Tíminn - 23.12.1988, Blaðsíða 2
</,11» I
2 Tíminn
f fnimvarpinu er m.a. gert ráð fyrir að sveitarfélög greiði 40% af stofnkostnaði framhaldsskóla, en ríkissjóður
sjái alfarið um rekstrarkostnað þeirra. Á myndinni sést verknámshús Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Frumvarp um breytta skipan verkefna á milli
rfkis og sveitarfélaga lagt fram á Alþingi:
Reynt að einfalda
verkaskiptinguna
Fyrir stuttu leit dagsins Ijós stjórnarfrumvarp um breytingu á
verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þar er lagt til að sveitarfé-
lögin hafi einkum með höndum staðbundin verkefni sem ráðast
af staðbundnum þörfum og þar sem ætla má að þekking á
aðstæðum ásamt frumkvæði heimamanna leiði til betri og
hagkvæmari þjónustu. Ríkið annist fremur verkefni er hagkvæm-
ara er að leysa á landsvísu.
Helstu breytingar sem lagðar
eru til í frumvarpinu eru að felld
verði niður þátttaka sveitarfélaga í
rekstri sjúkrahúsa og heilsugæslu-
stöðva, ríkissjóður greiði alfarið
kostnað við rekstur fræðsluskrif-
stofa og framlög sveitarfélaga til
atvinnuleysistrygginga verði felld
niður. Þá er mælt með að felld
verði niður þátttaka sveitarfélaga í
rekstri sjúkrahúsa og heilsugæslu-
stöðva og sjúkratryggingar verði
alfarið verkefni ríkisins. Á móti
kemur ýmis verkefnaflutningur frá
ríki til sveitarfélaga svo sem, að
hlutdeild þeirra í stofnkostnaði
sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva
verði 40% í stað 15%, sveitarfélög-
in greiði allan stofnkostnað grunn-
skóla og rekstrarkostnað þeirra að
undanskildum kennaralaunum,
felld verði niður þátttaka ríkisins í
byggingu félagsheimila og fleira.
Samkvæmt frumvarpinu er einnig
gert ráð fyrir að sveitarfélögin
greiði 40% af stofnkostnaði fram-
haldsskóla, en ríkið taki alfarið á
sig rekstrarkostnaðinn.
Lagt er til að úthlutunarreglum
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði
breytt og meira fé ráðstafað til að
styrkja einkum hin fámennari
sveitarfélög til að annast lögbundin
verkefni, til að jafna útgjöld sveit-
arfélaga og til að standa undir
stofnframkvæmdum. Samkvæmt
frumvarpinu er mælst til að veitt
verði framlög til sveitarfélaga úr
Jöfnunarsjóðinum með þrennum
hætti. í fyrsta lagi framlög til
stofnframkvæmda, þá framlög til
reksturs grunnskóla í dreifbýli og
framlög til að bæta upp aukinn
kostnað við breytta verkaskiptingu
og til innbyrðis tekjuöflunar milli
sveitarfélaga.
Þetta frumvarp er viðleitni í þá
átt að einfalda verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga sem talin er óskýr
og flókin. Mikil vinna er lögð í
margs konar uppgjör á milli þess-
ara aðila og í mörgum tilvikum
stöðug togstreita og ágreiningur
þeirra í milli, aðallega vegna fjár-
mála. Þess vegna er lagt til að
verkaskiptingin verði einfaldari og
skýrari og dregið verði úr samað-
ild, svo saman fari frumkvæði,
framkvæmd og fjárhagsleg ábyrgð
á stofnkostnaði og rekstri. - ág
Megas syngur um litla sæta stráka á plötunni Bláir draumar:
„Litlir sætir strákar
vekja stöðugt góða lyst“
Hijómplatan nýtur einatt mikilla
vinsælda til jólagjafa og svo virðist
einnig ætla að verða um þessi jól.
Hljómlistarmenn líta hýru auga til
þeirrar miklu sölu sem er á þessum
tíma og eru þeir félagar „Meistari“
Megas og Bubbi Morthens, sem
reyndar átti söluhæstu plötu síðasta
árs, þar engin undantekning. Þeir
sækja nú fram með plötuna Bláir
draumar sem Grammið gefur út.
Það vekur athygli þegar hlýtt er á
þessa plötu að í laginu Litlir sætir
strákar, sem Megas flytur, syngur
hann um kosti þess að gamna sér við
litla sæta stráka.
Textinn fylgir hér á eftir:
Ég dirfist ekki um stelpur meir
við stelpurnar að þrátta
þær eru töfrandi á aldrinum
frá tólf og niðrí átta.
En ef þú ert að pæla í
hvað það er sem koma skal
litlir sætir strákar
eru langtum betra val.
Þú mændir sem einn afglapi
á ókleifan múr
nú veistu af beiskri reynslu
að vínberin eru súr.
Og þú saknar einhvers
sem þú getur kelað við og kysst
litlir sætir strákar
vekja stöðugt góða lyst.
Þú ert kalinn bæði og sviðinn
nú cn áttirðu von á öðru
það finnur engin gæfuna
í faðmlagi við nöðru.
En þegar lífsins fórnir
vilja færa þig í kaf
litlir sætir strákar
þeir stinga þig ekki af.
Sortnaðir geislar
sólar sem djúpt er hnigin
myrkva lífið þitt
og löngu fallin vígin.
Og einsemdin hún er svo dimm
og átakanleg köld
litlir sætir strákar
verma og lýsa upp þín kvöld.
Ég heyrði það í draumi
og heyrði það svo skýrt
dömueðlið er af dyggðum rýrt.
Ég heyrði það í draumi
þú skalt heiðra eigið kyn
og lítinn sætan strák
er ljúft að eiga fyrir vin.
En bjálfarnir þeir munu ætíð
binda trúss við frúrnar
og þegar eldar brenna hjörtun
í augunum þeim súrnar.
En spáirðu bara í dæmi
gömlu spekinganna sést
að litlir sætir strákar
hafa löngum reynst best.
- áma
í m •''tk ■% ** '*» ;,i ^ ■*
Föstudagur 23. desember 1988
Svar viö fyrirspurn Páls Péturs-
sonar um fiskútflutning:
Verulegur
samdráttur
Sölur íslenskra fiskiskipa í er-
lendum höfnum á tímabilinu 1.
janúar til 31. ágúst 1988, námu
27.490 tonnum. Á sama tímabili
1987 nam þessi útflutningur
39.117 tonnum. Þetta kemur
fram í svari utanríkisráðherra
við fyrirspurn Páls Péturssonar
þingmanns, þarsem hann óskaði
eftir upplýsingum um ísfiskút-
flutning og fiskútflutning í
gámum.
Fyrirspurn Páls Péturssonar var
þessi: Hver var útflutningur í gámum
á þorski, ýsu, ufsa, grálúðu og karfa
árið 1987 og til októberloka 1988
sundurliðað eftir kjördæmum?
Hversu mikill ísfiskur var fluttur út
á sama tímabili sundurliðað eftir
kjördæmum?
Að höfðu samráði við fyrirspyrj-
anda miðast svarið við tímabilið 1.
janúar til 31. ágúst 1988, þar sem
nýrri tölur liggja ekki fyrir. Tölurnar
voru teknar saman af Fiskifélagi
íslands.
Þegar litið er á tölur um sölur
fiskiskipa erlendis kemur í ljós að
togarar frá Reykjavík seldu mest,
eða 9.481 tonnátímabilinu 1. janúar
til 31. ágúst 1988. Næst á eftir koma
skip skrásett á Austurlandi með
6.399 tonn á sama tímabili, því næst
Reykjanes með 4.319 tonn, þá Vest-
firðir með 1.167 tonn, Norðurland
eystra 1.145 tonn, Vesturland 1.128
tonn og Norðurland vestra 415 tonn.
Á sama tímabili árið 1987 var þessi
útflutningur eftir kjördæmum:
Reykjavík 15.705 tonn, Austurland
9.356 tonn, Reykjanes 5.286 tonn,
Suðurland 3.465 tonn, Vestfirðir
2.382 tonn, Norðurland eystra 1.524
tonn, Vesturland 1.013 tonn og
Norðurland vestra 386 tonn.
Eins og við má búast er afla-
samsetning eftir kjördæmum
misjöfn, þó er þorskur uppistaðan í
útflutningi í ferskum fiski í gámum.
Ef litið er á stærstu gámaútflutnings-
tölur í hverju kjördæmi fyrir sig
kemur í ljós að af þorski voru 6.469
tonn flutt út frá Suðurlandi og 5.507
tonn af ýsu á tímabilinu 1. janúar til
31. ágúst 1988. Á sama tímabili árið
áður voru 8.292 tonn flutt út af
þorski og 5.180 tonn af ýsu. Frá
Reykjanesi voru flutt út 2.212 tonn
af þorski í gámum, 1.317 tonn af ýsu
og 1.215 tonn af karfa, en árið á
undan 2.258 tonn af þroski, 2628
tonn af karfa og 839 tonn af ýsu, en
aukning hafði orðið á sölu á ufsa.
Nam hún 1.151 tonnum á fyrr-
greindu tímabili 1987. Frá Reyicja-
vík var mest flutt út af þorski í
gámum, fyrstu átta mánuði 1988 eða
984 tonn og af karfa 784 tonn, en
árið á undan höfðu 1.545 tonn verið
flutt út. Frá Vesturlandi var flutt út
1.065 tonn af þorski og 692 tonn af
karfa, 1988, frá Vestfjörðum var
flutt úr 5.487 tonn af þorski, 1.351
tonn af grálúðu og 961 tonn af ýsu.
Frá Norðurlandi vestra voru flutt út
112 tonn af þorski og 55 tonn af
karfa í gámum. Frá Norðurlandi
eystra voru flutt út 665 tonn af
þorski og 239 tonn af ýsu og frá
Austurlandi voru flutt úr 1.591 tonn
af þorski og af ýsu 752 tonn.
- ABÓ
Frá slysstað á Höfðabakka á miðvikudagskvöld.
Tímamynd Pjetur
Haröur árekstur á Höfðabakka:
Fernt flutt
á slysadeild
Fernt var flutt á slysadeild eftir
harðan árekstur tveggja bíla rétt
norðan við Höfðabakkabrú skömmu
eftir klukkan átta á miðvikudags-
kvöld. Ökumaður annars bílsins lær-
brotnaði og handleggsbrotnaði, auk
annarra áverka.
Slysið vildi til með þeim hætti að
stúlka sem var að læra á bifreið ók
með kennara sér við hlið suður
Höfðabakka. Hjólin hægramegin á
bifreiðinni lentu ofaní skorningi
meðfram malbikinu. Þegar hún er
síðan að beygja bílnum upp úr
raufinni vill ekki betur til en svo að
bíllinn snýst á götunni vegna hálku
og bíll af Lada gerð sem kemur úr
gagnstæðri átt lendir á kennslubifr-
eiðinni. Kalla þurfti til tækjabíl
slökkviliðsins til að ná ökumanni
Lada bílsins út og slasaðist hann
töluvert, m.a. lærbrotnaði og hand-
leggsbrotnaði, auk innvortis
meiðsla. Tvö börn hans voru í bíln-
um og slösuðust þau einnig, auk
stúlkunnar sem ók kennslubifreið-
inni. - ABÓ