Tíminn - 29.11.1988, Page 20
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
Atján mán. binding
^ 7,5% ÞRÚSTUR
685060
SAMVINNUBANKINN VANIRMENN
Ólafur Ragnar Grímsson gagnrýndi i gær forráðamenn
íslenskra banka harðlega fyrir að veitast gegn lækkun vaxta
við þær aðstæður sem nú hefðu skapast í þjóðfélaginu.
Sagði hann það skjóta skökku við að bankarnir væru ávallt
reiðubúnir til að hækka vexti sína þegar þess þyrfti við en
brygðust svo við á þennan hátt nú þegar farið væri fram á
vaxtaiækkun.
Ólafur tiltók sérstaklega ummæli
Sverris Hermannssonar banka-
stjóra Landsbankans í fjölmiðlum
þess efnis að hann tæki ekki mark
á Ólafi Ragnari. Ólafur sagðist
ekki geta skilið Sverri betur en svo
að hann talaði þar í eigin persónu
en ekki sem bankastjóri. Hann
vitnaði í orðalag Magnúsar Thor-
oddsen og sagði að þetta hlyti þá
að vera „einkamál" Sverris. Pað
væri hinsvegar alveg Ijóst að
bankastjóri þjóðarbankans yrði að
taka mark á ríkisstjórn landsins,
jafnt fjármálaráðherra sem öðrum.
Að sögn Ólafs er fullkomin sam-
staða.um það innan ríkisstjórnar-
innar að lækkun vaxta komi til á
allra næstu dögum.
Ólafur sagði Má Guðmundsson
efnahagsráðgjafa fjármálaráð-
herra hafa bent á það að íslenska
bankakerfið væri í raun alls ekki í
samkeppni á peningamarkaðinum
heldur mætti samkvæmt kenning-
um hagfræðinnar miklu frekar
segja að fákeppni ríkti þeirra á
milli. Fákeppni er skilgreind á
þann hátt að fyrirtæki á þeim
markaði séu ávallt reiðubúin að
hækka verð en verr gangi að Iækka
verð. Þetta sé einmitt það sem er
gerast innan bankakerfisins. Ein-
nig kom fram að fákeppni mun
vera næsta orð við einokun í orða-
bók hagfræðinnar. -áma
Tugir járniðnaðarmanna voru mættir á þingpalla til að fylgjast með umræðum um tillögu Stefáns Guðmundssonar
um bætta samkeppnisaðstöðu skipasmíðaiðnaðar. Hún kom ekki til umræðu, en í staðinn fengu þeir 21 fyrirlestur
þingmanna uin lánskjaravísitöluna.
Stjórnarandstaöan telur endurskoöun á grunni láns-
kjaravísitölunnar vantraust á viöskiptaráöherra:
Vísað á bug af
stjórnarliðum
Miklar umræður spunnust á Al-
þingi um lánskjaravísitöluna á
mánudaginn og komu þingmenn
alls tuttugu og einu sinni í pontu til
að tjá sig um kosti hennar og galla.
Stjórnarandstaðan gerði því skóna
að uppi væri ágreiningur innan
stjórnarinnar í þessu máli, en sú
fullyrðing var borin til baka af
viðkomandi aðilum.
Friðrik Shopusson var djarfur í
málflutningi sínum og sagði það
ljóst að þessar umræður sýndu það
og sönnuðu að ekki væri þingmeiri-
hluti á bak við ríkisstjórnina. Til-
efnið var það að framsóknar-
mennirnir Guðmundur G. Þórar-
insson og Ólafur Þórðarson fluttu
þingsályktunartillögu um að skip-
uð yrði nefnd til að endurskoða
grunn lánskjaravísitölunnar. Þetta
gerðist á sama tíma og kynntur
væri nýr grunnur lánskjaravísitölu
af ríkisstjórninni er taka á gildi við
næstu áramót. Bæði Guðmundur
G. og Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra lýstu því yfir að þetta frum-
varp væri ekki tilefni deilna innan
stjórnarinnar. Jón Sigurðsson
sagði að tillagan gengi ekki á skjön
við stefnu ríkisstjórnarinnar. Hér
væri um að ræða vangaveltur um
hvort lánskjaravísitalan væri rétt
mæld. Breytingin við næstu áramót
yrði hinsvegar sú að breytt væri
vægi þátta innan lánskjaravísitöl-
unnar, þar sem laun öðluðust
hærra vægi. Samkvæmt þeim breyt-
ingum yrði ný lánskjaravísitala
reiknuð þannig út, launavísitala
50%, framfærsluvísitala 25% og
byggingavísitala 25%.
Alls voru fjórtán mál á dagskrá
sameinaðs þings, en þetta var mál
númer þrjú og var umræða um það
ekki kláruð. Númer átta var þings-
ályktunartillaga er Stefán Guð-
mundsson flytur og fjallar um að
samkeppnisstaða innlends skipa-
smíðaiðnaðar verði bætt. Til að
hlýða á umræður um þá tillögu
voru mættir á þingpalla nokkrir
tugir járniðnaðarmanna. Þeir sátu
og biðu í um 2 til 3 klukkutíma, en
urðu frá að hverfa þegar ljóst var
að tillaga Stefáns kæmi ekki til
umræðu. - ág
Magnús Thoroddsen gekk áfund Halldórs Ásgrímssonar í gær:
Bíð ályktunar
lögfræðinganna
Halldór Ásgrímsson sagði í gær
að Magnús Thoroddsen hefði komið
á sinn fund og skilað sér greinargerð
þeirri sem hann hefði fyrir helgi
farið fram á. Halldór vildi að svo
komnu ekki tjá sig um innihald
hennar en sagðist nú bíða lögfræði-
legs álits sem hann mun fá í hendur
í dag. Hann sagði að þeir Magnús
myndu að öllum líkindum hittast
aftur í dag þegar það væri komið í-
höfn. Halldór vildi ekkert segja um
það hver skoðun sín væri á því að
Magnús skuli enn sitja sem Hæsta-
réttardómari.
Þess má geta að áfengiskaup
Magnúsar hafa vakið mikla athygli
víða um heim og hafa fjölmiðlar í
Þýskalandi og Svíþjóð meðal annars
gert málinu nokkur skil. -áma
„Risa-lottó“ á laugardaginn:
„Að verða skuld-
laus við fólk en
kannski ekki guð“
Síðastliðinn laugardag var pottur-
inn í lottóinu óvenju stór, og var
fyrsti vinningur rúmar 14 milljónir
króna.
Hlynur Tryggvason húsasmiður á
Blönduósi, var annar tveggja sem
fékk 5 rétta, en hann keypti tíu raða
miða sem hann fyllti út sjálfur af
handahófi. Eiginkona hans Sigur-
laug Hermannsdóttir sem starfar í
Búnaðarbankanum á Blönduósi
keypti einnig miða en Hlynur „sneri“
á hana. „Við erum rétt að gera
okkur grein fyrir því sjálf að við
erum að verða skuldlaus, a.m.k. við
fólk kannski ekki við Guð.“
Varðandi það hvað hann ætlaði að
gera við alla þessa peninga, sagði
Hlynur að fyrsta verkefnið væri að
gera upp allar skuldir. Einnig sæju
þau fram á að geta stutt betur við
bakið á börnunum sínum tveimur
sem eru sautján og nítján ára og
stunda nám í Reykjavík. ssh