Tíminn - 23.12.1988, Blaðsíða 20
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagöfu,
S 28822
Átján mán, binding
7,5%
0
VlfMNU
qvbil AS r,
fktP
ÞRQSTUR
685060
VANIR MENN
Iíniinn
Vegagerðin heldur öllu opnu fram til lokunar verslana í kvöld um allt land.
Helstu þjóðleiðum haldið opnum fram yfir hádegi á morgun. Enginn snjó-
mokstur á landinu frá hádegi á aðfangadag til morguns annars jóladags:
Kafaldsbyl spáð um
Suðurland um jólin
„Það er útlit fyrir vaxandi austanátt og talsverðar líkur á
snjókomu altént á jóladag og allt útlit fyrir slæma færð um
Suðurland og í nágrenni Reykjavíkur. Kafaldsbylur verður
líklega á Suðurlandi og gæti færð því orðið erfið um Suðurland,
Hellisheiði og jafnvel á vegum í nágrenni Reykjavíkur,“ sagði
Magnús Jónsson Veðurfræðingur í gær.
„Ég held að veðrið í Reykjavík
verði ekki ósvipað því sem nú er
fram á jólakvöld, eða hæg norð-
austanátt, nokkurt frost og heið-
ríkja,“ sagði Magnúsennfremur.
Á Vestfjörðum verður hið
þokkalegasta veður og úrkomu-
lítið og á Norður- og Austurlandi
til Suð-Austurlands verða él og
sagði Magnús að á skjólsælum
stöðum þar gæti fólk átt von á
„jólasnjókomu" eða logndrífu.
Frost verður um allt land. Fyrir
vestan og norðan land allt að tíu
gráðum en minna sunnanlands -
um fimm gráður.
Það er því útlit fyrir skikkan-
legasta vetrarveður í dag, Por-
láksmessu og fram eftir degi á
morgun. É1 víða um landið geta
þó tafið samgöngur á láði og í
lofti en engu að síður ættu flestir
að geta komist leiðar sinnar í
tæka tíð fyrir jól áður en veður
versnar á jólakvöld.
Vegagerðin ætlar að hafa við-
búnað til að halda öllum vegum
opnum að minnsta kosti fram yfir
lokunartíma verslana í kvöld.
Éljaveður var víða um land í
gær og fram eftir morgni og í gær
var fært um Dalina og allt til
Patreksfjarðar og Bíldudals að
sögn Karls Ásgrímssonar veg-
aeftirlitsmanns Vegagerðarinnar.
Þá er Holtavörðuheiði fær og
fært um Strandir allt til ísafjarðar
og Flateyrar. Þá er verið að
hreinsa veginn um Fljót til Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðarmúlavegur
var lokaður í gær vegna veðurs en
ætti að opnast í dag og sama er
að segja um Lágheiði. Hún var
söntuleiðis lokuð í gær vegna
snjókomu en ætti að verða fær í
dag ef veður verður skaplegt.
Þá er fært frá Húsavík allt
austur til Vopnafjarðar en
Möðrudalsöræfin þó þungfær
fólksbílum. Þá voru vegir á Aust-
fjörðum hreinsaðir í gær og verið
er að renna yfir þá aftur nú í
Óvíst er að ástandið
kafaldsbyl.
Reykjavík verði svona slæmt, en spáð er
morgunsárið en talsverð ofan-
koma var í nótt á Norð-Austur-
landi.
Karl sagði að Vegagerðin yrði
í viðbragðsstöðu í dag og héldi
öllum vegum opnum en hcfði
hægar um sig á morgun, aðfanga-
dag. Þá væri ætlunin að gera sem
minnst og ekkert fram yfir það
sem alger nauðsyn krefði.
Snjómokstur myndi síðan
liggja niðri á jóladag og ekki
hefjast aftur fyrr en að morgni
annars jóladags, en ef snjóbylur
skellur á um sunnanvert landið á
jólakvöld eða jólanótt, eins og
Magnús Jónsson veðurfræðingur
gerir ráð fyrir, þá er viðbúið að
snjóruðningsmenn muni hafa ær-
inn starfa.
Á annan jóladag er fyrirhugað,
ef veður leyfir, að ryðja leiðina
milli Húsavíkur og Reykjavíkur
og frá Reykjavík um Suðurland.
Karl sagði að engin snjóruðn-
ingstæki yrðu á Hellisheiði frá
því seinnipart aðfangadags til
morguns á annan í jólum.
Ármann Magnússon stjórnar
veghefli sem notaður er til snjó-
ruðnings hjá Vegagerðinni á
Egilsstöðum.
Ármann sagði að' haustið og
veturinn það sem ef er hafi verið
einn hinn snjóléttasti sem hann
myndi eftir síðan hann hóf störf
hjá Vegagerðinni.
Hann sagðist ekki hafa lent í
neinum þrekraunum í vetur og
raunar varla síðan hann hóf störf
við snjóruðning árið 1972.
Nokkrum sinnum hefði hann þó
þurft að bíða af sér veður og eins
að bjarga fólki sem fest hafði
farartæki sín í fannfergi á fjall-
vegum.
Hann sagði að ekki yrði mokað
frá hádegi á aðfangadag og fram
á annan í jólum en þá yrði mokað
á öllum leiðum í umdæmi Vega-
gerðarinnar á Egilsstöðum. - sá
Vöruskiptin viö útlönd í september:
Álit nefndar á vegum menntamálaráðuneytis:
Vöruskiptajöfnuður í
september hagstæður
Samkvæmt tilkynningu sem Hag-
stofa íslands sendi frá sér í gær var
vöruskiptajöfnuður við útlönd hag-
stæður í september síðastliðnum.
í september voru fluttar út vörur
fyrir 6.260 milljónir króna og inn
fyrir 5.580 milljónir kr. fob. Vöru-
skiptajöfnuðurinn var því hagstæður
sem nemur 680 milljónum kr. en í
september í fyrra var hann óhag-
stæður um 1.750 ntilljónir kr. á föstu
gengi.
Vekja ber athygli á því að í þessu
sambandi verður að hafa í huga, að
kaup og sala skipa og flugvéla skipta
miklu um tölur septembermánaða
beggja ára.
í tölum september 1987 voru með-
taldar um 160 milljónir kr. í sölu
skipa og flugvéla en um 1.200 millj-
ónir kr. í kaupum á sömu hlutum. í
september mánuði þessa árs voru
seldar 3 flugvélar samtals að verð-
mæti kr. 1.400 milljónir en andvirði
skipa sem keypt hafa verið eða
endurbætt erlendis nemur röskum
800 milljónum kr.
Að frátöldum skipum og flugvél-
um var vöruskiptajöfnuðurinn í
september hagstæður um 125 millj-
ónir kr. borið saman við 700 milljóna
kr. óhagstæðan jöfnuð í september í
fyrra. -áma.
Kennsla hefjist
í byggingalist
Nefnd sem skipuð var til að kanna
forsendur þess að hefja kennslu í
húsagerðarlist hér á landi hefur skil-
að áliti sínu. Þar kemur m.a. fram sú
tillaga að hafin verði kennsla sem
fyrst í byggingalist, arkitektúr, á
íslandi.
Nefndin gerir í tillögum sínum ráð
fyrir því að um verði að ræða þriggja
ára fyrri hluta nám og nemendur
verði allt að 20 í hverjum árgangi.
Kennslan verði skipulögð sem sjálf-
stæð eining í tengslum við sjónlistar-
kennslu á háskólastigi, einnig verði
leitað eftir beinu samstarfi við er-
lenda skóla urn seinni hluta nám
fyrir íslenska nemendur í bygginga-
list.
Ákvörðun hvað þessar tillögur
varðar liggur ekki fyrir, en búist er
við að afgreiðsla málsins fari fram í
tengslum við niðurstöður nefndar er
nú fjallar um listaháskóla en hún
mun skila áliti sínu á fyrri hluta
næsta árs. SSH