Tíminn - 15.09.1988, Blaðsíða 10
Knattspy rna:
Markvarðaraunir
KA-manna
TILVIÐSKIPTAVINA
Vinsamlega athugið
að frá og með 15. september eru aðalskrifstofur
okkar að Ármúla 3 opnar á virkum dögum frá kl. 9-17.
10 Tíminn'
Fimmtudagur 15. september 1988
Fimmtudagur 15. september 1988
5AMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Ásgeir Sigurvinsson fagnar marki ásamt félaga sínum, Fritz Walter.
HAPPDRÆTTI
5 Ford Bronco - 40 Fiat Uno
Dregið 7. október
Heildarverómœti vinninga 21,5 milljón.
/j/tt/r/mark
Ásgeir skoraði í
stórsigri Stuttgart
Baycrn Miinchen er komið í topp-
sætið í V-Þýskalandi, eftir 2-2 jafn-
tefli gegn núverandi meisturum,
Werder Bremen. Manfred Bergs-
möller skoraði fyrir Werder Bremen
á 15. og 46. mín. en Roland Wohl-
farth og Jörgen Wegmann jöfnuðu
fyrir Bayem í síðari hálfleik. Bayern
liðið er enn taplaust á keppnistíma-
bilinu.
Stuttgart er í öðru sæti deildarinn-
ar með 11 stig eins og Bayern. Liðið
sigraði Niirnberg 4-0 í fyrrakvöld.
Jörgen Klinsmann gerði 2 mörk og
Ásgeir Sigurvinsson og Karl Algö-
wer gerðu 1 mark hvor.
Bayer Leverkusen skaust í þriðja
sæti deildarinnar með 2-2 jafntefli
gegn fiskimönnunum frá St. Pauli
hverfi í Hamborg. Klaus Taueber og
Cha Bum Ká komu Leverkusen yfir,
en Waldermar Steubing og Klaus
Ottens náðu að jafna metin fyrir St.
Pauli.
Bayer Uerdingen féll í fjórða
sætið eftir 0-3 tap gegn Hamburger
SV. Thomas von Heesen gerði tvö
mörk og Uwe Bein 1 fyrir Humhur-
ger. BL
1 slenska kvennalandsliðið í handknattleik þarf að vakna snemma á morgnana þessa dagana til þess að mæta á æflngar. Um helgina keppir
liðið í fjögurra landa móti hér á landi. Tímamynd Pjetur
Þurfa að æfa
millikl.7og8
á morgnana
Frá Jóhannesi Bjarnasyni fréttamanni Timans:
Haukur Bragason markvörður KA-liðs-
ins í knattspyrnu leikur ekki meira með liði
sínu á þessu kcppnistímabili. Haukur hefur
átt við hnémeiðsl að stríða í sumar og við
læknisrannsókn kom í Ijós að liðþófl hafði
rifnað og hefur Haukur þegar gengist
undir skurðaðgerð.
Þetta er auðvitað áfall fyrir KA-liðið, en (
málið er enn alvarlegra, þvt Jónas Guð-
mundsson varamarkvörður slasaðist á æf-
ingu fyrir stuttu og getur ekki leikið. Þriðji
markvörður liðsins, Torfi Halldórsson er
staddur á Spáni í skólaferðalagi og það
y kemur því í hlut Ægis Dagssonar 16 ára
drengjalandsliðsmarkvarðar að verja mark
KA á Akranesi á laugardag.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem KA-menn
lenda í markvarðaraunum, því þetta mun
vera 6. tímabilið af síðustu 7 þar sem
markvörður liðsins slasast í lok tímabilsins.
Greinilega áhættusöm staða. JB/BL
„Okkur gengur alveg hræðilega
að fá inni fyrir æflngar landsliðsins
og núna verða stelpurnar að mæta á
æflngar milli kl. 7 og 8 á morgnana,“
sagði Björg Guðmundsdóttir í
kvennalandsliðsnefnd HSÍ í samtali
við Tímann í gær.
Kvennalandsliðið undirbýr sig nú
Badminton:
Islenskir
dómarar
dæmaá
stórmótum
erlendis
Sífellt færist í vöxt að íslenskir
badmintondómarar taki að sér dóm-
arastörf á erlendum mótum, en Bad-
mintonsamband fslands hefur lagt
til dómara á Norðurlandameistara-
mótið allt frá 1979 og nú bætast
stöðugt fleiri mót við.
Þessa dagana, 14.-18. september,
fer fram Evrópukeppni félagsliða í
Moskvu og er einn íslenskur dómari
þar að störfum, enginn annar en
gamla badmintonkempan Haraldur
Kornelíusson.
Á „Finlandia-cup“, sem er Evr-
ópukeppni B-þjóða og fram fór í
Cardiff í Wales á sl. ári dæmdi
Frímann Ferdinandsson við góðan
orðstír.
íslenskir badmintondómarar
munu á næstunni dæma á Norður-
landamótinu í Helsingfors, Helve-
tia-cup í Búdapest og Evrópukeppni
unglinga í Manchester.
Greinilegt er að íslenskir badmint-
ondómarar eru komnir á kortið, svo
mjög hafa verkefni þeirra farið vax-
andi uppá síðkastið. BL
Drammen. Norðmenn og Skotar gerðu
jafntefli, 1-1, í landsleik liðanna, skipuðum
leikmönnum 21 árs og yngri, en leikurinn
fór fram í Drammen í fyrrakvöld. Joe
Miller skoraði úr vítaspyrnu fyrir Skota í
upphafi síðari hálfleiks, en Claus Eftevaag
jafnaði fyrir Norðmenn 8 mínútum fyrir
íeikslok.
New York. Bandaríska körfuknattleiks-
liðið Boston Celtics mun í næsta mánuði
taka þátt í alþjóðlegu körfuknattleiksmóti
á Spáni. Mótherjar Boston verða júgóslav-
neska landsliðið, ítalska liðið Scavoli Pe-
saro og Real Madrid frá Spáni.
Haukur Bragason markvörður KA-
manna mun ekki leika meira með
liðinu í sumar vegna meiðsla á hné.
KA-menn leysa markvarðarvanda-
mál sitt með því að piltur úr 3. flokki
félagsins verður í markinu gegn
Skagamönnum á laugardag.
af kappi fyrir C-heimsmeistara-
keppnina sem fram fer á Dreux í
Frakklandi í næsta mánuði, eins og
fram kemur annars staðar á síðunni.
„Þetta er mikið vandamál að kom-
ast ekki inní íþróttahús nema eftir
dúk og disk. Það er útilokað að
skipuleggja æfingar fram í tímann,
en samt er gerð krafa um að liðið
standi sig vel. Ég hef aldrei áður á
mínum ferli vitað að landslið þurfi
að sitja á hakanum hvað æfingatíma
varðar, meðan hvers konar fólk af
götunni er að leika sér í hinum ýmsu
íþróttum í húsunum. Þar sem ég
þekki til í Júgóslavíu ganga landslið
og 1. deildarlið fyrir um tíma, en
aðrir verða að mæta afgangi nema
þeir sýni betri árangur en áður,
„sagði Slavko Bambir landsliðsþjálf-
ari kvenna.
„Við erum búnar að fá tíma út
þennan mánuð. Stelpurnar æfa á
morgnana, í hádeginu og á kvöldin,
alls 10 æfingar í viku, en allt er í
óvissu um framhaldið í næsta mán-
uði, rétt áður en við höldum utan til
þátttöku í heimsmeistarakeppn-
inni,“sagði Björg.
Víða eru mikil vandræði vegna
þess hve íþróttafélögin vantar mikið
af tímum. Sem dæmi má nefna að í
Haraldur Kornelíusson dæmir í
Moskvu um þessar mundir.
einu stærsta barnahverfi borgarinnar
fær íþróttafélagið í hverfinu aðeins
8 tíma af þeim 19 sem leigðir eru út
til félaganna. jjl
Monaco náði sér ekki á strik gegn
Nice á laugardag. Liðið var enn í
rusli eftir tapið gegn Val í síðustu
viku og mark Glenn Hoddle í fyrri
hálfleik dugði skammt, því Nice
náði að jafna í síðari hálfleik. Brec-
eaux gerði 0-0 jafntefli gegn Mar-
seille og er í þriðja sæti deildarinnar,
Marseille er í fjórða sæti. Auxerre
heldur enn toppsætinu, liðið sigraði
Lille 1-0 um helgina og París SG er
í öðru sæti eftir 2-1 sigur á Toulouse.
Mats Wilander sigraði á opna
Bandaríska meistaramótinu í tennis
sem lauk um síðustu helgi. Wilander
sigraði Ivan Lendl í úrslitaleik 6-4,
4-6, 6-3, 5-7 og 6-4 í leik sem stóð í
4 tíma og 54 mínútur. Wilander
hefndi þar með fyrir ósigur sinn gegn
Lendl á mótinu í fyrra. Wilander er
nú kominn í efsta sæti afrekalistans
í tennis, en Lendl er fallinn í 2. sætið.
í kvennaflokki sigraði Steffi Graf
argentínsku stúlkuna Gabrielu Sbat-
ini í úrslitaleik 6-3, 3-6 og 6-1 og
hefur því sigrað á öllum stórmótum
ársins í tennisíþróttinni. en sigur á
þeim öllum er kallað að vinna „stóru
slemmuna".
A-þýski evrópu- og ólympíumeist-
arinn í listdansi kvenna á skautum,
Katarina Witt, hélt á sunnudaginn
lokasýningu í skautadansi í heimabæ
sínum Karl-Marx-Stadt, en hún er
hætt keppni í listdansi. Witt mun þó
áfram taka þátt í skautasýningum
víða um Evrópu, en sem stendur
leggur hún stund á nám í leiklist í
A-Berlín. Witt, sem er 22 ára,
heldur til New York í vikunni til þess
að vera formlega sett sem sérstakur
sendiherra Barnahjálpar Sameinuðu
Þjóðanna.
Handknattleikur:
„Saltfiskmótid“ hefst
í Kef lavík á morgun
Fjögurra landa mót í handknatt-
leik kvenna, sem hlotið hefur nafnið
„Saltfískmótið“ hefst í íþróttahúsinu
í Keflavík á laugardag.
Það eru lið Portúgal og Spánar
sem taka þátt í mótinu, auk A og
B-liða íslands. Leikirnir eru liðir í
undirbúningi liðanna fyrir C-heims-
meistarakeppnina sem fram fer í
Frakklandi í næsta mánuði og eftir
helgi þegar mótinu er lokið verður
liðið sem heldur til Frakklands
endanlega valið.
Mótið hefst á laugardag, eins og
áður segir og þá leika ísland A og
Portúgal og ísland B og Spánn. Á
sunnudag leika A og B lið íslands og
Spánverjar við Portúgali. Báða dag-
ana hefjast leikirnir kl 15.00.
Á mánudag lýkur mótinu með
leikjum íslands og Spánar og íslands
B og Portúgal í íþróttahúsi Selja-
skóla og hefjast leikirnir kl. 19.45.
Spánska liðið kom til landsins í
gær og í kvöld leikur liðið gegn A
liði fslands í Vestmannaeyjum.
f C-keppninni í Frakklandi í næsta
mánuði leikur íslenska liðið í riðli
með Frakklandi, Spáni, Portúgal,
og Grikklandi. í síðustu viku léku
íslensku stúlkurnar þrjá leiki gegn
því franska og töpuðust þeir allir.
fslensku stúlkurnar virkuðu þungar
í þeim leikjum og leikgleðina vant-
aði. Einn og hálfur mánuður er til
stefnu áður en C-keppnin hefst og
vonandi er það nægur tími fyrir
þjálfarann að laga ágallana. Fróðlegt
verður að fylgjast með útkomunni
úr leikjunum gegn Spáni og Portúgal
og ættu úrslitin að gefa nokkra
hugmynd um möguleika liðsins í
C-keppninni, en þar er stefnt að því
að sigra og komast í B-keppnina.
Áður en haldið verður til Frakk-
lands í október kemur liðið við í
Hollandi þar sem tekið verður þátt í
fjögurra landa keppni með Pólverj-
um, Ungverjum og Hollendingum
en sú keppni er lokapunkturinn á
undirbúningi liðsins fyrir C-keppn-
ina.
A-lið íslands er þannig skipað:
Markverðir:
Kolbrún Jóhannsdóttir .... Fram
Halla Geirsdóttir................FH
Aðrir leikmenn:
Guðríður Guðjónsdóttir . . . Fram
Arna Steinsen..................Fram
Ósk Víðisdóttir................Fram
Erna Lúðvíksdóttir .............Val
Katrín Fríðríksen...............Val
Guðný Guðjónsdóttir.............Val
Margrét Theodórsd. . . . Haukum
Guðný Gunnsteinsd. . Stjörnunni
Inga Lára Þórisdóttir . . . Víkingi
Svava Baldvinsdóttir . . . Víkingi
Krístín Pétursdóttir.............FH .
Rut Baldursdóttir ...............FH
Þjálfari: Dr. Slavko Bambir
B-noio:
Markverðir:
Fjóla Þórisdóttir .... Stjörnunni
Sólveig Steinþórsdóttir . Haukum
Aðrir leikmenn:
Jóna Bjarnadóttir . . .
Guðrún Krístjánsdóttir
Eva Baldursdóttir . . .
Ingibjörg Einarsdóttir .
Helga E. Sigurðardóttir
Þórunn Sigurðardóttir
Erla Rafnsdóttir ....
Hrund Grétarsdóttir . .
Ingibjörg Andrésd. . .
Þuríður Reynisdóttir . ,
Brynhildur Reynisdóttir
. Víkingi
______Val
.... FH
.... FH
.... FH
Haukum
Stjörnunni
Stjörnunni
Stjörnunni
. . Gróttu
. . Gróttu
Hafirðu
smalíkað vín
- láttu þér þá AIJDREI
detta í hug
að kevra! ,r|
o
Andrea Atladóttir.............ÍBV
Þjálfari er Theodór Sigurðsson.
ísland hefur leikið 126 landsleiki
frá upphafi. Þar hafa 46 leikir unnist,
7 sinnum hefur orðið jafntefli og 73
leikir hafa tapast. Fyrsti leikur ís-
lands var gegn Noregi 1956, en þá
sigruðu Norðmenn 10-7.
Tvívegis hefur ísland leikið gegn
Portúgal og sigrað f bæði skiptin.
Fjórum sinnum höfum við leikið
gegn Spánverjum, sigrað tvisvar og
tapað tvisvar. BL
Teroson
Láttu það ekki ganga svo langt að
bíllinn þinn verði ffyrir ryðskemmdum.
Ryðvörn á nýjum bílum.
Endurryðvörn.
Ryðvörn á undirvagni.
Vélaþvottur.
Þvottur á undirvagni.
6 ára ryðvarnarábyrgð.
RÆDDU VIÐ OKKUR, ÞAÐ BORGAR SIG.
^feviOV^l^l^íj^l^STÖÐIIM h.f.
Fosshálsi 13-15, Reykjavík - Sími 687755
Knattspyrna:
Handknattleikur: