent
launagreiðendum mánaðarlega. Skil
vegna reiknaðs endurgjalds eru óbreytt.
Gjalddagi skila er 1. hvers mánaðar.
Ekki er nægilegt að greiða greiðsluna í
banka eða póstleggja hana fyrir eindaga.
Greiðslan þarf að berast skrifstofu inn-
heimtumanns í síðasta lagi á eindaga.
Greiðslur sem berast eftir það munu sæta
dráttarvöxtum. Póstleggið því greiðslur
tímanlega.
-Skilið tímanlega -forðistörlröð
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI