Tíminn - 28.09.1988, Blaðsíða 11

Tíminn - 28.09.1988, Blaðsíða 11
10 Tíminn Miðvikudagur 28. september 1988 Miðvikudagur 28. september 1988 Tíminn 11 ÍÞRÓTTIR ÓL - Körfuknattleikur Hefnd eftir 16árabið - Bandaríkin mæta Sovétríkjunum í undanúrslitum í körfuknattleiknum Það var míkið um að vera í körfuknattleiknum á Ólympíu- leikunum í Seoul í fyrradag. Leikið var um þrjú af fjórum sætum í undanúrslitum keppninnar og þótti það helst tíð-indum sæta að Spán- verjar biðu lægri hlut fyrir Áströlum, 77-74. Hinir leikirnir tveir, á milli Sóvétmanna og Brasílíumanna ann- ars vegar og Bandaríkjamanna og Puerto Ricobúa hins vegar, fóru Kanar í klandri:Tveirmeðiimir bandarísku 4x200 m boðsunds- sveitarinnar í skriðsundi voru handteknir af lögreglunni í Seoul vegna þjófnaðar. Var sund- mönnunum Troy Dalbey og Doug Gjertsen gefið að sök að hafa stolið styttu einni úr næturklúbbi í Ólympíuborginni á laugardags- kvöldið. Að sögn lögreglunnar var málið sent til saksóknara sem mun taka ákvörðun um hvort sundkapp- arnir verði sóttir til saka. Félagarn- ir tveir hafa nú verið reknir úr landsliðinu og um leið og rannsókn málsins verður lokið verða þeir sendir heim svo framarlega að saksóknari ákveði ekki að höfða refsimál. Talið er að ef sund- mennirnir verði sóttir til saka og fundnir sekir gæti það þýtt 2-10 ára framlengingu á dvölinni í Seoul og matseðil upp á brauð og vatn. nokkurn veginn eins og menn bjugg- ust við. Bandaríkjamenn héldu sigur- göngu sinni ótrauðir áfram og varð landslið Puerto Ríco þeim lítill farar- tálmi. Staðan var strax orðin 48-28 í hálfleik og endaði leikurinn með stórsigri Bandaríkjamanna 94-57. Með þessum 6. sigri sínum í röð tryggðu þeir sér sæti í fjögurra liða úrslitum þar sem þeir munu mæta Rússum sem sigruðu Brasilíumenn í hörkuleik 110-105. Oscar Schmidt var sem fyrr atkvæðamestur Brasi- líumanna og skilaði 46 stigum en fékk sína fjórðu villu þegar níu mínútur voru eftir, þurfti að yfirgefa völlinn og við það sigu Sóvétmenn framúr og héldu forskotinu allt til loka leiksins. Ástralíubúar munu svo leika við Júgóslavíu en augu heimsins munu þó að sjálfsögðu beinast að leik USA-USSR sem í raun verður úrs- litaleikur leikanna. - ss Pjetur Sigurðsson fréttamaður Tímans skrifar frá Ólympíu- leikunum í Seoul Verðlaunaskiptingin Land Sovétríkin Austur-Þýskaland Bandaríkin Vestur-Þýskaland Ungverjaland Búlgaría Rúmenía Bretland Frakkland Ítalía Kina Suður-Kórea Tékkóslóvakía Holland Noregur Nýja-Sjáland Danmörk Júgóslavía Ástralia PóUand Japan Finnland Spénn Kenýa Marokkó Portúgal Súrínam Tyrkland Svíþjóð Sviss Kanada Brasilía Costa Rica Chile Hollensku Antilles-eyjar Senegal Bandarísku Jómfrúr-eyjar Belgía GuU SUfur Brons 35 17 28 29 22 20 17 17 17 8 8 6 8 6 3 7 7 6 5 9 7 4 7 6 4 3 3 4 3 3 3 9 9 3 3 5 2 2 0 2 2 0 2 2 0 2 1 7 2 1 1 2 0 2 1 4 3 1 4 3 1 2 4 1 1 2 1 0 2 1 0 1 1 0 1 1 0 0 1 0 0 1 0 0 0 3 3 0 2 2 0 1 3 0 1 2 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 1 0 0 0 1 mm ÍÞRÓTTIR Ólympíuleikarnir í Seoul: Lyfjaneysla íþróttamanna svartur blettur á leikunum Kanadamaðurinn Ben Johnson var í gær endanlega dæmdur úr keppni á Ólympíuleikunum í Seoul, sviptur gull- verðlaunum sínum, heimsmet hans dæmt ógilt og rekinn heim með skömm. Maðurinn sem heiUaði miUjónir manna fyrir nokkrum dögum er nú af öllum fyriilitinn og útskúfaður. Það þótti mikið afrek hjá Johnson að hlaupa 100 m á 9,79 sek. og setja heimsmet, þrátt fyrir þá pressu sem á honum var, en einvígi hans við Banda- ríkjamanninn Carl Lewis hafði verið auglýst sem aðalviðburður leikanna. Sú varð og raunin, hlaupið sjálft var stór- kostlegt og metin flugu, fyrstu 4 menn hlupu allir undir 10 sek. Það er hins vegur eftirleikurinn sem á í framtíðinni eftir að vera efstur í hugum manna frá þessu umtalaða hlaupi og hætt er við að Ólympíuleikanna í Seoul verði minnst fyrir þau mörgu lyfjamál sem upp hafa komið á leikunum. Þriðja gullinu skilað Ben Johnson er þriðji gullverðlauna- hafi leikanna sem uppvís verður að því að hafa neytt ólöglegra lyfja og 7. íþróttamaðurinn sem vísað er úr keppni af sömu ástæðu. Formaður lyfjanefndar alþjóða Ólympíunefndarinnar, Belginn Alexandre de Moredo Prins, sagði að mál Johnsons væri sorglegt, en áfram yrði haldið baráttunni gegn lyfjum í íþróttum og fall Johnsons ætti að verða öðrum íþróttamönnum viðvörun. Ævilangt bann í lyfjaprófinu kom í ljós að Johnson hafði notað lyfið „Stanozolol", sem er „anaboliskur steri“. Sjálfkrafa fer John- son í ævilagt bann frá allri íþróttakeppni, en sækja má um náðum eftir 2 ár.- Svo gæti farið að keppnisferill Ben Johnson væri á enda, eftir þetta atvik. Keppir ekki aftur fyrir Kanada „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir alla Kanadamenn og sérstaklega fyrir fjöl- skyldu Ben Johnsons. Það verður að taka strangt á þessum málum, hver sem á í hlut, og nauðsynlegt til þess að einhvem tímann verði hægt að útrýma lyfjum úr íþróttum," sagði Brian Mul- roney forsætisráðherra Kanada í gær. Johnson mun missa alla þá styrki sem hann hefur notið í Kanada og mun aldrei aftur fá að keppa fyrir Kanada á alþjóða- mótum. Fall Johnsons er mikið áfall fyrir Kanada sem hefur staðið í fylkingar- brjósti þeirra ríkja sem hafa hvað harð- ast beitt sér gegn notkun á lyfjum í íþróttum og þar var fyrsta alþjóðaráð- stefnan gegn lyfjum í íþróttum haldin í júní í sumar.“ „Staðfestir grun minn“ „Þetta staðfestir það sem ég hef alltaf haldið," sagði Carl Lewis, eftir að til- kynnt var að Ben Johnson hafði fallið á lyfjaprófi. Eftir heimsmeistarakeppnina í fyrra sagði Lewis að lyfjanotkun væri algeng meðal íþróttamanna, án þess þá að nefna Ben Johnson á nafn. „Stemningin er alveg dottin niður héma,“ sagði kanadíski grindahlaupar- inn Stephen Kerho í gær. Allir í liðinu litu upp til hans, ég er sár og mjög vonsvikinn. Ég stoltur af því að vera Kanadamaður og þetta breytir engu um ímynd Kanada.“ „Þegar miklir peningar em komnir í spilið þá verður þetta freistingu,“ sagði svissneski frjálsíþróttamaðurinn Chris- tian Gugler, en þeir Johnson og Lewis skiptu með sér hálfri milljón dala í sumar þegar þeir reyndu með sér í Zurich í Sviss. „Fyrir hálfa milljón dali mundi ég hugsanlega taka lyf,“ sagði Gugler. Johnson segist vera saklaus Aðalfararstjóri kanadfska Ólympíu- liðsins Carol Ann Letheren tilkynnti Johnson um niðurstöður lyfjaprófsins. „Hann varð fyrir miklu áfalli þegar ég tilkynnti honum að hann hefði fallið á prófinu. Hann gat ekkert sagt fyrir geðshræringu. Móðir hans og systir vom þá hjá honum". Bæði Johnson og þjálfari hans neita að hann hafi notað ólögleg lyf og segja að hugsanlega hafi lyfinu verið komið fyrir í svaladrykk hlauparans fyrir hlaup- ið. Læknar kanadíska liðsins hafa tekið sýni úr drykknum og komið því tili: lyfjanefndarinnar, en formaður hennar ; sagðist ekki vera spenntur fyrir því að’ kanna innihaldið. Hann sagði að ef lyfiðf hefði komist í Ifkama Johnsons eftir hlaupið og fyrir lyfjaprófið þá hefðu niðurstöðumar úr prófinu orðið aðrar. Búið að dæma Johnson Óvíst er hvort nokkum tfmann tekst að sanna hvort Johnson var byrlað lyfið, enda er það mjög ótrúleg skýring. Eitt er þó skrýtið, íþróttamaður sem veit nokkum veginn fyrir víst að hann verður í verðlaunasæti á Ólympíuieikunum og verður þar af leiðandi lyfjaprófaður, neytir ekki vísvitandi lyfja stuttu fyrir keppni. Þó mun það vera staðreynd að lyfin finnast mislengi í mönnum og algjörlega getur verið tilviljanakennt hvenær fram kemur jákvætt próf og hvenær neikvætt, hafi lyfja á annað borð verið neytt, lyfjaprófin em ekki 100% ömgg. Johnson átti við meiðsl að strfða og var frá keppni í 5 mánuði af þeim sökum. Lyfið sem fannst í prófinu í Seoul flýtir fyrir að menn nái sér af slíkum meiðslum. Dómur hefur hins vegar verið kveðinn upp yfir Ben John- son og erfitt verður fyrir hann að hreinsa nafn sitt héðan af. íþróttamálaráðherra Kanada sagði í gær að Ben Johnson hefði ekki verið lyfjaprófaður eftir kanadfska meistara- mótið í júlí, en talsmenn kanadíska Ólympíuliðsins í Seoul sögðu í gær að Johnson hefði gengist undir 8 lyfjapróf sfðan í febrúar 1987 og aldrei áður fallið. Á keppnisdag hafði hann með sér vatns- flösku með karabískum jurtadrykk í, sem hann fékk hjá aðstoðarmanni sínum. Hann setti fiöskuna í æfinga- tösku sína fyrir hlaupið. Eftir hlaupið var farið með töskuna til búningsher- bergja, en hún hafi verið skilin eftir á stað þar sem var margt fólk og hver sem er gat nálgast hana. Við höfum framburð manna sem þar voru, um að þar hafi verið fólk sem ekkert erindi átti þar og það án tilskilinna leyfa. Lyfin eru staðreynd Hvort sem Kanadamönnum tekst að verja sinn mann eða ekki er víst að lyf leika æ stærra hlutverk hjá íþróttamönn- um og eru þar fáir undanskildir. Það eru hins vegar þeir óheppnu sem súpa seyð- ið. Það er opinber sannleikur að íþrótta- menn, sérstaklega í greinum þar sem kraftur er í öndvegi, taka lyf til þess að flýta fyrir vöðvavexti og flýta fyrir bætt- um árangri. Sumir taka enga áhættu og hætta að taka lyfin löngu fyrir stórmót, vegna hræðslu við lyfjapróf og ná kannski ekki eins góðum árangri fyrir vikið. Þessir sömu menn bæta síðan árangur sinn á innanfélagsmótum, þegar þvagsýnisflöskumar eru víðs fjærri. BL , Lyfjadagbók Ólympíuleikanna Kalman Osengeri frá Ungverja- landi rekinn úr keppni í lyftingum. Notaði Pemoline sem er örvandi lyf. 27. september: Ben Johnson frá Kanada sviptur gullinu í 100 m hlaupi. Heimsmet hans 9,79 sek. dæmt ógilt. Johnson yfirgefur Se- oul. Notaði Stanozolol, anaboliskan stera, Mesta lyfjahneyksii Ólympíuleik- anna frá upphafi. BL 22. september: Búigarski lyftingamaðurinn Mitko Grablev skilar gullverðlaunum sínum í lyft- ingum og er rekinn heim. Notaði Furosemide, sem er megr- unariyf, sem einnig gctur falið notkun annarra lyfja. Ástralinn Alex Watson rekinn úr keppni í nútíma fimmtarþraut. Notaði Caffeine, sem er örvandi iyf. 24. september: Búigarski lyftingamaðurinn Angel Guenchev missir guUverðlaun sín og 4 heims- met. Notaði Furosemide. Spán vcrjinn Jorge Queseda rekinn úr kcppni í nútíma fimmtarþraut. Notaði Beta blokkera, scm hægja á hjartslætti og minnka spennu. 25. september: Fernando Mariaca frá Spáni rekinn úr lyft- ingakeppninni. Notaði Stanozolol, anaboliska stera. Gunnlaugur og Isleifur í 22. sæti siglinganna Frá Pjetrí Sigurðssyni fréttamanni Tímans í Seonl: „í gær varsíðasti keppnisdagurinn hjá okkur, við urðum líklega í 16. sæti í keppninni í dag. Þetta var nú eiginlega ekki sigling, það var brjál- að veður, 8-9 vindstig. Það voru margir sem veltu bátum sínum og við vorum í þeim hóp veltum bátnum einu sinni,“ sagði ísleifur Friðriks- son siglingamaður í samtali við fréttamann Tímans. „Þetta var allt í lagi í startinu, en þrátt fyrir góða veðurspá þá rauk hann upp með látum. Það bjargaði okkur að við erum orðir mjög snjallir í að rétta bátinn við. Ég gæti giskað á að við séum í 19.-20. sæti í heildina. Ég er alls ekki sáttur við þann ángur, við hefðum átt að geta siglt betur. Ég hef grun um að eitt seglið sé ekki alveg í lagi.“ „Ég er alveg gjörsamlega búinn eftir 7 keppnir á 8 dögum og gæti verla siglt 1 dag enn. Það er lokahá- tíð í Pasam í dag og við förum til Seoul á morgun, þar sem við ætium að skoða okkur um og slappa af. Svo fer maður heim að vinna fyrir skuldunum. Við Gunnlaugur höld- um eitthvað áfram að sigla saman, ætli við förum ekki út í eitthvað ævintýri næsta sumar. Annars á ég son sem er íslandsmeistari í ung- lingaflokki og vildi gjarnan aðstoða hann,“ sagði ísleifur að lokum og það gætti þreytu í röddinni. Samkvæmt nýjustu fréttum frá Seoul höfnuðu þeir Gunnlaugur og ísleifur í 22. sæti siglingakeppninn- ar. PS/BL Knattspyrna: Leikið í Danmörku og Finnlandi í kvöld Landslið íslands skipað leikmönn- um 21 árs og yngri leikur í kvöld gegn Finnum í undankeppni Evr- ópukeppni landsliða og íslenska A- landsliðið leikur gegn Dönum á Idretsparken í Kaupmannahöfn vin- áttulandsleik. Eftirtaldir leikmenn skipa 21 árs liðið: Markverðir: Ólafúr Gottskálksson í A Adolf Óskarsson ÍBV Aðrir leilunenn: Alexander Högnason ÍA Haraldur Ingólfsson f A Rúnar Kristinsson KR Þorsteinn Halldórsson KR Einar P. Tómasson Val Steinar Adolfsson Val Arnljótur Davíðsson Fram Hallsteinn Amarson Víkingi Pétur Óskarsson Fylki Baldur Bjamason Fylki Ólafur Kristjánsson FH Gestur Gylfason ÍBK Eyjólfur Sverrisson Tindastól Ágúst Már Jónsson KR Leikurinn verður leikinn í borg- inni Oulu, um 700 km norður af Helsinki. A-landsliðið sem mætir Dönum á Idretsparken í Kaupmannahöfn er skipað eftirtöldum leikmönnum: Markverðir: Bjami Sigurðsson Friðrik Friðriksson Aðrir leikmenn: Araór Guðjohnsen Ásgeir Sigurvinsson Atli Eðvaldsson Guðmundur Torfason Guðni Bergsson Gunnar Gíslason Ólafúr Þórðarson Ómar Torfason Pétur Amþórsson Ragnar Margeirsson Sævar Jónsson Viðar Þorkelsson Þorvaldur örlygsson Kristinn R. Jónsson Ingvar Guðmundsson Brann B 1909 Anderlecht Stuttgart Val Genk Val Moss ÍA Fram Frarn ÍBK Val Fram KA Fram Val Pétur Ormslev og Halldór Áskels- son gáfu ekki kost á sér í leikinn og voru þeir Kristinn og Ingvar valdir í þeirra stað. Ekki var í gær öruggt hvort Arnór fengi leyfi frá Ander- lecht til að mæta í leikinn, en þjálfari liðsins vildi ekki sleppa af honum hendinni. BL ÓL— Hjátrú: Fjórða hæðin er ekki með Frá Pietrl Sigurftssyni fréttamanni Tfmans i Seoul: Það er með eindæmum hvað Kóreubúar eru hjátrúarfullir. Hér er talan 4 talin óhappatala, eins og talan 13 á íslandi. Þetta gengur svo langt að á hótelum og öðrum bygg- ingum sleppa þeir einfaldlega 4. hæðinni. Reyndar er ekki gat á húsunum, heldurer4. hæðin einfald- lega sú 5. PS/BL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.