Tíminn - 16.08.1988, Blaðsíða 12

Tíminn - 16.08.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn .Tifitih- Þriöjudagur 16. ágúst 1988 Khartoum - Þúsundir ör- væntingarfullra íbúa Súdan reyndu í gær að hlaða garða meðfram Nílarfljóti, en vatns- magn í Níl er nú meira en það hefur verið í áraraðir. Stjórn- völd í Súdan, sem er eitt fáæk-, asta rfki Afríku, hafa farið fram ; á hjálp annarra þjóða vegna gífurlegra flóða í landinu að undanförnu. Opinberar tölur segja að 58 manns séu látnir, en óttast er að talan sé mun hærri. Um 2 milljónir manna eru heimilislausar. Osló - Arne Treholt sem I dæmdur var fyrir njósnir í þágu Sovétmanna, hefur tapað bar- áttu sinni fyrir endurteknum réttarhöldum. Að mati hæstar- réttar í Noregi er engin ástæða til að leyfa Treholt að flytja mál sitt aftur, en hann er talinn hafa verið einn besti njósnari Sov- étmanna á Vesturlöndum. Treholt sem er 45 ára gamall afplánar nú 20 ára fangelsis- dóm. London - Fyrirhuguð heim- sókn Sylvester Stallone til! London í næstu viku í þeim tilgangi að kynna nýju Rambo myndina sína, olli miklum deil-1 um í Bretlandi, þar sem einmitt nú er eitt ár liðið síðan ungurí maður gekk berserksgang í j bænum Hungerford í Englandi og myrti 16 manneskjur áður J en hann framdi sjálfsmorð. Washington - Skoðana- kannanir benda til þess að Panamabúar vilji kjörinn for- seta en telji jafnframt að ástandið í landinu sé ekki nógu gott til að réttlátar kosningar geti farið fram. Asuncion - Alfredo Stro- essner forseti Paraguay hóf nýtt fimm ára stjórnartímabil í gær en Ijúki hann því hefur hann setið i valdastól samfleytt síðastliðin 39 ár. Stroessner er nú 75 ára gamall. Beirút-Stjórnvöld í Líbanon undirbúa nú miklar öryggisráð-; stafanir vegna forsetakosning- anna í vikunni en hræðsla við vopnuð átök og skemmdarverk á kjörstöðum er mikil. Fjölmiðl- ar segja að allir hermenn hafi verið kallaðir úr leyfi og her- sveitir séu tilbúnar að takast á við óeirðir sem kunna að verða. Bangkok - Námsmenn sem staðið hafa fyrir óeirðun- um í Burma undanfarið hafa ! hug á að efna til frekari mót- J mæla til að krefjast lýðræðis, I erhafteftirstjórnarerindrekum. j Námsmennirnir eru sagðir j vera að undirbúa friðsamlegar mótmælaaðgerðir víðs vegar I um landið á morgun. New York - Eldur blossaði upp í Empire State bygging- unni í New York í gær, í annað skipti á þremur dögum. Eldur-. inn kom upp á 50. hæð en Sngin er 102 hæðir. Síð- j inn föstudag braust eldur I út á 82. hæð. Þá særðust 7 i slökkviliðsmenn og nokkrar i skemmdir urðu í húsinu. Ekki; lágu fyrir upplýsingar um slys né skemmdir vegna eldsins í, gær. Kabúl - Eldflaugum var varpað á Kabúl, höfuðborg Af- ganistans í gær, á meðan Najibullag forseti landsins til- kynnti fréttamönnum í utanrík- isráðuneytinu að afganski her- inn hefði náð héraðshöfuð- borginni Kunduz aftur af afgön- sku skæruliðasamtökunum Mujahideen. Talið er að sex manns hafi látist í árásinni. ÚTLÖND Stöðugar óeirðir í Suður-Kóreu: Námsmenn halda áfram kröfum um sameiningu landshlutanna Lögreglan í Suður-Kóreu handtók í gær 1200 mótmælendur sem kröfð- ust viðræðna við námsmenn í Norð- ur-Kóreu um sameiningu Suður- og Norður- Kóreu, nokkrum klukkust- undum eftir að Roh Tae-woo forseti landsins lagði fram tillögu um að hann fundaði með leiðtoga Norður- Kóreu, Kim II- sung. Ríkisstjórn Roh Tae-woos fyrir- skipaði lögreglu að koma í veg fyrir fund námsmannanna sem halda átti í landamærabænum Panmunjom, þar sem stjórnvöld telja að allar samningaviðræður varðandi hugsan- lega sameiningu norður- og suðurh- luta landsins verði að fara fram milli embættismanna og annarra fulltrúa ríkisins, ekki námsmanna. Námsmennirnir höfðu ekki ein- ungis haft hug á að ræða hugsanlega sameiningu landshlutanna, heldur jafnframt kröfu Norður-Kóreu- manna um að fá að halda hluta ólympíuleikanna hjá sér, en f>eir verða haldnir í næsta mánuði. Um 4000 námsmenn sem gerðu tilraun til að yfirgefa Yonsei háskól- ann í Seoul, til að ganga fylktu liði að landamærunum voru stöðvaðir af óeirðalögreglunni, sem réðst inn á háskólalóðina, að sögn sjónarvotta. Námsmennirnír báru fána sem þeir höfðu áritað með blóði sínu: Óeirðalögreglan beitti mikilli hörku við handtöku námsmannanna. „Sameinum Norður-og Suður-Kór- Vitnisegjalögreglunahafavarpað hörku við handtöku námsmann- eu.“ táragassprengjum og beitt gífurlegri anna. IDS Bróðir Najibullah vandar honum ekki kveðjurnar: „Var tilbúinn að fórna öllu“ Siddiqullah Rahi, yngri bróðir Najibullah forseta Afganistans fordæmdi bróður sinn harðlega á fréttamannafundi í Kabúl í gær, kallaði hann ósveigjanlegan harð- stjóra og sagði hann bera ábyrgð á dauða föður þeirra fyrir 5 árum. Yngri bróðirinn sem snéri baki við stjórn landsins og leitaði á náðir afganskra skæruliðasamtaka, Mujahideen á síðasta ári, lét þau orð falla á fréttamannafundi að útsendarar Najibullah hefðu drep- ið föður þeirra, er hann lá á sjúkrahúsi í Kabúl árið 1983. Hann ákærði bróður sinn jafn- framt fyrir að hafa látið ræna sér árið 1981, fyrir að hafa iátið fang- elsa sig árið 1986 auk þess að hafa ógnað fjölskyldu sinni stöðugt. „Najibullah var tiibúinn að fórna öllu, fjölskyldu sinni og föðurlandi fyrir eigin metnað og sjálfselsku," sagði Siddiqullah. Þetta var í fyrsta sinn sem Sidd- iqullah kom fram á opinberum vcttvangi eftir að hann kom til Pakistans frá Afganistan t síðustu viku, en hann hefur búið ásamt eiginkonu sinni og tvcimur börnunt meðal skæruliða í norðurhluta Af- ganistans undanfarið ár. f gær var liðinn sá tími sem Sovctmenn höfðu til að flytja á brott helming liðs síns frá Afganist- an. Hinn hlutinn vcrður að hafa yfirgcfið landið fyrir 15. febrúar á næsta ári. „Najibullah hefur oft lýst þvt yfir að cf ekki sé hægt að stjórna Afganistan án þess að Sovétmenn séu þar, þá sé alls ekki hægt að stjórna Afganistan," sagði Siddiq- ullah. Siddaqullah var sleppt úr fang- elsi í febrúar á síðasta ári og flúði á náðir skæruliðasamtaka Mujahi- deen í september. Hann sagði á fréttamannafund- inum aö hans helsti mctnaður væri að gerast hermaður Mujahideen, en talsmenn skæruliðasamtaka í bænum Peshawar í norðurhluta Pakistans töldu líklegra að hann mundi sækja um hæli á Vesturlönd- unt. IDS Viðræðum Jórdana og PLO lokið: Báðir aðilar ánægðir með niðurstöðurnar Forsvarsmenn Frelsissamtaka Pal- estínumanna, PLO, héldu til Kairó í gær, eftir fund þeirra með fulltrúum Jórdana vegna ákvörðunar Husseins konungs um að rjúfa öll tengsl við Vesturbakkann. „Við erum mjög ánægðir með niðurstöður viðræðnanna. Þær hafa sefað þá miklu hræðslu sem greip um sig meðal Palestínumanna eftir ákvörðun Husseins," er haft eftir talsmanni PLO. „Jórdanar hafa gefið loforð um að halda áfram allri þjónustu við íbúa Vesturbakkans sem verið hefur, auk þess sem við náðum samkomulagi varðandi stöðu Palestínumanna í Jórdaníu," sagði talsmaðurinn. Viðræðunum, sem voru þærfyrstu milli aðilanna síðan Hussein tók ákvörðun sína um að færa stjórn- sýslulega- og lagalega ábyrgð á nærri 850.000 íbúum Vesturbakkans á hendur PLO, var lýst sem heiðarleg- um og uppbyggjandi af báðum aðil- um. Sawt al-Shaab, dagblað í Amman, höfuðborg Jórdaníu, sagði að viðræðurnar myndu væntanlega hafa mikil og góð áhrif á tengsl Jórdanaog PLO í framtíðinni. Haft er eftir Abdullah Hourani, sem situr í framkvæmdanefnd PLO, að stjórnvöld í Amman hefðu gefið loforð um að halda brúnum yfir Jórdanána opnum auk þess sem íbúum Vesturbakkans yrðu áfram afhent vegabréf. Að sögn embættismanns Jórdana fá íbúar Vesturbakkans nú afhent vegabréf til tveggja ára í stað fimm eins og áður var, auk þess sem þeir missa sjálfkrafa jórdanskan ríkis- borgararétt sinn í kjölfar ákvöröun- ar Husseins. IDS Hernaðarstefna Sovétmanna lítið breyst síðustu árin John Galvin, aðalstjórnandi N ATO herjanna segir litlar sjáanleg- ar breytingar hafa orðið á hernaðar- stefnu Sovétmanna frá því að Kreml- arleiðtoginn Mikhail Gorbatsjov tók við völdum árið 1985. Galvin, sem er yfirmaður sam- ræmdrar herstjórnar í Evrópu lét þau orð falla er hann var í heimsókn hjá bandarískum hermönnum í Vestur -Berlín að hernaðaráætlanir Sovétmanna væru í meginatriðum óbreyttar. Galvin sagði að mikið væri rætt um breytingar á kennisetningum og hernaðaráætlunum Sovétmanna en sönnunargögn um hve miklu búið væri að breyta væru hins vegar af skornum skammti. „Ég heyri margt um væntanlegar breytingar, en sé hins vegar minna framkvæmt," sagði Galvin. Og bætti við: „Framkvæmd- in er það sem skiptir máli, viljinn einn er ekki nægjanlegur.“ Hann sagðist telja að viðræður varnarmálaráðherra og hernaðar- sérfræðinga NATO annars vegar og Varsjárbandalagsins hins vegar gætu gefið góða raun ef tryggt væri að upplýsingastreymi væri jafnt frá báð- um aðilum. Varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, Frank Carlucci, hefur áður lýst yfir svipuðum skoðunum varð- andi litlar breytingar hjá Sovét- mönnurA. IDS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.