Tíminn - 16.08.1988, Blaðsíða 10

Tíminn - 16.08.1988, Blaðsíða 10
j 10 Tíminn 11» t i ■ ■ Þriðjudagur 16. ágúst 1988 Þriðjudagur 16.r águst 1988 'Tíhiinn ’1í ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR Knattspyrna: Yfirburðir KA-manna Frá Jóhanncsi Bjarnasyni á Akur- cyri: KA-mcnn þurftu ekki að sýna neinn stórleik til þess að bera sigur- orð af ótrúlega slökum KR-ingum. Góð barátta heimamanna og stíf völdun slógu gestina alveg útaf lag- inu. Erlingur Kristjánsson fyrirliði KA kom sínum mönnum á sporið á 20. mín. þegar hann potaði knettin- um inn eftir langt innkast Þorvaldar Örlygssonar og Þorvaldur skoraði síðan annað markið með þrumuskoti frá vítateig, skömmu fyrir hlé. KR- ingar áttu ekki skot á markið allan fyrri hálfleikinn. í síðari hálfleik hélt sama sagan áfram, heimamenn áttu færin og skoruðu úr einu þeirra, er Anthony Karl Gregory skallaði fallega inn, fyrirgjöf Arnars Bjarnasonar. Stefán Arnarson markvörður KR varði síð- an vítaspyrnu frá Erni Arnarsyni, áður en KR-ingar skoruðu úr eina færi sínu í leiknum. Gunnar Odds- son skoraði auðveldlega eftir fyrir- gjöf Ágústs Márs. KA-menn börðust vel, með þá Jón Kristjánsson, Steingrím Birgisson og Anthony Karl Gregory í fararbroddi, en allt KR-liðið átti afleitan dag. „Þetta var óvenju sætur sigur, þar sem okkur hefur alltaf gengið afleitlega á móti KR, þeir voru mjög slakir, en ekkert lið er sterkara en andstæðingurinn leyfir,“ sagði Erlingur Kristjánsson fyrirliöi KA eftir leikinn. Markaregn á Akranesi Skagamenn sigruðu Þórsara á Skaganum í miklum markaleik. Bjarni og Gunnar koma í leikinn gegn Svíum Sigi Held, landsliðsþjálfari í knatt- spyrnu, liefur valið landsliðshópinn sem mætir Svitiin á l.augardalsvelli á fimmtudag. Hópinn skipa eftirtaldir leikmenn: Markverðir: Bjarni Sigurðsson ...........Brann Guðmundur Hreiðarsson . Víkingi Aðrir leikmenn: Arnljótur Davíðsson ........Fram Atli Eðvaldsson ................Val Guðni Bergsson .................Val Gunnar Gíslason................Moss Halldór Áskelsson...............KA Ólafur Þórðarson ............... IA Omar Torfason...............Fram Pétur Arnþórsson ...........Fram Pétur Ormslev ..............Fram Ragnar Margeirson ........ÍBK Sævar Jónsson ...............Val Viðar Þorkclsson...........Frain Þorsteinn Þorsteinsson .... Fram Þorvaldur Örlygsson ........KA Atvinnumenn íslands, aðrir en Gunnar Gíslason og Bjarni Sigurðs- son, fengu sig ekki lausa í þennan leik. ____ Leikurinn hefst á Laugardalsvelli á fimmtudagskvöld kl. 18.30. BL Vegna breytinga á leikn- um hefur sala á margra vikna Lottómiðum verið felld niður um sinn. Sala þeirra hefst á nýjan leik 5. september n.k. Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111 Halldór Áskelsson kom Þór yfir á 8. mín. en Alexander Högnason jafn- aði fyrir Skagamenn fyrir hlé. Áðal- steinn Víglundsson skoraði síðan í síðari hálfleik fyrir ÍA og Haraldur Ingólfsson bætti þriðja markinu við stuttu síðar. Júlíus Tryggvason minnkaði muninn úr víti fyrir Þórs- ara, en Sigursteinn Gíslason bætti fjórða markinu við fyrir ÍA. Júlíus Þórsari átti síðan síðasta orðið og lokatölurnar urðu 4-3 fyrir ÍA. Víkingssigur á Ólafsfirði Frá Erni Þórarinssyni fréttamanni Tímans: Ólafsfirðingar biðu ósigur í hinum þýðingarmikla fallbaráttuleik við Víkinga á Ólafsfirði í gærkvöld. Úrslitin urðu 1-0 og er nú útlitið orðið dökkt fyrir norðanmenn sem þarna töpuðu sjötta leiknum í röð í 1. deild, leik scm þeir þurftu nauð- synlega að vinna. Það var mikil barátta í leiknum, en oft á tíðum minni knattspyrna. Bæði lið gerðu sér fulla grein fyrir hve þýðingarmikil leikurinn var og börðust á fullu. Eina mark leiksins kom á 75. mín. Þá náðu Víkingar góðri sókn, Hlyn- ur Stefánsson átti fyrirgjöf inná víta- teig, þar sem Björn Bjartmarz tók snyrtilega við knettinum og skoraði. Víkingar áttu heldur meira í leiknum, þeir sóttu meira í fyrri hálfleik. þá fékk Andri Marteinsson ágætt færi, en Gústaf Ómarsson náði að bjarga á síðustu stundu. I síðari hálflcik sóttu Ólafsfirð- ingar meira, en sköpuðu sér ekki vcruleg merktækifæri, en áttu nokkur langskot, en Guðmundur Hreiöarsson markvörður Víkings stóð vel fyrir sínu að þessu sinni. Víkingar áttu af og til hættuleg skyndi- upphlaup og fengu dauðafæri á síðustu mín, leiksins, er Björn Bjartmarz lék á tvo varnarmenn Leifturs og síðan Þorvald markvörð, en skot hans fór yfir mannlaust márkið. Þrátt fyrir að Víkingar sýndu ekki neitt sérstakt í leiknum, verður sigur þeirra að teljast sanngjarn. Sund: Eðvarð og Ragnar urðu Norðurlanda- meistarar Norðuriandamótið í sundi var háð í Osló um helgina. Þar urðu þeir Eðvarð Þór Eðvarðsson og Ragnar Guðmundsson Norður- landameistarar og þau Ragn- heiður Runólfsdóttir og Amþór Ragnarsson unnu einnig til verð- launa. Þá voru sett þrjú íslands- inet á mótinu. Eðvarð sigraði í 2(KI in bak- sundi á 2,09,17 nu'n. en annar varð Norðmaður á 2,10,21 inín. Norðmaðurinn sigraði síðan í 100 m baksundinu, en Eðvarð varð annar. Ragnar Guðmundsson setti tvö íslandsmet í 1500 m sundinu og varð Norðurlandameistari. Hann bætti eigið met ■ greininni og synti á 16,04,69 mín. hann setti einnig ísiandsmet í 800 m i þessu sundi, fékk millitimann 8,34,49 mín. Ragnheiður Runólfsdóttir önnur í 200 m bringusundi á 2,40,17 mín. og þriðja í 100 m bringusundi á 1,15,44 mín. Amþór Ragnarsson varð annar í 100 m hringusundi á 1,07,83 mín. Þá setti sveit íslands nýtt ís- landsmet í 4x100 m skriðsundi, synti á 3,41,98 mín. Þau Bryndís Ólafsdóttir og Amþor Ragnars- son náðu ekki Ólympíulág- niörkum á mótinu, en að því stefna þau bæði niarkvLsst. BL Knattspyrna: Sigurjón Kristjánsson Val, t.v. og Theodór Jóhannsson VöLsungi, t.h. í baráttu um knöttinn. Tímamynd Pjetur. Knattspyrna: Enn sigur hjá Fram Framarar voru ekki í vandræðum með Keflvíkinga í 1. deildinni á Laugardalsvelli í gærkvöld. Lokatölur leiksins 2-0 eftir markalausan fyrri hálfleik. Eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik áttu Keflvíkingar aldrei svar við góðum leik Fram í síðari hálfleik og mörkin tvö hefðu allt eins getað orðið fleiri. Fyrra markið kom á 54. mín. Arnljótur Davíðsson komst í gegnum vörn ÍBK, gaf á Guðmund Steinsson sem reyndi markskot, knöttur- inn stefndi nokkuð frá marki ÍBK, en lenti í Jóhanni Júlíussyni varnarmanni ÍBK og þaðan fór hann í netið, sjálfsmark og 1-0 fyrir Fram. Á 62. mín. bættu Framarar öðru marki við, Pétur Arnþórsson fékk knöttinn við hægra markteigshorn ÍBK, gaf háa sendingu fyrir á fjærstöngina, þar sem Ómar Torfason kom aðvífandi og hamraði knöttinn í netið með kollspyrnu, 2-0 fyrir Fram. Ómar var aftur á ferðinni stuttu síðar, en þá varði Þorsteinn Bjarna- son markvörður ÍBK. Þorsteinn bjargaði Keflvíkingum glæsilega á 72. mín. en þá varði hann frá Guðmundi Steinssyni. Enn héldu Framarar áfram að sækja og Arnljót- ur skaut framhjá á 75. mín, eftir að Pétur Ormslev hafði skallað knöttinn til hans inní markteiginn. Þeir Ormarr Örlygsson og Ómar Torfason áttu báðir hættuleg skot að marki ÍBK, undir lok leiksins, en skot þeirra rötuðu hvorugt á markið. Yfirburðir Fram voru miklir í leiknum, sem sést best á því að hér að ofan hefur ekki verið getið um nein færi sem Keflvík- ingum áskotnuðust í leiknum. Staða Fram Tennis: í toppi 1. deildar er einstök, þeir eru í algjörum sérflokki í deildinni. Liðin Fram: Birkir Kristinsson, Þor- steinn Þorsteinsson, ÓmarTorfason, Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson, Kristinn R. Jónsson, Pétur Arnþórsson (varam. á 79. mín. Jón Sveinson), Guðmundur Steins- son, Steinn Guðjónsson (varam. á 60. mín. Jón Sveinsson), Arnljótur Davíðs- son, Ormar Örlygsson. ÍBK: Þorsteinn Bjarnason, Jóhann Júlíusson, Guðmundur Sighvatsson, Daníel Einarsson, Einar Ás- björn Ólafsson, Árni Vilhjálmsson, Gestur Gylfason, Sigurður Björgvinsson, Grétar Einarsson, Ragnar Margeirsson (varam. á 79.mín. Jón Sveinsson), Óli Þór Magnús- son. BL Ulfur hafði yfirburði Úlfur Þorbjörnsson vann þrefaldan sigur á Islandsmótinu í tennis, sem haldið var á Víkingsvellinum ■ Fossvogi um helgina. Úlfur hafði mikla yfirburði á mótinu og sigraði nú þriðja árið í röð og vann þar með íslandsmeistarabikarana í einliðaleik karla, tvíliðaleik karla og í tvenndarleik til eignar. „Ég er í háskóla í Minnesota í Banda- ríkjunum og get æft tennis allt árið, ég keppi því ekki á jafnréttisgrundvelli hér heima, því hérna geta strákarnir aðeins æft 3-4 mánuði á ári,“ sagði Úlfur þegar hann var spurður hvemig stæði á yfirburðum hans, en hann vann úrslitaleikinn í einliða- leik, 6-0 og 6-0. „Það vantar innanhúss aðstöðu hérna, þannig að hægt sé að æfa allt árið, erlendis eru víða sett hvolfþök yfir tennisvelli, í Svíþjóð eru t.d. sett uppblásin belgþök yfir tennisvellina á vet- urna og tennisfólk æfir allan ársins hring“. Úlfur stundar nám í læknisfræði í há- skóla í Minnesota fylki í Bandaríkjunum og keppir fyrir skólann í tennis. Hann er reyndar aðaltennisleikari skólans og þegar náminu lýkur stefnir Úlfur að frekara læknanámi í Bandaríkjunum. Úrslit á fslandsmótinu í tennis urðu þessi: Einliðaleikur karla: 1. Úlfur Þorbjörnsson 2. Einar Ásgeirsson 3.-4. Jón Páll Gestsson 3.-4. Kjartan Óskarsson Tvíliðaleikur karla: 1. Úlfur / Atli Þorbjörnssynir 2. Kjartan Óskars./Einar Ásgeirss. 3.-4. Arnar Arinbj./Jón Páll Gests. 3.-4. Einar /Ragnar Óskarssynir Tvennadarleikur: 1. Margét Svavarsd./Úlfur Þorbjörns. 2. Dröfn Guðmundsd./Cristian Staub 3.-4. Guðrún S./Arnar Arinbjarnar 3.-4. Arna/Einar Ásgeirsson Einliðaleikur kvenna: 1. Margrét Svavarsdóttir 2. Dröfn Guðmundsdóttir 3. Stcinunn Björnsdóttir 4. Guðný Eiríksdóttir Tvíliðaleikur kvenna: 1. Margrét Svavarsd./Dröfn Guðmundsd. 2. Steinunn Bjömsd./Guðný Eiríksc 3.-4. Heiðbjört/Guðrú i 3.-4. Hildur A./Steingegðu Einliðaleikur stúlkna 14-16 ára: 1. Hrafnhildur Hannesdóttir 2. Úlfhildur Indriðadótir 3.-4. Anna Pála Stefánsdóttir 3.-4. Guðbjörg Ólafsdótir Einliðaleikur pilta 11-13 ára: 1. Fjölnir Pálsson 2. Gunnar Einarsson 3. Sigurður Bjarki Gunnarsson Einliðaleikur pilta 14-16 ára: 1. Jónas Páll Bjömsson 2. Stefán Pálsson 3.-4. Jóhann Öm Þórarinsson 3.-4. Eiríkur Önundarson Tvíliðaleikur pilta 14-16 ára: 1. Fjölnir og Stefán Pálssynir 2. Jónas Bjömsson/Ámi Ámason 3.-4. Eiríkur Ö./Teitur Jónasson 3.-4. Gunnar Stefánss./Heimir Herm. BL Úlfur Þorbjörnsson varð þrefaldur íslands- meistari í tennis um helgina. Tímamynd Pjelur. Létt h já Valsmönnum Valsmenn unnu öruggan sigur á Völsungum frá Húsavík, 3-1, þegar liðin mættust í 1. deildinni í knatt- spyrnu á Valsvellinum að Hlíðar- enda á sunnudagskvöld. Frá fyrstu mínútu leiksins var ljóst að Valsmenn þyrftu ekki að hafa mikið fyrir því að sigra Húsavíkurl- iðið, sem stefnir nú óðfluga aftur niður í 2. deild. Fyrsta markið kóm eftir 10 mín. leik. Vaiur Valsson lék upp vinstri kantinn og gaf góða sendingu fyrir markið á Sigurjón Kristjánsson, sem skoraði með föstu skoti af stuttu færi, 1-0 fyrir Val. Valsmenn héldu afram að sækja og á 29. mín. munaði minnstu að fyrir- gjöf Atla Eðvaldssonar, endaði í marki Völsunga, en knötturinn fór í slá og yfir. Stuttu si'ðar fengu Völs- ungar sitt besta marktækifæri í fyrri hálfleik. Eftir þunga sókn Völsunga kom þrumuskot að marki Vals, en varnarmaður komst á milli og ekkert varð úr. Á 37. mín. skoruðu Vals- menn aftur. Hilmar Sighvatsson gaf fyrir frá vinstri, einn varnarmaður Völsungs hætti við að stoppa knöttinn, hefur vafalaust haldið að Þorfinnur í markinu mundi ná knett- inum, en þrátt fyrir góða tilraun Þorfinns, þá tókst það ekki og Sig- urjón náði knettinum og renndi honum í autt markið, úr þröngu færi. Undir lok hálfleiksins varði Þorfinnur vel skot Guðmundar Baldurssonar. í síðari hálflcik héldu yfirburðir Valsmanna áfram. Á 5. mín. fékk Sigurjón sendingu innfyrir vörn Völsungs. Sigurjón, sem greinilega var rangstæður þegar sendingin kom, skaut föstu skoti að marki, Þorfinnur varði, en hélt ekki knettin- um og Tryggvi Gunnarsson, sem kom inná í fyrri hálfleik, þegar Yfirburðir Stjömunnar Stjarnan úr Garðabæ vann yflr- burðasigur á Víkverjum, 9-0, þegar liðin mættust í A-riðli 3. deildar í knattspyrnu á Stjörnuvcllinum á laugardag. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með leiknum í veðurblíðunni á laug- ardag, enda margt gert til skemm- tunar áStjörnudeginum, sem Stjörn- urnar tvær, útvarpsstöðin og íþrótta- félagið, stóðu fyrir. Leikurinn var í jafnvægi alveg þangað til vítaspyrna var dæmd á Víkverja eftir um 10 mín. leik. Árni Sveinsson fyrrum landsliðsmaður af Akranesi tók spyrnuna og skoraði með þrumuskoti. Þar með var sem flóðgáttir opnuðust á vörn Víkverja og Stjarnan skoraði að vild. í hálfleik var staðan orðin 5-0, og hafði Árni gert 3 markanna, tvö úr vítaspyrn- um, Svcinbjörn Hákonarson gerði 1 og fimmta markið gerði Ingólfur Ingólfsson. í síðari hálfleik bættu þeir Sveinbjörn, Ingólfur, Birkir Sveinsson og Loftur Steinar Lofts- son við mörkum fyrir Stjörnuna, sem vann yfirburðasigur, 9-0. Stjarnan hefur nú góða stöðu í riðlinum eftir tap Grindvíkinga í Sandgerði á föstudaginn. Fátt getur því komið í veg fyrir að Garðabæjar- liðið léki í 2. deild að ári, en liðið á örugglega eftir að láta að sér kveða þar. Önnur úrslit í 3. deild: Grótta-ÍK 0-1 Afturelding-Leiknir R. 6-0 Þróttur N-Einherji 0-2 Sindri-Huginn 2-3 Reynir Á.-Magni 1-2 Hvöt-Dalvík 0-2 Úrslit í 4. deild: Skotfélag R.-Ernir 9-2 Ægir-Snæfell 1-2 Árvakur-Haukar 6-2 Ármann-Víkingur Ól. 2-0 Hveragerði-Léttir 4-0 Skallagrímur-Hafnir 2-0 Fyrirtak-Hvatberar 0-7 BL Þorgrímur Þráinsson varð að fara útaf meiddur í baki, fylgdi vel á eftir og skoraði þriðja mark Vals. Um miðjan hálfleikinn áttu þeir Sigurjón og Atli báðir, hörkuskot rétt framhjá marki Völsunga. Nú var sem Valsmenn slökuðu á og Völsungar færðust allir í aukana. Theodór Jóhannsson átti hörkuskot rétt framhjá á 78. mín. Ásmundur Arnarson sem komið hafði inná sem varamaður í síðari hálfleik, skoraði eina mark Völsungs á 85. mín. Hilnrar Sighvatsson átti misheppn- aða sendingu aftur á Guðmund markvörð, en Ásmundur komst á milli, lék á Guðmund og renndi kncttinum í autt markið, 3-1. Aðcins nrínútu síðar munaði litlu að Ás- mundur bætti öðru marki við, hann fékk knöttinn einn og óvaldaður f markteig Vals, skaut í markið, en Guðmundur Baldursson varði á undraverðan hátt. Þar með var 3-1 sigur Vals staðreynd. . Lcikurinn var lítið spennandi, enda mikill getumunur á liðunum. Hjá Val var Sigurjón góður svo og Atli, en maður hafði á tilfinningunni að hann gætTbæft töluvert við sig ef með þyrfti. Theodór Jóhannsson var einna frískastur Völsunga, traustur í vörninni og ógnandi þegar hann brá sér í sóknina. Liðin Valur: Guðmundur Bald- ursson, Þorgrímur Þráinsson (varam. á 37. mín. Tryggvi Gunnars- son), Sigurjón Kristjánssön, Magni Blöndal Pétursson (varam. á 61. mín. Einar Páll Tómasson), Atli Eðvaldsson, Sævar Jónsson, Guðni Bergsson, Hilmar Sighvatsson, Val- ur Valsson, Ingvar Guðmundsson, Guðmundur Baldursson. Völsung- ur: Þorfinnur Hjaltason, Helgi Helgason, Skarphéðinn ívarsson, Sveinn Freysson, Eiríkur Björgvins- son, Theodór Jóhannsson, Grétar Jónasson, Guömundur Guðmunds- son (varam. á 41. mín. Björn Ol- geirsson), Stefán Viðarsson (varam. á 61. mín.Ásmundur Arnars- son),Jónas Hallgrímsson, Snævar Hreinsson. BL Vinningstölurnar 13. ágúst 1988 Heildarvinningsupphæð: Kr. 3.926.768,- 1. vinningur var kr. 1.965.176,- - og skiptist hann á milli 4ra vinningshafa, kr. 491.294,- á mann. 2. vinningur var kr. 589.182,- og skiptist hann á 226 vinningshafa, kr. 2.607,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.372.410,- og skiptist á 5.967 vinningshafa, sem fá 230 krónur hver. Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111 Milljónir á hverjum Iaugardegi! Upplýsingasím>: 335111

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.