Tíminn - 22.12.1988, Side 20
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagöfu,
S 28822
Atjan man. binding
▼ ▼
& 7,5% ÞR0STUR
68-50 60
SAWlVINNUBANKiNN VANIRMENN
V
Ií 111 i IIII
Fjórburarnirdafnavel,ensjaldanerróáöllum íeinulengur en í 10-15 mín.:
Enn vantar fjórbur-
ana eina náttmóður
Auglýst var fyrir nokkru eftir aðstoðarkonum til að sinna
umönnun fjórburanna í Mosfellsbæ, en ekki hefur tekist að ráða
í allar þær stöður sem þarf. Aðeins er búið að ganga frá ráðningu
einnar konu sem gengur næturvaktir þrjár nætur í hverri viku.
Vonast er til að um áramótin bætist önnur við og þá er ekki eftir
nema ein staða við barnagæsluna á þessu barnmarga heimili.
Móðirin, Margrét Þóra Baldurs-
dóttir, sagði í viðtali við Tímann í
gær að ekki væri hægt að sofna út
frá fjórburunum þar sem ekki líða
nema um tíu til fimmtán mínútur
þar til einhver dætranna fjögurra
vaknar eða þarf á umsjón að halda.
Þessi gangur er viðvarandi nótt og
dag og því er ekki mögulegt fyrir
eina manneskju að annast þær án
aðstoðar.
Það er félagsmálastofnun Mos-
fellsbæjar sem gengur frá ráðningu
aðstoðarmæðranna og er enn leitað
logandi ljósi að þriðju konunni,
sem tekið getur þátt í gæslunni í
fullu starfi. Nokkrar konur eru
tilbúnar að taka að sér eina og eina
gæslunótt, en talið er að ekki sé
æskilegt að hafa of margar persón-
ur í hlutverkum aukamæðra. Það
er heldur ekki nóg að fá aðstoð dag
og dag við þetta mikla verk.
„Það er alltaf einhver nýbúin að
fá næringu og þá er ekki hægt að
sofna út frá þeim eða hvíla sig
nema í tíu mínútur til korter í
mesta lagi,“ sagði móðirin. „Égget
þetta því ekki ein. Það er alveg
vonlaust." Um helgar getur Mar-
grét Þóra þó andað aðeins léttar
þar sem eiginmaðurinn, Guðjón
Sveinn Valgeirsson, er þá ekki frá
við vinnu sína.
Dæturnar fjórar fæddust á
Landspítalanum þann 1. nóvember
og eru því brátt orðnar tveggja
mánaða gamlar. Þær dafna vel að
sögn móðurinnar og segist hún
vera afar þakklát fyrir það hve
hraustar þær eru. Samkvæmt mæl-
ingum síðasta mánudag reyndust
þær vega 12 til 13 merkur, en þær
voru þá orðnar um helmingi þyngri
en við fæðingu. „Þær dafna vel og
eru hraustar og get ég alls ekki
farið fram á neitt betra,“ sagði
Margrét Þóra Baldursdóttir.
Upphaflega gengu þær undir
heitunum A, B, C og D. Við skírn
í Lágafellskirkju fyrir skömmu
voru þeim síðan gefin nöfnin Alex-
andra, Brynhildur, Diljá og Elín.
Að sögn foreldranna var ákveðið
að halda stafrófsröðinni eins og
upphaflega var gert vegna fæðing-
arraðarinnar, með þeirri undan-
tekningu að dóttirin C fékk nafn
sem byrjar á D og dóttirin D fékk
nafn sem byrjar á E. KB
Fjórburamir. Frá vinstrí: Alexandra, Brynhildur, Elín og Diljá.
Óli Þ. Guðbjartsson fer eftir eigin samvisku
við atkvæðagreiðslur á þingi:
Ábyrgðarhluti að
fella stjórnina
Óli Þ. Guðbjartsson, annar af
þingmönnum Borgaraflokksins er
gengu til liðs við ríkisstjórnina í
atkvæðagreiðslum í gær, sagði í
samtali við Tímann að það væri
mikill ábyrgðarhluti að fella bráða-
birgðalög sem tvær síðustu ríkis-
stjórnir hefðu staðið að.
Hann vísaði til þess óvissuástands
er ríkti nú í efnahags- og atvinnumál-
um þjóðarinnar. „Þeir menn sem
vilja stuðla að falli stjórnarinnar og
því öngþveiti sem mundi fylgja í
kjölfar þess taka á sig mikla ábyrgð,"
sagði Óli. Hann sagði að þau Aðal-
heiður hefðu tekið þessa ákvörðun
vegna eigin samvisku og þingflokk-
urinn í heild hefði ekki lagt blessun
sína yfir afstöðu þeirra.
Albert Guðmundsson kvaddi sér
hljóðs við atkvæðagreiðsluna um
bráðabirgðalögin í gær og sagði að
sér kæmi á óvart sú stefnubreyting
sem væri að verða innan Borgara-
flokksins gagnvart ríkisstjórninni,
en Tíminn hefur heimildir fyrir því
að þessi mál hafi komið til umræðu
á fundi flokksins aðfaranótt þriðju-
dags og þar hafi Albert verið í
minnihluta í afstöðu til stjórnarinn-
ar. -ág
Heildsala
sími
91-39550
Búnaðarsamtöká íslandi 150 ára
1837-1987
Afmælisrit Búnaðarfélags íslands
Tvö bindi - um 1100 bls., yfir 900 myndir.
Saga íslensks landbúnaðar frá miðri 18. öld til okkar daga.
• Saga búnaðarframfara og búgreina á fslandi.
• Saga bændasamtakanna.
• Saga rannsókna, tilrauna, leiðbeininga og löggjafar.
• Saga landbúnaðarsýninga og bændaferða.
• Annáll Búnaðarþinga, æviágrip og myndir 170 fulltrúa.
• Yfir 900 myndir af persónum og merkum atvikum.
• Rita-, mynda-, féiaga- og nafnaskrár.
• Upphafssaga landgræðslumála, saga húsbygginga bændasamtakanna, útgáfustarfsemi, nám-
skeið, starf búnaðarsambandanna, samstarf á erlendum vettvangi.
Atvinnusaga, félaqsmálasaga, persónusaga, staðgott uppsláttarrit.
Stærsta framlagið til sögu íslensks landbúnaðar hingað til.
Ðúnaðarfélag íslands
Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík, s.: 91-19200.