Tíminn - 22.12.1988, Síða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 22. desember 1988
tl/i 1711/1 '\i riMin
la í-%. ÍH Wl LM1
JL EiUL IWJ UHX MMM
/>
■
FRÁ RAFMAGNSVEITU
REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveitunni er þaö kappsmál, að sem fæstir
verði fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um
jólin sem endranær. Til þess að tryggja öruggt
rafmagn um hátíðirnar, vill Rafmagnsveitan benda
notendum á eftirfarandi:
1
2
3
4
5
6
Reynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna henni
yfir daginn eins og kostur er, einkum á aðfanga-
dag og gamlársdag. Forðist, ef unnt er, að nota
mörg straumfrek tæki samtímis, t.d. rafmagns-
ofna, hraðsuðukatla, þvottavélar og uþpþvotta-
vélar - einkum meðan á eldun stendur.
Farið varlega með öll raftæki til að forðast
bruna- og snertihættu. Illa meðfarnar lausar
taugar og jólaljósasamstæður eru hættulegar.
Útiljósasamstæður þurfa að vera vatnsþéttar og
af gerð, sem viðurkennd er af Rafmagnseftirliti
ríkisins.
í flestum nýrri húsum eru sjálfvör „útsláttar-
rofar“ en í eldri húsum eru vartappar „öryggi".
Eigið ávallt til nægar birgðir af vartöppum.
Helstu stærðir eru:
10 amper Ijós ' f
20-25 amper eldavél
35 amper aðalvör fyrir íbúð.
Ef straumlaust verður, skuluð þér gera eftir-
farandi ráðstafanir:
- Takið straumfrek tæki úr sambandi.
- Ef straumleysið tekur aðeins til hluA úr íbúð,
(t.d. eldavélar eða Ijósa) getið þér sjálf skipt
um vör í töflu íbúðarinnar. Ef öll íbúðin er
straumlaus, getið þér einnig sjálf skipt um vör
fyrir íbúðina í aðaltöflu hússins.
Hafi lekastraumsrofa í töflu leyst úr er rétt að
taka öll tæki úr sambandi og reyna að setja
lekastraumsrofann inn aftur. Leysi rofinn enn út
er nauðsynlegt að kalla til rafvirkja.
Tekið er á móti tilkynningum um bilanir ísíma
686230 hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur allan
sólarhringinn. Á aðfangadag og gamlársdag er
einnig tekið á móti bilanatilkynningum til kl. 19 í
síma 686222.
Við flytjum yður beztu óskir um gleðileg jól og
farsæld á komandi ári, með þökkfyrirsamstarfið
á hinu liðna.
4
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
____^ (Geymið auglýsinguna)
Álit vinnuhóps um lánasjóð námsmanna:
Framfærslugrunnur
verði leiðréttur
Nú liggur fyrir bráðabirgðaálit
vinnuhóps um málefni Lánasjóðs
íslenskra námsmanna. Þar er m.a.
að finna tillögu þess efnis að bætt
skuli sú skerðing á metnum fram-
færslukostnaði sem orðið hefur frá
árinu 1984. Til að mæta skerðing-
unni er lagt til að metinn framfærslu-
kostnaður verði hækkaður um 7,5%
1. mars n.k. og aftur um a.m.k. 5%
frá 1. september 1989. Jafnframt
leggur starshópurinn til að skerðing
metins framfærslukostnaðar verði
bætt að fullu frá og með 1. janúar
1990.
Verkefni vinnuhópsins var að
fjalla um með hvaða hætti settar
yrðu lánareglur, sem kæmu í stað
þeirra, sem ákveðnar hafa verið á
undanförnum árum af fyrrverandi
menntamáiaráðherrum.
Aðrar tillögur hópsins eru þær að
frá og með skólaárinu 1989-90 verði
50% tekna sem námsmaður aflar
sjálfur, í stað 35% eins og nú er,
dregið frá fjárþörf hans.
Einnig er lagt til að Menntamála-
ráðuneytið beiti sér að því að nú
þegar verði hafin undirbúningur að
nýrri könnun á framfærslukostnaði
námsmanna á íslandi og erlendis.
Ráðgert er að slík könnun fari fram
á næsta ári en undirbúningur er
þegar hafinn.
Lagt er til að skrifstofa og stjórn
LÍN hefji athugun og undirbúning
að því að veita námsmönnum á 1.
námsári lán þegar á fyrsta námsmiss-
eri. Undanfarin ár hefur það tíðkast
að 1. árs nemar hafa þurft að leita á
náðir bankakerfisins um víxillán þar
til námsárangur á fyrstu önn liggur
fyrir. Með þessari tillögu hópsins er
gert ráð fyrir að LÍN sjái um lánveit-
ingu af þessu tagi. Ekki er ákveðið
hvort um skuldabréfalán verður að
ræða eða hvort reglur um víxillán
verða látnar gilda áfram. SSH .
ísfisksölur í Bretlandi og Þýskalandi vikuna 12. til 16. desember sl:
Verðhækkanir
á mörkuðunum
Gott verð fékkst fyrir ísfisk
í Bretlandi og Þýskalandi í
síðustu viku, eftir mjög lágt
verð að undanförnu. Helsta
ástæða þessa háa verðs er
lítið framboð á þessum
mörkuðum, bæði frá íslandi
og öðrum löndum.
í liðinni viku voru rúmlega 1700
tonn seld af fiski á Bretlands- og
Þýskalandsmarkaði. Þar af var fiskur
í gámum 764 tonn. Heildarverðmæti
allsaflans varum 151 milljón króna.
Fimm bátar seldu aflann í Bret-
landshöfnum, samtals 533,7 tonn,
verðmæti aflans var 44,4 milljónir
Selfoss:
Lögregla
smalar
Selfosslögreglan hafði í mörgu að
snúast nú um helgina. Fyrir utan
hefðbundin störf fór lögreglan fimrn
sinnurn til að smala saman hestum
sem voru við Suðurlandsveginn. í
Flóanum. - ABÓ
króna. Þessir bátar voru Björgúlfur
EA (154 tonn), Þorlákur ÁR (103
tonn), Otto Wathne NS (139 tonn),
Akurey SF (40 tonn) og Stapavík SI
(95 tonn). Meðalverð þessara fimm
báta var 82,10 krónur. Hæsta meðal-
verð fékk Björgúlfur EA, eða 91,82
krónur á kíló en lægsta meðalverð
fékk Otto Wathne NS, 77,32 krónur
á kíló.
Fyrir 467 tonn af þorski fékkst
83,60 króna meðalverð á kíló, fyrir
19,7 tonn af ýsu fékkst 110,33 króna
meðalverð á kíló, fyrir 6 tonn af ufsa
48.65 krónur, fyrir 13,4 tonn af kola
fengust 85,42 krónur á kíló og fyrir
14 tonn af blönduðum afla fengust
78.66 krónur á kíló.
Þá voru seld 764 tonn af fiski úr
gámum á Bretlandsmarkaði í liðinni
viku. Af þorski voru 332,5 tonn seld
og fékkst 95,14 króna meðalverð
fyrir aflann. Af ýsu voru 169 tonn
seld, meðalverð 119,68 krónur, fyrir
11 tonn af ufsa fengust 54,83 króna
meðalverð. Fyrir 134,9 tonn af kola
fékkst 109,50 króna meðalverð og
fyrir 65,94 tonn af blönduðum afla
fékkst 95,55 króna meðalverð.
Á Þýskalandsmarkað sigldu þrír
bátar með samtals 402,8 tonn og var
heildarverðmæti aflans um 30 millj-
ónir króna. Birtingur NK seldi 137
tonn og fékk 81.39 króna meðalverð
fyrir aflann, Barði NK seldi 123 tonn
og fékk 67,80 króna meðalverð fyrir
aflann og Drangey SK seldi 142
tonn. meðalverð 75.48 krónur.
- ABÓ
Fjölmiðla-
fræðsla á
öllumskóla-
stigum
Á vegum menntamálaráðu-
neytisins hefur verið skipuð
nefnd til þess að huga að skipan
fjölmiðlakennslu á öllum skóla-
stigum.
Verkefni nefndarinnar eru í
fyrsta lagi að gera tillögu um
kennslu í s.k. hagnýtri fjölmiðlun
við Háskóla íslands, en slíkt nám
tengist beinlínis störfum við fjöl-
miðla. Nefndin á að taka mið af
þeim tillögum sem nú liggja fyrir
við Háskólann. Þær tillögur gera
ráð fyrir að boðið verði upp á eins
til tveggja ára nám í hagnýtri
fjölmiðlun eftir að BA-prófi er
lokið.
í öðru lagi er nefndinni falið að
gera tillögu um markmið og fram-
tíðarskipan fjölmiðlakennslu á
framhaldsskólastigi. Nú er engin
samhæfing milli skóla hvað þetta
nám varðar sem er ekki starfsnám
heldur eiga nemendur með því
að fá dýpri kynni af fjölmiðlum.
í þriðja lagi á nefndin að gera
tillögur um markmið og framtíð-
arskipan á fjölmiðlakennslu á
grunnskólastigi. Hvað þetta
skólastig varðar á nefndin að
huga að fjölmiðlafræðslu sem
hluta af ýmsum námsgreinum,
s.s. móðurmáli, samfélagsfræði,
og erlendun tungumálum.
Menntamálaráðherra skipar
nefndina og mun hún skipuö
aöilum m.a. frá Blaðamanna-
félagi íslands, blaðaútgefendum,
Háskóla íslands, framhaldsskóla-
og grunnskólastigi. SSH