Tíminn - 22.12.1988, Side 14
14 Tíminn
Fimmtudagur 22. desember 1988
f) .
9.
Laugardagur
24. desember
09.00 Með afa. Loksins er aðfangadagur runninn
upp og afi ætlar að vera með ykkur til klukkan
fimm. Hann ætlar að skemmta ykkur á milli
teiknimyndanna og fær marga góða gesti í
heimsókn. Afi sýnir að vanda Sollu Bollu og
Támínu, Kát og hjólakrílin, Sögustund með
Janusi og Glóálfana. Stöð 2 óskar ykkur gleði-
legra jóla. Leikraddir: Guðmundur Ólafsson,
Guðný Ragnarsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Júl-
íus Brjánsson, Saga Jónsdóttir og Sólveig
Pálsdóttir.
10.30 Jólasveinar ganga um gólf. Santa Special.
Teiknimynd með íslensku tali. Telecable.
11.15 Denni dæmalausi. Dennis the Menice.
Teiknimynd með íslensku tali.
11.35 Þvottabirnir á skautasvelli. Raccoons on
lce. Teiknimynd með íslensku tali. Þýðandi:
Guðjón Guðmundsson._______________________
12.05 Hetjur himingeimsins. She-ra. She-Ra og
He-Man ætla að fagna jólunum með börnunum.
Þýðandi: Sigrun Þorvarðardóttir.
12.50 Ævintýraleikhúsið. Faerie tale theatre.
Rauðhetta. Little Red Riding Hood. Aðalhlut-
verk: Malcolm McDowell og Mary Steenburgen.
• Ævintýraleikhúsið er samheiti yfir allmörg sígild
ævintýri sem eru færð í nútímabúning og hafa
hvarvetna hlotið verðskuldað lof gagnrýnenda
og áhorfenda. Við byrjum á því að sýna
ævintýrið um hana Rauðhettu litlu og úlfinn en
söguna þarf varla að kynna frekar. Leikin barna-
og fjölskyldumynd með úrvals leikurum. Leik-
stjóri: Graham Clifford.
13.50 Jólin hjá Mjallhvít. Teiknimynd með ís-
lensku tali. Mjallhvit eignast dóttur og ævintýrið
endurtekur sig en í þetta sinn tekur sagan á sig
nýja mynd og Mjallhvít unga lendir í vist hjá
risum. Leikraddir: Guðrún Þórðardóttir, Helga
Jónsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Júlíus Brjáns-
son og Pálmi Gestsson. Þýðandi: Ragnar Hólm
Ragnarsson.
14.40 Jólin hans Gosa. Pinocchio’s Christmas.
Teiknimynd. Þýðandi: Ragnar Hólm Ragnars-
son.
15.35 Niskupúkinn. The Stingiest Man in Town.
Teiknimynd. Fagnaðarboðskapurinn á erindi til
allra, ekki síst þeirra sem hafa tamið sér
eigingirni og nísku. Þýðandi Björn Baldursson.
16.25 Á jólanótt. T’Was the Night before
Christmas. Teiknimynd. Börn í litlu þorpi skrifa
jólasveininum bróf. Þegar brófin eru endursend
fara þau að efast um tilvist jólasveinsins.
Þýðandi: Margrót Sverrisdóttir.
17.00 Dagskrárlok.
6>
Rás I
FM 92,4/93,5
Sunnudagur
25. desember
Jóladagur
8.00 Kiukknahringing. Litla lúörasveitin ieikur
jólalög.
8.15 Veðurfregnir. Dagskrá.
8.30 Á sunnudagsmorgni með Sólveigu Ás-
geirsdóttur. Bernharður Guðmundsson ræðir
við hana um guðspjall dagsins.
9.00 Jólaóratorían eftir Johann Sebastian
Bach. Úr fyrsta og öðrum þætti. Kammersveitin
í Stuttgart og kórinn „Lubecker Kantorei" flytja
ásamt einsöngvurunum Elly Ameling, Helen
Watts, Peter Pears og Tom Krause. Karl
Múnchinger stjórnar. Svanhildur Óskarsdóttir
les texta guðspjallanna.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Bernskujól. Bernskujól í Ijóðum og sögum'
íslenskra skálda. Birgir Sveinbjömsson tekur
saman. Lesari ásamt honum: Steinunn S.
Sigurðardóttir. (Frá Akureyri)
11.00 Messa í Glerárkirkju. Prestur: Séra Pálmi
Matthíasson.
12.10 Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir.
12.50 „Helg eru jól“. Jólalög í útsetningu Árna
Bjömssonar. Sinfóníuhljómsveit Islands leikur;
Páll P. Pálsson stjórnar.
13.00 Péturskirkjan í Róm. Umsjón: Ólafur Gísla-
son og Halldóra Friðjónsdóttir.
14.00 „Lofið hann með lúðurhljómi, lofið hann
með hörpu og gígju“. Hanna G. Sigurðardóttir
kynnir hátíðartónlist frá ýmsum tímum.
14.45 Góðvinafundur. Jónas Jónasson tekur á
móti gestum í Hallgrímskirkju. Meðal gesta eru
leikararnir Rúrik Haraldsson og Ragnheiður
Steindórsdóttir, Agnes Löve píanóleikari, Þuríð-
ur Pálsdóttir sönakona, Mótettukór Hallgríms-
kirkju og Hörður Askelsson söngstjóri.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Við jólatréð. Ðarnatími i Útvarpssal. Meöal
efnis: „Gull reykelsi og myrra" - séra Ólöf
Ólafsdóttir segir frá. Herdís Egilsdóttir segir
sögu sína „Dýrustu jól í heimi". Sungin jóla- og
barnalög við jólatróð. Gestir í Útvarpssal eru
börn úr skóla ísaks Jónssonar. Agnes Löve
stjórnar hljómsveit og Helga Gunnarsdóttir
stjórnar kór Melaskólans í Reykjavík. Stjórn-
andi: Gunnvör Braga. Kynnir: Bryndís Baldurs-
dóttir.
17.20 Tókknesk jólamessa eftir Jakub Jan
Ryba. Einsöngvarar, kórog Sinfóníuhljómsveit-
in í Prag flytja; Vaclav Smetacek stjórnar.
18.00 Systir Helena. Séra Sigurður Einarsson í
Holti les eigin frásögn. (Áður útvarpað 1967).
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.20 Trúin og skáldið. Matthías Jóhannessen.
Umsjón: Sigrún Björnsdóttir.
20.00 „Drengurinn sem fór að leita að jólasvein-
inum“. Saga fyrir börn á öllum aldri eftir Jónas
Jónasson. Höfundur flytur.
20.20 íslensk tónlist á jólum.
21.10 „Vaki, vaki Ijós í stjaka“ Arndís Þorvalds- .
dóttir og Sigurður Ó. Pálsson taka saman
efni tengt jólum í Ijóðum og lausu máli eftir
austfirska höfunda, meðal annarra Braga
Björnsson, Gunnar Gunnarsson, Ólaf
Jónsson, Svövu Jónsdóttur, Þorstein Valdi-
marsson, Þórarin Þórarinsson og Örn Arnar-
son.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Marfa Markan syngur jólasálma og fleíri
lög. Trausti Jónsson og Margrét Jónsdóttir
kynna hljóðritanir með Maríu sem nýútkomnar
eru á hljómplötu.
23.00 Jómfrúin eilífa. Þáttur um heilaga Guðs-
móður, Maríu mey. Umsjón: lllugi Jökulsson.
24.00 Fréttir.
00.10 „Mikill er sá leyndardómur og dýrðleg
náð“. Tónlist á jólahátíð frá 16. og 17. öld eftir
Tomás Luis de Victoria, Samuel Scheidt, Heinr-
ich Schútz og Giovanni Gabrieli. Jón örn
Marinósson kynnir.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
i&
FM 91,1
24.00 Jólanæturtónar. Fréttir kl. 4.00 og sagðar
fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00
og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
9.03 Jóladagsmorgunn með Svavari Gests
11.00 Úrval vikunnar. Úrval úr dægurmálaútvarpi
vikunnar á Rás 2.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Jólakassinn. Umsjón: Pétur Grétarsson.
15.00 Vinsældalisti Rásar 2. Stefán Hilmarsson
kynnir tíu vinsælustu lögin. (Endurtekinn frá
föstudagskvöldi).
16.05 Tónlistarkrossgátan. Jón Gröndal leggur
gátuna fyrir hlustendur.
17.00 „Heims um ból“. Umsjón: Kristján Sigur-
jónsson kynnir jólalög frá ýmsum löndum. (Frá
Akureyri)
19.00 Kvöldfréttír.
19.33 „Gleði skal ríkja“. Þáttur í umsjá Sigrúnar
Markúsdóttur. Meðal efnis eru frásagnir af
jólasiðum í ýmsum löndum og á ýmsum tímum.
20.30 Útvarp unga fólksins. Umsjón: Sigrún Sig-
urðardóttir.
21.30 Kvöldtónar.
22.07 Á elleftu stundu. Anna Björk Birgisdóttir í
helgarlok.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00 er
endurtekinn frá föstudagskvöldi Vinsældalisti
Rásar 2 sem Stefán Hilmarsson kynnir. Fréttir
kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð
og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veður-
fregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 8.00, 9.00, 10.00, 12.20,
16.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SJÓNVARPIÐ
Sunnudagur
25. desember
Jóladagur
15.55 Steinn. Þáttur um eitt af höfuðskáldum
Islendinga á þessari öld, Stein Steinarr, einn
helsta brautryðjanda nútímaljóðlistar á íslandi.
Umsjón Ingi Bogi Bogason. Stjórn upptöku Jón
Egill Bergþórsson. Áður á dagskrá 24. okt 1988.
17.10 Jólasveinninn kemur í kvöld. Bandarísk
teiknimynd gerð eftir hinum alþekkta jólasöng.
18.00 Jólastundin okkar.
19.00 Jólahátíð Prúðuleikaranna. Prúðuleikar-
amir halda jól ásamt Búrunum og fleirum.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.20 Betlehemstjarnan. Tékknesk teiknimynd.
20.30 Nonni. Fyrsti þáttur. Nýr framhaldsmynda-
flokkur í sex þáttum, gerður af Þjóðverjum í
samvinnu við Islenska sjónvarpið, og þýskar,
austurrískar, svissneskar og spænskar sjón-
varpsstöðvar. Verkið er byggt á bókum Jóns
Sveinssonar og segir frá æsku hans og uppvaxt-
arárum og er að mestu leyti tekin upp á Islandi
sumarið 1987. Ágúst Guðmundsson er leikstjóri
og er myndaflokkurinn frumsýndur samtímis á
islandi og í Þýskalandi. Sjónvarpið hefur látið
talsetja „Nonna" og er það í fyrsta skipti sem
slíkt er gert við erlendan myndaflokk hér á landi,
og hafði Ágúst Guðmundsson umsjón með því
verki. Handritsgerð var í höndum þeirra Richard
Cooper, Radu Gabrea, Joachim Hammann og
Joshua Sinclair. Myndatöku annaðist Tony
Forsberg og Una Collins hannaði búninga.
Persónur og leikendur eru: Sigríður ... Lisa
Harrow, Haraldur Helgason ... Luc Merenda,
Magnús Hansen ... Stuart Wilson, Nonni ...
Garðar Þór Cortes, Manni... Einar Örn Einars-
son, Amman ... Concha Hidalgo, Júlli smali...
Jóhann G. Jóhannsson, Þorsteinn ... Klaus
Grúnberg. Þættirnir verðar sýndir í Sjónvarpinu
daglega eftir fréttir til 30. desember.
21.25 Þingvellir. Ný íslensk heimildamynd um
hinn forna þingstað. Fjallað er um hlutverk
Þingvalla fyrr og nú og einnig um samspil
manns og náttúru í þjóðgarðinum. Myndin var
gerð á bessu ári af Saga-film. Handrit og
umsjón Ólafur B. Guðnason.
22.15 Eins og skepnan deyr. Islensk kvikmynd
eftir Hilmar Oddsson. Aðalhlutverk Edda Heið-
rún Bachman, Þröstur Leo Gunnarsson og
Jóhann Sigurðarson. Ungt fólk sest að í eyðifirði
án þess að gera sér grein fyrir afleiðingum
einangrunarinnar.
23.50 My Fair Lady.Sígild bandarísk söngvamynd
frá árinu 1964. Leikstjóri George Cukor. Aðal-
hlutverk Rex Harrison, Audrey Hepburn, Stan-
ley Holloway og Gladys Cooper. Myndin er
byggð á sögu Bernard Shaw Pygmalion og
fjallar um hefðarmann sem veðjar við vin sinn
um að hann geti gert hefðarkonu úr ótíndri
blómasölukonu. Myndin hlaut átta Óskarsverð-
laun á sínum tíma m.a. fyrir leik í aðalhlutverki,
leikstjórn og bestu mynd. Þýðandi Egill Bjarna-
son. Skjátextar Óskar Ingimarsson.
02.35 Dagskráriok.
sm-2
Sunnudagur
25. desember
13.00 Nóttin var sú ágæt ein. Upptaka sem fram
fór í Kristskirkju I fyrra. Kór og hljómsveit undir
stjórn Guðna Guðmundssonar flytur nokkur
jólalög. Stöð 2 1986.
13.05 Kalli kanína. Teiknimynd.
14.40 Rakarinn frá Seville. II Ðarbiere di Siviglia.
Flytjendur: Leo Nucci, Francesca Franci, Wil-
liam Matteuzzi, Alfredo Mariotti, Romuald Tes-
arowicz o.fl. Stjórnandi: Gabriele Ferro. Sýning-
artími 120 mín.
16.40 Hvít jól. White Christmas. Ósvikin jólamynd
sem segir frá tveimur hæfileikaríkum skemmti-
kröftum. Aðalhlutverk: Bing Crosby, Danny
Kaye, Rosemary Clooney, Vera-Ellen og Dean
Jagger. Leikstjóri: Michael Curtiz. Framleiðandi:
Robert E. Dolan. Þýðandi: Páll Heiðar Jónsson.
Sýningartími 115 mín.
18.40 Snjókarlinn. The Snowman. Teiknimynd.
19.05 Krókódila Dundee. Crocodile Dundee.
Gamanmynd sem sló öll aðsóknarmet í Banda-
ríkjunum árið 1986. Paul Hogan fer með
hlutverk Michael J. „Crocodile" Dundee, hisp-
urslauss Ástrala sem veiðir krókódíla með
berum höndum, dáleiðir risa buffalóa með
augunum og drekkur flesta undir borðið. Þar
sem Dundee lifir fremur fábrotnu lífi í óbyggðum
Ástralíu verður á vegi hans bandarísk blaða-
kona sem vill fá sögu hans skráða. Aðalhlutverk:
Paul Hogan og Linda Koslowski. Leikstjóri:
Peter Faiman. Framleiðandi: John Cornell.
Paramount 1986. Sýningartími 100 mín.
20.45 Halldór Laxriess. Heimildamynd í tveimur
hlutum sem Stöð 2 hefur látið gera um líf og
störf Halldórs Laxness í samvinnu við Vöku/
Helgafell. Miklu efni var safnað víða að, bæði
innanlands og utan. Fyrri hlutinn fjallar um
æsku, uppvöxt og þroskaár skáldsins og lýkur
um það bil er heimsfrægðin barði að dyrum.
Með hlutverk Halldórs á hans yngri árum fara
þeir Guðmundur Ólafsson, Lárus Grímsson,
Orri Huginn Ágústsson og Halldór Halldórsson,
dóttursonur skáldsins. Myndin er gerð með
stuðningi Eimskipafélags Islands. Stjórn uþp-
töku og leikstjórn: ÞorgeirGunnarsson. Handrit:
Pétur Gunnarsson. Kvikmyndataka: Snorri Þór-
isson. Ráðgjöf: Ólafur Ragnarsson. Klipping:
Hákon Oddsson. Leikmynd: Björn G. Björnsson.
Búningar: Anna Jóna Jónsdóttir. Tónlist: Lárus
Grímsson. Þulur: Arnar Jónsson. Sýningartími
45 mín. Saga Film hf./Stöð 2. Síðari hluti veröur
sýndur á nýársdag.
21.25 Nánar auaiýst síðar.
22.20 Áfangar. T Áföngum að þessu sinni verður
dregin upp mynd af Þingeyrakirkju. Umsjón:
Björn G. Björnsson. Stöð 2.
22.30 Nafn rósarinnar. The Name of the Rose.
Mynd byggð á sögu ítalska rithöfundarins,
Umberto Eco. Munkur er fenginn til að rannsaka
morðmál í ítölsku klaustri á 14. öld. Á meðan á
rannsókn málsins stendur halda morðin áfram
og munkurinn kemst að þvi að margt hefurfarið
fram innan klausturveggjanna sem ekki á að
eiga sér stað þar. Aðalhlutverk: Sean Connery,
F. Murray Abraham. Leikstjóri: Jean-Jacques
Annaud. Framleiðandi: Bernd Eichinger. Gold-
crest 1986. Sýningartími 130 mín. Ekki við hæfi
barna.
00.40 Vistaskipti. Trading Places. Eddie Murphy
og Dan Aykroyd fara á kostum í þessari
gamanmynd. Aðalhluverk: Dan Akroyd, Eddie
Murphy, Ralph Bellamy og Don Ameche. Leik-
stjóri: John Landis. Framleiðandi: Aaron Russo.
Þýðandi: RagnarHólm Ragnarsson. Paramount
1983. Sýningartími 110 mín.
02.35 Dagskrárlok.
©
Rás I
FM 92,4/93,5
Mánudagur
26. desember
Annar í jólum
7.45 Morgunandakt. Séra Jón Einarsson prófastur
í Saurbæ flytur ritningarorð og bæn.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir.
8.20 Jólasaga.
Tónlist eftir Heinrich Schútz við texta úr
Lúkasarguðspjalli og Matteusarguðspjalli.
Prentað í Dresden 1664.
Söng- og hljóðfærahópurinn Musicaiische
Compagney flytur.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. Kristín Helgadóttir les
söguna „Jólin hjá tröllunum" eftir Zacharias
Topelius í þýðingu séra Sigurjóns Guðjónsson-
ar. (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00)
9.20 Finnsk jólatónlist eftir Einojuhani Raut-
avaara. a. „Marjatta, mærin fagra". Tapiola
barnakórinn ásamt hljóðfæraleikurum flytur.
Erkki Pohjola stjómar. b. „Leikvellir handa
englum". Philip Jones blásarasveitin leikur.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.25 Veistu svarið? Spurningaþáttur um sögu
lands og borgar. Dómari og höfundur spurninga:
Páll Líndal. Stjórnandi: Helga Thorberg.
H.OOMessa í Kristskirkju í Landakoti. Prestur: '
Séra Jakob Roland. Organisti: Úlrik Ólason.
12.10 Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.10 Fyrstu jól eftir strið. Endurminningar um jól
í Stokkhólmi 1946. Umsjón: Hrafn Pálsson.
14.00 Jólaleikrit Útvarpsins: „Eftirlitsmaður-
inn“ eftir Nikolaj Gogol. Þýðandi. Sigurður
Grímsson. Leikstjóri: Þorsteinn Gunnarsson.
Leikendur: Erlingur Gíslason, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Harald
G. Haraldsson, Sigurveig Jónsdóttir, Róbert
JÓLA
TÓNLISTAR
KROSSGÁTAN88
ir
Arnfinnsson, Baldvin Halldórsson, Hjálmar
Hjálmarsson, Pálmi Gestsson, Gísli Rúnar
Jónsson, Sigurður Sigurjónsson, Sigurður
Karlsson, Jón Hjartarson, Stefán Sturla Sigur-
jónsson, Guðmundur Ólafsson, Karl Guð-
mundsson, Valgerður Dan, Þröstur Leó Gunn-
arsson og Pétur Einarsson. (Einnig útvarpað
annað kvöld kl. 22.30).
16.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 „Töfraflautan“, ópera eftir Wolfgang Am-
adeus Mozart. Jóhannes Jónasson kynnir.
18.00 Skáld vikunnar - Einar í Eydölum. Sveinn
Einarsson sér um þáttinn.
Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir
19.20 Tilkynningar.
19.22 Um heima og geima. Páll Bergþórsson
rabbar við hlustendur.
19.40 Sönglög eftir Pál ísólfsson. Elísabet Erl-
ingsdóttir syngur. Selma Guðmundsdóttir leikur
á píanó.
20.00 Lltli barnatíminn. Kristín Helgadóttir les
söguna „Jólin hjá tröllunum" eftir Zacharias
Topelius í þýðingu séra Sigurjóns Guðjónsson-
ar. (Endurtekin frá morgni).
20.15 Barokktónlist. a. Forleikur og svíta í e-moll
eftir Georg Philipp Telemann. Schola Cantorum
kammersveitin í Basel leikur; AugustWenzinger
stjórnar. b. Sinfónía í D-dúr fyrir trompet og
strengjasveit eftir Giuseppe Torelli. Heinz Zic-
kler leikur með Kammersveitinni í Mainz; Gúnt-
her Kehr stjórnar. c. Brandenborgarkonsert nr.
2 í F-dúr eftir Johann Sebastian Bach. Hljóm-
sveitin Fílharmonía í Lundúnum leikur; Riccar-
do Muti stjómar.
21.00 „Þá var hringt í Hólakirkju". Dagskrá um
dómkirkjuna að Hólum í Hjaltadal. Umsjón: Jón
Gauti Jónsson. (Frá Akureyri) (Einnig útvarpað
daginn eftir kl. 15.03).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Söngleikurinn um Stinu Woler eftir Hafliða
Magnússon og Ástvald Jónsson. Flytjendur eru
leikarar og tónlistarmenn í leikfélaginu Baldri á
Bíldudal. Umsjón: Finnbogi Hermannsson.
(Einnig útvarpað á miðvikudag kl. 15.03).
23.10 Kvöldstund í dúr og moll Með Knúti R.
Magnússyni.
24.00 Fréttir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
&
FM 91,1
TÓNLISTARKROSSGÁTAN NO:
L*u*nir wndist til: Rfltisútvarpsins RÁS 2
Efstaleiti 1
108 ReykjavíX
Merkt Tónlistarkrossgátan
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veöri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
8.10 Viðbit - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri)
Veðurfregnir kl. 8.15.
10.05 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur og
Óskars Páls Sveinssonar.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 í Undralandi með Lísu Páls.
14.00 Á milli mála - Eva Ásrún Albertsdóttir og
Óskar Páll Sveinsson.
16.03 Úr jólapakkanum Andrea Jónsdóttir tekur á
móti gestum og fær að kíkja í jólapakkana
þeirra.
19.00 Kvöldfréttir
19.20 Jólatónar
20.30 Útvarp unga fólksins
21.30 Kvöldtónar Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Jólaball Rásar 2. Pétur Grétarsson stjórnar
dansinum kringum jólatréð.
01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum
kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
1.00 og 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30,
9.00,10.00,11.00,12.00,12.20,14.00,15.00,
16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
SJÓNVARPIÐ
Mánudagur
26. desember
Annar í jólum
15.00 Gullsandur. íslensk kvikmynd frá 1984.
Handrit og leikstjórn Ágúst Guðmundsson.
Aðalhlutverk Pálmi Gestsson, Edda Björgvins-
dóttir, Arnar Jónsson, Jón Sigurbjörnsson og
Borgar Garðarsson. Áður á dagskrá 25. des-
ember 1986.
16.30 Svikaprinsinn. Þýsk ævintýramynd frá 1986
byggð á sögu eftir William Hauff. Þar segir frá
skraddara nokkrum sem tekst að dulbúa sig
sem prins og aðalerfingja mikilla auðæva. Það
eru þó ekki allir sem trúa honum og lögð er fyrir
hann þraut til úrlausnar sem á að sanna sekt
hans eða sakleysi. Þýðandi Kristrún Þórðardótt-
ir.
18.00 Töfragluggi Mýslu i Glaumbæ. Umsjón
Ámý Jóhannsdóttir.
19.00 Rúdólf með rauða nefið. Bandarísk teikni-
mynd.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Nonni. Annar þáttur. Þýskur framhalds-
myndaflokkur í sex þáttum. Leikstjóri Ágúst
Guðmundsson.
21.25 „Það er gott að vera hér“ - Leonard
Cohen á íslandi. Frátónleikum Leonard Cohen
á Listahátíð 1988 í Laugardalshöllinni. Cohen
flytur mörg af sínum þekktustu lögum s.s.
Strangers song, So long Mary Ann, Susanne,
Dance to me to the end of love og mörg fleiri.
Inn á milli er brugðið upp svipmyndum frá dvöl
Cohens hér á Islandi og Hrafn Gunnlaugsson
ræðir við hann um líf hans og list. Þýðandi Ólöf
Pétursdóttir.
22.35 Djákninn. Ný íslensk sjónvarpskvikmynd
eftir Egil Eðvarðsson, byggð á hinni þekktu
þjóðsögu um Djáknann á Myrká. Hér er um að
ræða nútímamynd sem gerist í Reykjavík í dag
- þó eiga persónur og atburðarásin sjálf sér
beinar hliöstæður við þjóðsöguna. Aðalpersón-
umar eru Dagur og Gugga, ungt og ástfangið
fólk. Eitt kvöld ætla þau saman á grímuball og
þó að Dagur farist af slysförum kemur hann
samt og sækir hana. Leikstjóri Eqill Eðvarðs-
son. Aðalhlutverk Valdimar Örn Flygenring,
María Ölafsdóttir og einnig Guðrún Ásmunds-
dóttir. Á undan sýningu myndarinnar ræðir
Ólafur Ragnarsson við leikstjórann.
00.00 Dagskrárlok.
'smat
Mánudagur
26. desember
09.00 Gæludýrin. Popples. Ný teiknimyndaröð
sem segir frá litskrúðugum og pattaralegum
smádýrum. Þau bregða á leik, rata í ótal
ævintýri og hafa iðulega eitthvað nýtt og
skemmtilegt í pokahorninu fyrir börnin. Leik-
raddir. Guðrún Þórðardóttir og Guðmundur
Ólafsson.
09.20 Jólin hjá þvottabjörnunum. Teiknimynd.
Þýðandi: Ragnar Hólm Ragnarsson.
09.45 Denni dæmalausi. Denis the Menice.
Teiknimynd með íslensku tali.
10.05 Dotta og jólasveinninn. Dot and Santa.
Myndin er í senn leikin mynd og teiknimynd og
fjallar um leit Dottu og jólasveinsins að týndum
kengúruunga. í leit sinni ferðast þau vítt og
breitt um veröldina og komast í kynni við ýmiss
konar hefðir sem fylgja jólahaldinu. Leikraddir:
Sólveig Pálsdóttir, Randver Þorláksson og fleiri.
Cori Films.
11.25 Jólabrúður. Candy Claus. Falleg teikni-
mynd.
11.50 Vaxtarverkir. Growing Pains. Jólaþáttur.
Þýðandi: Eiríkur Brynjólfsson. Warner 1987.
12.15 Jólaljóð hirðingjanna. Upptaka sem fram
fór í Kristskirkju í fyrra. Kór og hljómsveit undir
stjórn Guðna Guðmundssonar flytur nokkur
jólalög. Stöð 2 1986.
12.20 Brasilísk messa. Misa Espiritual. Óvenjuleg
messa eftir brasilíska tónskáldið Airto Moreira.
Messan er portúgalskur kveðskapur, sunginn á
latínu og við hann er leikin jass-, popp- og
þjóðlagatónlist. Stjórn upptöku: José Montes-
Baquer.
12.55 Maðurinn sem skaut jólasveininn. The
Man Who Shot Christmas. Góð spennumynd
með nýstárlegu móti. Aðalhlutverk: Cherie
Lunghi, Jim Broadbent og Clive Arrindell. Leik-
stjóri: Diana Patrick. Framleiðandi: Sarah Rad-
clyffe. Þýðandi: Ágústa Axelsdóttir. Sýningar-
tími 25. mín.
13.20 Maðurinn frá Fanná. The Man from Snowy
River. Hetjusaga sem byggð er á fomum
áströlskum kveðskap eftir A.B. Paterson. Mynd-
in segir frá lífi ungs fjalladrengs og sveitunga
hans. Myndin er nær einvörðungu kvikmynduð
í Ástralíu og er þar talin sú arðbærasta til þessa.
Ljóðið sem myndin byggir á hefur verið á vörum
ungra sem aldinna Ástralíubúa i ómunatíð.
Aðalhlutverk: Kirk Douglas, Sigrid Thomton og
Terence Donovan. Leikstjóri George Miller.
Framleiðandi: Geoff Burrowes. 20th Century
Fox 1982. Þýðandi Björn Baldursson. Sýningar-
tími 105 min. Aukasýning 9. feb.
15.10 Listamannaskálinn. The South BankShow.
María Callas. Brugðið verður upp myndum af
fábrotinni barnæsku Maríu til þess dags er hún
var svikin af ástmanni sínum, ríkasta manni
heims, Onassis. Upplausn sambands hennar
og þessa gríska skipakóngs bundu einnig enda
á frægðarferil hennar. Átakanleg lífsreynslu-
saga einnar fremstu óperusöngkonu fyrr og
síðar. Þýðandi: örnólfur Árnason. Umsjónar-
maður er Melvyn Bragg.
16.45 Greystoke - goðsögnin um Tarsan. The
Legend of Tarsan. Goðsagan um Tarsan er
byggð á upprunalegri sögu eftir Edgar Rice
Burrough. Hún hefst undan Afrískuströndum
þar sem skip ferst í sjávarháska með þeim
afleiðingum að allir um borð farast utan einn
maður og barnshafandi kona hans. AðalhluL
verk: Christopher Lambert, Cheryl Campell,
James Fox og Nigel Davenport. Leikstjóri: Hugh
Hudson. Framleiðendur: Hugh Hudson og
Stanley S. Canter. Warner 1984. Sýningartími
125 mín. Aukasýning 10. feb.
18.50 Jólasteikin. Blandaður tónlistarþáttur með
hátíðablæ._________________________________
19.30 Fréttlr. Stuttar hátíðafréttir._________
19.45 Jólabörn. Endurtekinn þáttur frá síðastliðn-
um jólum. Afi og amma, sem leikin eru af Erni
Árnaáyni og Sögu Jónsdóttur, draga upp mynd
af jólunum eins og þau voru í gamla daga.
Handrit: Guðrún Þórðardóttir, Saga Jónsdóttir,
Guðmundur Ólafsson og Ma’ríanna Friöjóns-
dóttir. Leikstjóm: Guðrún Þórðardóttir. Dag-
skrárgerð: Maríanna Friðjónsdóttir. Stöð 2.
20.25 Napóleón og Jósefína. Napoleon and Jos-
ephine. Ein af skrautfjöðrunum í mánuðinum er
án efa þessi glænýi framhaldsmyndaflokkur
sem fjallar um líf Napóleons Bónaparte. Aðal-
hlutverk: Jacqueline Bisset, Armand Assante,
Stephanie Beacham, Anthony Higgins og Ant-
hony Perkins. Leikstjóri: Richard T. Heffron.
Sýningartími 90 mín. Warner 1987.
21.55 í slagtogi. i slagtogi við Jón Óttar Ragnars-
son að þessu sinn verður Ólafur Jóhann
Ólafsson rithöfundur og framkvæmdastjóri hjá
Sony samsteypunni I Bandaríkjunum. Umsjón-
armaður: Jón Óttar Ragnarsson. Stöð 2.
22.35 Agnes, barn Guðs. Agnes of God. í þessari
stórmynd er rannsakað morð í einangruðu
klaustri. Þegar kornabarn Agnesar, ungrar
nunnu, finnst kyrkt er geðlæknirinn, sem leikinn
er af Jane Fonda, fenginn til að rannsaka hvort
nunnan sé nógu heilbrigð til að standa í
vitnastúku. Aðalhlutverk: Jane Fonda, Anne
Bancroft og Meg Tilly. Leikstjóri: Norman Jewi-
son. Framleiðendur: Patrick Palmer og Norman
Jewison. Þýðandi: Ingunn Ingólfsdóttir. Columb-
ia 1985. Sýningartími 95 mín. Ekki við hæfi
bama. Aukasýning 19. feb.
00.10 Þráhyggja. Compulsion. Stórmynd með Or-
son Wells í aðalhlutverki. Myndin gerist í
Chicago árið 1924 og segirfrátveimurdrengjum
sem voru aðeins átján ára gamlir er þeir frömdu
sinn fyrsta glæp spennunnar vegna. Báðir eru
drengirnir af yfirstéttafólki og eiga það sameigin-
legt að hafa greindarvísitölu langt fyrir ofan
meðaltal. Myndin er byggð á hinu þekkta
Leopold-Loeb máli og fært í raunæjan og
spennandi búning. Aðalhlutverk: Orson Wells,
Diane Varsi, Dean Stockwell og Bradford
Dillman. Leikstjóri: Robert Fleischer. Þýðandi:
Páll Heiðar Jónsson. 20th Century Fox 1959.
Sýningartími 100 mín. Aukasýning 14. feb.
01.50 Dagskrárlok.