Tíminn - 21.10.1988, Blaðsíða 15

Tíminn - 21.10.1988, Blaðsíða 15
Föstudagur 21. október 1988 illlllll MINNING Ingvar Þorsteinn Vilhjálmsson Fæddur 5. nóvembcr 1918 Dáinn 21. september 1988 Skoðaðu liugþinn vel, þegarþú ertglaður og þúmunt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Pegar þú ert sorgmœddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Hann var afi okkar og hann var líka góður vinur okkar. Hann var þannig að við gátum talað við hann um alla mögulega hluti og við fund- um að hann skildi okkur. Pað var eins og þegar jafnaldrar tala saman. Þannig átti hann sérstaklega auð- velt með að setja sig í spor viðmæl- anda síns. Þó var langt frá því að við værum alltaf sammála um það sem við töluðum. Og þegar svo var komið að engin sættanleg niðurstaða fékkst, eftir alllangt þras, stóð hann hlæjandi upp, hristi höfuðið' og labbaði afsíðis með bók í hönd og fór að lesa. Hann var sílesandi og átti mikið af alls konar bókum og blöðum. Þegar við vorum Iítil sagði hann okkur ófáar sögurnar og báru þar hæst þjóðsögur Jóns Árnasonar. Sumar hverjar voru alldularfullar, og þegar hann sá á okkur óttablandinn svipinn, sagði hann að við skyldum ekkert mark taka á þessu. Þetta varð náttúrlega til þess að þegar við komum í heimsókn til afa og ömmu sátum við og Iásum þjóðsögurnar. Hann sók stundum að sér hrein- gerningar í Hafnarbíói á laugardags- og sunnudagsmorgnum og þótti okk- ur systkinunum fátt skemmtilegra en að vera með honum á meðan. Það var auðvitað undir því yfirskini að við værum að hjálpa til. En staðreyndin var sú að okkur fannst bara svo skemmtilegt að vera návist- um við hann. Það fór einstaklega vel á með okkur þremur og hann sagði okkur sögur og við spjölluðum og hlógum saman. Afi var í mörg ár rakari en á seinni árum vann hann sem dyravörður í kvikmyndahúsi á Hverfisgötunni. Það átti vel við hann því hann hitti mikið af fólki og oftar en ekki þekkti hann annan hverrvmann sem kom í bíó. Það er okkur dýrmæt reynsla að hafa þekkt hann og alist upp návist- um við hann. Við minnumst hans með söknuði og viljum umfram allt minnast hans eins og hann var; góðlátlega glettinn og skemmtilegur. Blessuð sé minning hans. Sigrún og Jón Óskar. Miðvikudaginn 21. september hringdi eiginkona mín til mín í vinnuna og greindi mér frá láti föður síns. Mér brá óneitanleg, þó að mér væri ljóst að hann gekk ekki heill til skógar síðasta árið. Hjá honum hófst dagurinn eins og hver annar virkur dagur, hann fór að heiman í sínum venjulegu morgunerindum og átti ekki afturkvæmt því laust fyrir hádegi var hann allur. Mig langar til að minnast tengdaföður míns með fáeinum orðum. Ingvar var sonur hjónanna Vil- hjálms Vigfússonar frá Hamrakoti í Húnavatnssýslu, f. 1878, d. 1942, kominn af Grundarætt í Skorradal og Fjallsætt á Skeiðum og Þórdísar Þorsteinsdóttur, f. 1878, d. 1963, frá Reykjum á Skeiðum, af hinni kunnu Reykjaætt. Þau hjón eignuðust níu börn, e'n aðeins sex komust til full- orðins ára, fimm dætur, þær Vil- helmína gift Sigtryggi Eiríkssyni, sem er látinn, Ingiríður, gift Salbergi Guðmundssyni, sem er látinn, Val- gerður, sem er látin, gift Eyþóri Gunnarssyni, sem einnig er látinn, Svanlaug, gift Sigurður F. Ólafssyni, sem er látinn, og Sigríður, gift Einari G.E. Sæmundssen, sem er látinn, og Ingvar, sem var yngstur. Óblíður heimur heilsaði litla drengnum við fæðingu hans, því Spánska veikin geisaði þá sem hæst. Þórdís móðir hans var flutt skömmu síðar á Landakotsspítala, en yngstu börnin, Ingvar, kornabarn og Sigríður um það bil tveimur árum eldri, voru lögð inn á sjúkraskýli, sem komið hafði verið upp í Miðbæj- arbarnaskólanum. Þegar Ingvar kom heim, eftir nokkurra vikna dvöl á sjúkraskýlinu, varhann ekkert nema skinn og bein, vegna næringarskorts og fjarveru frá móður sinni. Þá varð honum til bjargar elsku- leg nágrannakona, sem hafði nýlega fætt barn og var með mjólk í brjóst- um og miðlaði drengnum, af hjálp- semi, sem einkenndi samskipti fólks á þessum hörmungartímum. Ingvar ólst síðan upp fyrstu árin á Berg- staðastræti 7. Hann var í skóla á veturna og sveit á sumrin. Um tvítugsaldur liggur leið hans til Keflavíkur til náms í rakaraiðn hjá Guðjóni rakara. Þar vann Ingvar meðan stríðið geisaði. Eftir stríð kom hann aftur til Reykjavíkur og fór að vinna hjá Páli Einarssyni, rakarameistara, sem lengst af var með rakarastofu á Njálsgötu 87. Sumarið 1947 brá hann undir sig betri fætinum og fór í heimsókn til systur sinnar, Sigríðar, og mágs, Einars G.E. Sæmundssen, skógar- varðar að Vöglum í Fnjóskadal. Þar var þá við skógræktar- og heimilis- störf Sigrún Sigurgeirsdóttir, ung og efnileg heimasæta, dóttir hjónanna á Arnarstapa í Ljósavatnsskarði, sem þar bjuggu hlýlegu búi, þau Anna Guðmundsdóttir, húsfreyja og .Sigurgeir Jóhannsson, bóndi. Þannig urðu fyrstu kynni Sigrúnar og Ingvars. Veturinn eftir lágu leiðir þeirra aftur saman í Reykjavík og gengu þau í heilagt hjónaband, 21. maí 1949, um leið og dóttir þeirra, sem fæddist fyrr um veturinn, var skírð. Var henni gefið nafnið Þórdís, í höfuðið á föðurömmu sinni, sem mat það mikils, enda hafði amma hennar mikið dálæti á sonardóttur sinni. Ingvar starfaði sem rakari, bæði sjálfstætt og hjá öðrum, allt fram á miðjan áttunda áratuginn, en eins og flestum er kunnugt varð mikill samdráttur í hárskeraiðn og hættu margir hárskerar og sneru sér að öðrum störfum. Ingvar fór þá að starfa sem dyravörður í Hafnarbíói og síðar í Regnboganum og kunni hann mjög vel við það starf. f því starfi komst hann í snertingu við eitt af hans mörgu áhugamálum, kvik- 'myndir, auk þess hve mannblend- inn hann var veitti það honum mikla ánægju, allt fólkið, sem á vegi hans varð, bæði samstarfsmenn og gestir kvikmyndahússins. Annað mikið áhugamál Ingvars voru bækur og bókalestur. Má segja að hann væri alæta á lesefni, allt frá tímaritum upp í ævisögur og þjóð- legan fróðleik. Átti hann orðið dá- gott bókasafn. Einnig veittu aðrar listgreinar honum ómælda ánægju. Ekki get ég skilið svo við áhugamál tengdaföður míns að minnast ekki á áhuga hans á íþróttum og þá sérstak- lega knattspyrnu. Þær voru ófáar vallarferðirnar sem við fórum saman eftir að ég tengdist fjölskyldunni. Þá má ekki gleyma dálæti hans á heimsóknum þeirra hjóna til tengda- fólksins á Norðurlandi, en þangað fóru þau á hverju sumri alla þcirra sambúð og mér er ekki kunnugt um að ferð hafi fallið þar úr enda voru þau aufúsugestir hvar sem þau komu þar. Nú er höggvið stórt skarð í okkar litlu fjölskyldu með fráfalli Ingvars tengdaföður míns, því samskipti okkar heimila voru óvanalega náin sem skapaðist ekki síst af áhuga Ingvars fyrir barnabörnunum og þar af leiðandi er missirinn sárari fyrir þau. Þungbærastur er þó missirinn fyrir Sigrúnu, eiginkonu hans, sem var hans stoð og stytta alla þeirra sambúð, og Þórdísi, dóttur þeirra, sem hefur borið hag foreldra sinna mjög fyrir brjósti. Á þessari kveðju- stund er mér efst í huga þakklæti fyrir þær mörgu góðu minningar um samverustundir sem við áttum saman. Tengdaföður minn kveð ég með söknuði og óska honum góðrar heimkomu að handan og megi góður Guð veita okkur styrk við þessi vegamót. Sverrir Guðmundsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Játvarður Jökull Júlíusson Miðjanesi Reykhólasveit verðurjarðsunginnfrá Reykhólakirkju Iaugardaginn22. okt. kl. 14.00. Jarðsett verður að Stað. Þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Dvalar- heimilið Barmahlíð, Reykhólum. Rósa Hjörleifsdóttir Helga Játvarðardóttir Halldóra Játvarðardóttir Ámundi Játvarðsson Jón Atli Játvarðsson Þórunn Játvarðardóttir María Játvarðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Vilhjálmur Sigurðsson Lovisa Hailgrímsdóttir Dísa Sverrisdóttir Þórarinn Þorsteinsson Hugo Rasmus Tíminn 15 Fundarboð Aðalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu verður haldinn að Hlé- garði, Mosfellsbæ, sunnudaginn 23. okt. n.k. kl. 17.00. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf, þar með talið kjör fulltrúa á kjördæmisþing og flokksþing. Kjör heiðursfélaga. Að aðalfundi loknum er gert hlé til skrafs og viðræðna til kl. 19.00, en þá hefst kvöldverður. Gestir fundarins verða: Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra Jóhann Einvarðsson, alþingismaður, og eiginkonur þeirra. Fólki, sem ekki hefur tök á að sitja aðalfundinn, er bent á, að það er velkomið til kvöldverðarins. Vinsamlega hafið samband vegna matarpantana eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn við: Gylfa, vs. 985-20042, hs. 666442. Helga, vs. 82811, 985-21719, hs. 666911. Stjórnin Árnesingar Hin árlega 3ja kvölda framsóknarvist Framsóknarfélags Árnessýslu hefst föstudaginn 21. okt. n.k. kl. 21.00 að Flúðum, föstudaginn 28. okt. í Þjórsárveri og lýkur 11. nóv. í Aratungu. Aðalvinningur er ferð fyrir 2 með Samvinnuferðum/Landsýn. Einnig vegleg kvöldverðarlaun. Stjórnin. Aðalfundur Aðalfundur Framsóknarfélags Árnessýslu verður haldinn að Eyrar- vegi 15, Selfossi þriðjudaginn 25. okt., n.k. kl. 21.00. Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar. önnur mál. Stjórnin. Aðalfundur F.R. Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavíkurverðurhaldinn fimmtudag- inn 27. október að Nóatúni 21 kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Ath. breyttan fundartíma! Akranes Aðalfundur Framsóknarfélags Akraness verður haldinn að Sunnu- braut 21 fimmtudaginn 27. október kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. Kosning fulltrúa á flokksþing. Önnur mál. Stjórnin. Borgnesingar - Nærsveitir Spilum félagsvist í samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 21. október kl. 20.30. Mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgarness. Aðalfundur fulltrúaráðsins í Reykjavík Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík verður haldinn laugardaginn 5. nóvember n.k. að Hótel Lind og hefst kl. 10.00. Dagskrá fundarins nánar auglýst síðar. Stjórnin Suðurlandskjördæmi Kjördæmisþing verður haldið í Vestmannaeyjum 4. og 5. nóvember n.k. Þingið hefst kl. 19.30 föstudaginn 4. nóv. Athugið breyttan tíma. Nánar auglýst síðar. Stjórnin Norðurlandskjördæmi vestra Kjördæmisþing verður haldið dagana 29. til 30. okt. n.k. í félagsheimil- inu á Blönduósi. Þingið hefst kl. 14. Dagskrá auglýst síðar. KFNV __ Vesturland Kjördæmisþing framsóknarmanna á Vesturiandi verður haldið á Akranesi 5. nóvember n.k. KSFV

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.