Tíminn - 18.08.1988, Blaðsíða 16

Tíminn - 18.08.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn' llllllllllllliili DAGBÓK Aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austurlands- kjördæmi 1988 22. aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi verður haldinn í félagsheimilinu Egilsbúð í Neskaupstað dagana 26. og 27. ágúst nk. Fundurinn verðursetturkl. löiOOföstu- daginn 26. ágúst. Á fundinum verða afgreidd venjuleg aðalfundamál og einnig verða framsöguerindi og umræður um: Byggðamál, gjaldheimtumál, stofnun héraðsnefnda og fleira. Aðalfundur Austurfells h/f verður haldinn kl. 12:00 álaugardagogaðalfund- ur Skipulagsstofu Austurlands verður haldinn á sama tíma. Fyrirlestur hjá ORKUSTOFNUN um samvinnu Uppsala-háskóla við raunvísindamcnn í þróunarlöndum Við Uppsala-háskóla er stofnun sem hefur það hlutverk að aðstoða raunvís- indamenn í þróunarlöndum við að koma á fót sjálfstæðum rannsóknum. Fulltrúi' þessarar stofnunar verður i heimsókn á Jarðhitaskólanum, Orkustofnun, til við- ræðna við skólann og nemendur um rannsóknir í þróunarlöndum. Dr. Len- nart Hasselgren mun halda fyrirlestur á cnsku sem hann kallar: „International Programme in thc Physical Sciences at Uppsala University". Fyrirlestur dr. Hasselgren er öllum opinn og vcrður mánudaginn 22. ágúst kl. 16:00-17:00 á Orkustofnun. Grensásvegi 9. Nánari upplýsingar veitir dr. Jón Stein- ar Guðmundsson, skólastjóri Jarðhita- skólans, í síma 83600 og 82857. Bridge á Dalvík Stórmót í bridge verður haldið að Víkurröst á Dalvík dagana 27. og 28. ágúst. Reiknað er með 32 para keppni, 3 spil milli para. Spilað er eftir Barometer- fyrirkomulagi. Keppnin hefst kl. 13:00 á laugardag og verður spilað fram undir kvöldmat. Á sunnudag verður byrjað að spila kl. 10:00 og lýkur keppni um miðjan dag. Peninga- verðlaun verða fyrir fimm efstu sætin, alls 110 þús. krónur. Keppnisstjóri verður úr Reykjavík. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir mánudaginn 22. ágúst. Tekið er á móti skráningum hjá Bridgesambandi Islands í síma 91-689360, Víkurröst Dal- vík í síma 96-61354 eða Sæluhúsinu (Ólafi Árnasyni) í síma 96-61488 og skrifstofu Ungmennasambands Eyja- fjarðar (UMSE) í síma 96-24011. Keppn- isgjald er 3000 kr. á par. Innifalið er kaffi meðan á keppni stendur. Hægt er að fá matarpakka og gistingu á staðnum. Þcir þátttakendur sem koma með flugi til Akureyrar geta komist með öðrum keppendum til Dalvíkur með litlum til- kostnaði, en þess þárf að geta við skrán- ingu ef óskað cr eftir fari. KVENNAATHVARF Húsaskjól er opið allan sólarhringinn og aðstoö fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Síiuinn er 21205 - opinn allan sólar- hringinn. fHugmyndasamkeppni um nýtingu Viðeyjar Borgarstjórn Reykjavíkur efnir til hugmyndasam- keppni um nýtingu Viðeyjar. Tilgangur keppninnar er að fá fram hugmyndir um nýtingu eyjarinnar sem útivistarsvæðis fyrir Reyk- víkinga og aðra landsmenn. Keppnin skiptist í tvo hluta, I. og II. Skilað verði: I. Uppdráttum, er sýna vel hugmyndir um nýtingu eyjarinnar og/eða II. Skriflegum hugmyndum í stuttri eða langri greinargerð. Hugmyndasamkeppnin er öllum opin, bæði fag- fólki í hönnun sem og áhugafólki um nýtingu Viðeyjar. Þátttaka er ekki bundin við einstaklinga heldur geta fleiri staðið saman að tillögu. Trúnaðarmaður dómnefndar, Ólafur Jensson, framkvæmdastjóri, Byggingaþjónustunni, Hall- veigarstíg 1, sími 29266, afhendir keppnisgögn gegn skilatryggingu að fjárhæð kr. 1.000.-. Verðlaunafé er samtals kr. 800.000.-. Þrenn verðlaun verða veitt, þar af eru fyrstu verðlaun ekki lægri en kr. 400.000.-. Auk þess er dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir allt að kr. 200.000.-. Tillögum skal skila til trúnaðarmanns dómnefndar í Byggingaþjónustuna í síðasta lagi 15. desember 1988, kl. 18.00 að íslenskum tíma. Borgarstjórinn í Reykjavík. + Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir Sverrir Guðnason Miðtúni 3, Höfn i Hornafirði verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju laugardaginn 20. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnardeildirnar á Höfn • eða Slysavarnarfélag Islands. Erla Ásgeirsdóttir Birkir Birgisson Elín Ragnarsdóttir 'iöfn Sverrisdóttir Hrafn Úlfsson t Systir iT' : og vinkona okkar Guðri: Þorsteinsdóttir kennari andaðist í hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi 16. ágúst. Jóhanna Porsteinsdóttir Sigurlaug Guðmundcúóttir Guðrún Hulda Guðmundsdóttir Ingibjörg Jóhannsdóttir. Nemendamót í Haukadal í tilefni af því að nýlega eru liðin 60 ár frá því að íþróttaskóli Sigurðar Greips- sonat»í Haukadal tók til starfa hefur verið ákveðið að halda nemendamót í Hauka- dal sunnudaginn 21. ágúst nk. Ætlast er til að sem flestir nemendur skólans, kennarar og starfsfólk komi að Haukadal þennan dag og taki þátt í mótinu og er þeim frjálst að taka með sér gesti. Fyrirhugað er að hittast í Haukadals- skógi, við minnisvarða Sigurðar Greips- ■sonar, kl. 14:00 þennan sama dag. Þar verður stutt athöfn til minningar um Sigurð Greipsson skólastjóra. Að því loknu verður haldið í Hótel Geysi og sest að kaffiborði. Þar verður dagskrá fram haldið og m.a. rifjaðar upp minningar frá skólaárunum í Haukadal. Þátttökutilkynningar og upplýsingar í síma 98 68915, Hótel Geysi. Pennavinur - vill skrifast á við íslenskar konur Blaðinu hefur borist bréf frá 33ja ára konu á írlandi, sem vill skrifast á við konur á fslandi. Hún talar og skrifar á ensku, ítölsku og frönsku. Hún er gift og heimili hennar er í Enniscorthy í írska lýðveldinu. Utanáskriftin er: IVlaria T. Roche, 38, Moran Park Enniscorthy, Co. Wexford, Republic of Ireland Járnhálsi 2 Simi 83266 110 Rvk. Pósthólf 10180 BILALEIGA meö utibú allt í kringum landiö, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum staö og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bílaleiga Akureyrar ! I LÁTTU Tíniaim EKKl FIJÚCA FRÁ l‘ÉR ÁSKRIFTARSÍMI 686300 Fimmtudagur 18. ágúst 1988 Frá Mývatni. 0PIÐHÚS í Norræna húsinu í kvöld Síðasta „Opna húsið" í Norræna húsinu á þessu sumri verður í kvöld, fimmtudags- kvöldið 18. ágúst kl. 20:30. Þá talar Helga Jóhannsdóttir þjóðlaga- safnari um íslensk þjóðlög fyrr og nú, en Helga á mikið safn af þjóðlögum í fórum sínum, sem hún hefur safnað undanfarin ár á ferðum um landið. Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku og leikin verða tóndæmi af snældu. Eftir kaffihlé verður sýnd kvikmynd um Mývatn, sem Magnús Magnússon tók. Myndin er með ensku tali. íslenskir steinar í anddyri' í anddyri Norræna hússins stendur nú yfir sýning á íslenskum steinum og í sýningarsal er sýning á landslagsmálverk- um eftir Jón Stefánsson. Þessum sýning- um lýkur sunnudaginn 21. ágúst. Bókasafnið og kaffistofan verða opin til kl. 22:00. 1 bókasafni liggja frammi bækur um Island og íslenskar hljómplöt- ur. Aðgangur er ókeypis. Gallerí Gangskör Nú stendur yfir sýning Gangskörunga á keramik, grafík og málverkum í Gallerí Gangskör í Torfunni. Opið er alla virka daga nema mánudaga kl. 12:00-18:00. Listasafn Einars Jónssonar Listasafn Einars Jónssonar er opiö alla laugardagaogsunnudaga kl. 13:30-16:00. Höggmyndagaröurinn er opinn alla daga frá kl. 11:00-17:00. Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2 Efstaleiti 1 103 Reykjavík Merkt Tónlistarkrossgátan BLIKKFORM Smiðjuveqi 52 - Sími 71234____ Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið- gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælonhúðaðir í öllum litum. Póstsendum um allt land (Ekið niður með Landvélum).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.