Tíminn - 21.10.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 21.10.1988, Blaðsíða 3
Föstudagur 21. október 1988 Tíminn 3 Óánægja með störf HÍK og KÍ: Á ísafirði stendur til að stofna samtök leiðbeinenda á Vestfjörðum. Tilgangur samtakanna er að gæta hagsmuna leiðbeinenda hvort sem það er innan stéttarfélaganna, HÍK og KÍ, eða utan. Að sögn Herdísar Hubner, sem er í undirbúningsnefnd, hefur lengi staðið til að stofna samtök sem þessi. „Við höfum verið mjög óánægð með hvernig Kennarasambandið hefur staðið að okkar málum og eins eru þeir sem eru í HÍK óánægðir með sitt stéttarfélag. Þessi hugmynd kom upp á kennaraþinginu að Núpi og var mikið rædd þar, en af stofnun samtakanna varð ekki þá.“ Herdís sagði einnig að hennar mat væri, að það væru fyrst og fremst þrfr málaflokkar sem samtökin myndu vinna að. í fyrsta lagi væri staða leiðbeinenda innan KÍ fárán- leg. „Við höfurn hvorki kosningarétt né kjörgengi fyrr en við erum búin að starfa í þrjú ár, við borgum semsagt full félagsgjöld en njótum engra réttinda innan félagsins. í öðru lagi er óánægja með ýmis kjaramál, til dæmis erum við alltaf ráðin frá ári til árs og megum svo bíða kannski fram á haust eftir því að vita hvort við höldum stöðunni eða ekki. Einnig koma til almenn launamál. í þriðja lagi eru það ýmis málefni sem snerta þá sem eru í réttindanámi í Kennaraháskólanum og Háskólanum. Meðal annars hafa leiðbeinendur ekki fengið neina styrki frá Kennarasambandinu til að íjækja þetta nám eins og réttinda- kennarar fá þegar þeir sækja nám- skeið suður.“ Á Vestfjörðum starfa jafnmargir leiðbeinendur og kennarar. Ekki er endanlega búið að ákveða hvenær stofnfundur samtakanna verður. Herdís sagði að lokum, að enn hefðu stéttarfélögin KÍ og HÍK ekki látið í sér heyra varðandi þessa ákvörðun leiðbeinendanna. Lög nr. 48 frá I986 Tíminn setti sig í samband við Svanhildi Kaaber hjá Kennarasam- bandi íslands og spurði hana hvernig brugðist yrði við þessari ákvörðun leiðbeinendanna. Hjá Svanhildi kom fram að mál þetta var kynnt á síðasta stjórnarfundi og ákvörðun verður tekin næstkomandi föstudag, hvort eitthvað verður gert í málinu að hálfu Kennarasambandsins. Svanhildur var einnig spurð að því hvort til stæði að auka réttindi leiðbeinenda innan Kennarasamb- andsins. „Leiðbeinendur öðlast full réttindi innan Kennarasambandsins eftir þriggja ára starf við kennslu, fyrir þann tíma hafa þeir öll félagsleg réttindi, önnur heldur en kosninga- rétt og kjörgengi til trúnaðarstarfa. Þetta mál hefur margsinnis verið tekið upp. Það er starfandi nefnd núna sem er að endurskoða lög Kennarasambandsins. “ Svanhildur var einnig spurð að því hvort komið hefði til tals að leiðbein- endur hlytu sömu réttindi og rétt- indakennarar eftir að vissri starfs- reynslu væri náð. „Það getur enginn fengið slíkt nema að loknu kennara- námi. Það er í gangi núna við Kennaraháskólann réttindanám, en það er samkvæmt bráðabirgðará- kvæði við lög um lögverndun á Leiðbeinendur á Vestfjörðum undirbúa nú stofnun stéttarfélags. Leiðbeinendur telja stöðu sína innan KÍ fáranlega. Á myndinni sést nemandi óska eftir leiðbeiningum. starfsheiti og starfsréttindum grunn- skólakennara og framhaldsskóla- kannara. Öllum sem starfað höfðu við kennslu í sex ár eða lengur var boðin þátttaka í þessu námi þegar það hófst í fyrrahaust og í því eru nú um 80 manns sem munu fá réttindi til starfsheitisins að loknu þessu námi.“ Eins og kom fram hér að ofan þá hafa leiðbeinendur verið óánægðir með að fá ekki styrk til að sækja réttindanám. Varðandi þetta atriði sagði Svanhildur: „Þannig er mál með vexti að með kjarasamningi sem gerður var í apríl 1987, fylgdi bókun um að fjármálaráðherra og menntamálaráðherra myndu útvega fjármagn vegna réttindanámsins fyr- ir þetta fólk. Þetta hefur ekki verið gert, þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir af okkar hálfu.“ Svanhildur var spurð hvort hún vissi til þess að leiðbeinendur víðar á landinu hyggðust stofna hags- munasamtök. „Ég hef ekki heyrt neitt um það. Eitthvað af þessu tagi hefur margsinnis komið upp. Ég bara veit ekki hvort það eru fleiri sem tengjast þessum hópi.“ Að lokum var Svanhildur innt eftir því hvort gamla slagorðið „sömu laun fyrir sömu vinnu" væri dottið upp fyrir. „Þetta er ekki það sama. Þegar starfsheiti hefur verið lögverndað, þegar það byggist á ákveðnum grunni, í þessu tilviki þriggja ára háskólanámi, þá er það ekki það sama. Þetta er nákvæmlega tíundað í lögum nr. 48 frá 86.“ ssh Leiðbeinendur á Vestfjörðum stofna eigin hagsmunasamtök Símskeyti um hlað Hótel Arkar í gær á sérleiðinni Reykjavík - Selfoss: Meðferðin lögleysa og meiðandi ummæli Símskeyti hafa nú gengið á milli aðila í „Arkarmálinu“ eins búist var við í gær. Það kom á daginn að skeyti það sem fulltrúi sýslumanns- ins á Selfossi sendi Pétri Þór Sigurðs- syni, hæstaréttarlögmanni Hótel Arkar hf., hafði lokast inni á póst- húsi í Reykjavík í fyrradag. Það barst því ekki í hendur réttra aðila fyrr en í gærmorgun, ef frá er talinn sá hluti skeytisins sem aðstandendur heyrðu í fjölmiðlum. Þó var það hraðskeyti. Nú hefur því verið svar- að með öðru símskeyti þar sem höfnun tilboðs Hótel Árkar hf. er „mótmælt sem lögleysu". Mótmælir Pétur Þór einnig þeim ummælum sem höfð eru eftir uppboðshaldaran- um, Þorgeiri Inga Njálssyni, í fjöl- miðlum, um möguleika umbjóðand- ans til að efna tilboð sitt að fjárhæð 230 milljónir króna og segir þau röng og meiðandi. Ekki náðist í Þorgeir Inga í gær, en búist er við að sáttatilraun verði reynd um helgina, áður en hugsanleg áfrýjun til Hæsta- réttar verður undirbúin. Þegar Tíminn ræddi við uppboðs- haldarann, er hann opinberaði ákvörðun sína, sagði hann að það hafi verið borðliggjandi að Hótel Örk hf. gæti ekki staðið við boð sitt í húseignina Breiðumörk lc, en það er hótelbyggingin sjálf. Hann hafi ■ 1 1 ísr.. v < 1 - ' ■ " ] 1 — : :.’=r-..l" ,:, 1 •*— É ■ « . -<4 Skeytin sem gengu á milli aðila. því ekki getað annað en tekið næst hæsta boði í Breiðumörkina. Það var frá Framkvæmdasjóði Islands og hljóðaði upp á 200 milljónir króna. Framkvæmdasjóður er stærsti ein- staki aðilinn sem á inni fé hjá eiganda Breiðumerkur lc, Helga Þór Jónssyni. Þegar ákveðið hefur verið að gengið skuli sé að tilteknu boði í eignina verður bjóðandinn að leggja fram einn fjórða boðsins. I tilfelli Framkvæmdasjóðs eru það 50 millj- ónir króna, en það er minna en Helgi Þór skuldar sjóðnum. Þannig nægir Framkvæmdasjóði að leggja fram eigin skuldakröfu til að eignast hótelbygginguna. Þetta stafar af því að ekki þarf endilega að leggja fram fé’ til að efna boðið. Samkvæmt heimildum Tímans mun það hafa legið alveg ljóst fyrir að Fram- kvæmdasjóður gat efnt boð sitt. Hins vegar er því haldið fram af hluthöfum í Hótel Örk hf. að ekki hafi verið leitað eftir því hvort og þá hvernig hlutafélagið hyggðist efna boð sitt upp á 230 milljónir króna. Það er því enn óskýrt dæmi og reyndar orsök þess að lögmaður félagsins hefur lýst þessa málsmeð- ferð „lögleysu". KB Finnsk vika hefst í dag. Hún hefst á Holiday Inn kl. 4 í dag með setningu Jóns Sigurðssonar við- skiptaráðherra. I tilefni finnsku vikunnar verða vörusýningar og kynningar víða um land og verða sýndar bæði alþekktar vörur og vörumerki sem fáanleg hafa verið hérlendis um áratuga skeið, en einnig nýjungar. I Holiday Inn verður finnsk vörusýning, finnsk ferðakynning og finnskur matur verður á boð- stólum og finnskur vísnasöngvari, Haakan Streng skemmtir til og með sunnudagskvöldinu 23. októ- ber. Finnsk hönnun og vöruvöndun er heimskunn og viðskipti Finn- lands og íslands standa á gömlum merg og hefur lengst af ríkt jöfnuð- ur í viðskiptum landanna. Útflutningsvörur þangað eru einkum fiskur, skinnavara og lýsi. Inn frá Finnlandi er einkum fluttur pappír, timbur, fatnaður og ýmis iðnvarningur. -sá Finnsk hönnun og vöruþróun vcrð- ur kynnt á Holiday Inn. Finnskvikaá Holiday Inn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.