Tíminn - 15.09.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 15.09.1988, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 15. september 1988 Tíminn 7 Vélarlaust Súlnafell. Reiknað er með að eftir um hálfan mánuð verði vélin komin á sinn stað og haldið verði á miðin á nýjan leik. Tímamynd Ámi Bjama Útvegsbankinn í Kópavogi færir sig um set: Nær þungamidju viðskiptanna Útvegsbankinn í Kópavogi opnaði formlega á nýjum stað sl. mánudag í Hamraborginni, en um árabil var útibú bankans áður til húsa að Digranesvegi 5. í ávarpi Hallgríms Snorrasonar formanns bankaráðs kom fram að með flutningi útibúsins ynnist það fyrst og fremst að bankinn færðist nær þungamiðju viðskipta og umferðar í Kópavogi. Kristín L. Steinsen aðstoðar- bankastjóri sagði í tilefni þessara tímamóta að samkeppni bankanna um viðskipti við einstaklinga hefði harðnað mjög og að Útvegsbankinn hefði reynt að koma til móts við auknar kröfur um bætta þjónustu á þessu sviði. Fyrsta viðskiptavini útibúsins á nýja staðnum var færð að gjöf inni- stæða á Ábótarreikingi. -ABÓ Haraldur Baldursson útíbússtjóri. Báöir togarar Útgeröarfélags Þórshafnar eru bundnir við bryggju vegna bilana: Frystihúsið rekið á afla 70 tonna báts „Atvinnuástandið hér á Þórshöfn er fremur dapurt nú þegar báðir togaramir eru bilaðir og tíðarfarið er eins og það er og hefur verið að má segja í allt sumar," sagði Gísli Óskarsson skrifstofustjóri Hrað- frystistöðvar Þórshafnar." Báðir togarar Útgerðarfélags Þórshafnar liggja nú bilaðir við bryggju, en annar þeirra, Stakfellið er frystitogari þannig að stöðvun hans kemur ekki beinlínis við hrað- frystihúsið. Hins vegar tapar sveitar- féiagið tekjum meðan hann er bund- inn við bryggju. Hinn togarinn, Súlnafellið, leggur hins vegar afla sinn upp á Þórshöfn, en vélin í honum eyðilagðist fyrr í sumar og liggur hann við bryggju í Hafnarfirði þar sem verið er að skipta um vél í honum. Búist er við að því verki ljúki fljótlega og skipið geti hafið veiðar snemma í næsta mánuði. Gísli sagði að lítill afli hefði því borist á land í sumar enda hefðu trillurnar sára- sjaldan getað róið vegna illviðra og gæftaleysis í allt sumar. „Bilun Súlnafellsins ásamt gæfta- leysinu hefur gengið mjög nærri okkur. Flest starfsfólk okkar hér í Hraðfrystistöðinni er á fastráðning- arsamningi svo hér hefur verið reynt að vinna átta tímana og einn 70-80 tonna bátur sem veitt hefur kola og landað hjá okkur hefur haldið okkur á floti í sumar,“ sagði Gísli. Aðspurður um hvort menn á Þórs- höfn væru orðnir langþreyttir á að bíða eftir stjómvaldsaðgerðum í málefnum útflutningsgreinanna sagði Gísli það síst vera ofsagt. Hann sagði að Hraðfrystistöðin væri eina atvinnufyrirtækið í plássinu sem eitthvað kvæði að og legðist það niður þýddi það einfaldlega að tilverugrunni Þórshafnar væri kippt í burtu. Vélvirkjar er voru að vinna við Súlanfellið í Hafnarfjarðarhöfn í nýrri vél eftir viku og þá þegar yrði gær sögðu Tímanum að von væri á hafisthandaumaðsetjahanaí. -sá Súlnafellið bundið við bryggju í Hafnarfirði, þar sem viðgerð fer fram. HEILDSALAR & KAUPMENN ♦ ÞÓ AÐ INNKAUPSVERÐ VÖRU HÆKKI, ER ÓHEIMILT AÐ HÆKKA SÖLUVERÐ FRÁ ÞVÍ AÐ VERÐSTÖÐVUN TÓK GILDI. & VERÐLAGSSTOFNUN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.