Tíminn - 28.09.1988, Blaðsíða 20
iiii*yitft9r*r*r + rrrr'r-rf*frY'í.rTfr
J J t J i i i ^ i i i i i i i i i i i 'i * * * i i V i’ V V i' i' V V,
V’, /i^TiViTi^^TiTiV*,i,///4V/»%V4%V////if/iíi!Ai!4V4'
Canon
RIKISSBCIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
Ljósritunarvéiar
FC-3, 43.600 stgr.
FC-5, 46.300 stgr.
Skrifvélin, sími 685277
Tíminn
Níu ára drengur fær ekki heimild til að flytja hund sinn með sér til (slands:
Davíð og Depill I
útlegð I Normandí
Davíð Charles, 9 ára íslensk/franskur drengur er, í útlegð
í Frakklandí ásamt Depli, hundi sínum. Foreldrar drengs-
ins fluttu til Normandí í Frakkland fyrir nálega einu ári en
snéru heim um síðustu mánaðamót án Davíðs og hundsins.
Davíð neitaði að fara til íslands án þess að fá að flytja
hundinn sinn, sem er borgfírskur að ætt og uppruna, með
sér heim. Þar við situr.
Faðir drengsins, Friðbert Páll
Njálsson, hefur óskað heimildar
landbúnaðarráðuneytis og yfir-
dýralæknis, fyrir hönd sonar síns,
til að fá að flytja inn hundinn, en
án árangurs.
í bréfí til ráðuneytis, dagsettu
30. júní sl., rekur Friðbert efnisat-
riði málsins og tekur þar m.a. fram
að hundaæði hafi aldrei þekkst í
Normandí. Því til sönnunar fylgdi
bréfinu vottorð löggiltra franskra
dýralækna. í bréfinu segir Friðbert
orðrétt: „Vandalaust er fyrir mig
að veita Depli, litla hundinum
okkar fullkomna sóttkví á íslandi,
í heimahúsum, í nauðsynlegan
tíma, sem að mér hefur verið tjáð
að séu fjórir mánuðir, sbr. upplýs-
ingar Landbúnaðarráðuneytisins
þar um, og taka fulla ábyrgð á að
iögum og reglum sé fylgt í einu og,
öllu.“
í bréfi ráðuneytis, dagsettu 17.
ágúst sl. er erindinu hafnað með
eftirfarandi orðum: „Samkvæmt
lögum nr. 11/1928 og 74/1962 er
innflutningur dýra óheimill og
undanþága háð meðmælum yfir-
dýralæknis. Erindi yðar var sent-
yfirdýralækni til umsagnar og í
svari hans kemur fram, að hann
telur sig ekki geta mælt með þess-
um innflutningi. Ráðuneytið er því
ekki í aðstöðu til að veita umbeðna.
undanþágu.“
Á síðustu dögum hefur Friðbert
rætt þetta mál við frammámenn í
landbúnaðarráðuneytinu, m.a.
ráðuneytisstjóra. Þá hefur hann
óskað eftir skriflegu svari frá Jóni
Helgasyni landbúnaðarráðherra
við bréfi, dagsettu 23. september
sl., þar sem áréttuð er beiðni um
að leyfa innflutning á hundinum.
Einnig hefur Friðbert leitað til
Haraldar Kröyer sendiherra ís-
lands í París og í framhaldi af
samtali þeirra sendi Haraldur bréf
til utanríkisráðuneytisins þar sem
óskað er eftir mannlegri meðferð á
þessu máli. Haraldur óskaði eftir
því að afrit af þessu bréfi yrði sent
til allra ráðherra í ríkisstjórn Þor-
steins Pálssonar.
Friðbert Njálsson leggur á það
áherslu að þetta mál snerti mun
fleiri þegna landsins en hans fjöl-
skyldu því dæmi séu til þess að
hundaeigendur hafi neyðst til að
setjast að erlendis vegna þess að
ekki megi flytja hunda þeirra hing-
að til lands. Þá bendir Friðbert á
að sendiráðsmenn hér á landi fái
leyfi til að flytja hunda sína hingað
til lands án teljandi vandræða.
„Það er að mínu viti alveg óþolandi
að níu ára drengur þurfi að sitja við
það borð að geta ekki komið til
landsins af því að hann vill ekki
koma án þess að hafa vin sinn
hundinn með sér á sama tíma og
erlendur sendiráðsmaður fái sjálf-
virkt já við sama erindi. Þama er
auðvitað á ferðinni mikið órétt-
læti,“ segir Friðbert. Hann segir
það ennfremur viðurkennt, m.a.s.
í opinbera geiranum, að hingað sé
smyglað inn hundum á ári hverju
og þeir hundar séu af skiljanlegum
ástæðum ekki undir eftirliti heil-
brigðisyfirvalda hér á landi. „Á
meðan fólki er neitað stöðugt um
heimild til að flytja hunda hingað
undir nauðsynlegu eftirliti, er boð-
ið heim þeirri hættu að hundunum
sé smyglað hingað. En af því að við
fórum þá leið að senda inn skriflega
beiðni um þetta til yfirvalda, þá
fáum við afsvar. Okkur er refsað
fyrir að standa heiðarlega að
málum. Ef að mönnum er alvara í
að halda búfjársjúkdómum frá
landinu verður fyrst og síðast að
fyrirbyggja smygl á hundum hingað
til lands," segir Friðbert.
Davíð Charles dvelur nú hjá
ættingjum ytra og bíður eftir far-
sælum lyktum í máli hans hér
heima. Að sögn föður hans mun
hann fara í skóla ytra á allra næstu
dögum ef ekki fæst grænt ljós á
komu Depils hingað til lands.
En hver skyldu verða næstu
skref í þessu máli af hálfu fjöl-
skyldu Davíðs? Friðbert segir að
hann hyggist reyna að ná tali af
landbúnaðarráðherra. Ef það beri
ekki árangur sé sú leið eftir að leita
liðsinnis frú Vigdísar Finnboga-
dóttur, forseta íslands. Reynist
það ekki árangursríkt liggi beinast
við að vekja athygli á því í fjölmiðl-
um ytra að 9 ára íslenskur drengur
sé í útlegð í Frakklandi vegna þess
að hann fái ekki að flytja hund sinn
með sér til síns heimalands. óþh
Vinirnir Davíð Charles og hundurinn Depill bíða í Frakklandi eftir því að
íslensk stjórnvöld veiti þeim leyfi til þess að fiytjast heim hið fyrsta.
Brúnni yfir Múlakvísl lokaö í gærdag vegna skemmda:
Björgunarsveitin
ferjar bíla yfir
Brúnni yfir Múlakvísl var lokað
í gær, þar sem hún var talin
varhugaverð umferð. Annar
tveggja burðarstólpa í einu brúar-
hafinu, brotnaði og var talið tvísýnt
um tíma að brúin myndi halda.
Ekki var um að ræða vatnavexti
í Múlakvísl, heldur var gömul
skemmd, sem gert hafði vcrið við
áður, að segja til sín á nýjan leik.
Múlakvísl rennur skammt aust-
an við Vík í Mýrdal.
Reynir Ragnarsson lögreglu-
þjónn í Vík sagði í samtali við
Tímann í gær að björgunarsveitin
Víkverji notaði öflugan vatnabíl til
að ferja smábíla yfir ána. Stórum
bílum er hjálpað yfir og hefur ýta
farið í ána nokkru ofan við brúna
og gert þar ágætis vað fyrir góða
jeppa.
Reynir vildi ráðleggja fólksbíl-
um að fara ekki Fjallabaksleið, þar
sem hún væri ógreiðfær og taldi
mun skynsamlegra að láta ferja
bílana yfir með björgunarsveitinni.
Vegagerðarmenn voru þegar í
gærkvöldi byrjaðir að rífa upp
brúargólfið og var ætlunin að kom-
ast að bitanum og skipta um hann.
Búist er við að viðgerð taki einn til
tvo daga. -ES
Hettufantar
handteknir?
Þrír menn hafa verið handteknir
vegna líkamsárásar á eldri hjón á
Seltjarnarnesi. Einn þeirra var í
gærkvöld úrskurðaður í- gæsluvarð-
hald og seint um kvöldið er Tíminn
var að fara í prentun var verið að
undirbúa kröfu um gæsluvarðhald
yfir hinum tveimur. Ekki var ljós
afstaða dómara í sakadómi varðandi
gæsluvarðhaldið, en rannsóknarlög-
reglumenn er Tíminn ræddi við voru
bjartsýnir á að gæsluvarðhald yrði
úrskurðað.
Hettumennirnir þrír sem Tíminn
greindi rækilega frá í gær virðast
vera fundnir, og verður að telja
frammistöðu lögreglunnar lofsverða
við rannsókn málsins. Yfirheyrslur
stóðu yfir í allan gærdag og langt
fram á kvöld yfir þremenningunum,
sem allir hafa áður kynnst innrétting-
um Síðumúlafangelsis. -ES