Tíminn - 18.08.1988, Síða 7

Tíminn - 18.08.1988, Síða 7
Fimmtudagur 18. ágúst 1988 Tíminn 7 Mikið verður um hátíðahöld í Viðey í dag, á 202 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Fyrir tveimur árum færði ríkisstjórn Islands Reykjavíkurborg Viðeyjarstofu og Við- eyjarkirkju að gjöf í tilefni af 200 ára afmæli borgarinnar. Síðan hefur verið unnið að viðgerðum og endurbyggingu á húsunum og umhverfi þeirra og undanfarna daga og vikur hafa iðnaðarmenn unnið hörðum höndum við að Ijúka frágangi til að þess að allt geti orðið sem fallegast þegar húsin verða tekin í notkun seinni partinn í dag. Hátíðin hefst með messu í kirkj- unni og mun biskupinn yfir íslandi vígja þar nýtt fjögurra radda pípu- orgel og blessa þær viðgerðir sem unnar hafa verið. Sr. Þórir Steph- ensen predikar og þjónar fyrir altari ásamt dómkirkjuprestunum sr. Hjalta Guðmundssyni og sr. Lárusi Halldórssyni. Marteinn H. Friðriksson dómorganisti leikur á orgelið og Dómkórinn syngur. Meðhjálpari verður sr. Andrés Ólafsson. Áður en messa hefst mun Lúðrasveit Reykjavíkur leika en svcitin ntun jafnframt leika við opnun Viðeyjarstofu sem hefst að messu lokinni. Þá mun Hjörleifur B. Kvaran, formaður Viðeyjar- nefndar afhenda Davíð Oddssyni borgarstjóra mannvirkin og Davíð að því búnu ávarpa gesti. Þá flytur Herdís borvaldsdóttir ljóð eftir Matthías Jóhannessen og þeir Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra og Sverrir Hermannson fyrrv. menntamála- ráðherra flytja ávörp. Eins og áður hefur komið fram í Tímanum er hugmyndin að í Við- eyjarstofu verði rekinn ráðstefnu- og veitingasalur sem opinn verður alla daga vikujinar. Þegar hafa verið bókaðar ráðstefnur og einka- samkvæmi í Stofunni á næstunni, en að öllu jöfnu verður hún opin almenningi. Kirkjan verður hins vegar opin alla daga nema þegar um einkaathafnir er að ræða s.s. skírnir eða brúðkaup, en fyrsta brúðkaupið verður einmitt í Við- eyjarkirkju á laugardag. Fyrsta almenna guðsþjónustan verður á sunnudaginn og hefst hún klukkan 14:00 og verður það sr. Hjalti Guðmundsson sem messar. Mótmælir frétt ríkis- sjónvarps 1 tilefni af frétt ríkissjónvarpsins 15. ágúst 1988 um nýtt aðalskipulag Reykjavíkurborgar, samþykkti bæjarstjórn Kópavogs eftirfarandi ályktun á fundi sínum 16. ágúst: „Bæjarstjórn Kópavogs átelur harðlega vinnubrögð og rangan fréttaflutning fréttastofu sjónvarps- ins í umfjöllun um Fossvogsdal í þessari frétt. í fréttinni kemur fram, að í stað- festu aðalskipulagi Reykjavíkur- borgar sé gert ráð fyrir Fossvogs- braut, en að engu getið úrskurðar ráðherra um að aðalskipulag Reykjavíkurborgar nái aðcins að lögsagnarmörkum Reykjavíkur og Kópavogs. Ráðherra féllst ekki á tillögu skipulagsstjórnar ríkisins um frestun á skipulagi í Fossvogsdal, heldur hafnaði því, að Rcykjavíkurborg sýndi í aðalskipulagi sínu Fossvogs- braut á landi Kópavogs. Fossvogsbraut er því ekki á stað- festu skipulagi Reykjavíkurborgar.“ Heimsókn kínversks ráðherra Varautanríkisráðherra Kína, hr. Zhou Nan, dvelur ásamt fylgdarliði á íslandi 25. til 29. ágúst nk. í boði Steingríms Hermannssonar, utan- ríkisráðherra. Auk viðræðna við utanríkisráð- herra mun varautanríkisráðherrann m.a. hitta að niáli forsætisráðherra og samgönguráðherra. Jafnframt mun varautanríkisráðherrann heimsækja Alþingi í boði forseta sameinaðs þings. Varautanríkisráðherrann mun einnig skoða söfn í Reykjavík og heimsækja Vestmannaevjarog Þing- velli. Um útflutn- ingsleyfi Af gefnu tilefni vill ráðuneytið i'treka að umsóknir um útflutnings- leyfi á ferskum karfa og ufsa þurfa að berast viðskiptaskrifstofu ráðu- neytisins fyrir kl. 12:00 á hádegi föstudags vegna útflutnings í næstu viku á eftir. Hótel Borg og danskir dagar fram á sunnudagskvöld: Borgin með ekta danska uppákomu í>að eru danskir dagar á Borginni núna og verða fram á næstkomandi sunnudagskvöld. Tíminn kynnti sér málið og lét sér vel líka enda hefur sjaldan verið eins þægilegt og skemmtilegt að fara út að borða. Á þessum dönsku dögum Borgarinnar er eingöngu boðið upp á danskan mat og danska drykki. Mikið af matföngum hefur verið flutt inn til landsins sérstaklega en annað er matreitt eftir nákvæmri leiðsögn danskra matreiðslumeistara. Til dæmis hefur Emmess-ísgerðin fram- leitt takmarkað magn af sérlöguðum dönskum ís fyrir þessa daga. í>á er á hverju kvöldi hægt að hlýða á danska harmónikkuleikara spila öll gömlu góðu lögin og einnig er hægt að panta lög sérstaklega. Þessir dönsku dagar eru haldnir í náinni samvinnu við danska sendiráðið og vinafélög Danmerkur á fslandi. Nokkur fyrirtæki hafa unnið að vörukynningu í samvinnu við hótelið og blandast það annarri danskri umgörð í matsalnum. Er það mál manna að ekki hafi skapast eins dönsk stemning á Borginni frá því Kristján 10. Danakonungur gisti þar árið 1930. Danska sjónvarpið mun næstu daga senda menn sína á Borgina til að taka þar upp skemmtidagskrá og getur þá mikið orðið um að vera. Allir gestir fá að kynnast sérstak- lega danskri óvæntri uppákomu í boði danska sendiherrans á íslandi, en ekki er hægt að greina frá því opinberlega. Það verður þá ekki lengur óvænt uppákoma. Danskir dagar á Hótel Borg.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.