Tíminn - 29.11.1988, Qupperneq 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 29. nóvember 1988
Verðkönnun á ýmsum viðgerðum og stillingum hjá bifreiöaumboðum. - Öll verð án efnis
Motor stilling 10000 km skoöun 20000 km skoóun Hjolastilling bæði framhjol Skipt um hoggdeyfa 2 stk. að framan Skipt um bremsukl. 2 stk. að framan Skipt um kuplingsdisk
BIFREIÐAR OG LANDBÚN.VÉLAR81 Lada 1500 4206 1» 1) 3013 3138 3138 7669
BÍLABORG Mazda 323 4970 6035 7100 3550 7100 2840 11360
BÍLVANGUR C Monza 5550 11700 11700 3750 6696 3348 5550
Opel Cadett 5550 11700 11700 3750 6696 3348 5550
BRIMBORG (Ventill) Volvo 240 4600 6773 7525 3838 4694 2205 9783
Daihatsu Charade 3800 4515 5268 2750 4515 1415 6773
GLÓBUS CitroenAX 14TRS 3500 6500 7300 2) 3) 1450 7500
Saab 900 3950 4731 8035 2) 2212 2212 4500
HEKLA M. Lancer1500 3808 3808 6219 3102 4512 2820 11500
VWGoll 3808 5924 5924 3808 5640 2255 9735
HONDA UMBOÐIÐ (Bifrv Reykjav.) H.Civic DX1300 3247 29474’ 51385' 2) 5895 2230 10500
INGVAR HELGASON (Toppur) Subaru 1800 4089 4915 4915 3125 3616 2613 8511
Nissan Sunny 4089 4915 4915 3125 3616 1742 11688
JÖFUR Skoda120 4083 6802 6802 2856 1764 1764 10400
Peugeot 205 GR 5677 6331 6331 1428 7500 1764 14000
KRISTINN GUÐNASON BMW316 1800 3820 5530" 55307' 2) 5130 1510 6840
Renaull 11 3065 5330 5330 2) 5130 1510 10570
SVEINN EGILSSON Suzuki Swift 4670 7499 7499 2405 7075 2547 7570
Ford Escort 4670 7499 7499 2405 3396 2264 7570
TOVOTA UMBOÐIÐ Toyota Corolla 5219 6315 6315 4779 3680 1472 7000
Hæsta verö 5677 11700 11700 4779 7500 3348 14000
Lægsla verö 3065 3808 4915 1428 1764 1415 4500
Mismunur á hæsfa og lægsta veröi 85,2% 207,2% 138.0% 234,7% 325,2% 136,6% 211,1%
Athugasemdir: 3) Engir hoggdeyfar í viökomandi bil 6) 15000 km skoðun
1) Mjög sjaldan framkvæmd á viðkomandi verkstæöi 4) 7000 km skoöun 7) 30000 km skoðun
2) Viðgeröin ekki framkvæmd á viðkomandi verkstæöi 5) 22000 km skoðun 8) Nafn þjönustuverkstæöis er i sviga ef þaö er ekki rekið af umboöinu sjálfu
Verðkönnun Verðlags-
stofnunar á bifreiðaviðgerð-
um og stillingum hjá
bifreiðaumboðum:
1 byrjun nóvember gerði Verð-
lagsstofnun verðkönnun hjá tólf bif-
reiðaumboðum. Niðurstöður urðu
þær að mikill munur er á verði á
bifreiðaviðgerðum og stillingum eft-
ir umboðum. Athugað var verð á
þjónustu sem flestir bifreiðaeigend-
ur þurfa á að halda. Minnstur var
munurinn á mótorstillingu, eða
85,2% en mestur munur var er skipt
var um höggdeyfa, eða 325%.
Viðgerðir og stillingar eru mis-
flóknar eftir bifreiðategundum,
Markmið könnunarinnar var m.a.
það að beina athygli bifreiðaeigenda
eða kaupenda bifreiða að því að
mishátt kaupverð á bifreiðum segir
ekki allt um kostnað vegna þeirra.
Dæmi um mikinn mun á verði
eftir tegundum er að svokölluð
10.000 km skoðun á Mitsubishi
Lancer kostar kr. 3.808 á verkstæði
hjá viðkomandi umboði en sambæri-
leg skoðun á Chevrolet Monza og
Opel Kadett kostar kr. 11.700 hjá
verkstæðinu sem hana annast. Er
það 207% hærra verð.
Mikill verðmunur er á öðrum
viðgerðum og stillingum og kostar
t.d. kr. 4.500-14.000 að skipta um
kúplingsdisk, kr. 1.428-4.779 að
stilla bæði framhjól og kr. 1.415-
3.348 að skipta um tvo bremsu-
klossa.
í öllum tilvikum eru uppgefin
verð fyrir utan varahluti. ssh
Nýkomið er á inarkað jólakort gert eftir málverki Jónasar heitins
Guðmundssonar. Sem fyrr er myndefnið tengt lífi sjómannsins, heitir
fyrirmyndin „Að veiðum“. Kortið kemur út í tveimur stærðum. Útgefandi
kortanna er Jónína H. Jónsdóttir, en hún hefur einnig gefíð út
cftirprentun af annarri mynd Jónasar, „Bátar“. Upplýsingar og sölu
annast Jónína H. Jónsdóttir Sólvallagötu 9, R. Sími: 14897.
Rekstur innanlandsflugs Flugleiöa í járnum:
Tapið stefnir í 130
milljónir á árinu
Rekstur innanlandsflugs Flugleiða
hefur gengið illa á þessu ári. í
september s.l. var hallinn orðinn 16
milljónir en reiknað cr með að hann
verði 130 milljónir á þessu ári þegar
upp verður staðið.
Þessi halli samsvarar því að vera
þriöjungur af hallanum á Norður-
Atlantshafsfluginu í fyrra, sem var
um 400 milljónir.
Til vitnis um slæma stöðu innan-
landsflugsins eru bæði rekstrartölur
og þróun farþegafjölda í innan-
landsflugi.
Skýringa á hallarekstrinum er
fyrst og fremst að leita í lægri
rekstrartekjum. Samdrátturinn hef-
ur komið fram bæði í farþega- og
fraktflutningum. Sem dæmi má
nefna að í septembermánuði voru
farþegar 12% færri en gert hafði
verið ráð fyrir, fraktflutningar voru
23% minni og póstflutningar 19%
minni en áætlað hafði verið.
Um þessar mundir er verið að
yfirfara allan rekstur innanlands-
flugsins og aðra rekstrarþætti. Gert
er ráð fyrir að um áramótin liggi fyrir
áætlun um hvaða leiðir séu færar til
að snúa við dæminu. ssh
Félagsmenn VR líftryggðir
Verslunarmannafélas ReyKÍavíkur hefur sent nokkrum að fólk nióti trvevinpar allan sólar- bessi ráðstöfun helpist af bví að
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
tryggingafélögum lokað útboð um líf- og slysatryggingar VR
félaga utan vinnutíma
Um er að ræða hóptryggingu,
hóp-l íftryggingu, hóp-slysatrygg-
ingu og slysatryggingu barna VR
félaga. Jafnframt er hugsanlegt að
einnig komi til sjúkratrygging, sem
myndi þá fela í sér dagpeninga-
greiðslu þegar um veikindi er að
ræða.
Þessi nýjung nær til fullgildra
félaga í VR, þ.e.a.s. þeirra sem hafa
greitt lágmarksgjald á síðustu tólf
mánuðum. Miðað er við eingreiðsl-
ur, dánarbætur og slysabætur, en
sjúkrasjóður VR greiðir iðgjaldið.
Ef samningar nást verða allir full-
gildir VR félagar líf- og slysatryggð-
ir, ekki aðeins í vinnunni þar sem
atvinnurekandinn á að sjá um trygg-
inguna, heldureinnigutan vinnutím-
ans.
Baldvin Hafsteinsson, forstöðu-
maður kjaramála- og lögfræðisviðs
VR, sagði forsögu þessa máls vera
þá að fyrir um ári bauð Brunabóta-
félag Islands VR tTyggingu fyrir
félagsmenn. í framhaldi af því var
ákveðið að skoða tryggingamálin
nánar. Síðastliðið sumar voru síðan
útbúin útboðsgögn sem send voru til
try ggingafélaganna.
Baldvin sagði að hugmyndin væri
sú að reyna að samræma það að fólk
væri tryggt sjúkratryggingu og slysa-
tryggingu, fyrir utan vinnutíma. Þ.e.
að fólk njóti tryggingar allan sólar-
hringinn.
Aðspurður sagðist Baldvin fast-
lega búast við að tryggingafélögin
brygðust vel við þessu og hann hefði
óformlegar spurnir af því að a.m.k.
fjögur tryggingafélög hygðust senda
inn tilboð.
Sem fyrr segir er iðgjaldið greitt af
sjúkrasjóði VR. Baldvin sagði að
þessi ráðstöfun helgist af því að
veikindaréttur VR manna er mjög
rúmur og góður, betri en gerist í
flestum samningum og því hefur
sjúkrasjóður lítið þurft að greiða af
bótum og sjúkradagpeningum. „Það
var álitið að það væri sjálfsagt að
sjúkrasjóðurinn tæki þátt í þessum
iðgj aldagreiðslum. “
Enn liggur ekki fyrir um hversu
háar upphæðir er að ræða en fullgild-
ir félagsmenn VR eru tæplega níu
þúsund.
í útboði VR var tryggingafélögun-
um einnig gert kleift að bjóða upp á
aukna afslætti af öðrum tryggingum,
eins og t.d. bifreiða- og ferðatrygg-
ingum ef fólk væri tryggt líf- og
sjúkratryggingu VR félaga.
/ ssh
Þórður Friðjónsson á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Af laverðmæti minnkar um 7%
í erindi sem Þórður Friðjónsson
forstjóri Þjóðhagsstofnunar flutti á
fjármálaráðstefnu Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga í síðustu viku
kom m.a. fram að mikil umskipti
hafa orðið til hins verra í íslenskum
þjóðarbúskap á þessu ári. Þórður
sagði að efnahagshorfur bentu nú til
þess að landsframleiðsla yrði 1'/:%
minni nú en í fyrra og þjóðartekjur
um 2% minni. Þáer reiknað með jrví
að landsframleiðsla og þjóðartekjur
dragist áfram saman á næsta ári. Sé
miðað við forsendur þjóðhagsáætl-
unar megi reikna með því að lands-
framleiðsla dragist saman um VA%
og þjóðartekjur um 3%. í þessu felst
að landsframleiðsla minnkar saman-
lagt um 3% á árunum 1988 og 1989
og þjóðartekjur um 5%. Þórður
benti á að þetta væri meiri samdrátt-
ur en verið hefði síðan 1968.
í þeim hluta erindisins þar sem
Þórður fjallar um efnahagshorfurnar
hérlendis kemur meðal annars fram
að í ljósi nýlegrar reglugerðar sjávar-
útvegsráðuneytisins um aflamark
fyrir næsta ár er stefnt að meiri
aflasamdrætti en felst í forsendum
þjóðhagsáætlunar. Þessi stefnu-
mörkun geti leitt til þess að aflaverð-
mæti dragist saman um 7% á næsta
ári. Sé eins og áður gert ráð fyrir
hagkvæmari afurðasamsetningu
1989 verður útflutningsframleiðsla
sjávarafurða um 5% minni en í ár.
í lokaorðum stnum bendir Þórður
á að brýna nauðsyn beri nú til þess
að leitast við að stýra efnahagslífinu
áfallalaust í gegnum tímabundnar
þrengingar inn á braut varanlegs
hagvaxtar og jafnvægis í þjóðarbú-
skapnum. Að þessu verki þurfi að
ganga eins og öðrum verkum sem
vinna þarf. -áma