Tíminn - 09.07.1988, Blaðsíða 18
18" Tíminfrí
Laíigárdagur 9'.julí'’Í98á"J
Verð frá
kr. 89-101 -133 þús.
KAUPFELOGIN
Verð frá kr. 88 þús.
KAUPFÉLÖGIN
ARMULA3 REYKJAVIK SlMI 38900
Útboð
Vesturlandsvegur í Mosfellsbæ 1988
''/'V/M W Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint ' verk. Um er að ræða gerð tveggja hringtorga og undirganga fyrir fótgangandi umferð. Verki skal lokið 1. október 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 12. júlí n.k. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þann 25. júlí 1988.
Vegamálastjóri
Endurreisn laxa-
stofnsins í Thamesá
í hinni frægu Thamesá sem rennur gegnum London, enda
oft nefnd Lundúnaáin, er hafið laxræktarstarf sem menn
vonast eftir að skili góðum árangri á næstu árum
Thamesá var áður fyrr þekkt lax-
veiðiá, en iaxastofninn varð meng-
uninni að bráð á sínum tíma, eins og
fleiri þekktum laxveiðiám í Evrópu.
Það mun hafa verið um 1957, að
athugun leiddi í ljós, að fiskur fannst
ekki í ánni á 30 mílna löngu svæði,
ef undan er skilinn áll. Nokkrum
árum seinna var hafist handa um að
draga úr mengum á svæðinu og
innan fárra ára urðu menn varir við
að fiskur var kominn á fyrrgeinda
svæðið, fyrst og fremst ýmsir sjávar-
fiskar. Og fyrir nokkrum árum hófst
fyrir alvöru endurreisn iaxastofnsins
í ánni. Því starfi hefur miðað nokkuð
áleiðis, því lax er farinn að ganga
á ný í ána, þó í litlum mæli sé enn
sem komið er, og þá af seiðum sem
sleppt hefur verið í svæðið.
Nýlega voru stofnuð á Englandi
samtök, Thames Salmon Trust, til
að gera ána að laxveiðiá að nýju.
Stefna samtökin að því að árið 1991
gangi í ána um 1000 laxar úr sjó.
Ætlunin er einnig að opna laxi leið
um 26 stíflur á ársvæðinu og byggja
klakstöð við ána, svo að laxinn
aðlagist svæðinu.
Seinustu sjö árin hafa rannsóknir
verið framkvæmdar á ósasvæði
Thamesár reglubundið, m.a. efna-
innihald vatns. Jafnframt hefur verið
unnið að því að minnka mengun á
svæðinu. Talið er að nú sé tímabært
að búast við því að laxinn geti hrygnt
í ánni og náttúrulegur stofn orðið
þar til að nýju. t>á verður komið fyrir
fiskteljara svo unnt verði að fylgjast
með laxagengd í ána. eh.
Öflugri laxeldis-
rannsóknir tryggðar
Nýlega úthlutaði Rannsóknarráð
ríkisins styrkjum til ýmiskonar fisk-
eldisrannsókna, sem margir aðilar
fengu hlutdeild í. AIls hlutu laxeldis-
rannsóknir og skyld verkefni um
12,6 millj. kr., samkvæmt upplýsing-
um í Fréttabréfi ráðsins, sem var að
koma út.
Hagkvæmari göngu-
seiðaframleiðsla
Verkefni varðandi stærð sjó-
gönguseiða laxa í hafbeit hlaut 2
millj. kr. styrk, er kom í hlut dr.
Vigfúsar Jóhannssonar, Veiðimála-
stofnun ofl. og rannsókn vegna þró-
unar aðferða til að greina nýrnaveik-
issmit í laxfiskum fékk tæplega 1,2
millj. kr. í styrk. En fyrir þessu
verkefni standa dr. Eva Benedikts-
dóttir, Sigríður Guðmundsdóttir og
Sigurður Helgason, Tilraunastöð
Háskólans í meinafræðum að
Keldum.
Tálknveiki og
tilraunir með súrefnisgjöf
Þá voru veittar til könnunar á
tálknveiki í laxaseiðum 2 millj. kr.,
en verkefni þetta er í höndum Sig-
urðar Helgasonar, Tilraunastöð
Háskólans í meinafræðum að Keld-
um og til rannsókna á endurheimtum
laxa úr sjó Norðanlands var veittur
styrkur að fjárhæð 1 millj. kr., og
að því standa dr. Tumi Tómasson,
Viðimálastofnun og Veiðifélag Mið-
firðinga í Húnavatnssýslu. Þá var
sömuleiðis veittur styrkur að fjárhæð
0,5 millj. kr. til rannsóknar með
súrefnisgjöf, lfotun á sjó vegna fisk-
eldis, sem þeir Júlíus B. Kristins-
son, Sigurður Magnússon og Logi
Jónsson standa fyrir.
Stórseiðaeldi
og geldstofnaleit
Þá var styrkt svokallað samræmt
verkefni með 6 millj. kr. er varðar
stórseiðaeldi, sem er verkefni Jónas-
ar Jónassonar, Laxeldisstöðvar
ríkisins í Kollafirði ofl, Líffræði-
stofnunar Háskólans ofl., sem vinna
að framleiðslu hrygnustofna og geld-
stofna í fiskeldi og Björn Þ. Bjöms-
son vegna rannsókna með vaxtar-
hormón stórseiða.
Rannsóknarráð gerði ráð fyrir
samhæfingu á umsóknum á sviði
fiskeldis í þeim tilgangi að hraða leit
eftir aðferðum til að flýta eldi laxins
og koma í veg fyrir ótímabæran
kynþroska hans, eins og seinastnefn-
da styrkveitingin ber með sér. Kom-
ið hefði í ljós að þetta væri mikið
vandamál í laxeldi hér á landi.
eh.