Tíminn - 18.08.1988, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 18: ágúst 1988
Tíminn 3
Fundur Verslunarráðs (slands um gjaldþrot íslenskra fyrirtækja:
fjórða hundrað orðið
gjaldþrota á árinu
Svipaður fjöldi fyrirtækja hefur
verið tekinn til gjaldþrotaskipta það
sem af er þessu ári og á árinu 1987 í
heild. Þá var 351 fyrirtæki tekið til
gjaldþrotaskipta, samanborið við
101 árið 1983. Þetta kom m.a. fram
á fundi sem Verslunarráð íslands
boðaði til um gjaldþrot íslenskra
fyrirtækja í gær. Þar fluttu erindi
þeir Ásgeir Gunnarsson, fyrrverandi
forstjóri Veltis hf., Sverrir Norland,
forstjóri Smith og Norland, Þorvald-
ur Einarsson, lögfræðingur Búnað-
arbankans, Ásgeir Thoroddsen, lög-
maður, og Ragnar H. Hall, skipta-
ráðandi.
Var komið inn á ýmsar hliðar
þessara mála á fundinum, rætt al-
mennt um rekstrarskilyrði atvinnu-
fyrirtækja, svo og tæknilega van-
kanta á meðferð gjaldþrotamála. í
umræðunni um rekstrarskilyrðin var
það rn.a. nefnt í framhjáhlaupi,,
hvað varðar útflutnings- og sam-
keppnisgreinar, að gengið væri kol-
vitlaust skráð og að fjármagnskostn-
aður væri óheyrilega hár á sama
tíma og samdráttar gætir og velta
fyrirtækja minnkar.
En megin umkvörtunarefnið var
slæm eiginfjárstaða fyrirtækja og
hversu óhagstætt er fyrir fólk að
leggja fé í þau.
„Það var mikið rætt um það hversu
erfitt væri fyrir fólk að leggja fé í
fyrirtæki," sagði Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs íslands, í samtali við Tímann.
„Það þarf að haga málum þannig að
fólk geti gert það í ríkara niæli á
sambærilegum kjörum og það fær
fyrir sparifé sítt. Það er það mikill
munur á kjörum á sparifé og hlutafé,
fyrirtæki eiga í vandræðum með að
verða sér úti um eigið fé og það er
einmitt ein ástæða þessara gjald-
þrota,“ sagði Vilhjálmur.
Hvaða leiðir er hægt að fara til að
gera það eftirsóknarverðara fyrir
fólk að leggja fé í fyrirtæki?
„Það má t.d. gera með því að búa
þannig um málin að hlutafé njóti
sömu skattmeðferðar og sparifé. í
raun ætti það að fá betri meðferð því
það er svo mikil áhætta fólgin í því
að leggja pening í fyrirtæki en fólk
er með allt sitt á hreinu þegar það er
með sparifé.
Hlutafé, sem er fyrir ofan ákveðið
mark, er eignaskattsskylt og arður af
hlutabréfum, fyrir ofan ákveðið
mark, er tekjuskattsskyldur. Þessi
mörk eru tiltölulega lág þannig að ef
fólk á verulegar eignir í fyrirtækjum
er það strax farið að borga af því
töluverða skatta.
Síðan er það þannig með þá
frádráttarheimild, sem í gildi er
vegna kaupa á hlutabréfum, að hún
er með tiltekið þak, sem er í sjálfu
sérgóðragjalda vert. Enaðal gallinn
er, að þetta nær bara til mjög stórra
fyrirtækja á okkar mælikvarða, en
fólk leggur fé í smærri fyrirtæki.
Þetta er einmitt atriði sem Enskilda
Securities benti á þegar það gerði
Miðstjórnarfundur Framsóknar:
Bíða átekta
Tímasetning miðstjórnarfund-
ar framsóknarmanna hefur ekki
enn verið ákveðin, en áður hafði
verið gert ráð fyrir að fundurinn
yrði hafður í byrjun september.
Stéingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
segir að ekki verði tekin ákvörð-
un um miðstjórnarfundinn fyrr
en fyrir liggi skýrari línur um
efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar-
innar. óþh
úttekt á hlutabréfamarkaðnum hér,“
sagði Vilhjálmur.
Af öðrum atriðum sem fjallað var
um má nefna endurskoðun á gjald-
þrotalöggjöfinni sjálfri. Þar var lögð
mest áhersla á kaflann um nauðar-
samninga. „Þar er verið að tala um
að þegar menn eru komnir með
greiðslustöðvun, þá hafi kröfuhafar
meiri áhrif á stjórn fyrirtækisins og
hvernig hiutunum er ráðstafað þenn-
an tíma.
Annað sem menn veltu fyrir sér
var möguleikinn á að setja undir
þann leka að menn misnoti sér fresti
til að fleyta málum áfram. Það eru
margir sem ganga langt í því að
misnota fresti. Það er greinilegt að
menn kvarta yfir því að borgarfóg-
etaembættið og þeir sem fara með
dómsvald í þessum málum séu of
linir, að þeir veiti fresti sjálfkrafa
o.s.frv. Þetta er spurning um að taka
upp harðari „praxís“,“ sagði Vil-
hjálmur.
Stjórnendur fyrirtækja bera
ákveðna ábyrgð þegar fyrirtæki eru
komin út á hálan ís og ntenn veltu
fyrir sér á fundinum hvort stjórnend-
urnir væru gerðir nógu ábyrgir gerða
sinna. „Mikið var talað um það að
þeir sem eigi í erfiðleikum og sjá
fram á að dæmið gengi ekki upp,
þeir ættu að bregðast við eins fljótt
og unnt væri. Þannig yrði leyst úr
málum á eins farsælan hátt og unnt
er, því eftir því sem menn draga
hluti lengur stækkar bara vandamál-
ið.“
Vilhjálmur nefndi að bagalegt
væri hversu lélcgar upplýsingar liggi
fyrir um lánstraust fyrirtækja. „Það
var hér á árum áður til svokölluð
skrá um afsagða víxla en síðan hættu
bankarnir að afsegja víxla og eftir
það er þessi heimild ekki til og engin
jafn góð verið tekin upp í staðinn.
Þetta þýðir að lánsviðskipti eru mik-
ið óöruggari en áður fyrr og það er
spurning um að leita leiða til að
koma þessum málum í lag. Það var
t.d. beðið um það að bankarnir
hefðu samstarf við aðila eins og
Verslunarráðið til að kippa þessu í
liðinn með einhverjum hætti.
Það tengist þessu að kvartað var
undan því að fyrirtæki skiluðu ekki
inn reikningum á seinkun til hlutafé-
lagaskrár eins og skylt er í lögum.
Þessu er ekkert framfylgt," sagði
Vilhjálmur. JIH
Bambrds
III INTERNATIONAL
AFTUR Á ÍSLANDI
r *
_______ _ ^
ímm' " ...... i:ar:' c v>0 O
eAÓ.
_____________ ^ * :\
. *
; 'Mk'
Við höfum nú tekið saman við BAMFORDSINTERNATIONAL
í Bretlandi um sölu á BAMFORDS 355 mykjudreifurum.
BAMFORDS 355 eru 4,2 rúmm. - Lengd 3,03 m. - Breidd 1,32 m. - Efnisþykkt
í bol 3 mm í göflum 5 mm. - Keðjur 28 st. - Eigin þyngd 1105 kg. - Keðjur og
legur Heavy duty. - Hraði á öxli 242 sn./mín. - Vökvabremsur. - Handbremsur.
Vökvaopnun á hlíf. - Mjög stórir flotbarðar 16x200. - Beislistjakkur. - Auga
fyrir dráttarkrók. - Keðjufestingar eru soðnar á öxulinn, þannig að aðeins 3-4
keðjur standast á. Þetta fyrirkomulag orsakar að orkuþörf BAMFORDS 355 er
miklu minni en hjá sambærilegum dreifurum.
Kynntu þér BAMFORDS 355 - Hagstætt verð og greiðslukjör.
Hafið samband BTB, Borgarnesi.......Sími 93-71200
við sölumenn okkar Kf. Húnvetninga, Blönduósi .Sími 95-4200
eða umboðsmenn, Vélaval, Varmahlíð, Skagafirði.Sími 95-6118
sem eru: Dieselverk, Draupnisg. 3, Akureyri . . . Sími 96-25700
Kf. Þingeyinga, Húsavík.......Sími 96-41444
Erlingur Ólafsson, Hvolsvelli.Sími 98-78199
VÉLAR & ÞJÓNUSTA HF. - Vélaborg
JÁRNHÁLSI 2 - SÍMI 83266 - 686655