Tíminn - 22.12.1988, Síða 19
Tíminn 19
Fímmtudág'úr 22: ÖésémbéY 1988
iixnug
4S>
í
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Stóra sviðiö
Fjalla-Eyvindur
og kona hans
leikrit eftir Jóhann Sigurjónsson
Annan dag jóla kl. 20.00 Frumsýning,
uppselt
Miövikudag 28. des. 2. sýning
Fimmtudag 29. des. 3. sýning
Föstudag 30. des. 4. sýning
Þriöjudag 3. jan. 5. sýning
Laugardag 7. jan. 6. sýning
Þjóöleikhúsið og fslenska óperan sýna
JPgmnfíprt
iboffmanne
Föstudag 6. jan., fáein sæti laus
Sunnudag 8. jan.
TakmarkaSur sýningafjöldí.
íslenski dansflokkurinn og Arnar
Jónsson sýna:
Faðir vor
og Ave Maria
dansbænir eftir Ivo Cramér og
Mótettukór Hallgrimskirkju syngur undir
stjórn HarSar Áskelssonar.
Flytjendur: Arnar Jónsson, leikari og
dansararnir: Ásdís Magnúsdóttir, Asta
Henriksdóttir, Baltasar Kormákur,
Birgitte Heide, Guðmunda H.
Jóhannesdóttir, GuSrún Pálsdóttir;
Hany Hadya, Helena Jóhannsdóttir,
Helga Bernhard, Ingibjörg Pálsdóttir,
Jón Egill Bragason, Lára Stefánsdóttir,
Ólafía Bjarnleif sdóttir, Robert Bergquist,
Sigrún Guðmundsdóttir og Þóra
Guðjohnsen.
Sýningar í Hallgrímskirkju:
I kvöld kl. 20.30 Frumsýning
Þriöjudag 27. des. kl. 20.30
Miðvikudag 28. des. kl. 20.30
Fimmtudag 29. des. kl. 20.30
Föstudag 30. des. kl. 20.30
Aðeins þessar 5 sýningar
Miðasala í Þjóðleikhúsinu á opnunartíma
og í Hallgrimskirkju klukkutíma fyrir
sýningu.
Miöasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga kl. 13-18.
Símapantanir einnig virka daga kl. 10-12.
Sími i miðasölu: 11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld frá kl. 18.00.
Leikhúsvelsla Þjóðlelkhússins: Máltíð
og miði á gjafverði.
Munið Gjafakort Þjóðleikhússins:
Jólagjöf sem gleður.
' I
Vertu í takt við
Timann
ÁUGLÝSINGAR 686300
u:iKiT:iA(;a2 2é2
Kf-rVK|AVlKllK M
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ragnar Arnalds
'Æ; t
■tö’
%>>
Tónlist: Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
Þriðjudag 27.12. kl. 20.30. Orfá sæti laus.
Miðvikudag 28.12 kl. 20.30. Örfá sæti laus.
Fimmtud. 29.12. kl. 20.30. Örfá sæti laus.
Föstudag 30.12. kl. 20.30. Örfá sæti laus.
Fimmtudag 5. jan, kl. 20.30
Föstudag 6. jan. kl. 20.30
Laugardag 7. jan. kl. 20.30.
Sunnudag 8. jan. kl. 20.30.
MAl A P OWDANSÍ
Söngleikur eftir Ray Herman
Þýðing og söngtextar: Karl Ágúst Úlfsson
Tónlist: 23 valinkunn tónskáld frá ýmsum
tímum
Leikstjórn: Karl Ágúst Úlfsson
Leikmynd og búningar: Karl Júlíusson
Útsetningar og tónlistarstjórn: Jóhann G.
Jóhannsson
Lýsing: Egill Örn Árnason /
Dans: Auður Bjarnadóttir
Leikendur: Pétur Einarsson, Helgi ;
Björnsson, Hanna María Karlsdóttir, Valgeir
Skagfjörð, Ólafia Hrönn Jónsdóttir, Harald
G. Haraldsson, Erla B. Skúladóttir, Einar
Jón Briem, Theódór Júlíusson, Soffía
Jakobsdóttir, Anna S. Einarsdóttir, Guðný
Helgadóttir, Andri Örn Clausen, Hallmar
Sigurðsson, Kormákur Geirharðsson,
Guðrún Helga Arnarsdóttir, Draumey
Aradóttir, Ingólfur Bjöm Sigurðsson,
Ingólfur Stefánsson.
Sjö manna hljómsveit valinkunnra
hljóðfæraleikara leikur fyrir dansi.
Sýnt á Broadway
1. og 2. sýning 29. desember kl. 20.30,
Uppselt.
3. og 4. sýning 30. desember kl. 20.30.
Uppselt.
5. og 6. sýning 4. janúar kl. 20.30.
7. og 8. sýning 6. janúar kl. 20.30.
9. og 10. sýning 7. janúar kl. 20.30.
Miðasalan í Iðnó er opin daglega kl. 14-17.
Lokað á aðfangadag og jóladag. Opið 2.
jóladag kl. 14-16.
Forsala aðgöngumiða: Nú er verið að taka
við pöntunum til 9. jan. 1989. Simapantanir
virka daga frá kl. 10. Einnig símsala með
VISA og EURO á sama tíma. Nú er verið
taðtaka á mótu pöntunum til 9. janúar 1989.
Ath. Munið gjafakort Leikfélagsins.
Tilvalin jólagjöf.
Andrew
McCarthy
er einn af ungu
„hjartaknúsurunum" í
Hollywood, en það er heill
hópur ungra leikara sem
hefur fengið það viðurnefni
vegna þess að þeir eru
snöggir við að skipta um
vinkonur og skilja eftir í
slóð sinni brostin hjörtu
ungra og ástfanginna
stúlkna.
En sem sagt: Andrew
McCarthy er laus og liðugur
og líkar það vel!
Andrew var einn af ungu
leikurunum í St. Elmo‘s Fire
og fékk þá góða dóma hjá
gagnrýnendum, en áður
haf ði hann leikið í myndum
sem ekki fór mikið orð af.
Síðan lék Andrew í
myndinni Kansas, en þar er
hann í hlutverki sveitapilts,
sem leiðist út í að taka þátt
í bankaráni. Nú nýlega var
hann í öðru aðalhlutverkinu
í myndinni „Fresh Horses",
þar sem hann leikur á móti
hinni ungu og efnilegu
leikkonu Molly Ringwald
og er samband þeirra í
myndinni mikil ástarsaga.
Við sjáum þau Molly og
Andrew á meðfylgjandi
mynd í hlutverkum sínum í
kvikmyndinni „Óþreyttir
hestar".
Paulina Porizkova hefur lifaft tímana tvenna þó aft hún sé ekki nema 23 ára.
Sænsk og tékknesk yfirvöld rifust um
hana - nú er hún fræg fyrirsæta
Paulina Porizkova heitir
hún fullu nafni en það er hætt
við að hún verði að fara að
endurskoða það. Paulina,
sem er tékknesk að ætt og
uppruna, er nefnilega orðin
ein hæst launaða fyrirsæta
heims og hefur nú leikið sitt
fyrsta hlutverk í kvikmynd.
Það má því búast við að nafn
hennar verði á hvers manns
vörum allt hvað líður og það
er ekki víst að allir geti lagt
svona erfitt nafn á minnið.
Það er reyndar langt síðan
Paulina varð fræg þó að hún
sé ekki nema 23ja ára. Hún
var bara þriggja ára þegar
„Vorið í Prag“ fékk skyndileg
endalok við komu hersveita
Varsjárbandalagsins til
Tékkóslóvakíu 1968. For-
eldrar hennar flúðu til Sví-
þjóðar en skildu hana eftir í
vörslu ömmu sinnar í Prag.
Þegar mamma hennar ætlaði
að sækja hana fjórum árum
síðar fór hvorki betur né verr
en svo að hún var handtekin.
Það var ekki fyrr en 1974,
þegar Svíar voru komnir í
háarifrildi við Tékka út af
málinu og Olof Palme var
sjálfur farinn að blanda sér í
það, að þeim mæðgum var
leyft að yfirgefa Tékkóslóv-
akíu.
Þegar Paulina var 15 ára og
gekk í skóla í Stokkhólmi
uppgötvaði John Casablan-
cas, eigandi bandarísku fyrir-
sætuumboðsskrifstofunnar
Elite hána og skömmu síðar
prýddi andlit hennar forsíður
margra frægustu tískublaða
heims.
Síðan 1983 hefur Paulina
búið í New York og í fyrra
lék hún í fyrsta sinn í
kvikmynd. Gagnrýnendur
voru á einu máli um að ekki
hefði komið eins efnileg leik-
kona fram úr hópi fyrirsæta
síðan Audrey Hepburn kom
fram á sjónarsviðið.
Paulina hefur verið á samn-
ingi við snyrtivörufyrirtæki
Estée Lauder síðan í byrjun
ársins og fyrir það fær hún 6
milljónir dollara. Óneitan-
lega virðist framtíð Paulinu
nú tryggari en fyrir 20 árum
þegar foreldrar hennar urðu
að skilja hana eftir í Tékkó-
slóvakíu þegar þau lögðu á
flótta.
Hvað varð um
geirvörtuna?
Sem kunnugt er halda
Frakkar það hátíðlegt á næsta
ári að 200 ár eru liðin frá
frönsku byltingunni. Og þar
sem vinátta Frakka og
Bandaríkjamanna hefur ver-
ið hin besta síðan á dögum
Lafayettes, sem veitti Banda-
ríkjamönnum stuðning í
frelsisbaráttunni gegn Eng-
lendingum á 18. öld, þótti
bandarísku póstþjónustunni
vel við hæfi að minnast bylt-
ingarafmælisins með því að
gefa út nýtt frímerki.
Á nýja frímerkinu eiga að
vera hinar kvenlegu ímyndir
Liberté, Egalité og Fraternité
(Frelsi, jafnrétti og bræðra-
lag), sem eru tákn byltingar-
innar. Mynd frelsisins er
frægust á málverki eftir Dela-
croix.
En nú hefur verið upplýst
að smáatriði vantar á mynd-
ina á frímerkinu. Brjóstið
sem stendur upp úr rifinni
blússu hefur enga geirvörtu.
Skýringar yfirmanna póst-
þjónustunnar þóttu heldur
óskýrar.
Einn þeirra sagði að geir-
vartan hefði horfið þegar
myndin var smækkuð, slíkt
gerðist oft. En prentarinn
sem annaðist verkið sagðist
hafa fengið fyrirmæli um að
fjarlægja geirvörtuna.
Formælandi póstþjónust-
unnar sagði hins vegar að við
frímerkjagerðina væri ná-
kvæmlega fylgt franskri fyrir-
mynd. „Þeir afmáðu miðju
geirvörtunnar á sínu frímerki
og þá gerðum við það líka,“
segir hann.
Þá var leifað til Frakka um
skýringu á geirvörtuhvarfinu
og þeir spurðir hvort þeir
hefðu virkilega fiktað við sitt
eigið þjóðartákn. Svarið var
harðákveðið nei. Og sá emb-
ættismaður sem svaraði bætti
við á franska vísu: „Falleg
teikning af nakinni konu er
alltaf falleg.“
Elnhvers staftar á lelðlnnl á frfmerkl hvarf gelrvartan af byttlngar-
konunnl sem er tákn frelsislns.