Tíminn - 22.12.1988, Síða 15
Fimmtudagur 22. desember 1988
Tíminn 15
llllllllll
íi
MINNING
Guðmundur Björnsson
verkfræðingur
Fæddur 2. nóvember 1925
Dáinn 13. desember 1988
Þriðjudaginn 13. desember s.l.
barst okkur sú harmafregn, að Guð-
mundur Björnsson hefði látist þá um
nóttina úti í Englandi.
Ævinlega þegar slíkar fregnir ber-
ast setur mann hljóðan, sérstaklega
þegar um samstarfsmenn er að ræða
og þeir eru á besta aldri, þátttakend-
ur í miklu starfi og forystumenn í
uppbyggingu fyrirtækis, sem getur
skipt sköpum fyrir viðkomandi
byggðarlag.
Eg, sem þessar línur skrifa, átti
því láni að fagna að vinna með
Guðmundi að slíku verkefni, þar
sem er fiskeldisfyrirtækið Árlax hf. í
Ártungu, Kelduhverfi og á Kópa-
skeri. Frá upphafi hefur Guðmundur
verið einn aðalhvatamaður að stofn-
un þessa fyrirtækis og stjórnarfor-
máður þess frá upphafi.
Þrátt fyrir umfangsmikið starf við
rekstur á stórri og vel metinni verk-
fræðistofu, sem hann rak ásamt
félaga sínum, Kristjáni Flygenring,
hefur hann lagt á sig mikla vinnu við
uppbyggingu á Árlax-stöðinni og
ekki hugsað um hvort sú vinna þurfti
að fara fram að kvöldi eftir langan
vinnudag.
Ég rek ekki ætt eða uppruna
Guðmundar. Geri ráð fyrir að það
verði gert af öðrum, sem betur til
þekkja. t>ó vil ég geta þess að mér
hefur hlotnast sú gæfa að kynnast
systkinum hans, sem öll eru traust
og mikils metið fólk, alin upp í
nyrsta héraði þessa lands, þar sem
menn lifðu á landsins gæðum, urðu
að treysta á mátt sinn, oft við óblíð
og löng vetrarveður.
Það er oft sagt að umhverfið móti
manninn meira en margt annað og
hygg ég að svo hafi verið með
Guðmund.
Hann aflaði sér góðrar menntun-
ar, var mikils metinn sem góður
verkfræðingur og ekki síður sem
traustur og heiðarlegur maður. Orð
hans voru traustari og betri en það,
sem oft er skrifað og sett í samninga.
Það er mikill fjársjóður, sem slíkir
menn gefa sinni samtíð.
Eins og ég gat um áður, þá
störfuðum við saman í stjórn Árlax
hf. frá stofnun þess fyrirtækis. Það
hefur verið mér mikils virði að fá að
starfa með svo traustum og góðum
manni, sem aldrei hefur látið erfið-
leika eða mótbárur snúa sér frá settu
marki um að byggja upp traust og
gott fyrirtæki, heimabyggð sinni til
heilla.
Við, sem störfum fyrir Árlax hf.,
eigum eftir að sakna mikið foringja
og vinar. Ég veit að ég mæli fyrir
munn okkar allra þegar ég þakka
fyrir leiðsögn og gott samstarf á
liðnum árum og segi að það besta
sem við getum gert fyrir minningu
hans er að halda starfinu áfram af
fullum krafti, eins og hann hefur
ávallt hvatt tií.
Eiginkonu, börnum, aldraðri
móður og systkinum sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur. Blessuð sé
minningin um þennan góða mann.
Markús Stefánsson
Guðmundur frændi er dáinn!
Þetta virðist ótrúlegt. Við máttum
ekki missa hann, sem var aðaldrif-
fjöðrin í því, sem við unnum að
saman. Maður verður gagntekinn
einhverjum dofa við að fá svo harða
áminningu um hve dauðinn er ávallt
nálægur.
Okkar samvinna var við fiskeldis-
fyrirtækið Árlax hf. þar sem hann
var stjórnarformaður frá upphafi,
auk þess að vera hönnuður þess og
tæknilegur ráðgjafi. Á stuttum ferli
þessa fyrirtækis hafa fjölmörg
vandamál komið upp á og sum þess
eðlis, að einhverjum hefði fallið
allur ketill í eld. Hann sagði alltaf að
vandamálin væru til þess að leysa
þau og að lítið væri varið í þetta líf,
ef ekki þyrfti að berjast. Hann lá
heldur ekki á liði sínu og lét aldrei
bilbug á sér finna. Stundum grunar
mig þó að áhyggjur hafi haldið fyrir
honum vöku.
Þegar leitað var til hans með
einhver mál þagði hann gjarnan
svolitla stund, eftir að hafa hlustað á
erindið, og horfði beint fram, sínum
haukfránu augum. Byrjaði síðan að
greiða úr flækjunni, eins og honum
var lagið. Hann var kennari, fyrst og
fremst, og vel máli farinn.
Guðmundur var strangur maður
og kröfuharður. Mestri hörku beitti
hann þó sjálfan sig. Hann vann heill
að öllum verkum og var sístarfandi.
Vandur var hann að virðingu sinni
og samviskusamur, dulur og fjasaði
ekki um sjálfan sig. Með honum er
genginn leiðtogi, sem bjó yfir
ómetanlegri reynslu og kunnáttu og
taldi aldrei eftir sér að miðla öðrum.
Hann var störfum hlaðinn og þeg-
ar eitthvað sérstakt stóð til, svo sem
að undirbúa aðalfund með vandaðri
ársskýrslu, unnum við oft heilu næt-
urnar. Það var dýrmætur skóli að fá
að starfa með Guðmundi þessi rúm-
lega 3 ár.
Fyrir aðeins nokkrum vikum sagði
hann okkur Markúsi Stefánssyni að
eiginlega væri hann búinn að breyta
um lifnaðarhætti. Hann hefði nýlega
kennt lasleika og tæki nú lyf þess-
vegna.
Þessi léttstígi ákafamaður þurfti
nú stundum að hvíla sig á leiðinni
þaðan sem hann lagði bílnum sínum
á morgnana og einnig á leiðinni upp
stigana þar sem skrifstofan hans var
á 4. hæð, en þetta hafði hann
hlaupið nokkrum mánuðum áður.
Hann sagði okkur frá þessu eins og
hann væri að tala um einhvern
annan mann og ekki hef ég trú á því
að hann hafi, frekar en okkur,
grunað að svo stutt væri eftir.
Við, sem næst honum störfuðum,
erum nú öll vængbrotin, en þegar
við náum áttum á ný veit ég að
krafturinn, sem hann miðlaði okkur,
leiðir okkur ótrauð til að ljúka því
verki, sem hann hafði lagt grunninn
að.
Að leiðarlokum þakka ég honum
samfylgd og leiðsögn.
Gullu og börnunum sendi ég inni-
legustu samúðarkveðjur.
GÞL.
lllllll LESENDUR SKRIFA llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Jólahugleiding 1988
Jólin eru í nálægð. Þau flytja sinn
boðskap um frið á jörð og blessun
Drottins barnahjörð. Það skilur
hvert barnslegt hjarta og ef við
tileinkum okkur jólin með hugarfari
frelsarans þá verða þau okkur bless-
unarrík og kær. Það er enginn vandi
að gera jólin gleðileg og kannske
ennþá minni að eyðileggja þau. Það
skyldu menn muna. Boðskapur jól-
anna á við alla daga. Ljósið sem kom
í heiminn og lýsir upp skammdeg-
ismyrkrið.
Lífið er mikil guðs gjöf. Hann
ætlast til að við förum vel með það
og að lokinni göngu um guðs græna
jörð skilum við því aftur. Þetta er
lögmál sem við getum ekki breytt.
Lífið er skóli sem við lærum í og
tökum próf. Við höfum áttavitann
góða, orð frelsarans. Það er heldur
enginn vandi að eyðileggja lífið. Það
sjáum við daglega. Heilbrigt líf
verður aldrei til verðmæta metið.
Og með því að varðveita það, erum
við með mikinn sjóð á eilífðarvöxt-
um.
Árni Helgason.
Þetta skyldum við hafa í huga alla
tíma og þá ekki síst um blessaða
jólahátíðina sem er hátíð hátíðanna
og gefur okkur því meir af blessun
sem við erum móttækileg fyrir henni.
Áfengið er alls staðar til bölvunar.
Það vísar aldrei í aðra átt en siðspill-
ingar, jafnvel hversu lítið sem er.
Það deyfir siðferðismeðvitundina,
holar smátt og smátt þar til ekkert
verður eftir nema eymdin ef við
spyrnum ekki við. Og er það ekki
sorglegt að sjá vini okkar, félaga og
samlanda hrekjast um á bárum böls-
ins í stað þess að vinna heill góðum
málum og sjálfum sér.
Vímulaus æska, er kjörorðið í
dag. Ég vil bæta við: vímulausir
foreldrar og vímulaus jól. Þá verður
hin sanna jólagleði blessun okkar og
vegaljós í skammdegismyrkrinu.
Megi þjóð vor eignast vímulausan
veg til sannari lífskjara. Það verður
bæn og ósk á jólunum. Og megi guð
vernda land og lýð frá skaðsemi
eiturefna, þá munu bætast harmasár
þess horfna. Hugsjónir rætast og þá
mun aftur morgna. Guð gefi öllum
landsmönnum sönn og gleðileg jól.
Árni Helgason
Stykkishólmi
TVÆR GÓÐAR FRÁ
VÍKURÚTGÁFUNNI
í GEGNUM ÁRIN
í bók þessari eru minnisstæð
atvik tólf einstaklinga, sem Ólöf
J. Jonsdottir hefur tekið saman.
Þeir sem eiga efni í bókinni eru:
Albert Guðmundsson, Brynhildur
H. Jóhannsdóttir, Aðalheiður
Tómasdóttir, Ari Líndal Jóhann-
esson, Hallfríður Jónasdóttir,
Ingvar Agnarsson, Karl Ólafur
Bang, Kristjana Karlsdóttir,
Magnús Sigurðsson, Óli Hall-
dórsson, sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir og Ólöf J. Jónsdótt-
ir. Forvitnileg bók, sem margir
munu hafa ánægju af að lesa.
GEYMDAR
STUNDIR
Frásagnir af
Austurlandi
Þessir frásöguþættir af Austur-
landi eru í samantekt Ármanns
Halldórssonar frá Eiðum eins og
þau þrjú bindi sem áður eru
komin. í þessu bindi, eins og
þeim fyrri, er margvíslegan fróð-
leik að finna um líf fólks, atvinnu-
hætti og lífsbaráttu áfyrri tímum.
Víkurútgáfan
+
Útför bróður okkar,
Gunnars Össurarsonar
húsasmíðameistara
frá Kollsvik, Rauöasandshreppi
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. desember kl. 10.30.
Sigurvin Össurarson
Guðrún Össurardóttir
Torfi össurarson.
+
Þakka innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
móður minnar
Margrétar Árnadóttur
frá Gunnarsstööum
Kristín Gísladóttir
Geymdar stundir
FRÁSACNIR AF
AUSTURLANDI
Aínwnn
t»>«
+
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Ingibjargar Sigurðardóttur
Heiöarbraut 57, Akranesi
Jósef Sigurðsson, Guðmundur Óskar
og fjölskyldur þeirra
Þökkum innilega öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu
Guðrúnar Júlíönnu Jónatansdóttur
frá Hrófá
Margrét Sigurðardóttir
Björn Sigurðsson
Helgi Sigurðsson
Benedikt Sigurðsson
Sigríður Sigurðardóttir
Jónatan Sigurðsson
Maggi S. Sigurðsson
Haukur H. Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ingvar Guðmundsson
Birgir Kristjónsson
Adda V. Þorsteinsdóttir
Unnur Hafliðadóttir