Tíminn - 03.12.1988, Side 7

Tíminn - 03.12.1988, Side 7
Laugardagur 3. desember 1988 HELGIN 7 aftur. Pabbi okkar hefði aldrei sagt neinum frá. Svo brast hún í grát. - Bannsettur lygarinn þinn! Vonandi detturðu niður tröppumar, deyrð og ferð til helvítis! Síðdegis sama dag kom ég að Shemonu grátandi og kennslustof- unni eins og eftir loftárás. Kastali sem Shamie hafði verið að byggja, var í rústum og í þokkabót var búið að smyrja góðum skammt af hunda- skít yfir leifarnar. Ég átti erfitt með að trúa að 5 ára bamið hefði gert þetta upp á eigin spýtur. Þegar hin börnin komu inn og Shamie sá eyðilegginguna, brast hann í grát. Geraldine skammaði Shemonu fyrir verkið en ég vissi að Geraldine sjálf átti sökina og um leið og augu okkar mættust sem snöggvast, vissi hún að ég vissi það. Þá snerist hún orðalaust á hæli og settist í mggustólinn. Þegar ég var að fara heim úr skólanum, sá ég að á setuna í stólnum var klórað: Von- andi drepstu, mótmælendarottan þín. Þá sá ég að mér hafði skjátlast um að Shemona stjórnaði aðgerðum. Geraldine var heilinn að baki hlut- anna. Hún notaði litlu systur sína til að fá útrás fyrir hatrið innra með sjálfri sér, en gætti þess að engin sök kæmi á hana sjálfa. Nú ákvað ég að skilja þær að. Geraldine yrði í umsjá minni en Shemona hjá aðstoðar- kennaranum, Carol. Þegar komið var fram í mars sá ég að samband systranna var tekið að gliðna örlítið. Eitt sinn heyrði ég Carol lýsa fyrir Shemonu fallegum kjól sem hún hefði séð í búðarglugga. - Veistu hvernig hann var á litinn? spurði hún og Shemona svaraði strax: - Gylltur. Shemona var tekin til máls og brátt fór hún að tala við okkur hin. Shemona og Shamie gætu sem best farið í venjulegan skóla um haustið, en því miður ekki Geraldine. Ég velti mjög fyrir mér hver orsökin gæti verið fyrir truflun hennar. Skyldi hún hafa getað sætt sig við lífið í hrjáðri heimaborg sinni ef foreldrar hennar hefðu ekki látið lífið vegna ástandsins? Var hún vandræðabarn að upplagi? Ég gat ekki varist þeirri tilhugsun að ef til vill væri hún hættuleg umhverfi sínu. Dag einn um haustið heyrði ég læti í kjallaranum. Þegar ég kom niður sá ég Geraldine krjúpa á gólfinu. Vinstri handleggur hennar var teygður út og lófinn sneri upp, negldur við gólfið með sex tommu nagla. Andlitið var gjörsamlega sviplaust. Sjúkrabíllinn kom innan fárra mínútna og áhöfn hans ákvað að taka hluta af gólfinu með, fremuren freista þess að draga naglann út á staðnum. Ég heimsótti hana á sjúkrahúsið síðdegis. Þó sár hennar væri ekki lífshættulegt, lék vafi á hvort mikil- vægar taugar hefðu skaddast. Ég spurði telpuna hví hún hefði gert þetta. - Ég veit það ekki, svaraði hún aðeins. - Nú á ég að hitta sálfræðing. Ég býst við að best yrði ef frænka ætti peninga til að senda mig heim. Það yrði betra fyrir mig. Þegar Geraldine kom aftur í skól- ann til mín hnuplaði hún meira en nokkru sinni frá hinum börnunum. Hins vegar minnist ég þess alla ævi þegar þau Shemona og Shamie döns- uðu írskan þjóðdans saman. Það var stórkostlegt. Nú eru liðin fimm ár síðan þetta var. Shamie stundar nám af kappi og er staðráðinn í að snúa aftur til Belfast eftir háskólapróf. Shemona er indæl 11 ára stúlka og orðin lögleg kjördóttir Lonrho-hjónanna. Hún hefur aðlagast nýju lífi í Bandaríkj- unum vel. Því miður færðist sjálfseyðingar- hvöt Geraldine aðeins í aukana, þrátt fyrir sálfræðiaðstoð og loks var hún send á hæli. Ég á ennþá mynd sem tekin var af börnunum síðasta dag þessa skóla- árs. Öll andlitin eru opinská og vinsamleg. Þau líkjast barnsandlit- um hvarvetna annars staðar. Þannig vil ég helst muna nemendur mína þennan vetur. FeKKirou tilfinninguna? Beint áætlunarflug tíl Orlando tvisvar í vfloi. 10 daga ferð kr. 33.010* * Ferð í janúar, 2 fullorðnir og 2 börn, 2-11 ára, saman í íbúð. Staðgreiðsluverð. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. FLUGLEIÐIR Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 25 100. AUK/SlA k110rtfi-?64

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.