Tíminn - 18.08.1988, Blaðsíða 11
Tíminn 11
Fimmtudagur 18. ágúst 1988
ÍÞRÓTTIR
Körfuboltalandsliöið vakiö til. lífs á ný eftir árs dvala:
Nemeth velur 16 manna
hóp eftir æfingabúðir
Ungvcrjinn Lazlo Ncmeth, sem
þjálfa mun íslenska landsliðið í
körfuknattleik og lið KR-inga í
vetur, er nýkominn til landsins og á
nú að fara að taka til hendinni í
málefnum landsliðsins.
í samráði við félagsliðin hafa allir
frambærilegustu leikmenn íslenskra
liða sem hugsanlega kæmu til greina
í landsliðið, verið boðaðir í æfinga-
búðir við Laugarvatn frá næsta föstu-
degi og fram á sunnudag. Þetta er
enginn smá hópur, 38 leikmenn
munu mæta á staðinn og í framhaldi
af æfingabúðunum mun Nemeth síð-
an velja 16 manna hóp til æfinga í
vetur. Það verður því eflaust hart
barist um sætin. Unglinga- og
drengjalandsliðin verða einnig í æf-
ingabúðum í næstu viku.
Landsliðið hefur núna legið niðri
í heilt ár en miklar vonir eru bundnar
við Nemeth, sem talinn er vera
harður þjálfari sem skilar árangri.
Eftir hrakfarir í B-keppninni í Sviss
á síðasta ári, þar sem íslenska lands-
liðið tapaði óvænt öllum leikjum
sínum og datt þar með aftur niður í
C-keppnina, sögðu landsliðsþjálfar-
arnir Einar Bollason og Gunnar
Þorvarðarson af sér. Framhaldið
vafðist fyrir KKÍ og ákveðið var að
slá því á frest að ráða nýjan þjálfara,
KKÍ ákvað að hugsa sinn gang og
athuga þau verkefni sem framundan
væru. Síðastliðið ár voru engin stór-
verkefni á döfinni, fyrir utan vináttu-
landsleiki, en þeim varöllum aflýst.
Nú á að keyra landsliðið á fullu í
vetur, stefnt er að því að æfa allavega
einu sinni í viku í allan vetur, og
næsta stórverkefni er Norðurlanda-
mótið sem haldið verður hérlendis
næsta vor. Einn liður í undirbún-
ingnum verður ferð landsliðsins til
Möltu til að keppa um jólin og
alþjóðlegt mót verður síðan haldið
hér heima í janúar. Af þeim sökum
mun íslandsmótið liggja niðri frá
6./7. desember til 20. janúar. Lands-
liðið mun hafa forgang í vetur og
hefur mótið verið sniðið að þörfum
þess. Keppni í Úrvalsdeildinni verð-
ur lokið 10. mars og mun landsliðið
þá hafa góðan tíma til að undirbúa
sig undir Norðurlandamótið sem hér
fer fram í apríl.
Þeir leikmenn sem félagsliðin
munu senda í æfingabúðirnar eru:
Guðjón Skúlason............. ÍBK
Axel Nikulásson ............ ÍBK
Jón Kr. Gíslason............ ÍBK
Magnús Guðfinnsson......... ÍBK
Sigurður Ingimundarson . . . ÍBK
Falur Harðarson............. ÍBK
Pálmar Sigurðsson .... Haukum
ívar Ásgrímsson ......... Haukum
Henning Henningsson Haukum
Tómas Holton ................Val
Einar Ólafsson ..............Val
Svali Björgvinsson...........Val
Þorvaldur Geirsson ..........Val
Hreinn Þorkelsson............Val
Matthías Matthíasson.........Val
Guðmundur Björnsson........Þór
Konráð Óskarsson.............Þór
Valur Ingimundarson . . Tindastól
Eyjólfur Sverrisson . . . Tindastól
ívar Webster .................KR
Páll Kolbeinsson..............KR
Birgir Mikaelsson ............KR
Jóhannes Kristbjörnsson .... KR
Guðni Guðnason................KR
Ólafur Guðmundsson............KR
Hreiðar Hreiðarsson . . Njarðvík
Teitur Örlygsson..... Njarðvík
ísak Tómasson ..........Njarðvík
Helgi Rafnsson..........Njarðvík
Kristinn Einarsson .... Njarðvík
Guðmundur Bragason Grindavík
Rúnar Árnason........ Grindavík
Steinþór Helgason . . . Grindavík
Björn Steffensen............. ÍR
Sturla Örlygsson............. ÍR
Ragnar Torfason.............. ÍR
Karl Guðlaugsson ............ ÍR
Jón Örn Guðmundsson........ ÍR
BL/JIH
Tómas Holton, Val, er eitthvað
undrandi yfir sprellinu í Henning
Henningssyni, Haukum, en þeir
verða á meðal þeirra 38 leikmanna
sem koma til með að berjast um sæti
í landsliðinu í æfingabúöum um
belgina.
Spánn spilar með hjartanu
Við höldum hér áfram með um-
fjöllunina um landsliðin sem þátt
taka í Flugleiðamótinu í handknatt-
leik sem hefst á laugardaginn kemur.
I gær fjölluðum við um sovéska
landsliðið, tvímælalaust það sterk-
asta í heiminum í dag, og tékkneska
liðið, sem hefur verið í fremstu röð
um 20 ára skeið. Þá er komið að
Spánverjum og Svisslendingum.
Gefum Guðjóni Guðmundssyni,
liðsstjóra íslenska landsliðsins,
orðið.
Spánn
Spánverjar hafa lögnum reynst
íslendingum erfiðir viðureignar og
hafa á undanfömum árum átt geysi-
lega skemmtilegu liði á að skipa.
Þjálfari liðsins, Juan Roman Seco,
náði sfnum besta árangri með liðið
1986 er það lék við Island um 5.
sætið á HM í Sviss. Spánverjar
sigruðu þá 25:22. Þjálfarinn er fs-
lendingum að góðu kunnur. Hann
þjálfaði á sínum tíma Atletico
Madrid og gerði það að stórveldi í
evrópskum handknattleik. Hann
stjórnaði liðinu m.a. í Laugardals-
höll í eftirminnilegum undanúrslita-
leik gegn Val í Evrópukeppni meist-
araliða, og einnig í átta liða úrslitum
á móti Víkingi.
f spánska liðinu er valinn maður í
hverju rúmi og erfitt að taka einstaka
leikmenn út. Það má þó nefna
markverðina Rico frá Barcelona og
Zunica, sem leikur næsta vetur með
Kristjáni Arasyni hjá Teka, sem
báðir eru frábærir markmenn. Melo
Munos er mjög góður útispilari og
fjölhæfur leikmaður, sem leikur yfir-
leitt alltaf vel með landsliðinu, og
einnig má nefna báða hornamenn-
ina, Julian Ruiz og Javier Cabanas,
sem báðir eru mjög góðir leikmenn.
Þeir leika einmitt báðir með Teka.
Þá er línumaður liðsins, Jaime Puig,
frábær. Barcelona skyttan Serrano
er enn í liðinu.
Spánverjar eru líflegir á leikvelli,
spila með hjartanu og eru gríðarlega
teknískir og flinkir, atvinnumenn
fram í fingurgóma. Þeir leika þannig
að áhorfendur hafa mjög gaman af.
Þá er gaman að fylgjast með þjálfar-
anum með langa nafnið, Juan de
Dios Roman Seco, sem er vægast
sagt mjög líflegur á leikjum.
Lið Spánar er skipað eftirtöldum
Ieikmönnum (landsleikjafjöldi í
sviga):
Markmenn:
1. L. Rico, FC Barcelona (128)
12. M.A. Zunica, Elgorriage ( 61)
16. J. Fort, Cacaolat BM ( 0)
Aðrir leikmenn:
2. J.F. Munos.Tecnisan (157)
3. R. Marin, CacaolatBM ( 12)
4. J. Reino, Atl. Madrid ( 89)
5. J. Fernandez, Atl. Madrid ( 26)
6. J.J.Uria,FCBarcelona (171)
7. J. Gomez, Atl. Madrid ( 19)
8. M. Garralda,CacaolatBM ( 0)
9. E. Serrano, FCBarcelona (154)
10. J.Cabanas,Tecnisan (116)
11. J. Ruiz.Teka (113)
13. J. Sagales,FCBarcelona ( 20)
14. L. Garcia,Teka ( 29)
15. J. DelaPuente.FCBarcel (167)
17. J. Puig, Cacaolat BM (138)
Sviss
Svissneska landsliðið er eina B-
þjóðin sem tekur þátt í Flugleiða-
mótinu að þessu sinni. Á árunum
1978-86 voru Svisslendingar með
eitt af bestu liðum Evrópu, en 1986
brást liðið á heimavelli og hafnaði í
12. sæti í heimsmeistarakeppninni í
Sviss. Eftir það urðu þjálfaraskipti
hjá liðinu. Sedan Hazanfendic lét af
störfum og við tók Vestur-Þjóðverj-
inn Arno Ehret, sem varð heims-
meistari árið 1978 í hinu fræga liði
Vlado Stenzel.
Svissneska liðið leikur ekki áferð-
arfallegan handknattleik, mjög ag-
aðan og frekar rólegan, en umfram
allt mjög árangursríkan. Svissneska
liðið á þó leikmenn í fremstu röð í
heiminum í dag og má þá fyrsta
nefna markvörðinn Peter Hurli-
mann og örvhentu skyttuna Martin
Rubin sem er geysilega sterkur.
Einnig mætti nefna leikmenn eins og
Schumacher og Rene Martin.
Lið Sviss er skipað eftirtöldum
leikmönnum (landsleikjafjöldi í
sviga):
Markmenn:
1. P. Hurlimann, Grasshoppers (126)
12. R. Kessler, ZMCAmicitia( 33)
16. M. Landholt, Pfadi ( 0)
Aðrir leikmenn:
2. S.Lanker, BSVBern ( 47)
3. U. Eggenberger, BSV Bem ( 3)
5. R. Keller, ZMC Amicitia ( 56)
6. C. Ledermann, BSV Bern ( 16)
7. M. Rubin, BSV Bern (101)
8. H. Schumacher, HC Emmen (104)
9. S. Scárer, ZMC Amicitia ( 32)
10. R. Barth.ZMCAmicitia (115)
11. A. Ebi, RTVBasel (33)
14. J. Meyer, ZMC Amicitia ( 36)
15. M. Delhees,Grasshoppers(101)
18. M. Bár, ZMC Amicitia ( 7)
19. B. RelIstab.Grasshoppers ( 0)
JIH
Landsleikur í knatt-
spyrnu í kvöld:
Ísland-Svíþjóð
í Laugardalnum
Það er sannkölluð landsleikja-
buna framundan næstu dagana.
Flugleiðamótið í handknattleik
hefst á laugardaginn og í kvöld
munu íslendingar mæta Svíum í
vináttulandsleik í knattspyrnu á
Laugardalsvellinum. Hefst
leikurinn kl. 18:30.
Svíarnir mæta með ólympíu-
landslið sitt og er leikurinn liður
í undirbúningi þess fyrir ólympíu-
leikana í Seoul sem hefjast í
næsta mánuði. Leikurinn kemur
sér líka vel fyrir íslenska landslið-
ið, því framundan er leikur við
Sovétmenn 31. ágúst, í undan-
keppni heimsmeistaramótsins.
Fátt verður þó um atvinnumenn
í íslenska liðinu að þessu sinni,
aðeins þeir Gunnar Gíslason og
Bjarni Sigurðsson mæta frá Nor-
egi. En okkur tókst að leggja
Svía af velli í sætum sigri á
Spánarmótinu í handknattleik
fyrir skömmu og nú er bara að
endurtaka leikinn á knattspyrnu-
vellinum. JIH
Siglfirðingar
vígja glæsilegan
grasvöll
Fró Erni Fórurinssyni, fréttaritara Tímans á
Siglufíröi:
Siglfirðingar tóku sl. þriðjudag
í notkun glæsilegan gras-knatt-
spyrnuvöll við íþróttamiðstöðina
á Hóli og var það liður í afmælis-
hátíðahöldum sem standa þessa
viku á Siglufirði. Athöfnin hófst
með ræðu Runólfs Birgissonar,
formanns íþróttabandalags Siglu-
fjarðar, og afhenti Runólfur síð-
an bæjaryfirvöldum völlinn til
umsjónar en Björn Jónasson,
bæjarstjóri, veitti honum viðtöku
fyrir hönd Siglufjarðarkaupstað-
ar. Einnig flutti Ellert Schram
formaður KSÍ ræðu og séra Vig-
fús Árnason flutti blessunarorð.
Þá var komið að knattspyrnu-
mönnunum. Fyrst léku 6. flokkar
KS og Leifturs og lauk þcim leik
með sigri KS, 4-2.
Því næst lék meistaraflokkur
KS gegn íslandsmeisturum Vals,
þetta var gífurlegur markaleikur
og lyktaði honum með sigri fs-
landsmeistaranna sem skoruðu 9
mörk gegn 4. í hálfleik var staðan
5-3. Það kom í hlut Hilmars
Sighvatssonar að skora fyrsta
markið á nýja vellinum en fyrstur
til að skora mark fyrir KS var
Paul Friar.
Um lOOOmannsvoru viðstadd-
ir vt'gslu vallarins og var fólk í
hátíðarskapi og skemmti sér hið
besta, enda gaf að líta mörk af
nánast öllum gerðum og knatt-
spyrnan á köflum bráðskemmti-
leg.
Á eftir fótboltanum voru
haldnir útihljómleikar þar sem
hljómsveitin Gaukar lék og marg-
ir brottfluttir Siglfirðingar tróðu
upp. Næsti leikur á nýja vellinum
verður á laugardag og þá leika
KS og Breiðablik í 2. deild karla.