Tíminn - 08.12.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.12.1988, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 8. desember 1988 Tíminn 3 Erfðamengunarhætta af eldislaxi ekki eins mikil og af er latió: Er aukinn fjöldi laxa ekki bara ánægjuefni? Guömundur G. Þórarinsson er stjómarformaður Lands- sambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva. Hann segir að af hálfu sambandsins sé það alveg ljóst að það þurfi að fylgjast vel með blöndun eidisiax við náttúrulega stofna. Hann sagðist hinsvegar ekki vera viss um að mönnum væri nægjanleg Ijós áhrif þessarar svokölluðu erfðamengunar og varaði við stórorðum yfirlýsingum. Þarna væri vissulega samvinnu þörf. Þar ætti hann annarsvegar við þá aðila sem eiga gífurlegra hagsmuna að gæta varðandi fiskeldið og hinsvegar þá sem ættu hagsmuna að gæta varðandi árnar og svo náttúra verndarmenn. Varðandi þá fullyrðingu að svo gæti farið að laxinn hætti hreinlega að ganga upp í árnar, sagðist Guð- mundur vera mjög undrandi á að sjá svo stór orð á prenti. Þarna sé verið að fjalla um hluti sem enginn viti nægilega vel um til að hægt sé að fullyrða á slíkan hátt. Hann sagði að umræðan um þá norsku laxastofna sem hér eru væri einnig nokkuð undarleg því það væri jú staðreynd að þær tvær stöðvar sem eru með norskan lax hefðu flutt hann inn sem hrogn og þar að auki væri hann í sóttkví. Guðmundur vísaði einnig til álits fisksjúkdóma- nefndar þar sem hann segir að fram komi að nefndin sjái enga ástæðu til að halda aftur af dreifingu norska laxins, með tilliti til fisksjúkdóma. Guðmundur vildi taka skýrt fram að vissulega væri ástæða til að fara varlega í fiskeldi en ábyrgir aðilar ættu einnig að fara varlega í að fullyrða um hluti sem þeir ekki geta staðið við. Varðandi þær mælingar sem fram fóru meðal annars í Elliðaánum í sumar og sýna fram á að allt að 40% þess lax sem veiðist í Elliðaánúm á ákveðnu tímabili sé eldislax sagðist hann ekki geta hrakið slíkar rann- sóknir en út af fyrir sig teldi hann að veiðimenn ættu að geta verið ánægð- ir með aukinn laxafjölda, málið snerist fyrst og fremst um þá erfða- mengun sem hugsanlega gæti átt sér stað. _ Guðmundur sagði að stöðugt væri unnið að því að framleiða betri net í sjókvíarnar. Það væri staðreynd að í sumum tilfellum hefðu framleiðslu- og/eða hönnunargallar leitt til þess að mikið magn af fiski hefði sloppið úr kvíunum og vissulega væri það þeim sem að fiskeldinu standa mikið kappsmál að rýrnunin yrði sem minnst. Eldislaxinn vill ekki upp ámar í nýútkominni bók Þrastar Elliða- sonar fiskeldisfræðings, „Hann er á“, er m.a. viðtal við Skúla Skarp- héðinsson veiðivörð í Leirvogsá. Þar segir Skúli meðal annars um göngur eldislax í ána: „Fiskur þessi (eldislax) virtist vera búinn að vera lengi í sjó, langt síðan þeir sluppu en þeir gátu ekki stokkið neitt... .En svo til allur þessi fiskur var niður frá, Guðmundur G. Þórarínsson for- maður LFH. í neðstu veiðistöðunum og virtist ekki hafa tilhneigingu til að fara upp ána að ráði... Ég hef nú grun um að þessi eldislax hafi farið út aftur, því þegar við drógum á um haustið fékkst ekki einn einasti eldislax". Einnig segir í formála bókarinnar: „Vissulega eru uppi sterkar raddir um að einstaka laxastofni sé hætta búin af eldislaxi, enda varð hans vart í nokkrum laxveiðiám í sumar. Að sjálfsögðu gæti slík hætta verið fyrir hendi, en þó telur höfundur að reglugerð sem kom til sögunnar í sumar um flutning og blöndun laxa- stofna sé ráðstöfun sem hamli gegn þeirri hættu. Einnig hefur reynslan í sumar sýnt að eldisfiskar hafa senni- lega ekki sterka tilhneigingu og orku til að „sprengja" sig upp fossa og flúðir á efri svæði, þar sem bestu hrygningar- og uppeldisskilyrðin eru gjarnan í ánum. Eldislaxinn dólar í ósnum og á neðstu svæðunum þar sem skilyrði eru oft verri fyrir seiði“. Til viðbótar við ofangreint er ekki úr vegi að benda á að samkvæmt heimildum Tímans var sá lax sem var rannsakaður í EUiðaánum í sum- ar og reyndist vera allt að 40% eldislax, að miklum hluta tekinn úr neðsta svæði árinnar, allt niðurundir ós. Sömu sögu er að segja af Korpu og í Laxá í Kjós varð mesta veiðin á neðsta svæðinu, fyrir neðan Laxfoss. (Sjá einnig bls. 6.) - áma Ferðaskrifstofa íslands: Niðurstaða á næstunni „Við höfum verið að vinna að þessu máli af miklum áhuga, en það hefur ekki tekist að ganga frá hlutum þar, eins og ég hefði viljað," sagði Steingrímur J. Sigfússon samgöngu- ráðherra í samtali við Tímann, að- spurður hvort búið væri að taka ákvarðanir um framtíð Ferðaskrif- stofu íslands. Steingrímur J. sagði að búið væri að ganga frá ákveðnum tillögum til úrlausnar þessu máli og hefðu þær verið sendar hlutaðeigandi í gær. Aðspurður hvort draga ætti söluna til baka, sagði hann að ekki væri búið að ganga frá neinu slíku. „Við höfum verið að vinna að því að ganga þannig frá öllum hnútum í sambandi við þessa sölu að hún verði að öllu leyti í samræmi við þau markmið sem við teljum að menn hafi haft í huga þegar heimildir voru fengnar til að selja starfsfólkinu hlut í skrifstofunni," sagði samgönguráð- herra, „og engir utanaðkomandi að- ilar væru það á bakvið." Steingrímur sagðist vera orðinn nokkuð langeygður eftir að geta gengið frá málinu og vonaðist til þessaðþaðyrðiánæstunni. -ABÓ Bannað að aug- lýsa jólaglögg Leiðrétting í Tímanum á þriðjudag var sagt frá jólabókasýningu í Norræna húsinu. Fréttinni fylgdi mynd þar sem sást forláta nasista- búningur sem fenginn var að láni í Þjóðminjasafninu og sagt að það væri gert í tilefni að útkomu bókarinnar „íslenskir nasistar". Hið rétta er að Almenna bókafé- lagið fékk búninginn að láni vegna kynningar á bók Þórs Whitehead, „íslandsævintýri Himmlers“. Heilbrigðisráðuneytið hefur ósk- að eftir því við fjölmiðla að auglýs- ingar um „jólaglögg" séu ekki birtar, enda brjóti þær í bága við lög þar sem áfengisauglýsingar eru bannað- ar. í bréfi frá ráðuneytinu segir: „Ekki kemur fram í slíkum auglýs- ingum hvort um er að ræða óáfenga „glögg“ eða áfenga. Miðað við þær venjur sem myndast hafa um svo- kallaða „jólaglögg“ getur ráðuneytið ekki annað séð en hér sé um að ræða auglýsingu á áfengi, en áfengisaug- lýsingar eru stranglega bannaðar." - ABÓ GÆTUM OKKAR VEL Á JÓLAGLÖGGINNI Umferðarráð, lögregluyfirvöld á höfuðborgarsvæðinu og áfeng- isvamaráð hvetja fólk til aðgátar og tillitssemi nú í svartasta skamm- deginu og jólaumferðinni. Varað er við að bergja um of á glögg og öðrum göróttum-veigum. Undanfarin ár hefur f desember- mánuði fjölgað mjög þeim sem teknir eru ölvaðir undir stýri og má oft um kenna glöggdrykkju, en hún hefur komist í tísku og færst í aukana undanfarin fá ár. Lögregluyfirvöld bentu í gær á að mjög algengt væri að ljósabún- aður bíla væri ekki í lagi. Ljósa- skoðun átti að vera lokið 31. okt- óber og nú í svartasta skammdeg- inu eiga ljós allra ökutækja að vera í lagi. Bílstjórar verða einnig að gæta þess að nota ljósin rétt og Umferð- arráð hvetur þá til að misnota ekki sterka afturljósið sem flestir nýrri bílar eru búnir. Þetta ljós á aðeins að nota í þoku eða öðru dimmviðri. Sé það kveikt við venjuleg skilyrði þá blindar það þann sem á eftir ekur og kemur auk þess í veg fyrir að hemlaljósin sjáist. Þá hvetur Umferðarráð alla til að vera með endurskinsmerki, bæði börn og fullorðna, og auka þannig öryggi sitt og sinna. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu hvetur alla vegfarendur til að vera tillitssama og þolinmóða í jólaumferðinni og biður bílstjóra að minnast þess að bílastæði eru takmörkuð en bílar margir. Lögreglan biður bílstjóra að forðast að leggja bílum ólöglega og stofna þannig til tafa og vandræða heldur kynna sér hvar bílastæði eru þótt svo að þeir þurfi að ganga örlítið lengra fyrir bragðið. - sá Oli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Umferðarráðs skenkir óáfengrí glögg í glösin hjá Sigurði Þórðarsyni starfsmanni Umferðarráðs, Jóni Guðbjörnssyni í stjórn foreldrafélags Vímulausrar æsku og Sturlu Þórðarsyni fulltrúa lögreglustjóra í Reykjavík. Timamynd: Gunnar. Umferðarráð og lögregla: Verum varkár og þolinmóð í jólaumferðinni:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.