Tíminn - 16.12.1988, Qupperneq 12
12 Tíminn
Föstudagur 16. desember 1988
ÚTLÖND
— *■ W * f* STIMG
— ---*-------------■......• -----
ONSDACLNDLN 14 DKCKMUKH ÍZZZTJZ
ll-IRK
«1SVENSKA DAGBI
CAaaanl
'rÍAklaaaren:
, Jagtrorvi
: har mördaren
• ■ . l»w W-.ll
NiJ4l VECXASO TEC Ot-IJ JOO0
TORSDAQEN DEN 15 |>eCZMBE)t l*t»
Kand váldsman anhállen
for mprdet pa Olof Palme
fcn 41-éri* (idifmrc kJlnd
váidinuui, bl • dömd för
roorj, •nii<dU pá owxUgskvil-
kcn ftaro p* %r nnolikA *1lAÍ mÍM-
Unki för P' >ordet.
\
=1;
. t; t
.1: J-
* -U
Han var livvakt
;tr hombmannen
:rti»tmön beráttar
om hans liv
Julen 1970
blev han mördare
Ett Etort stog rrvot
fred—tackvaret
Sten Andersson
OK'ÆR
I iáfc
Grandmaðurinn er fundinn:
Morðingi Olof Palme
_ I ' : Ci.l.l.L'l • ■ ■ n m ■
Frá Þór Jónssyni í Stokkhólmi.
Sá maður, sem sænska lögreglan handtók á miðvikudagsmorgun, er sami
maður og vitni sáu norpandi utan við kvikmyndahúsið Grand við Sveavágen
í Stokkhólmi að kvöldi hins 28. febrúar 1986 og hefur frá upphafi veríð
grunaður um morðið á Olof Palme forsætisráðherra.
Vitni báru kennsl á manninn, þegar hinn grunaði var leiddur fyrir þau í
lögreglustöð á miðvikudag. Önnur þekktu hann ekki.
Þrátt fyrir það er Axel Morath, ríkissaksóknarí og ábyrgðarmaður
morðrannsóknarinnar frá því í mars 1987 vonglaður: - Ég held að við höfum
tekið morðingjann. Ég held það!
Höfnuðu
samsæriskenningunni
FRÉTTAYFIRUT
GENF - Allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna hefur sam-
þykkt að Þjóðarráð Palestínu
fái aukaaðild að Sameinuðu
þjóðunum sem ríki undir nafn-
inu Palestína. Sendiherra
Bandaríkjanna hefur nú þegar
haft samband við embættis-
menn PLO í Túnis eftir að
Bandaríkjastjórn ákvað að
hefja viðræður við samtökin
eftir að Arafat gekk að þeim
skilyrðum sem Bandaríkja-
menn settu fyrir viðræðum.
Þau skilyrði voru að PLO hafn-
aði og fordæmdi öll hryðjuverk,
viðurkenndu israelsríki og
samþykktu tvær ályktanir
Sameinuðu þjóðanna sem
kveða á um að friðarráðstefna
verði haldin til að násamkomu-
lagi um landamæri Ísraelsríkis
og Palestínuríksins. Allir nema
ísraelar hafa fagnað þessu
skrefi og telja það grunn að
friði í miðausturlöndum.
MOSKVA - Sovósk yfirvöld
hafa handtekið fjölda manns
fyrir að hafa rænt búðir og
heimili á jarðskjálftasvæðun-
um í Armeníu og saka Armena
jafnt sem Azera um að nota
hörmungarnar til að ýta enn
undir kynþáttaólgu. Hin opin-
bera fréttastofa Tass segir að
komið hafi í Ijós að 20 þorp hafi
farið illa í jarðskjálftanum.
VIN - Þrír rúmenskir flótta-
menn hafa sótt um pólitískt
hæli í Austurríki eftir að hafa
reynt í mánuð að finna sér
samastað í öðrum ríkjum.
Flóttamennirnir þrír voru reknir
frá Ungverjalandi eftir að hafa
skipulagt mótmælafundi gegn
Nicolae Ceausescu leiðtoga
Rúmeníu.
BÚDAPEST - Ungvegar
Ifta nú hýru auga til Svíþjóðar
og Spánar í leit að framtíðar-
skipulagi félagshyggjunnar, en
Ungverjar hafa mikinn hug á
að gera sósíalisma sinn nú-
tímalegri og lýðræðislegri í
framkvæmd. Það varháttsettur
embættismaður ungverskur
sem skýrði frá þessu.
STRASSBORG - Evrópu-
þingið afgreiddi fjárlög Evrópu-
bandalagsins fyrir næsta ár.
Þar er gert ráð fyrir niðurskurði
framlaga til landbúnaðar í
fyrsta sinn, en landbúnaðurinn
hefur verið að drepa Evrópu-
bandalagið vegna offram-
leiðslu.
DUBLIN - Þrír þingmenn
írskir hafa skorað á allar írskar
fjölskyldur til að senda jólakort
til IRA með árituninni „Hættið
drápunum". Þetta er liður í
átaki sem þeir kalla „Friðsöm
jól“.
Palme og kerfið
Frú Lisbet Palme sem stóð augliti
til auglitis við morðingjann, eftir að
forsætisráðherrann féll til jarðar
særður til ólífis, hefur ekki enn hitt
hinn grunaða. Hún er mikiivægasta
vitni lögreglunnar og Grandmaður-
inn og hún verða ekki leidd saman
fyrr en í nauðirnar rekur.
Saksóknarar í málinu telja hinn
handtekna að öllum líkindum vera
morðingja Palme. En Grandmaður-
inn heldur fram sakleysi sínu.
Lögreglan er sannfærð um að hafa
nú loks tekið höndum hinn fræga
Grandmann. En ekkert sannar að
hann hafi framið morðið. Saksókn-
arar telja þó allt benda til þess!
Grandmaðurinn fór aldrei í laun-
kofa með hatur sitt á Palme. Á
hverju hatur hans byggðist er ekki
raunverulega vitað. Þó getur verið
að hann hafi séð Palme sem Kerfið
holdi klætt, en stuttu fyrir morðið
hafði félagsmálastofnun dregið inn
alla styrki til hans og hann varð
peningalaus.
Þar að auki var hann undir miklum
áhrifum frá vini sínum, „sprengju-
manninum" svokallaða, en Grand-
maðurinn gerðist verndari hans í
Kumla fangelsinu.
Sprengjumaðurinn situr í ævi-
löngu fangelsi. Hann hefur and-
styggð á samfélaginu og í baráttu
sinni gegn yfirvöldunum hefur hann
sprengt í loft upp einbýlishús sak-
sóknara, skrifstofu skattheimtunnar
og fógetaskrifstofur. Tveir létust af
völdum sprenginganna.
Grandmaðurinn má hafa fetað í
fótspor vinar síns!
Haltur eins og morðinginn
Hinn grunaði klæðist eins og
morðinginn. Hann er á sama aldri og
vitni hafa borið að morðinginn sé og
hann er sláandi líkur myndinni, sem
var gerð eftir lýsingu sjónarvotta-
Hann er dökkur yfirlitum, þótt hann
sé Svíi, en þess vegna geta vitnis-
burðir um útlending átt við. Maður-
inn stingur við eftir slys, sem hann
lenti í sem unglingur. Vitni, sem sáu
morðingjann flýja, sáu að hann
haltraði.
Hann er afbrotamaður og
drykkjusjúklingur og hefur vart á
sínu 41 æviári unnið ærlegt handtak.
Hann hefur gengið út og inn af
geðveikrahælum og verið dæmdur á
nær hverju ári samfellt tuttugu ár
fyrir misjafna glæpi.
Þótt hann hafi oftsinnis sætt geð-
rannsóknum er hann talinn
skynsamur maður og kemur vel fyrir
sig orði.
Hann er þekktur rukkari okurlán-
ara og fjárhættuspilara og sést ekki
fyrir í innheimtum sínum.
Hann hefur hlotið alls 63 dóma
fyrir allt frá búðarhnupli upp í
morðtilræði og morð.
Flúðisömu leið 1970
Fyrir jól 1970 rak þessi maður
eftirlætisvopn sitt, byssusting, sem
hann oft ber á sér, í brjóstið á ungum
manni, sem hafði sér það eitt til
sakar unnið að rekast á hann á
göngu aðeins hundrað metrum frá
þeim stað, sem Olof Palme átti eftir
að láta lífið mörgum árum síðar.
Maðurinn flúði sömu leið og
Grandmaðurinn flúði eftir morðið á
forsætisráðherranum. Og báðir
hurfu þeir eins og jörðin hefði gleypt
þá!
Vitað er að maðurinn hefur átt
aðgang að felustað í grenndinni.
Ekki er vitað til þess að hann hafi
borið skotvopn fyrr. Hann er hrifn-
ari af dálkum, byssustingjum og því
um líku.
Við húsrannsókn á heimili hans í
Sollentuna norður af Stokkhólmi á
miðvikudag fannst vissulega ekki
Smith & Wesson 357 magnum
skammbyssan, sem Palme var skot-
inn með, en aftur á móti skotfæri í
svo öflug vopn. Lögreglan hafði á
brott með sér úr íbúðinni stóran
pappakassa fullan af hugsanlegum
sönnunargögnum.
En lögreglan gefur samt engar
upplýsingar.
Það heyrir nú orðið sögunni til að
stjórn morðrannsóknarinnar boði; til
blaðamannafunda til að skýra al-
menningi frá framvindu rannsóknar-
innar. Líkt og Hans Holmér fv.
lögreglustjóri í Stokkhólmi gerði á
meðan hann var í brúnni.
Margt hefur breyst frá því Holmér
hrökklaðist frá störfum, - að vísu
var hann náðaður fyrir öll hans brot
í opinberri þjónustu og fengin þægi-
leg staða hjá Sameinuðu þjóðunum
í New York fjarri skarkalanum í
Stokkhólmi. Þar sem dómsmálaráð-
herra og rfkislögreglustjóri neyddust
einnig til að taka pokann sinn vegna
hneykslismála í sambandi við rann-
sókn Holmérs -, Palmeherberginu
var lokað, lífverðirnir hurfu og þar
sem Holmér hafði ekið til vinnu
sinnar í brynvörðum bíl með
lögreglufylgd, hjólar á reiðhjóli sínu
Jörgen Almblad, saksóknari, sem er
við stjórnvöl morðrannsóknarinnar
nú.
Hin síðari rannsókn hafnaði að
mestu tilgátu Holmérs um samsæri
gegn forsætisráðherranum. Holmér
starfaði alla tíð eftir þeirri kenningu
að kúrdar í Svíþjóð væru handbendi
Khomeinis og hefðu drepið Palme
til að koma í veg fyrir að hann
útvegaði írökum sænsk vopn.
Frá því Holmér fór frá hafa ákaf-
lega reyndir rannsóknarlögreglu-
menn skoðað máli frá grunni. Þeir
hafa starfað eftir þeirri tilgátu að
einn maður hafi verið að verki, sem
af tilviljun sá Palme hjónin á leið í
bíó í kvikmyndahúsinu Grand og
hafi setið fyrir þeim, þegar myndinni
lauk. Þeir hafa leitað að vitfirringi,
sem greip tækifærið, þegar það gafst,
því að Palme átti sér ófáa haturs-
ntenn.
Lögreglan hefur leitað að Grand-
manninum, sem margir sjónarvottar
hafa gefið upplýsingar um.
Og starf lögreglunnar hefur nú
loksins borið árangur.
Sást yfir Grandmanninn
Raunar yfirheyrðu menn Holmérs
þennan Grandmann fyrir löngu. En
þeir tóku gilda fjarvistarsönnun hans
og töldu hann ekki áhugaverðan
fyrir rannsóknina. Enda féll hann
ekki að kenningu þeirra um samsæri.
Þegar Holmér hætti fengu lög-
reglumenn þeir, sem tóku við af
honum, lista með 17.000 nöfnum
afbrotamanna, sem líklegir væru til
að ræna lífi forsætisráðherra.
Þar fundu þeir þennan Grand-
mann og komust að því að fjarvistar-
sönnun hans var hriplek. Frá því í
októbermánuði sl. hafa tveir lög-
reglumenn verið í fullu starfi að
rannsaka hann og halda uppi njósn-
um um hann. Ekki stóð steinn yfir
steini. Þegar fjarvistarsönnun
mannsins var brotin til mergjar.
Lögreglan komst að því, að áður
en Palme var myrtur vandi maðurinn
gjarnan komur sfnar í veitingahús
og spilasaii í grennd við Sveavágen
og barst mikið á. Hann hældist
gjarnan um af „hreystiverkum“ sín-
um á glæpabrautinni.
Eftir morðið hefur hann varla sést
í bænum. Hann hékk heldur með
félögum sínum fyrir utan áfengisút-
söluna í Sollentuna og drakk sig
fullan. Og hann stærði sig ekki
lengur af glæpunum. Aurarnir hans
fóru í brennivín og hann stal sér til
matar.
Það er aðeins mánuður síðan
hann síðast var staðinn að verki við
að stela sér barnamat. Og þannig er
saga hans. Honum hefur verið
ómögulegt að þegja um afbrot sín og
yfirleitt hefur hann ekki komist upp
með þau.
Það vekur því óneitanlega athygli,
að slíkur maður skyldi geta myrt
forsætisráðherrann. Komist undan
og þagað um það í tæp þrjú ár.
Þar að auki heldur hann fram
sakleysi sínu við yfirheyrslur lögregl-
unnar nú.
Trúandi til alls
- Hann hefði kjaftað, segja
drykkjufélagar Grandmannsins í
Sollentuna. Þeir trúa því ekki að
hann hafi myrt forsætisráðherrann.
En vinur hans, sá sem búið hefur
með honum undanfarin ár, segir að
honum sé trúandi til alls. Þá félaga
greinir á um hvenær kvölds Grand-
maðurinn kom heim umrædda febr-
úarnótt. Grandmaðurinn segist hafa
komið heim skömmu fyrir miðnætti
og þá er honum ómögulegt að hafa
verið valdur að verknaðinum. Vinur
hans segir hins vegar að hann hafi
ekki komið heim fyrr en eftir mið-
nætti!
Þar að auki hafa fjöldamargir í
„undirheimum" Stokkhólms rekist á
Grandmanninn við morðstaðinn
þetta kvöld. Því að hann var að leita
sér að fíknilyfjum.
Grandmanninum hefur verið
fenginn ákaflega virtur og snjall
verjandi, Arne Liljoros. Hann er
bundinn þagnarskyldu, en hefur sagt
að umbjóðandi sinn haldi fram sak-
leysi sínu. Lögfræðingurinn segir að
málið verði mjög flókið og að hann
muni beita sér fyrir að manninum
verði sleppt úr haldi.
í dag ákveður dómari hvort mað-
urinn verði hafður lengur í gæslu-
varðhaldi eða fái að ganga frjáls
ferða sinna. Þór.