Tíminn - 09.11.1988, Qupperneq 15
Miövikudagur 9' nóvember'1988
Tíminn 15
Magnús Loftsson
Fæddur 15. júlí 1908
Dáinn 31. október 1988
Hann Magnús tengdafaðir minn
og vinur er látinn. Stutt er á milli lífs
og dauða, aðeins eitt andartak. Ekki
datt mér í hug, þegar ég talaði við
hann í síma um kvöldmatarleytið
þann 31. október að það yrði síðasta
samtalið okkar, en þremur tímum
síðar var hann látinn, svo snöggt og
öllum óviðbúið, þrátt fyrir að hann
hafði náð því að verða áttræður nú í
sumar. Magnús var ailtaf svo kátur
og léttur í lund og jákvæður fyrir
öllu sem í kringum hann var, þannig
að maður tók tæpast eftir því að
hann var vissulega farinn að eldast.
Magnús Loftsson hét hann fullu
nafni og var fæddur í Haukholtum í
Hrunamannahreppi þann 15. júlí
1908. Hann var yngstur fimm syst-
kina. Magnús var sonur hjónanna
Kristínar Magnúsdóttur og Lofts
Þorsteinssonar. Hann hóf snemma
bifreiðaakstur og gerði þá atvinnu
að ævistarfi sínu. Árið 1939 kvæntist
hann Jónínu S. Ásbjörnsdóttur frá
Sólheimum í Sandgerði, en Jónína
átti þá litla dóttur, Guðrúnu, sem
ólst upp hjá þeim en hún var gift
Snorra Jónssyni sem lést árið 1979.
Magnús og Jóna eignuðust sex börn,
en þau eru Kristinn sem kvæntur er
Hjördísi Árnadóttur, Guðmar sem
kvæntur er Rögnu Bjarnadóttur,
Sigurbjörg sem gift er Vilhjálmi
Einarssyni, Ragnar kvæntur Guð-
björgu Guðmundsdóttur, Loftur
kvæntur Erlu Sigurðardóttur og
yngstur er Ástráður sem kvæntur er
Jónínu Hallgrímsdóttur. Barna-
börnin eru nú orðin 29 og barna-
barnabörnin alls 14.
Magnús var hamingjusamur mað-
ur og honum þótti mjög vænt um
Jónu sína og börnin og gerði allt sem
hann gat til að þeim gæti Iiðið sem
best. Síðari árin sín átti Jóna við
mikla vanheilsu að stríða, og kom þá
best í ljós hvað hann unni henni
mikið. Þá var til þess tekið hvað
hann var vakandi yfir því að henni
liði sem best. Jóna lést þann 7.
október 1983.
Ég minnist ætíð þeirrar stundar
þegar ég kom ung stúlka fyrst í
Holtagerðið og hitti Magnús fyrsta
sinni, en þá var Jóna á sjúkrahúsi.
Ég gleymi seint hlýja brosinu og
þétta handtakinu þegar hann bauð
mig velkomna og bað ntig að ganga
í bæinn. Alltaf síðan fann ég sömu
hlýjuna þegar ég hitti hann. Oft sat
hann í eldhúskróknum hjá mér og
þá ræddum við um göntlu dagana og
rifjaði hann þá gjarnan upp, þegar
hann var ungur maður. Það var
sérlega gaman að heyra hann segja
frá og maður skynjaði það að margt
hafði hann reynt um dagana þó
aldrei heyrðist hann kvarta. Gleði
barnabarnanna var alltaf mikil þegar
afi kom í heimsókn, hann gaf'þeim
svo mikið af sjálfum sér og átti svo
auðvelt með að breyta leiða í kæti ef
eitthvað stóð illa á.
Magnús var einstaklega hjálpsamur
öllum þeim sem hann hafði sam-
skipti við. Hans lífsfylling var ein-
faldlega í því fólgin að sinna öðrum
á undan sjálfum sér. Hann var svo
sannarlega sáttur við allt og alla og
gladdist mjög yfir velgengni barna
sinna og barnabarna og talaði oft um
það.
Eftir að Jóna lést flutti hann úr
Holtagerðinu, þar sem þau höfðu
búið frá árinu 1957, og keypti sér
íbúð í Hamraborg 32. Þar líkaði
honum vel að vera. Hann blandaði
geði við fólk og sóttist eftir félags-
skap þess, kynntist nýjum vinum og
ég veit að hann var hrókur alls
fagnaðar í kunningjahópnum eins
og hvar sem hann fór.
Magnús sóttist ekki eftir verald-
legum gæðum, en útdeildi þess í stað
andlegum auði og var sannur vinur
vina sinna. Oft var lífsbaráttan sjálf-
sagt hörð og vinnutíminn langur, en
ekki taldi hann það eftir sér, þar sem
um heill og hamingju fjölskyldunnar
var að ræða og marga munna að
fæða. Einn var sá eðlisþáttur sem
var mjög ríkur hjá Magnúsi, en það
var að verða aldrei neinum til óþæg-
inda og að enginn þyrfti að breyta
útaf áður ætluðum áformum sínum
hans vegna. Ef til vill lýsir það
honum best að þessu leyti, að þegar
hann var borinn á sjúkrabörum,
helsjúkur út af heimili sínu, hinsta
sinni bað hann um að veskið sitt yrði
með til að greiða aksturinn með
sjúkrabílnum, þannig var Magnús.
Hann var alltaf að reyna að gæta
þess að aðrir yrðu ekki fyrir óþæg-
indum hans vegna.
Það er mikil gæfa hverjum manni
að fá að kynnast svo hlýjum og
góðum manni sem Magnús var. Við
sem þess fengum að njóta eigum svo
margar og góðar minningar sem
munu ylja okkui um ókomin ár.
Ég kveð tengdaföður minn með
söknuði og virðingu og bið góðan
Guð að varðveita hann og blessa.
Hann átti virðingu okkar allra sem
kynntust honum.
Björt minning um góðan mann
mun eiga eftir að lýsa okkur og ylja
um ókomin ár. Þökk fyrir allt og allt.
Guðbjörg.
Ragnhildur Steinunn
Maríusdóttir
Fædd 27. nóvember 1960
Dáin 2. nóvember 1988
Guð þig geymi Ragga mín
og veiti þér blessun sína
ljós varstu mér í lífinu
og veittir mér góðvild þína.
Með þessum fáu línum vil ég
þakka kærri vinkonu fyrir samfylgd-
ina. Um 1970 lágu leiðir okkar
saman, þá 10 ára gamlar. Það voru
góð ár sem fóru í hönd, rnikið hlegið
og ærslast og þakka ég Guði fyrir
þessi ár. Ragga var full af lífi, blíðu
og húmor fram á síðasta dag. Og
þakklátari manneskju er ei auðvelt
að finna.
Pú gafst mér gleði
þú gafst mér hlýju
og vináttu þú veittir mér
sem ég veit égget aldrei launað þér.
Fyrir um það bil tveimur árum
veiktist hún af þeim sjúkdómi sem
dró hana til dauða. Baráttan var
hörð, þó hún léti aldrei finna það á
sér og barðist eins og hetja. Var svo
ung og hafði svo margt að lifa fyrir,
maka, sjö ára dóttur og aðra ástvini.
En sagt er að þeir deyi ungir sem
Guðirnir elska.
Ég þakka þér fyrir allt elsku
vinkona.
Og góðar vættir fylgi þér
á nýrri göngu þinni
og styrki þína ástvini
með hlýrri hendi sinni.
Elsku Nonni, Steinunn litla,
Steina, Marías og aðrir ástvinir.
Megi góður Guð styrkja ykkur og
sætta við þennan mikla missi.
Ég geymi minninguna um Ragn-
hildi í hjarta mínu.
Blessuð sé minning þín.
Anna Björg Þormóðsdóttir.
LÁ TTU
1 íniaiin
EKKl I LJÚCjA I RÁ ÞÉR
ÁSKRIFTARSÍMI 686300
Keflvíkingar
Aðalfundur FUF I Keflavík verður haldinn miðvikudaginn 9. nóv., kl.
21, í Framsóknarhúsinu við Austurgötu.
Dagskrá:
1. Kosningar á Kjördæmisþing.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál.
Stjórnin
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður spiluð n.k. sunnudag
að Hótel Lind kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun kvenna og karla.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi flytur stutt
ávarp.
Framsóknarfélag Reykjavíkur Sigrún
Magnúsdóttir
0LL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
Við í Prentsmiðjunni Eddu tökum að
okkur hönnun og vinnslu á stórum og
smáum prentverkefnum.
i PRENTSMIDJAN i
Cl
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000.
LEKUR : ER HEDDIÐ
BLOKKIN? : SPRUNCIÐ?
Viðgerðir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiöa.
Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum — járnsmíði.
Vélsmiöja Hauks B. GuÖjónssonar
Súöarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110
t
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og
útfarar
Ólafar Grímeu Þorláksdóttur
Stóragerði 23, Reykjavík
Sérstakar þakkir iærum við læknum og öðru starfsliði Landspítalans.
Sigursveinn D. Kristinsson
og fjölskylda
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa
Sigfúsar Jónssonar
f.v. verkstjóra skipaafgreiðslu K.E.A.
Skólastig 9, Akureyri
Þórunn Ólafsdóttir
RagnheiðurSigfúsdóttir Þorgeir Jóhannesson
Jón Ólafur Sigfússon Alda Skarphéðinsdóttir
Kristján Þór Sigfússon Ágústa Magnúsdóttir
Haukur Sigfússon
barnabörn og barnabarnabörn.