Tíminn - 02.07.1988, Page 10

Tíminn - 02.07.1988, Page 10
20 1 HELGIN 5 ^ j lllll ÍTÍMANSRÁS - ' , lllllllllllllllllllllllí A F LÖXUM Halkto’sson: • Laugardagur 2. júlí 1988 KNÖTTUM OG KARLMENNSKU „Það er komið sumar/sól í heiði skín/vetur burtu farinn... orti Magnús mannakorn Eiríksson um árið. Og víst er um það að loksins virðist sumargyðjan hafa skotið sínum rótum um allt land eftir þungbúna vordaga sunnanlands og vestan. Sóldýrkendur norðan- lands og austan eru raunar nú þegar búnir að fá dágóðan skammt af sólargeislum. En hvað um það, nú virðist ríkja jöfnuður milli landshluta í útdeilingu sólarguðs- ins. Því eru allir sáttir við sitt og enginn kvartar. Sumarið er tími athafna hjá stórum hluta landsmanna. Sumir liggja þá einfaldlega í leti. En aðrir stunda sín áhugamál meir en góðu hófi gegnir. Svo er um margan laxveiðimanninn sem bíður lon og don á árbakkanum eftir þeim stóra vitandi það að sú bið er tölfræði- lega út í hött. En biðin er vitaskuld réttlætt með því að þarna séu menn í náinni snertingu við náttúr- una og njóti ómengaðs íslensks fjallasúrefnis. Einhver laug því í mig að lax- veiðimenn, sem NB eru að lang- stærstum hluta karlmenn, fái útrás fyrir stolt sitt, karlmennskuna, standandi fram á árbökkum. Mér er að vísu ómögulegt að greina hið karlmannlega við þessa iðju, nema væri sá fylgifiskur veiðanna að þræða lifandi ánamaðka upp á öngla. Til slíkra meiðinga þarf vitaskuld áræðni og hreysti. En það kvað einnig vera í hæsta máta karlmannlegt að vera klæddur svokallaðri „kamoflass“ dragt, sem á íslensku er skilgreind sem ein- skonar felufatnaður. Og þá er Allistaverkið fullskapað þegar stæltur karlmaðurinn, klæddur í „kamoflass" og vopnaður fleiri _ metra flugustöng af ORVIS-gerð, stendur bísperrtur út í miðjum laxveiðifossinum og gerir sig líkleg- an til þess að húkka þann stóra. En karlmennskan kemur víðar við en í laxveiðinni. Knattspyrnu- völlurinn og áhorfendastæði virð- ast vera ákjósanlegir griðastaðir fyrir fyrirbærið. Þar fara menn semsagt hamförum í karlmennsk- unni. Inn á vellinum láta menn sparka sig niður, steinliggja og reyna að láta svo líta út að þeir séu stórslasaðir, kalla á sjúkraþjáifar- ann, sem kælir þá umsvifalaust niður með ísjaka, karlmennirnir standa á fætur, brosa og veifa til sinna áhangenda, einkum þeirra örfáu kvenmanna sem eru í áhorf- endastæðunum. Og uppi í stúkunni brýst karl- mennskan fram í allri sinni dýrð hjá mestu friðsemdarmönum. Þeir öskra, óskapast yfir því hve þeirra menn séu alveg vonlausir niðri á vellinum. „Drulluhakkastu í vörn, þarna flatbeljan þín, þaðætti nú að senda þig norður á Jan Mayen í afvötnun," er frasi sem ég heyrði á dögunum þá er ég ákvað að gerast karlmannlegur og skunda á leik í fyrstu deildinni í fótbolta. Svei mér ef karlkyns áhorfendurnir á þess- um leik umturnuðust ekki. Ég gat ekki betur séð en að gömlu ístru- kallarnir umhverfðust allra mest. Þeir hrópuðu hin ægilegustu vígorð, hvöttu sína 11 menn inni á vellinum með níði eða hvatningar- orðum á víxl, allt eftir því hvernig gaf á bátinn. Ég hef oft reynt að finna skýring- una á því af hverju karlmennskan springur svona skemmtilega út hjá áhangendum knattspyrnuliða. í stuttu máli sagt hef ég ómögulega getað fundið fullnægjandi skýr- ingu, a.m.k. enn sem komið er. Þó hef ég látið mér detta í hug að skýringa sé að leita í því að menn séu með þessu að fá útrás fyrir innbyggða óánægju vegna yfir- gangs og kúgunar eiginkonunnar í túninuheima. Karlmennirnirmega gjöra svo vel að ryksuga, vaska upp, gefa kettinum og vökva blómin. Sumum finnst auðvitað ekkert nema sjálfsagt að vinna þessi verk, öðrum heimilisfeðrum finnst sér vera misboðið með slík- um verkum. En þeir þora þó ekki að mótmæla af ótta við harkalegar mótaðgerðir eiginkonunnar. Þess í stað fara þeir í fýlu á völlinn, byggja sig upp fyrir erfiði næsta vinnudags með því að fá útrás með því sem karlmannlegt er, að öskra. GETTU NU Staðkunnugir lesendur Tím- ans hafa eflaust strax áttað sig á Hafnarfjarðarkirkju í síðasta helgarblaði. Við höldum okkur við guðs- húsin og birtum hér mynd af nokkuð sérstakri kirkju, sem Gunnar Ólafsson, skipulags- stjóri Reykjavíkurborgarteikn- aði. Hún var vígð í maí árið 1966 og er því nýorðin tvítug. Kirkjan er öll klædd furu að innan, þ.m.t. altari og predik- unarstóll. Hún tekur 150 manns í sæti en einnig er rými fyrir kirkjugesti á sönglofti. KROSSGÁTA

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.