Tíminn - 02.07.1988, Page 9

Tíminn - 02.07.1988, Page 9
Laugardagur 2. júlí 1988 HELGIN 19 AMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Anthony Glebe uppgötvaði loks að Sandra var alls ekkert ástfangin aT honum. aði ekki lengur, hélt hún dauðahaldi í Anthony Glebe, þó ekki væri nema til að fá svolitla tilbreytingu í hvers- dagslífið. Um jólaleytið gafst hún ujtp á skollaleiknum, hringdi til Richards Pearse til að reyna í síðasta sinn að fá hann til að skipta um skoðun. En hann vísaði henni á bug og slengdi tólinu á símann. Vegna hringingar- innar varð hann að skýra málið fyrir konu sinni, Maureen. Hún vildi fá að vita, hvað á seyði væri. Síðdegis sama dag, 28. desember 1987, lét Sandra niður í ferðatösku og klæddi syni sína, Marcus og Anthony. Hún sagði manni sínum, að hún kærði sig ekki um að búa með honum lengur, hún væri farin fyrir fullt og allt. Hann bað hana um að vera, en hún harðneitaði því. Skammaðist sín Hún fór beina leið til Anthonys Glebe, sem bjó í tveggja kílómetra fjarlægð. Hann var bæði hissa og glaður, þegar hún birtist, en hún sagði honum að hún gæti ekki búið með manni sínum lengur og vildi flytja til hans í staðinn. Anthony sá að Sandra var full örvæntingar, svo hann mótmælti ekki að sinni. Hins vegar var aug- ljóst, að ekki var rúm fyrir þau öll fjögur í íbúðinni hjá honum, sem var bara tveggja herbergja. Þegar drengimir voru háttaðir, settust skötuhjúin fram í stofu og fengu sér í glas. Brátt urðu bæði kennd og áfengið losaði sannarlega um málbeinið á Söndm. Hún byrjaði á að formæla Richard Pearse og þegar Anthony spurði, hver það væri eiginlega, tilkynnti Sandra, að eiginlega væri hún ástfangin af öðr- um manni. Hann héti sem sagt Richard Pearse og væri faðir yngri. sonar hennar. Hins vegar vildi hann hvorki sjá hana né drenginn. Vitanlega fauk í Anthony Glebe, við að komast að því að hann var ekki efstur á listanum. Áfengið bætti ekki úr skák og hann æsti sig upp og hrópaði að Söndru: - Svo kemurðu hingað og ætlast til að ég sjái um þig og bömin, þó að þú kærir þig ekki hið minnsta um mig. - Já, svaraði Sandra ósköp blátt áfram. - Ég varð að koma hingað, en ég skammast mín hræðilega fyrir þetta allt saman, Tony. Hver er sannleikurinn? Anthony stóð upp úr stólnum og var nú orðinn alvarlega reiður. Hann sló Söndm í andlitið, svo gleraugun hentust út í vegg. Hann lét það sér þó ekki nægja. Fyrsta höggið losaði bara um reiðina og áfengið gerði hann hömlulausan. Hann barði og barði eins og hann gat, en gerði sér loks ljóst, að Sandra lá örend á gólfinu við fætur hans. Nágrannarnir í íbúðinni við hlið- ina höfðu heyrt örvæntingarópin og hringt til lögreglunnar, sem kom bráðlega. Anthony opnaði og hleypti lögreglumönnunum mót- þróalaust inn. Hann sagði ekkert, horfði bara þögull á er þeir gengu inn og fundu líkið á stofugólfinu. Anthony var handtekinn þegar í stað, en lögreglan tók börnin í sína umsjá og voru þau síðan fengin John Mallow, löglegum föður sínum, til umráða. Allt benti til að um væri að ræða morð að yfirlögðu ráði í bræðiskasti. En þegar niðurstaða krufningar lá fyrir, kom í ljós að Sandra hafði verið komin tæpa fjóra mánuði á leið. Gat verið að það væri ástæðan fyrir morðinu? Lögreglan taldi ekki útilokað að Anthony hefði myrt Söndm af ásettu ráði, þegar hún tilkynnti honum að hún væri ófrísk. Nú reið á að vita, hver faðirinn var. John Mallow viðurkenndi, að hann hefði ekki haft mök við konu sína mánuðum saman og Richard Pearse sór að hann hefði ekki komið nálægt henni kynferðislega síðan sumarið 1987. Þar með var talið liggja ljóst fyrir að Anthony Glebe væri faðir ófædda barnsins. Verjandi hans heldur því fram, að hann mundi aldrci hafa drepið Söndm, hefði hann vitað að hún gengi með barn hans. Því er spum- ingin hvort kviðdómur trúir honum, þegar hann heldur því fram að hafa ekki haft hugmynd um þunga Söndm. Verði honum trúað, er líklegt að hann verði dæmdur fyrir manndráp af gáleysi í bræðiskasti, sem orsakaðist af því að Sandra storkaði honum með því að tala um tilfinningar sínar til fyrri elskhuga. Þá sleppur hann með fimm ára fangelsi. Verði honum ekki trúað, erlíkleg- ast að hann fái lífstíðarfangelsi. Það á eftir að koma í ljós. NÝTT MET VIÐ ÚTHLUTUN HÖFUNDARLAUNA I LANDSBANKANUM: KIÖRBÓKAREIGENDUR FENGU RUMLEGA UPPBÓT NÚ 250 MILUÓNIR í UM MÁNAÐAMÓTIN Kjörbókareigendur hafa gilda ástæöu til þess aö vera ánægðir með uppáhaldsbókina sína. Kjörbókin hefur staöið af sér misvindagengisfellinga og verðbólgu og skilar nú eigendum sínum yfir 250 milljónum króna í uppbót fyrir síðustu 3 mánuði vegna verðtryggingarákvæðisins. Raunávöxtun Kjörbókarinnar á fyrri helmingi þessa árs samsvarar því 8,2 til 10,2% á ári. Nafnvextir Kjörbókar eru nú 36%. Afturvirka^Q mánaða þrepið gefur 37,4% og 24 mánaða þrepið 38%. Ársávöxtun er því allt að 41,6%. Svo má ekki gleyma því að Kjörbókin er óbundin og ávöxtunin fer ekki eftir upphæð innstæðunnar. Kjörbók Landsbankans er góð bók fyrír — Landsbanki L Islands Banki allra landsmanna

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.