Tíminn - 09.07.1988, Blaðsíða 15

Tíminn - 09.07.1988, Blaðsíða 15
Laugardagur 9. júlí 1988 Tíminn 15 • UTLÖND illllilí Harmleikurinn á Norðursjó: 166 létu lífið Ekkert lát virðist ætla að verða á grimmilegum sprengitilræðum á Norður-írlandi. I fyrrakvöld létust þrír í sprengjutilræði. Breskir her- menn eru vinsælt skotmark IRA manna. Hér fylgist einn þeirra með jarðarför í fjarlægð. Norður-írland: Þrír létust Hundrað sextíu og sex menn létu lífið í harmleiknum á Norðursjó þegar sprenging varð í olíuborpallin- um Alpha Piper í fyrradag. Aðeins sextíu og fjórir menn komust lífs af. Sautján lík höfðu fundist um miðjan dag í gær, en Ijóst er að fæstir mannanna áttu nokkurn möguleika á að forða sér, enda varð sprengingin undir íbúðaálmu borpallsins og flest- ir starfmannanna í fasta svefni. Margir þeirra ér björguðust þurftu að stökkva í sjóinn úr sextíu metra hæð og slösuðust þeir flestir við stökkið. Eldtungur stigu enn upp af bor- Það eru margar ástæður fyrir því að spariskírteini ríkissjóðs eru einn vænlegasti kostur sparifjáreig- enda í dag. Spariskírteini ríkissjóðs eru einföld og jafnframt ein öruggasta ávöxtunarleið, sem völ er á. Spariskírteinin eru verðtryggð, sem kemur í veg- fyrir að sparifé þitt rýrni og bera auk þess allt að 8,5% vexti. Og ekki má gleyma að spariskírteinin eru tekju- og eignaskattsfrjáls eins og sparifé í bönkum. Spariskírteini ríkissjóðs eru því án efa rétti kosturinn fyrir þig. Verðtryggð spariskírteini til sölu núna: pallinum um miðjan dag í gær og er sjórinn í kringum hann þakinn olíu á stóru svæði. Sex olíuborpöllum á svæðinu í kringum Alpha Piper hefur nú verið lokað um stundarsakir. Það hefur orðið til þess að olíuverð á heims- markaðsverði hefur hækkað all- nokkuð. Telja sérfræðingar að olíuverð muni haldast hátt ef bor- pallarnir komast ekki fljótlega í gagnið á ný. Þá er íjóst að slysið mun hafa alvarleg áhrif á efnahagslíf Bretlands. Sparifé þiflt rýrnar eklci ef þú fjárfestir spariskírte* ríkissjóðs FATAFELLUM HALDIÐ FRÁ GUINNESS Ritstjóri heimsmetabókar Guinness hyggst halda tveimur fatafellum sem settu met ■ maraþon fatafellusýningum utan bókar. David Boem sem er ritstjóri Ameríkudeildar hcimsmctabókarinnar sagði að kaflinn um heimsmet í fatafellusýningum yrði numinn á brott í næstu útgáfu bókarinnar, þar sem hér væri um klám að ræða. Ber þessi ákvörðun keim af hinum skinheilögu samtðkum „Moral majority“ sem ýtt hafa nöktum brjóstgóðum stúlkum af síðum Playboy með aðgerðum sínum. Fatafellurnar tvær, hin tuttugu og átta ára Newcomb Munt og hin tuttugu og tveggja ára Delane Balliot, höfðu klætt sig í 432 skipti úr nærklæðnaði á 72 klukkustundum. Er það heimsmet. I ísprengingu við sundlaug Þrír Iétu Iífið í tveimur sprengju- tilræðum við innisundlaug í kaþólska hluta Belfast á Norður-írlandi í fyrrakvöld. Fyrri sprengjan sprakk rétt utan við útveggi sundlaugarinn- ar sem var troðin af fólki, þar af fjölda barna. Tuttugu og þriggja ára maður lést nokkrum mínútum eftir að hann var fluttur á sjúkrahús og sextug kona lést af sárum sínum nokkrum klukkustundum síðar. Auk þeirra slösuðust fjórir aðrir, þar af ein fjögurra ára stúlka. Seinni sprengjan sprakk við sund- laugina klukkustund seinna og var henni greinilega beint gegn lögreglu og hermönnum sem voru að hreinsa til eftir sprenginguna. Einn hermað- ur lést í þeirri sprengingu. Enginn hefur lýst ábyrgð á hendur sér vegna þessa illvirkis. í síðustu viku særðist unglingsstúlka alvarlega þegar sprengja sem IRA hafði kom- ið fyrir undir skólabíl sprakk. Hafði sprengjunni verið beint gegn bíl- stjóra skólabílsins. Þá létust sex breskir hermenn í sprengjutilræði um miðjan síðasta mánuð eftir að þeir þeir höfðu tekið þátt í góðgerðahlaupi. FLOKKUR LÁNSTÍMI ÁVÖXTUN GJALDDAGI l.fl. D 3 ár 8,5% 1. feb.’91 l.fl. A 6/10 ár 7,2% l.feb.’94-’98 Ávöxtun ríkisvíxla er nú allt aÖ 43,13% á ári. Nú eru forvextir á ríkisvíxlum 34,3% sem jafngildir 43,13% eftirá greiddum vöxtum miðað við 90 daga lánstíma. Ríkisvíxlar eru örugg og arðbær leið til að ávaxta skammtímafjármuni. Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka íslands og hjá Iöggiltum verðbréfasölum, sem m.a. eru við- skiptabankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í Seðlabanka íslands. Einnig er hægt að panta þá þar, svo og spariskírteinin, í síma 91-699863, greiða með C-gíróseðli og fá víxlana og spariskírteinin síð- an send í ábyrgðarpósti. RÍKISSJÓÐUR ÍSIANDS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.