Tíminn - 29.11.1988, Page 2
2 Tíminri'
Þríðjuól9ggr 29. nóvember 1988
Þakiö hrökk upp úr grópum sínum og lagöi af staö undan hallanum en stöðvaöist áður en verra hlaust af.
Tímamynd, Pjctur.
Það er ekki víst að Kaffi strætó uppfylli ströngustu kröfur heilbrigðiseftirlits-
ins. Hér er efri hæðin komin niður af neðri hæðinni og hallar sér upp að Café
Operu. Tímamynd, Pjetur.
Gamla húsið við Lækjargötu 4
vildi ekki yfirgefa gömlu götuna sína:
Renndi sér útaf
við Café Óperu
„Húsið var sett á Ijaðravagn,
gatan hallar þarna sem óhappið
gerðist og efri hæð hússins var
allþung, þyngri en sú ncðri. Ég býst
við að þessir þættir liafi í sameiningu
orsakað óhappið sem varð með þeint
hætti að neðri hæðin lyppaðist hrein-
lega niður og út af vagninum.
Burðarbitarnir eru ekki negldir
heldur grópaðir saman í svokölluð-
um lásum eins og tíðkaðist þegar
þetta hús var byggt árið 1852 og
þeirra vegna brotnaði ckkert," sagði
Ragnheiður Þórarinsdóttir borgar-
minjavörður.
Ragnheiður sagði að húsið væri
hið vandaðasta að allri gerð og hefði
reynst í furðu góðu lagi mcð þeirri
undantckningu þó að fótstykkið
heföi veriö orðið fúið enda gatan
verið hækkuð verulega frá því húsið
var byggt.
Hún sagði að þetta óhapp kæmi til
með að tefja e'ndurreisn hússins uppi
í Árbæjarsafni þar sem áætlað hefði
verið að koma því fyrir á grunni. Nú
þyrfti að reisa húsið á ný.
Ragnheiður sagði að húsið hefði
skemmst lítið við sjálft fallið af
vagninum. Þakið sem sat í grópum á
veggjum hefði hrokkið upp og færst
til. Hins vegar hefðu orðið talsverðar
skemmdir þegar það var aftur híft á
vagninn en þær séu enn ekki full-
kannaðar enda stæði húsið enn á
vagninum uppi í Árbæjarsafni. -sá
Haustfundur miðstjórnar
Alþýðubandalagsins haldinn um helgina:
Sameining
fyrirtækja
Að sögn Ólafs Ragnars Gríms-
sonar formanns Alþýðubandalags-
ins var haustfundur miðstjórnar
Alþýðubandalagsins sá friðsamasti
í mörg ár og jafnframt sá gagnleg-
asti.
Það kom í Ijós á blaðamanna-
fundi sem haldinn var í gær, þar
sem málefni miðstjórnarfundarins
voru reifuð, að Alþýðubandalagið
telur til greina koma að auka
hagkvæmni í rekstri fyrirtækja hér
á landi með sameiningu þeirra í
einhverjum mæli. Þar er átt við
svipaðan þrýsting af hálfu ríkis-
valdsins og átti sér stað þegar
Flugfélag íslands og Loftleiðir
sameinuðust í Flugleiðir á sínum
tíma. Hinsvegar kom það fram í
máli Ólafs að vonir stæðu til að
stjórnendur fyrirtækja áttuðu sig á
slíkri hagkvæmni án þess að stjórn-
völd þyrftu að skipta sér þar af,
eins og reyndar þegar væri farið að
gerast.
Margir málaflokkar voru reifaðir
á fundinum og má þar nefna efna-
hagsntálin þar sem lækkun vaxta
bar einna hæst á góma. Ólafur
sagði einhug vera um það innan
ríkisstjórnarinnar að lækkun vaxta
væri rétta leiðin í átt að betri
efnahag þjóðarinnar. Hann benti á
að nú væri verðbólga um 0 stig og
verðstöövun síðastliðinna mánaða
hefði gert það að verkum að síðasta
gengisfelling mældist ekki í verð-
laginu.
Auk efnahagsmálanna var það
helst markvert að fundurinn álykt-
aði um sérstakt umhverfismála-
ráðuneyti sem Alþýðubandalags-
menn telja nauðsynlegt að koma á
sem fyrst. Ástæðan sé ekki síst sú
uggvænlega staðreynd að nú séu
aðeins um 20% eftir af þeim gróðri,
sem hcr var þegar land byggðist,
og sagði fjárntálaráðherra það
hrikalegustu tölur sem hann hefði
séð í langan tíma.
Þá var sérstaklcga rætt um
breyttar áherslur í heilbrigðismál-
um og bent á leiðir til aukinnar
hagræðingar í þeim málaflokki.
-áma
Náiö samstarf við Græningja getur gefið vel í aðra hönd:
Græningjar hleyptu
upp ferskfiskverði
Ferskfísksalar og Grænfriðungar
eiga góða samleið ef marka má
nýjustu sölutölur íslenskra skipa í
Bremenhaven og Cuxhavcn. Áróður
Grænfriðunga í öllum hclstu borgunt
V-Þýskalands, gegn íslandi, hefur
haft þau óvæntu áhrif að verð á
ferskum físki hefur rokið upp. Rauk
það upp daginn áður en yfírlýst
áróðursaldan skall á þýskum neyt-
endum og hefur verðið ekki lækkað
síðan.
Þetta kemur fram í frétt á baksíðu
nýjustu Fiskifrétta. Til glöggvunar
má geta þess að meðalverð á karfa
var 60 krónur fyrir kílóið, áður en
áróðurinn hófst um síðustu helgi, en
rauk upp í tæplega 76 krónur þegar
Grænfriðungar fóru á stjá. Gaf
andáróðurinn það vel af sér að
Viðey RE setti nýtt sölumet í ís-
lenskum krónum talið. Fyrir 272
tonna afla fékk hún andvirði 19,8
milljóna króna.
Þrátt fyrir þennan árangur er ekki
talin þörf á því að taka upp aukið
samstarf við Grænfriðunga í Bret-
landi þar sem verð er viðunandi þar
eins og er. Þar hafa sölur þó flestar
verið smáar. Mjög gott verð hefur
fengist fyrir ýsu úr gámum í Bret-
landi og rennir það stoðum undir þá
kenningu að ekki sé brýn þörf á
áróðri Grænfriðunga þar um slóðir.
Þar hefur meðalverð ýsu í síðustu
viku verið rúmar hundrað krónur
fyrir kílóið. Síðastliðinn mánudag
voru seld 178 tonn af gámafiski og
fengust 15,4 milljónir króna fyrir.
Þorskurinn fór á 77,95 kr/kg, ýsan á
99,17 kr/kg og kolinn á 85,08 kr/kg.
Seljendur ferskfisks verða hér eft-
ir að reyna að meta það hverju sinni
hvort þörf sé á áróðri Grænfriðunga
til að ná fiskverði upp. Hér sannast
það sem stundum hefur verið sagt í
umræðunni um hvalavernd og fisk-
sölur að nauðsynlegt geti verið að
hafa nánara samstarf við Grænfrið-
unga en verið hefur. Það er þó ljóst
að meirihluti landsmanna hefurfram
að þessu misskilið hversu miklu slíkt
samstarf getur áorkað. KB
Peningaskápurinn
úr Geysi fundinn
Peningaskápurinn sem þjófar
höfðu á brott með sér eftir innbrot
í bílaleiguna Geysi við Suður-
landsbraut, 11. þessa mánaðar,
fannst við Leirvogsvatn um helg-
ina. Búið var að sprengja skápinn
upp, en eftir fyrstu athugun var
talið að ekkert hefði horfið úr
skápnum.
Á laugardag var tilkynnt um
innbrot í birgðageymslu Reykja-
vfkurborgar í Örfirisey, þar var
engu stolið en fjórar hurðir voru
skemmdar.
Tvivegis var brotist inn hjá
Snarfara í Elliðavogi. í fyrra inn-
brotinu var stoiið tveim talstöðvum
og lórantæki. í síðara innbrotinu
var stolið talstöð, myndbandstæki,
sjónvarpi og geislaspilara.
Þá var brotin rúða í skartgripa-
verslun á Laugavegi 11 uni helgina
og þaðan stolið háismeni að verð-
mæti unt 30 þúsund krónur og
armbandi sem kostar um 50 þúsund
krónur, hvoru tveggja úr gulli.
Fariö var inn í íbúð við Suöur-
hóla og þaðan stolið tveim mynd-
bandstækjum.
Rannsóknarlögreglan vinnur að
lausn þessara mála. -ABÓ