Tíminn - 03.12.1988, Side 5
• '4 'J 4
( (
I
» » • r ( ( i
Laugardagur 3. desember 1988
* KOj3r!
HELGIN
Bjartmar Guðlaugsson „Með vottorð í leikfimi“:
Aldrei betri!
Bjartmar Guðlaugsson er einn
þeirra tónlistarmanna sem senda
frá sér nýja hljómplötu fyrir þessi
jól. Það er skemmst frá því að
segja að þessi plata hljómar prýð-
isvel.
Hugleiðingar
um popptónlist
Bjartmar sendi fyrir réttu ári frá
sér plötu þar sem hann fór um „í
fylgd með fullorðnum“. Hún varð
næstsöluhæsta plata þess árs og ég
er illa svikinn ef „Vottorðið“ fetar
ekki í fótspor hennar í ár.
Útvarpsstöðvarnar hafa undan-
farna daga verið að leika eitt og eitt
lag af þessari plötu og svo virðist
sem óvenju mörg lög af henni
hljóti náð fyrir augum dagskrár-
gerðarmanna. Það er vel því oft
vill það fara svo að einblínt sé á fá
lög en hin „týnast" í jólalagaflóð-
inu.
Að mínu mati er þessi plata
hcilsteyptari en sú síðasta, allur
hljóðfæraleikur er vandaður og
það vekur athygli hvílíkur mýgrút-
ur hljómlistarmanna tekur þátt í
gerð hennar. Þar tel ég að Sigurðar
þáttur Rúnars Jónssonar komi best
í ljós en platan er unnin og gefin út
í samvinnu við hann.
Skosku tvíburarnir í The Proclaimers með nýja plötu:
Lýsir upp í
skammdeginu
Ég segi nú eins og Skúli rafvirki
sagði einhverntíma: Þessi plata er
Sannkallaður „birtu- og gleðigjafi".
The Proclaimers er skipuð
skoskum tvíburum sem sumum
finnst fremur ólaglegir, án þess þó
að ég sjái hvað það kemur tónlist
við. Hvað um það, þessir kumpán-
ar eru snillingar þegar þeirra list-
grein er annarsvegar og sýna þeir
það og sanna svo ekki verður um
villst á nýju plötunni, Sunshine on
Leith.
Ég hef verið að spara mér það að
fjalla um þessa plötu því við hverja
hlustun skjóta upp kollinum lög
sem ekki vöktu athygli mína við
síðustu hlustun o.sv.frv. Flestir
þeir sem hlusta á útvarp kannast
við lagið I’m gonna be, sem er bara
sýnishom af því úrvalsefni sem
platan hefur að geyma. Umfram
önnur má nefna Sean sem mér
finnst perónulega besta lag plöt-
unnar, Sunshine on Leith sem
töluvert hefur heyrst á öldum ljós-
vakans, Come on nature ofl. ofl.
ofi:
Þeir sem á annað borð hafa
gaman af tónlist á borð við þá sem
The Proclaimers flytja, þ.e. breskt
gæðapopp, ættu að veita þessari
plötu athygli.
Ég segi það og skrifa, platan
Sunshine on Leith skipar sér, að
mínu mati, f efsta sæti lista yfir
bestu plötur ársins, ásamt plötu
Prefab Sprout, From Langley Park
to Memphis.
-Ámi Magnússon
Skemmtun til styrktar Kvennaathvarfinu:
Húllumhæ
á íslandi
Það verður eflaust feikna fjör á
Hótel íslandi annað kvöld því þar
munu fjölmargir tónlistarmenn
auk leikhóps þroskaheftra koma
fram tii styrktar Kvennaathvarf-
inu.
Svo sem kunnugt er á Kvennaat-
hvarfið við talsverðan fjárhags-
vanda að etja og munu ailir þeir
sem fram koma á þessum tónleik-
um gefa vinnu sína, auk þess sem
húsnæðið er látið hópnum í té
endurgjaldsiaust. í samtali Tímans
við eina af forsvarskonum athvarfs-
ins kom í Ijós að auk skemmtiatrið-
anna verða tilkynntar gjafir sem
hafa verið að berast að undan-
fömu. Var ekki annað á viðmæl-
anda Tímans að heyra en hún væri
verulega bjartsýn.
Annars eru þeir sem fram koma
á skemmtuninni þessir: Bubbi
Morthens, Bjartmar Guðlaugsson,
Sverrir Stormsker, Herdís Hall-
varðsdóttir ásamt Gulifiskunum,
Kársneskórinn, Homaflokkur
Kópavogs, Jóhanna Þórhallsdóttir
söngkona ásamt undirleikara að
ógleymdum þeim heiðurshjónum
Bibbu og Halldóri sem búa við
Brávallagötu og flestir kannast
eflaust við. Þá kemur leikhópur
þroskaheftra, Perlan fram.
Aðgangseyrir verður 1.000 kr.
og hefst skcmmtunin á Hótei ís-
landi klukkan 20:30 á sunnudags-
kvöld. -áma
Það verður að segjast eins og er
að sá Bjartmar sem kemur fram á
þessari plötu er harla ólíkur þeim
kauða sem var að finna á fyrstu
plötum hans. Ekki svo að skilja að
þær hafi verið afleitar, það er af og
frá en hitt er annað að þær voru
ekki nærri eins vandaðar.
Bjartmar er, að mínu mati, fyrst
og fremst Ijóðskáid sem semur
frábæra texta, um hluti sem koma
okkur öllum við, á máli sem flestir
skilja. Hann er einnig þeirri gáfu
gæddur að geta samið lög við
textana sína og útkoman verður
hreint afbragðsgóð.
Platan á því erindi jafnt til þeirra
sem hafa gaman af tóniist af þessu
tagi sem og þeirra sem hafa áhuga
á litríkri textagerð. Mér finnst
Bjartmari takast vel upp í flutningi
ijóða sinna og oft og tíðum heyrast
sniildarlega samansettar setningar
til dæmis í laginu um skáldin:
Það er samdóma álit, allra sem
hugsa
að best sé að vita sem minnst.
Og menningarpostular allra
mest gusa
þó vaði þeir alla tíð grynnst.
Því allskonar Thorar með
væntingar stórar,
tala svo niður til þín.
Og alþýðan gónir, en á
toppnum þó trónir,
Ijós sem á sannleikann skín.
Á þessari plötu sýnir Bjartmar
enn betur á sér þá hlið sem glitti
lítillega í á síðustu plötu, nefnilega
gullfallegt rólegt lag sem á örugg-
lega eftir að lifa. Þarna á ég við
Ljóð til þín þar sem hann fjallar
um heiminn eins og vöggubarn sér
hann:
Þú heyrir skrítnar raddir.
Þær skammast út af pólitík.
Og aðrar sem að spá í
hverjum þú sért annars lík.
Þá margir eru nefndir
já, napurlegt ef satt það er
að maður fæðist inn í heiminn
ekki vitund líkur sjálfum sér.
... og seinna í Ijóðinu...
Brostu nú, pínulitla stelpuskott.
Sendu nú, veröldinni tannlaust
glott.
Brostu nú, ogsannaðu þaðfyrir
mér
að maður fæðist inn í heiminn,
soldið líkur sjálfum sér.
Það væri of langt mál að tína til
brot úr öllum textum Bjartmars á
þessari plötu sem mér finnst hver
öðrum betri. Ég get þó ekki stillt
mig um að koma hér með eina
tilvitnun enn. Hún er úr laginu
Ljúft en sárt:
/ huga þínum rifjar þú upp
þokukennda grámyglaða
myndina.
Fyrirlítur þann sem fyrrá dögum
fann upp ástina og syndina.
Þú veist ekki hver hann er.
Þú veist ekki hvert hann fer.
Né hvort hann skildi eftir í þér
lítinn lífsneista
sem framvegis mun fylgja þér.
Það er sárt að vera sækjandi og
verjandi í dómsmáli
hjá sjálfum sér.
Það lag sem ég á erfiðast með að
fella mig við er lagið Tólf-
tommutöffarar en það er nú einu
sinni svo að fæstir stefna að full-
komnun, aðeins framför. Bjart-
mari Guðlaugssyni fer fram, það
dylst engum sem heyrir plötuna,
„Með vottorð í leikfimi“.
í örfáum orðum get ég sagt það
um þessa plötu að það er langt
síðan nokkur hijómplata hefur
vakið mig til umhugsunar um svo
mörg málefni sem þessi platagerði,
samhliða því að létta lund mína
sem skemmtileg tónlist.
-Árni Magnússon
Glenn Frey með sólóplötuna „Soul Searchin“:
Eigulegur gripur
Þeir sem höfðu gaman af tónlist
Eagles ættu að finna eitt og annað
við sitt hæfi á nýjustu plötu Glenn
Frey, Soul Searchin.
Frey starfaði jú með Eagles á
sínum tíma og áhrif þeirrar sveitar
eru vel greinanleg á Jressari plötu.
Af einstökum afbragðs skemmti-
legum lögum má t.d. nefna titillag-
ið; Soul Searching, True Love sem
nokkuð hefur heyrst á öldum ljós-
vakans, og fleiri róleg lög þar á
meðal Some kind of blue og It’s
your life. Það lag sem að mínu mati
skarar þó fram úr öðrum á þessari
plötu er „Let’s pretend we’re still
in love“. Þar er á ferðinni hressilegt
lag sem hrífur mann með í léttleik-
andi takti.
í heild má segja að þessi plata sé
enn ein skrautfjöðrin í hatt Frey og
voru þær þó nokkrar fyrir. Það
endar sennilega með því að hann
flögrar í burtu.
-Ámi Magnússon
MJÓFIRÐ-
INGA-
SÖGURII
Vilhjálmur
Hjálmarsson
MJÓFIRÐINGA
SÖGUR
Annar hluti
Vilhjálraur M |
Hjálmarsson ^
Annar hluti af Mjó-
firðingasögum Vilhjálms
HjálmarssonaráBrekku,
en hinn fyrsti kom út
1987. Rekur höfundur
áfram byggðarsöguna í
átthögum sínum og
spannar hér sveitina
sunnan fjarðar og í botni
hans. Er greint frá bú-
jörðumog landsnytjumá
þeim slóðum og birt
bændatöl með bólstaða-
lýsingum, en inn á milli
skotið ítarlegum köflum
um síld- og hvalveiðar
Norðmanna í Mjóafirði
og af Sveini Ólafssyni,
héraðshöfðingja og
alþingismanni í Firði.
Lýsa Mjófirðingasögur
tímabili mikilla breytinga
í lifnaðarháttum, svipt-
inga í atvinnulífi og
röskunar íbúafjölda.
Bökaúfgáfa
/VIENNING4RSJÓÐS
SKÁLHOLTSSTlG 7« REYKJAVÍK
SÍMI 621822
G0Ð B0K ER GERGEM