Tíminn - 22.12.1988, Side 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 22. desember 1988
frettayfiri.it
BELGRAD - Yasser Arafat
leiötogi Frelsissamtaka Pales-
tínu lauk eins dags opinberri
heimsókn sinni til Belgrad með
því að lýsa því yfir á frétta-
mannafundi aðnýja ríkisstjórn-
in í ísrael væri „ekki fyrir frið
heldur stríð“. Arafat saaði að
Verkamannaflokkurinn ílsrael
hefði brotið gegn kosningalof-
orðum sínum. Arafat var í
Júgóslavíu til að leita stuðn-
ings við sjálfstætt ríki Pales-
tínu og var honum tekið sem
þjóðhöfðingja.
BUENOS AIRES - Jose
Dante Caridi hershöfðingi og
yfirmaður landhers Argentínu
og tveir aðstoðarmenn hans
sögðu af sér í gær, tveimur
vikum eftir að uppreisnartilraun j
var gerð í hernum og afsagnar
yfirstjórnar hans krafist. Af-
sögn hershöfðingjans kom rétti
áður en Raul Alfonsin forseti'
landsins hugðist ávarpa þjóð-j
ina út af þessum málum.
LONDON - Breska lögregl-j
an fann stóra sprengjuverk-
smiðju þar sem IRA hefur fram-
leitt sprengjur sem notaðar
hafa verið í sprengjutilræðum
á Norður-írlandi og í Englandi.
Þá fannst mikið vopnabúr á
sama stað. Fundur þessi kynti
undir ótta manna um að IRA
hefði á prjónunum áætlun um
sprengiherferð ( Englandi.
BEIRÚT - Leiðtogar hinna
tveggja andstæðu ríkisstjórnaí
sem hvor um sig telur sig rétta,
ríkisstjórn Líbanons vorUi
samstíga í að biðja Alþjóða'
Rauða krossinn að hætta viði
að kalla heim starfslið sitt í
Líbanon. Rauði krossinn hefur|
kallað starfslið sitt heim til'
Genfar vegna síendurtekinnai
morðhótana og mannrána. I
MANILA -Eduard Shevard-1
nadze sem fyrstur utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna heim-
sækir Filippseyjar sagðistl
munu vilja byggja upp aukin ogl
jákvæðari samskipti ríkjanna
tveggja. Kollegi hans á Filipps-
eyjum sagði við sama tækifæri
að Filippseyingar vonist til auk-
inna efnahagslegra samskipta
við Sovétmenn. Filippseyingar
eru nánustu samstarfsmenn
Bandaríkjanna á þessum
slóðum.
PEKING - Rajiv Gandhi
forsætisráðherra Sovétrfkj-
anna sagði að heimsókn hans
til Kína hefði komið á jafnvægi
í samskiptum Indverja og Kín-
verja og að hann muni bera
sendiboð um vináttu frá kín-
versku þjóðinni til hinnar ind-
versku. Kínverjar og Indverjar
áttu í landamærastríði árið
1962 og gera bæði ríkin tilkall
til landsvæða innan núverandi
landamæra hins ríkisins.
ÚTLÖND
ll'llllllllllí
Ný ríkisstjórn tekur við völdum í Israel
Hörð stjórnarandstaða í
báðum stjórnarflokkunum
Ný ríkisstjórn Likudbandalagsins
og Verkamannaflokksins í fsrael
undir forsæti Shamirs núverandi
forsætisráðherra mun að líkindum
taka við völdum á morgun eftir að
miðstjórnir flokkanna samþykktu
stjórnarsáttmálann sem gerður var á
mándag. Því er fimmtíu daga stjórn-
arkreppu í ísrael nú lokið.
En það var ekki tekið út með
sældinni fyrir flokksformennina, þá
Yitzhak Shamir og Shimon Peres,
að ná fram samþykki flokksmanna
sinna. Harðar umræður urðu í mið-
stjórnunum og voru margir mjög
ósáttir með samstarfið, enda flokk-
arnir harðir andstæðingar í ísraelsk-
um stjórnmálum.
Miðstjórn Verkamannaflokksins
samþykkti þó stjórnarsamstarfið
með miklum mun þrátt fyrir harða
andstöðu margra, sérstaklega friðar-
hreyfingararms flokksins sem telur
að með samstarfinu við Shamir og
aðra harðlínumenn sé vonlaust að
ná fram friði við Palestínumenn.
Skömm harðlínumannanna í Lik-
udbandalaginu á stjórnarsamstarfi
við Verkamannaflokkinn var síst
minni. Einungis 55% miðstjórnar-
manna greiddu atkvæði með stjórn-
arsamstarfinu. Fremstur í flokki
harðlínumannanna var Yitshak
Sharon sem sér svart er minnst er á
Palestínumenn. Hann varð sem
kunnugt er að segja af sér embætti
varnarmálaráðherra árið 1983 eftir
að dómstóll komst að þeirri niður-
stöðu að hann hafi borið ábyrgðina
á því að kristnum öfgamönnum var
hleypt inn í palestínskar flótta-
mannabúðir í Suður-Líbanon, en
þeir frömdu fjöldamorð á vopnlaus-
um Palestínumönnum þar.
Sharon og fylgismenn hans vildu
samstarf við öfgafulla hægriflokka
og trúflokka. Það fór einnig mjög í
taugarnar á honum að í stjórnarsátt-
málanum væri aðeins gefið leyfi til
að stofna átta landnám Gyðinga á
hernumdu svæðunum. Likudbanda-
lagið og hægriflokkarnir höfðu ætlað
að koma á fót fjörutíu slíkum land-
námum, en með þeim er þrengt
mjög að Palestínumönnunum er búa
þar fyrir.
Bandaríkjamenn hafa harðlega
gagnrýnt þá ákvörðun ísraela að
Shimon Peres formaður Verkamannaflokksins og Yitzhak Shamir formaður
Likudbandalagsins urðu að taka á honum stóra sínum tii að fá miðstjómir
flokka sinna til að samþykkja nýja ríkisstjórn þessara flokka.
stofna ný landnám á hernumdu friðarviðleitni mun erfiðari en ella.
svæðunum, enda munu þau gera alla
„Aðalvitniö“ í Palmemálinu léttvægt fyrir dómi:
Lisbet meinað
að bera vitni
Frá Þór Jónssyni í Stokkhólmi.
Vegna tengsla við hinn myrta mega Lisbet og Marteinn
Palme ekki bera vitni í væntanlegum réttarhöldum yfir
Christer Pettersson, þeim 41 árs gamla Svía, sem grunaður
er um morðið á Olof Palme.
Hákan Winberg, forseti Héraðs-
hofréttar, túlkar sænsk lög um
réttarfar þannig, að náin skyldmenni
geti ekki borið vitni undir eiði í
málum af þessu tagi.
Þetta gildir eingöngu um sakamál,
segir hann, og vegna þess að lítt
hefur reynt á þetta ákvæði áður
verður rétturinn sjálfur að taka af-
stöðu til þessa máls.
Eftir allar fréttir um að Lisbet
Palme væri aðalvitni ákæruvaldsins
koma þessar upplýsingar á óvart.
Við öll réttarhöld er þó heimilt að
afla upplýsinga hjá skyldmennum,
en framburður þeirra vegur ekki
jafnþungt framburði vitna.
Gæsluvarðhald lögmætt
Hofréttur í Stokkhólmi tók í gær
fyrir áfrýjun lögmanns hins grunaða,
sem dregur í efa réttmæti gæsluvarð-
haldsúrskurðarins.
Hofréttur var þó einhuga í þeirri
afstöðu að gæsluvarðhaldsúrskurður
sakadóms væri fullkomlega lögmæt-
ur og eðlilegur. Hinn grunaði situr í
gæsluvarðhaldi til 30. desember, en
þá verður saksóknari að gefa út
ákæru á hendur honum.
Felustaður fyrir vopnið
Fleira hefur borið til tíðinda.
„Sprengjumaðurinn" svokallaði vill
í fyrsta sinn á sínum glæpaferli
leggja lögreglunni lið.
Hann er dæmdur fyrir morð,
morðtilræði og eignaspjöll, en í
baráttu sinni gegn samfélaginu hefur
hann sprengt í loft upp skrifstofur
yfirvalda og einbýlishús saksóknara.
Christer Pettersson, grunaður um
Palmemorðið, var lífvörður
„sprengjumannsins" í fangelsi og
utan.
Tveimur vikum fyrir morðið var
„sprengjumaðurinn" dæmdur í lífs-
tíðarlangt fangelsi. Lögreglan telur
að „lífvörðurinn“ hafi hefnt fyrir vin
sinn með þeim hætti að drepa Palme,
þegar tækifærið gafst.
Sprengjumaðurinn hefur gegnum
lögmann sinn boðist til að segja frá
leynilegri sprengjugeymslu í mið-
borg Stokkhólms, þar sem kann að
vera skammbyssa, sem hinn grunaði
gæti haft aðgang að.
Það er einn af þeim þráðum í
þessu margslungna máli, sem lög-
reglan rannsakar þessa dagana.
Sannað er að hinn grunaði hefur haft
skotvopn undir höndum. Lögregl-
una grunar að vopnið hafi hann
annað hvort fengið hjá kunningja
sínum í fíkniefnaklíkunni, keypt
það af vopnasala í Stokkhólmi eða
sótt það í hirslur „sprengjumanns-
ins“ alræmda.
Rússar setja
geimdvalarmet
Vladimir og Musa eru komnir
heim. Þeir hafa nú dvalið í samfellt
366 daga út í geimnum og er það
met. Þeir voru þó þremur tímum
lengur á sveimi um jörðu en áætlað
var þar sem lending þeirra tafðist
vegna bilana í tölvukerfi geimfars
þeirra.
Vladimir Titov og Musa Mana-
rov voru þó ekki einir á ferð í gær
því Frakkinn Jean-Loup Chretien
sem heimsótt hafði þá f sovésku
geimstöðina Mír fékk að fljóta
með til jarðar í Soyuz TM-6 geim-
fari. Þeir lentu nákvæmlega klukk-
an tíu að íslenskum tíma í miðju
Kazakhstan.
Geimstöðin Mír er þó ekki
mannlaus því þar dvelja nú Alex-
ander Volkov og Sergei Krikalyov,
en þeir urðu samferða Jean-Loup
út í geiminn 28. nóvember síðast-
liðinn.
Fyrra dvalarmetið átti Yuri
Romanenko en hann dvaldi 326
daga úti í geimnum á síðasta ári.
UTLO
UMSJÓN:
Hallur
Maqnússon
BLAÐAM
Óvíst er hvort nokkur bjargaöist er risa-
þota hrapaði yfir Skotlandi í gærkvöldi:
258 farþegar
voru um borð
Risaþota af gerðinni Boeing 747
jumbo hrapaði til jarðar yfir Skot-
landi í gærkvöldi. Talið cr að um
258 farþegar hafi verið með vél-
inni, en hún var á leið frá London
til New York. Tímanum er ekki
kunnugt um að íslendingar hafi
verið um borð.
Vélin hrapaði til jarðar við
bæinn Lockcrbrie í suðurhluta
Skotlands. Fréttum barekki saman
í gærkvöldi. Sjónvarpsstöðvar í
Bandaríkjunum greindu frá því að
vélin hefði hrapað á bensínstöð í
nágrenni Lockerbrie. Sögðu frétta-
menn að hundrað metra háar eld-
tungur hefðu teygt sig til himins
þegar bensínstöðin sprakk.
Sjónarvottar sögðu hinsvegar að
vélin hefði brunað inn í fjallshiíð
og rifið með sér fjögur íbúðarhús.
Einnig var greint frá því að
þjóðvegurinn milli Englands og
Skotlands hefði rofnað í slysinu og
nokkrirbílarstæðu í Ijósum logum.
Ekki hafði fréttastofa Reuters
aflað sér staðfestra frétta um
manntjón, eða slasaða í gærkvöldi,
þegar Tíminn fór í prentun. Þó var
haft eftir flugmanni í Konunglega
breska lofthernum að um meiri-
háttar harmleik væri að ræða.