Tíminn - 16.12.1988, Blaðsíða 10
....I. ..I. .... -........... .... ....... .... ... ÍÞRÓTTIRlill
Handknattleikur
mmmk
Sigurður Bjarnason nýbúinn að senda boltann í net Víkings á meðan þeir Jóhann Samúelsson og Einar Jóhannesson koma litlum vörnum
VÍð. Tímamynd: Pjetur
Get-raunir!!!
Enginn var 12 rétta í síðustu lcikviku
getrauna og er potturinn því fjórfaldur
núna. Ljóst er að fyrsti vinningur
i verður ekki undir 7 milljónum, en hér
jer um met í íslenskum getraunum að
ræða.
33 raðir komu fram með 11 rétta og
gaf hver þeirra 26.913. kr. í sinn hlut.
I hópleiknum voru nokkrir hópar með
II rétta, en ROZ hefur forystu í
leiknum.
Fylkir var söluhæsta félagið í síðustu
viku, en Fram var í öðru sæti. Næstu
félög á áheitalistanum voru KR, Akra-
nes, Valur, ÍR, KA, Þór Ak. Breiða-
blik og ÍBK.
Árangur fjölmiðlanna var ákaflega
slappur í síðustu viku, en þó stóðu
nokkrir fjölmiðlar uppúr. Morgun-
blaðið og DV höfðu 7 rétta, Tíminn
fyldi fast á eftir með 6 rétta. Þjóðvilj-
inn, RÚV og Byigjan höfðu 5 rétta,
Stöð 2 og Stjarnan 3 rétta og Dagur rak
lestina með 2 rétta. f samanlögðum
árangri hefur DV enn forystu með 38
stig, RÚV og Þjóðviljinn hafa 32 stig,
Stöð 2 hefur 31 stig, Tíminn hefur 30
stig, Morgunblaðið og Bylgjan hafa 29
stig, Stjarnan hefur 24 stig og Dagur 23
stig.
En snúum okkur að leikjunum og
spánni, en nú er hægt að krækja í 7
milljónir kr. eða meira fyrir 12 rétta.
Arsenal-Manchester Únited: 1
Þrátt fyrir að hafa verið á nokkurri
niðurleið að undanförnu, þá eru ýmis
teikn á lofti sem benda til þess að
United ríða ekki feitum hesti frá
!Lundúnum.
Coventry-Derby County: 2
;Eftir tapið um síðustu helgi þá nær
Derby sigri gegn Coventry , sem enn
!eru í sigurvímu eftir að hafa lagt
Manchester United.
j Liverpool-Norwich: X
Hörkuleikur tveggja tof^pliða. Jafntefli
er ofarlega á baugi.
Luton-Aston Villa: 1
Luton verður ekki í vandræðum með
Aston Villa á heimavelli, enda eru þéir
erfiðir heim að sækja eins og alþjóð
veit.
Middlesbrough-Charlton: X
Baráttan í algleymingi í þessum leik,
ekki kæmi á óvart þó jafnteflið yrði
markalaust.
Millwall-Sheffield Wednesday: 1
Leikmenn Millwall verða á skotskón-
um á heimavelli og Siggi og félagar fá
lítið fyrir sinn snúð.
Newcastle-Southampton: X
Heimavöllurinn verður 12. maðurinn í
liði Newcastle, sem vinna mikilvægan
sigur í fallbaráttunni.
QPR-Everton: 2
Útisigur hjá evratúnsdrengjum, sem
eru skammt undan toppsvæðinu.
Mikilvægur leikur fyrir drengina frá
Liverpool.
West Ham-Tottenham: 2
Nálægð Guðna Bergssonar gefur Tott-
enham byr undir báða vængi, enda
veitir ekki af eftir hörmulega byrjun
liðsins í vetur.
Barnsley-Leicester: 1
Þessi lið eru bæði í fremstu röð, en
sigurinn lendir hjá heimaliðinu.
Blackbum-Watford: 1
Hörð barátta tveggja toppliða í 2.
deild. Blackburn hefur betur og setur
því stefnuna á 1. deildarsæti.
Crystal Palace-Leeds: X
Leeds nær jafntefli og kristal höllin
leikur á reiðiskjálfi. skúli lúðvíks.
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKIR17. DES. ’88 j m s > Q TÍMINN z z 3 > 2 DAGUR ð Q- QZ < (/> 5 Œ BYLGJAN STÖÐ2 STJARNAN SAMTALS
1 X 2
Arsenal - Man. United 2 1 1 1 1 1 1 1 2 7 0 2
Coventry - Derby 1 1 2 1 X 1 1 2 X 5 2 2
Liverpool - Norwich 1 1 X 1 1 1 1 1 1 8 1 0
Luton - Aston Villa X 1 1 2 1 1 1 1 X 6 2 1
Middlesbro - Charlton 1 1 X X 1 X 1 1 X 5 4 0
Millwall - Sheff. Wed. X 1 1 1 1 2 X 2 2 4 2 3
Newcastle - Southampton 1 1 X 2 X 1 2 1 1 5 2 2
Q.P.R. - Everton X 2 2 2 X X 2 2 1 1 3 5
West Ham — Tottenham 2 2 2 2 2 X 2 1 1 2 1 6
Barnsley - Leicester 1 X 1 1 1 1 1 1 1 8 1 0
Blackburn - Watford 1 X 1 X 1 1 1 X 2 5 3 1
Crystal Palace - Leeds 2 X X 2 1 2 1 X 2 2 3 4
Körfuknattleikur:
10 Tíftiinn
Föstudagur 16. desember 1988
Föstudagur 16. deserhber 1988
Tíminn 11
Valur . .
KR......
Stjarnan
FH......
KA......
Grótta . .
Vikingur
Fram . . .
ÍBV . . . .
UBK . . . .
.9 9 0 0
.9 8 0 1
.9 6 0 3
.8 4 0 4
.9 4 0 5
.9315
.9315
.8134
.8116
.8107
243-180 18
233-201 16
193-184 12
208-195 8
202-202 8
192-197 7
232-248 7
171-199 4
160-190 3
168-204 2
Tap hjá Víkingum
Stjarnan vann góðan sigur á Vík-
ingi í Höllinni í gær. I upphafi
leiksins leit út fyrir að Víkingar
ætluðu að vinna létt er þeir náðu
fjögurra marka forskoti eftir um 12
nún. leik, en þá lokaði Brynjar
Kvaran, markvörður Stjörnunnar,
marki sínu-
Víkingar hófu leikinn af miklum
Fjölnir sækir
um land fyrir
íþróttasvæði
Ungmenna og íþróttafélagið
Fjölnir í Grafarvogi hefur sent
Borgarráði Reykjavíkur bréf,
þar sen félagið sækir um að fá
úthlutað landssvæði í Grafar-
vogi íyrir starfscmi sína. Borg-
arráð vísaði umsókninni til
íþrótta og tómstundaráðs,
skipulagsnefndar og skrifstofu-
stjóra borgarverkfræðings. BL
krafti og ætluðu sér greinilega sigur
í leiknum. Þeir komust yfir strax á
fyrstu mínútu og náðu fjögurra
marka forkoti 7-3. En þá tóku leik-
menn Stjörnunnar við sér og náðu
að jafna og vel það. Stjarnan komst
í 7-11 og höfðu Víkingar þá ekki
skorað mark í 14 mínútur. Sigurður
Bjarnason fór á kostum í sókninni
og skoraði 3 mörk í röð, hvert öðru
glæsilegra.
Bjarki Sigurðsson náði að skora
síðasta markið fyrir leikhlé og var
staðan í hálfleik 8-11.
Víkingar hófu seinni hálfleikinn
af sama krafti og þann fyrri. Um
miðjan hálfleikinn höfðu þeir náð að
jafna og komast yfir 16-15. En
Stjörnumenn vöknuðu von bráðar
og komust tveim mörkum yfir þegar
8 mín. voru til leiksloka 17-19.
Síðustu mfnútur leiksins spiluðu
Stjörnumenn af miklu öryggi og
ætluðu sér greinilega stigin tvö.
Leiknum lauk með sigri Stjörn-
unnar 20-22.
Bjarki var bestur Víkinga og skor-
aði mörg glæsileg mörk. Sigurður
markvörður Jensson sýndi enn einu
sinni að hann er virkilega verðugur
arftaki Kristjáns Sigmundssonar og
varði oft vel. Þeir Karl og Einar Jóh.
voru góðir í vörn Víkings sem vafa-
laust lék sinn besta leik í vetur.
Hjá Stjörnunni báru fjórir menn höfuð
og herðar yfir aðra leikmenn, þeir Gylfi
Birgis, Brynjar Kvaran, Sigurður Bjarna-
son og Skúli Gunnsteins, var sama hvort
um sókn eða vörn var að ræða.
Dómarar; Birgir Ottósson og Vigfús
Kjartansson dæmdu vel. F||.
Gróttusigur
Gróttumenn unnu góöan sig-
ur á KA-ntönnum í 1. deildinni
í handknattleik í Digranesi í
gærkvöld, 22-19, eftir aö stað-
an í hálfleik var 13-8. Meö
þessum sigri er nær öruggt að
Seltirningarnir verða áfram á
1. deildinni, en þeir leika nú í
deildinni að nýju, eftir langa
veru í 2. deild. KA-menn, sem
hófu keppnistímabilið með
látuin, hafa lieldur bctur gefið
eftir að undanförnu. BL
KAUPFÉLÖGiN
UnUEINU
ÞJÓNINN ™
nn
Einka er í aðalbanka Landsbankans, Austurstræti 11.
EINKAÞJÓNNINN er tæki sem ílýtir fyrir afgreiðslu reikningsyfirlita og gengisskráningar til
viðskiptavina Landsbankans. Með hjálp bankakortsins veitir EINKAÞJÓNNINN eftirtalda þjónustu
á einfaldan og þægilegan hátt: Yfirlit yfir Einkareikninga og aðra tékkareikninga. Yfirlit yfir
sparisjóðsreikninga (Kjörbók, Afmælisreikning og aðra sparisjóðsreikninga). Yfirlit yfir
innlenda gjaldeyrisreikninga. Gengisskráningu dagsins.
Ekkert Ieyninúmer þarf til að nota EINKAÞJÓNINN, aðeins bankakortið. Láttu EINKAÞJÓNINN
stjana við þig - til þess er hann.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Naumt tap gegn Irum
íclnncLa lan/lcliAiA 1 L-/irfiiLnatt. fro allan Iml/inn Lr>nr< náAI l-..,/ .
íslenska landsliöið í körfuknatt-
leik varð að sætta sig við 3 stiga tap
er liðið mætti írum á smáþjóðamót-
inu á Möltu í gær. Lokatölur voru
68-71, eftir að frar voru yfir í hálfleik
35-27.
Islenska liðið var undir allan leik-
inn, en þegar 2 mín. voru eftir náðu
íslendingar 2 stiga forskoti. Reynslu-
leysi liðsins á lokamín. var þeim
dýrkeypt og Irar náðu að sigra.
Aðalskytta íslands, Valur Ingi-
mundarson var í mjög strangri gæslu
Ira allan Ieikinn og hann náði sér því
ekki á strik, hittni annarra var einnig
léleg. Stigahæstir voru Guðmundur
Bragason með 17 stig, Magnús Guð-
finnsson með 15, Tómas Holton
með 13 og Valur með 12.
í fyrrakvöld vann ísland lið San
Marínó, 83-75. Valur var bestur í
þeim leik með 22 stig, Jón Kr. gerði
16, Guðjón Skúlason 15, Guðmund-
ur Bragason 14, Magnús Guðfinns-
son 8, Mattías Mattíasson 6 og
Tómas Holton 2. BL
KEFLAVIK VANN IR
Keflavíkurstúlkurnar í körfunni,
svo gott sem tryggðu sér fslands-
meistaratitilinn í gærkvöld, með
því leggja ÍR að vclli, 49-47 á
heimavelii sínum. ÍR liðið hefði
með sigri í gær getað blandað sér
alvariega í baráttuna um titilinn,
en þær eru í öðru sæti deildarinnar.
Lengi leit út fy rir sigur ÍR í lcikn-
um, en þær voru yfir í hálfleik
30-24. Björg Hafsteinsdóttir og
Anna María Sveinsdóttir voru at-
kvæðamestar hjá Keflavík, en
Linda Stefánsdóttir hjá ÍR. ÍBK
hefur nú 20 stig í deildinni, en ÍR
hefur 14 í öðru sætinu. BL