Tíminn - 03.12.1988, Qupperneq 10
10
HELGIN
Laugardagur 3. desember 1988
Drýgði hún blóðskömm
með föður sínum -
Alexander páfa?
Löngum hefur Lucrezia Borgia verið talin meðal gjörspilltra
kvenna. En var hún jafn slæm og sagt er?
Líklega er Lucrezia Borgia ein alræmdasta
kona sögunnar, hvort sem er með réttu eða
röngu, enda var hún af þeirri ætt sem spilltust
hefur verið talin í augum samtíma síns og
seinni alda manna. Henni hafa verið ætlaðir
hinir ótrúlegustu glæpir, þar á meðal blóð-
skömm og ekki aðeins með Cesare bróður
sínum - heldur líka með föður sínum, páfanum
Alexander 6.
Lucrezia Borgia. Eiginmennirnir urðu fæstir langlífir.
Borgiaættin var vissulega skelfi-
legur óaldarlýður, en verðskuldar
Lucrezia þann dóm sem hún hefur
hlotið?
Þeir sem um hana hafa ritað hafa
komist að þeirri niðurstöðu að hún
hafi verið peð í valdatafli hinna
fjölgáfuðu en samviskulausu karla,
sem til Borgiaættarinnar töldust.
Peir fórnuðu henni á altari taum-
lausrar metorðagirndar sinnar.
Vegna áhrifa þeirra og athafna varð
hún „fyrirlitlegasta kvenpersóna
sinnar aldar“.
Hún var uppi á tíma þegar hug-
myndir manna um siðferði og rétt-
læti voru allt aðrar en nú er. Aðeins
sú staðreynd að faðir hennar, lífs-
nautnamaðurinn Rodrigo Borgia,
gat orðið höfuð kaþólsku kirkjunn-
ar, sannar það. En sagnfræðingurinn
Gregorovíus, sá maður er mest er
vitnað til er Lucreziu ber á góma
hefur sagt: „Hún var hvorki betri né
verri en aðrar konur um hennar
daga. Hún var skeytingarlaus og
vildi njóta lífsins."
Hefði hún ekki verið dóttir Alex-
anders páfa og systir Cesare Borgia,
mundu sagnfræðingar ekki hafa gef-
ið henni neinn verulegan gaum og
hennar hefði í mesta lagi verið getið
sem einnar þeirra heillandi kvenna,
sem settu -svip á hið glaða líf í
Rómaborg. En í höndum bróður
síns og föður varð hún að verkfæri
og um leið fórnarlamb pólitískra
vélabragða, sem hún hafði ekkert
bolmagn til að andæfa.
Þeir er skrásettu samtíma hennar,
byggðu mjög á hneykslissögum,
dylgjum og orðrómi alls konar og
þeir áttu sameiginlegt hatrið til
Borgianna. Þanniggerðu þeirLucre-
ziu að fádæma skrímsli og sú mynd
af henni hefur reynst lífseig.
Fjölskylda hennar var uppruna-
lega spænsk og hafði ekki átt sér eins
eða neins konar frægðarferil. En
hún hófst til ódæma metorða á
örskömmum tíma eftir að hún flutt-
ist til Ítalíu. Innan fjölskyldunnar
höfðu líka vaxið úr grasi margir
afburða greindir menn, orðlagðir
fyrir fríðleika, hæfileika og metnað.
Einn af þeim var Rodrigo Borgia,
kardináli, sem gat mörg börn með
hjákonu sinni, fríðleiksdísinni Van-
nozzu. Tvö þeirra barna voru Lucre-
zia og hinn illa þokkaði bróðir
hennar, Cesare.
Þrettán ára brúður
Lucrezia fæddist þann 18. apríl
1480. Hún var alin upp í húsi móður
sinnar við Piazza Pizzo di Merlo,
sem var rétt hjá höll kardinálans,
föður hennar. Rodrigo viðurkenndi
ekki börnin sem sín eigin, fyrr en
eftir að hann var orðinn páfi og
fullkomlega viss um vald sitt.
Ekki var hún orðin ellefu ára,
þegar fyrsti biðillinn gaf sig fram.
Tveimur mánuðum síðar kom enn
einn fram á sjónarsviðið, en báðum
var hafnað sem of lítilsigldum, eftir
að Rodrigo hafði sett upp hina
þreföldu kórónu páfadómsins.
Hann fól hana nú umsjá tveggja
kvenna, sem hann treysti vel. Önnur
var frænka hans og trúnaðarmaður,
Adriana di Mila, sem gift var inn í
Orsini ættina. Hin var tengdadóttir
hennar, Giulina Farnese, glæsileg
tignarkona sem lýst var svo að hún
væri „ljóð úr gulli og fílabeini" og
hún varð kunnasta hjákona páfans.
Þessar mektarfrúr dekruðu við Lu-
creziu, eins og hún væri viðkvæm
skrautjurt í gróðurhúsi. Þær önnuð-
ust hana og varðveittu í höllinni
Palazzo di Santa Maria, uns hún var
undir fyrsta brúðkaup sitt búin.
Þrettán ára var Lucrezia Ijóshærð
og tíguleg með langan, hvítan háls
og tennur svo fagrar sem perlur.
Hún þótti því aldeilis boðleg hinum
myndarlega pilti, Giovanni Sforza,
lávarði af Pesaro. Þau voru gift með
stórkostlegri viðhöfn og helmingi
íbúa Rómar boðið til fagnaðarins.
En brúðkaupið entist ekki lengi.
Borgiafeðgar sáu til þess. Þeim varð
skjótt Ijóst að þeir höfðu spilað
trompi úr höndum sér með því að
gifta Lucreziu Sforza lávarði, þegar
þeir hefðu getað notað hana sem
gjaldmiðil til að ná ítökum í hinni
voldugu Aragon ætt. Þeir ákváðu
því að losa sig við þennan aumkunar-
verða eiginmann.
Aðferðin hefði ekki getað verið
meir auðmýkjandi. Þeir tilkynntu
opinberlega að Sforza hefði reynst
getulaus og að kona hans væri því
enn hrein mey. Lávarðurinn af Pesa-
ro varð afskaplega móðgaður og
kallaði alla dýrlinga dagatalsins til
vitnis um að hann væri til alls fær
sem karlmaður og hefði „notið konu
sinnar holdlega ótal sinnum“. Er
hann nú var rifinn úr örmum þessar-
ar barnungu konu sinnar, sór hann
að koma fram hefndum á þeim
Borgium. En völd þeirra voru of
mikil. Þeir neyddu hann til þess að
undirrita skjal, þar sem hann viður-
kenndi getuleysið og hann flúði frá
Róm, áður en eitthvað enn verra
mundi henda hann.
Hneykslunum fjölgar
Þótt Lucrezia hefði ekki verið
mótfallin þessum fyrsta ráðahag,
beygði hún sig orðalaust undir
ákvörðun fjölskyldunnar og settist
um kyrrt um hríð í klaustrinu San
Sisto við Via Appia, til þess að auka
á meyjarímynd sína, áður en hún
giftist aftur. Þegar hún fór úr klaustr-
inu er sagt að nunnurnar hafi varpað
öndinni léttara, þar sem hún hafi
umbreytt klaustrinu í miðstöð
skemmtana og lausungarlifnaðar.
f febrúar 1498 flaug sú fregn um
Róm að Lucrezia væri ólétt. Elsk-
huginn var sagður spánskur herra-
maður við hirð páfa, Pedro Calde-
ron, kallaður Perotto. Hann var
annálaður kvennamaður og hefði
því verið vís til að girnast hana og
reyna að koma vilja sínum fram við
hana. Cesare lét varpa Perotto í
fangelsi og skömmu síðar fannst lík
hans á floti í Tíber.
Það var þetta atvik sem kom af
stað flestum sögunum um að sifja-
spell ættu sér stað innan Borgia
fjölskyldunnar. Cesare, sem var
stórglæsilegur maður, harður og
miskunnarlaus, elskaði systur sína
án nokkurs vafa og það svo ákaft að
það virtist ekki með öllu eðlilegt.
Vel má vera að hann hafi því gimst
hana holdlega, þótt engar órækar
sannanir séu fyrir því. En almanna-
rómur sagði að barn sem Lucrezia
bar undir belti væri ávöxtur blóð-
skammar. Sforza henti orðróminn á
lofti og bar það á Lucreziu að hún
sængaði ekki aðeins hjá bróður
sínum, heldur og páfanum, föður
sínum.
En hver svo sem sannleikurinn
var, þá fæddi hún barn í mars 1498,
sem seinna varð hertogi af Nepi.
Líklega mun Perotto hafa verið
faðir þess. Hann ólst upp hjá Lucre-
ziu, en hún kallaði hann ávallt „litla
bróður". Aðrir kölluðu hann því
tvíræða nafni „Rómarbarnið". Hann
var löngum umvafinn þokum hins
dularfulla.
Nýr eiginmaður
Til næsta hjónabands Lucreziu
varlíka stofnað af pólitískum ástæð-
um. Brúðguminn var Alfonso,
frændi konungsins af Napolí, sem
gerði hann að hertoga af Bisceglie, í
tilefni af ráðahagnum. Hann var
stómm feitari bráð en vesalings
Sforza. Fyrir hans tilstilli vonaðist
Cesare til að komast inn á gafl hjá
Aragon fjölskyldunni.
Allt leit vel út í byrjun. Þegar
Lucrezia sá þennan myndarlega her-
toga í fyrsta skipti, varð hún sam-
stundis ásthrifin af honum. Þótt til
hjónabandsins væri stofnað af svo
kaldrifjuðum hvötum, var greinilegt
að hjónabandið mundi verða girnd-
arráð. Cesare Borgia tók honum
ákaflega vinsamlega og þegar brúð-
kaupið fór fram sex dögum eftir
komu hans til Rómar, var ekki horft
í neinn kostnað, svo það mætti vera
sem veglegast.
Alfonso hét að dvelja í Róm f eitt
ár, áður en hann færi með hana til
heimahaga sinna. Sýndist allt með
felldu, þar til hinn blóðþyrsti Cesare
hóf að spá í pólitísku hliðarnar á ný.
Leið ekki á löngu þar til hann og
eiginmaður systurinnar voru orðnir
verstu óvinir. Margir gátu sér til um
hvað Cesare ætlaðist fyrir og báðu
guð fyrir hertoganum af Bisceglie.
Kvöld nokkurt kom Alfonso í
heimsókn í Vatikanið. Þegar hann
hafði kvatt og var á leið heim í Santa
Maria höllina og gekk yfir St. Péturs
torgið, varð hann fyrir grimmúðlegri
árás. Vinir hans báru hann heim nær
dauða en lífi, með höfuðkúpubrot
og hræðileg sár á baki og fótum.
Lucrezia var næstum fallin í yfirlið
þegar hún sá hann. Hún hjúkraði
honum af mikilli umhyggju og kom
honum til heilsu, en Cesare var
ráðinn í að ljúka því verki sem ekki
hafði heppnast í fyrstu atrennu.
Einn daginn, þegar Alfonso lá
fyrir heima hjá sér, braust flokkur
illræðismanna inn í híbýli hans og
einn þeirra, víðkunnur kyrkinga-
meistari, hafði drepið hann áður en
hann gat svo mikið sem hrópað á
hjálp. Með þessu máli hafði Cesare
komist að nýjum áfanga í glæpaverk-
um sínum og enginn lagði trúnað á
þau orð hans að hertoginn af Bisceg-
lie hefði ógnað honum.
Skuggalegar skemmtanir
Lucrezia var nú send í burtu frá
Róm til kastalans í Nepi, þar sem
hún syrgði bónda sinn ákaft um
hríð. En hún var samt sem áður af
Borgia ættinn og þrátt fyrir ást sína
á Alfonso, þerraði hún bráðlega
tárin og beið þess nú er bræður
hennar og faðir ætluðu henni.
Faðir hennar bauð henni nú að
koma til Vatikansins bg hún reyndi
að skemmta sér sem best hún gat,
þrátt fyrir að nýlega væri hún orðin
ekkja. Uggvænlegur orðrómur
komst á kreik um nætursvall hennar.
í einu samkvæmi átti Cesare að hafa
stráð sjóðheitum hnetum yfir gólfið
á stofum páfa, þar sem fyrir hafði
verið komið ógrynni af logandi
kertum. Voru naktar gleðikonur
látnar skríða um á gólfinu og tína
upp hneturnar á milli kertanna. Þá
átti að hafa verið efnt til samræðis-
keppni og verðlaun veitt fyrir besta
frammistöðu og klámfengnar leik-
sýningar voru haldnar. Þetta þótti
minna á ólifnaðarsukk hinna fornu
Rómarkeisara.
Ekki eru þó til neinar sögur um að
Lucrezia hafi gerst þarna virkur
þátttakandi. Raunar tók nú að fara
orð af henni fyrir manngæsku og
guðshræðslu.
Þriðji eiginmaðurinn
Brátt var hún kynnt fyrir enn einu
mannsefninu. Borgiarnir höfðu
afráðið að mægjast við hina gömlu
og virtu d’Este fjölskyldu, en samn-
ingar höfðu ekki gengið jafn vel og
menn vonuðu. Sá er þeir höfðu
augastað á var Alfonso d’Este, sonur
hertogans af Ferrara. Honum hraus
hugur við að ganga í eina sæng með
svo alræmdum kvenmanni. Hann
hafði líka áhyggjur af að örlög sín
kynnu að verða þau sömu og forvera
hans. En faðir hans var óðfús að láta
samninga takast og kvaðst hann
mundi ganga að eiga Lucreziu
sjálfur, gæfi sonurinn sig ekki.
Fjölskyldurnar ræddu málin aftur
og fram og loks innti páfinn af hendi
ótrúlega upphæð sem heimanmund
með dóttur sinni. Var það þó aðeins
helmingur þess sem krafist var.
Þannig var Lucrezia gefin í þriðja
sinn og gift með mikilli viðhöfn. í
brúðkaupsveislunni sást hún dansa
af feikna kæti við bróður sinn, þann
er verið hafði svo iðinn við að koma
henni í ekkjustandið.
Hún kvaddi nú föður sinn í hinsta
sinn og flutti frá Róm með manni
sínum. Farangurinn var mikill,
ósköpin öll af dýrindis fatnaði,
ómetanleg listaverk og skartgripir
og glæstustu húsgögn. Hún bjó sig
þannig undir að eyða ævidögunum
við hlið prinsins mikla af Ferrara.
Þau settust að í hinum eldforna
kastala ættarinnar í Vecchio, þar
sem henni tókst að gera hann dauð-
ástfanginn af sér, með persónutöfr-
um sínum og glaðværð.
Um skeið var hún áfram á milli
tannanna á mönnum. Nafn hennar
var tengt við skáldið Pietro Bembo.
Var hún ástkona hans? Enginn veit.
Ljóð hans voru sögð samin við eld
minninga um brímastundir þeirra
saman. Hættulegri voru þó kynni
hennar við Ercole Strozzi, ofsafeng-
ið, ungt skáld, sem reyndi ekki að
dylja ást sína á henni.
Það varð mikið uppnám þegar
Strozzi fannst dauður á götum úti,
vafinn innan í hempu, allur þakinn
sárum eftir hnífsstungur. Þeir er
mest hötuðu Borgiana sögðu að hún
hefði skipulagt morðið í afbrýði
vegn þess að skáldið hugðist
kvænast. Aðrir álitu að Strozzi hefði
vitað of mikið og að ýmsir hefðu
óttast að hann léti uppiskátt um
gjafir þær er hann hefði þegið af
konu prinsins af Ferrara.
Tíminn leið. Hún varð hertogafrú
af Ferrara og skáld og lærdómsmenn
tóku að gefa aðra mynd af hertoga-
frúnni - að hún væri dyggðum prýdd,
engill miskunnseminnar og fullkom-
lega vammlaus á allan hátt. Þessi
nýja mynd var víst ekki síður ýkt en
sú gamla.
En þegar hún lést af barnsförum í
júní árið 1519 naut hún aðdáunar og
álits þeirra sem þekktu hana. Her-
toginn af Ferrara syrgði hana einlæg-
lega og ræddi jafnan um hana sem
„mína elskulegu eiginkonu".