Tíminn - 23.12.1988, Blaðsíða 16

Tíminn - 23.12.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn Föstudagur 23. desember 1988 fslenski dansflokkurinn í Hallgrímskirkju. Dansbænir í Hallgrímskirkju um jólin lslenski dansflokkurinn og Mótettu- kórinn sýna: Faðir vor, Ave María og Hallgrímsvers í Hallgrímskirkju um jólin. Það er dagana 22., 27., 28., 29. og 30. desember. íslenski dansflokkurinn og Arnar Jóns- son leikari frumsýna dansbænirnar Faðir vor og Ave Maria eftir Ivo Cramér i Hallgrímskirkju fimmtud. 22. des. kl. 20:30 og við sama tækifæri syngur Mót- ettukórinn þrjá sálma undir stjórn Harðar Áskelssonar. Ivo Cramér dansahöfundur er þekkt nafn í heimi danslistarinnar. Hann hóf leikhúsferil sinn sem listdansari. Hann stofnaði sinn eigin listdanshóp, Cramér- baletten. og síðar með Birgit Cullberg, Sænska dansflokkinn. Hann hefur víða farið og unnið sjálfstætt sem dansahöf- undur og leikstjóri. 1968 stofnaði hann aftur Cramérflokkinn ásamt eiginkonu sinni, dansahöfundinum Tygne Talvo. Cramér hefur samið fjölda þekktra ball- etta og þeirra á meðal Faðir vor, en dans við Maríubænina Ave María hefur hann tileinkað Vigdísi Finnbogadóttur forseta. Amar Jónsson leikari fer með Faðir vorið um leið og dansað er. 1 sýningunni taka þátt 16 listdansarar, en tónlistin er eftir Ralph Lundsten. Ivo Cramér var hér fyrir 24 árum og stjómaði gamansöngleiknum „Stöðvið heiminn" við Þjóðleikhúsið. Á Þorláksmessu verður Fríkirkjan í Reykjavík opin fyrir gesti og gangandi kl. 17:00-20:00. Síðasta klukkutímann verð- ur leikið á orgel kirkjunnar. Tekið verður við framlögum til Hjálparstofnunar kirkj- unnar og útsendum söfnunarbaukum veitt móttaka. Heitt kaffi verður á könn- unni. Fríkirkjufólk! Aðfangadagskvöld kl. 18:00: Klassísk messa í kaþólsku Maríukirkjunni við Raufarsel, steinsnar ofan við Seljakirkju. Ágústa Ágústsdóttir, Jóhanna Linnet, Viktor Guðlaugsson og Anders Joseph- son syngja. Organleikari er Þorvaldur Björnsson. Annar í jólum kl. 11:00: Barnaguðs- þjónusta í Kvennaskólanum við Frí- kirkjuveg. Auk venjulegra þátta verður börnunum færður glaðningur. Gamlárskvöld kl. 18:00: Klassísk messa í Kvennaskólanum við Fríkirkju- veg. Sr. Gunnar Bjömsson Jólasýning í Gallerí Grjót í Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4A stendur nú yfir jólasýning, - sem jafn- framt er sölusýning. Á sýningunni eru verk þeirra 9 listamanna sem að galleríinu standa, þ.e.: Gestur Þorgrímsson, Jónína Guðnadóttir, Magnús Tómasson, Ófeig- ur Björnsson, Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Ragnheiður Jónsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), Þorbjörg Hösk- uldsdóttir og örn Þorsteinsson. Oll verk- in á sýningunni eru til sölu. Opið er á Þorláksmessu kl. 12:00-23:00 og á aðfangadag ki. 10:00-12:00. Laugardagsgangan i Kópavogi Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun - aðfangadag - 24. des. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10:00. Hallgrímskirkja Hallgrímskirkja er opin alla daga nema mánudaga kl. 10:00-18:00. Turninn er opinn á sama tíma. Listasafn Sigurjóns Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laug- amesi, er opið laugardaga og sunnudaga, kl. 14-17. Kaffistofan er opin á sama tíma. KVENNAATHVARF Húsaskjól er opið allan sólarhringinn og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Síminn er 21205 - opinn allan sólar- hringinn. SAMÚEL 8. tbl. 19. árg. Á forsíðu þessa blaðs er mynd af Lindu fegurðardrottningu í hásæti sínu þegar hún hlaut titilinn „Ungfrú alheimur". Og inni í blaðinu er viðtal við Eyþór Guð- jónsson, kærasta Lindu Pétursdóttur og margar myndir af kærustuparinu, Þá koma ýmislegar fréttir, svo sem um partí- og ballsígarettur og milljónaplötu Mezzo- forte o.fl. Einnig er þýdd grein um Ameríkana sem á „brjálaða bíla“ eins og segir í fyrirsögn. Þá er grein um söngleikjahöfundinn Andrew Lloyd Webber. Næring framtíð- arinnar: Kóngulær, ormar og engisprettur nefnist fræðileg skrif um slíka fæðu. Einnig er þarna hugleiðing: Er góðærinu lokið og tékkheftið tómt? Þá segir far- maður um vinnubrögð tollafgreiðslu- manna: „Tollararnir margfalt sekari en smyglararnir". Ungur eiturlyfjaneytandi segir frá hörm- ungum sínum: Ég hef margoft reynt sjálfsmorð - og næstum drepið kærust- una. Baldur Brjánsson, framkvæmda- stjóri Broadway segir um rekstur skemmtistaða í dag: „Eins og að sitja á tímasprcngju". Hljómplötuþáttur er í blaðinu og margt fleira. - Ertu viss um aö við séum aö fara í sama fríið... ? ÚTVARP/SJÓNVARP e Rás I FM 92,4/93,5 é FM 91,1 01.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Leifur Hauksson og Ölöf Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum, spyrja tiðinda víða um land, tala við fólk í fréttum og fjalla um málefni líðandi stundar. Jón örn Marinósson segir sögur frá Ódáinsvöllum kl. 7.45. Veðurfregnir kl. 8.15 og leiðarar dagblaðanna kl. 8.30. 9.03 Viðbit. - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri) 10.05 Morgunsyrpa. Evu Ásrúnar Albertsdóttur og Óskars Páls Sveinssonar. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.20 Hádegisfróttir. 12.45 I Undralandi með Lísu Páls. Sigurður Þór Salvarsson tekur við athugasemdum og ábend- ingum hlustenda laust fyrir kl. 13.00 í hlustenda- þjónustu Dægurmálaútvarpsins og í framhaldi af því gefur Hilmar B. Jónsson hlustendum heilræði um helgarmatinn. 14.00 Á milli mála - Eva Ásrún Albertsdóttir og Óskar Páll Sveins- son. 16.03 Dagskrá. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir og Ævar Kjartansson bregða upp mynd af mannlífi til sjávar og sveita og því sem hæst ber heima og erlendis. Kaffispjall upp úr kl. 16.00, „orð í eyra“ kl. 16.45 og dagsyfirlit kl. 18.30. Frásögn Arthúrs Björgvins Bollasonarfrá Þýskalandi og fjölmiðlagagnrýni Einars Kára- sonar á sjötta tímanum. Ódáinsvallasaga endurtekin frá morgni kl. 18.45. 19.00 Kvöldfréttir. 19.33 Jólatónar. 20.30 Vinsældalisti Rásar 2. Stefán Hilmarsson kynnir tíu vinsælustu lögin. (Einnig útvarpað á sunnudag kl. 15.00). 21.30 Kvöldtónar. 22.07 Snúningur. Stefán Hilmarsson ber kveðjur milli hlustenda og leikur óskalög. 02.05 Góðvinafundur. Jónas Jónasson tekur á móti gestum í Hallgrímskirkju. Meðal gesta eru Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona, Örn Árnason leikari, Mótettukór Hallgrímskirkju og Hörður Áskelsson söngstjóri. Tríó Guðmundar Ingólfs- sonar leikur. (Endurtekinn frá sunnudegi). 03.05 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Austurlands. SJÓNVARPIÐ Föstudagur 23. desember Þorláksmessa 6.45 Veöurfregnir. Bæn, séra Gunnlaugur Garö- arsson flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfir- liti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30,8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Jólaalmanak Útvarpsins 1988. Umsjón: Gunnvör Braga. (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00). 9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Bjöms- dóttir. 9.30 Bókaþing. Kynntar nýjar bækur. Umsjón: Friðrik Rafnsson og Halldóra Friðjónsdóttir. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann. Umsjón: Finnbogi Hermannsson. (Frá ísafirði) 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 13.35 Miðdegissagan: „Konan í dalnum og dæt- urnar sjö“. Ævisaga Moniku á Merkigili skráð af Guðmundi G. Hagalín. Sigríður Hagalín les (20). 14.00 Fréttir. Tilkynningar. 14.05 Ljúflingslög. Svanhildur Jakobsdóttir kynnir. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags að loknum fréttum kl. 2.00). 15.00 Fréttir. 15.03 Jólakveðjur. Almennar kveðjur og óstað- bundnar. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Ketkrókur kominn í bæinn. Barnaútvarpið heilsar upp á hann í Þjóðminjasafninu. 16.30 Jólakveðjur, framhald. 17.00 Fréttir. 17.03 Jólakveðjur, framhald 18.00 Fréttir. 18.03 Jólakveðjur framhald Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 „Af innri gleði“. Jólahugleiðing séra Péturs Þórarinssonar á Möðruvöllum í Hörgárdal. 20.00 Jólaalmanak Útvarpsins 1988. (Endurtekið frá morgni). 20.15 Jólakveðjur. Kveðjur til fólks í sýslum og kaupstöðum landsins. Leikin jólalög milli lestra. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Jólakveðjur, framhald 24.00 Fréttir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. Föstudagur 23. desember 17.50 Jólin nálgast í Kærabæ. 18.00 Villi spæta og vinir hans. Bandarískur teiknimyndaflokkur. Þýðandi Sigurgeir Stein- grímsson. 18.25 Líf í nýju Ijósi (20) (Ifétait une fois... la vie). Franskur teiknimyndaflokkur um mannslíkam- ann, eftir Albert Barrillé. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Austurbæingar (Eastenders) Níundi þáttur. Breskur myndaflokkur í léttum dúr. Aðalhlutverk Anna Wing, Wendy Richard, Bill Treacher, Peter Dean og Gillian Taylforth. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 19.25 Búrabyggð (3) (Fraggle Rock) Breskur teiknimyndaflokkur úr smiðju Jim Hensons. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 19.50 Jólin nálgast í Kærabæ. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Lottó. 20.45 Dagskrá útvarpsins um jólahelgina. Um- sjón Trausti Sverrisson. 20.50 Ekkert sem heitir. Þáttur fyrir ungt fólk. Umsjón Gísli Snær Erlingsson. 21.15 Þingsjá. Umsjón Ingimar Ingimarsson. 21.40 Bjargv*;ttir jólanna. O'he Night They Saved Christmas) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1984. Leikstjóri Jackie Cooper Aðalhlutverk Jaclyn Smith, Paul LeMat og Art Garney. Þrír krakkar reyna að bjarga leikfangaverksmiðju jólasveins- ins frá eyðileggingu af völdum olíuborunar. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 23.10 Söngelski spæjarinn (5) (The Singing De- tective) Breskur myndaflokkur sem segir frá sjúklingi sem liggur á spítala og skrifar saka- málasögu. Aðalhlutverk Michael Gambon. Þýð- andi Gauti Kristmannsson. 00.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. ST00-2 Föstudagur 23. desember 16.15 Hong Kong. Noble House. Framhaldsmynd í 4. hlutum. 3. hluti. Voldugir aðilar hafa í hyggju að ná yfirráðum yfir gamalgrónu viðskiptafyrir- tæki, og ættarveldi í Hong Kong. En lykillinn að yfirráðum felst ekki í auði og valdi heldur litlu broti af smápening. Aðalhlutverk: Pierce Brosnan, Deborah Raffin, Ben Masters og Julia Nickson. Leikstjóri: Gary Nelson. Framleiðandi og höfundur: James Clawell. De Laurentiis Entertainment Group. 17.55 Jólasveinasaga. The Story of Santa Claus. Teiknimynd. Lokaþáttur. Leikraddir: Robert Am- finnsson, Júlíus Brjánsson og Saga Jónsdóttir. Telecable. 18.20 Pepsí popp. Tónlistarþáttur með nýjustu myndböndum, ferskum fréttum úrtónlistarheim- inum, viðtölum, getraunum, leikjum og alls kyns uppákomum. Þátturinn er unninn í samvinnu við Sanitas hf. sem kostar gerð hans. Kynnar Hafsteinn Hafsteinsson og Nadia K. Banine. Umsjón: Helgi Rúnar Óskarsson. Dagskrár- gerð: Hilmar Oddsson. Stöð 2. 19.1919:19. Frétta- og fréttaskýringaþáttur ásamt umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á baugi. 20.45 Alfred Hitchcock. Stuttir sakamálaþættir sem gerðir eru í anda þessa meistara hrollvekj- unnar. Þýðandi: Pálmi Jóhannesson. Sýningar- tími 30 mín. Universal 1986. 21.15 Laugardagur til lukku. Fjörugur getrauna- leikur sem unninn er í samvinnu við björgunar- sveitirnar. í þættinum verður dregið í lukkutríói björgunarsveitanna en miðar, sérstaklega merktir Stöð 2, eru gjaldgengir í þessum leik og mega þeir heppnu eiga von á glæsilegum vinningum. Kynnir: Magnús Axelsson. Dag- skrárgerð: Gunnlaugur Jónasson. Stöð 2. 22.10 Áfram hlátur. Carry on Laughing. Nú getum við látið hláturinn létta okkur lífið með því að horfa á gullmola úr gömlu góðu „ÁfranT mynd- unum. Hið litríka leikaralið myndanna mun skemmta okkur með hinum óforbetranlegu atriðum sem eru sérstaklega valin fyrir þessa þætti. Aðalhlutverk: Kenneth Williams, Barbara Windsor, Jim Dale, Sid James, Hattie Jacques o.fl. Þýðandi: Snjólaug Bragadóttir. Thames Television 1982. 22.35 Þrumufuglinn. Airwolf. Bandarískur spennumyndaflokkur. Aðalhlutverk: Jan-Mi- chael Vincent og Ernest Borgnine. Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir. MCA. 23.25 Nótt óttans. Night of the Grizzly. Vestri frá árinu 1966 sem segir frá búgarðseiganda og fyrrverandi lögreglustjóra sem á erfitt með að sætta sig við stjörnumissinn. Aðalhlutverk: Glint Walker, Martha Hyer og Keenan Wynn. Leik- stjóri: Joseph Pevney. Framleiðandi: Burt Dunne. Paramount 1966. Sýningartími 100 mín. 01.05 Ástarsorgir. Advice to the Lovelom. Róm- antísk gamanmynd um unga blaðakonu sem kemst að því að það að leysa vandamál annarra er öllu auðveldar en að leysa manns eigin. Aðalhlutverk: Cloris Leachman, Joe Terry, Kelly Bishop, Walter Brooke og Melissa Sue Ander- son. Leikstjóri: Harry Falk. Framleiðandi: John Epstein. Universal 1981. Sýningartími 105. 03.05 Dagskrárlok. _ UTVARP Mjölnisholti 14, 3. h. Opið virka daga 15.00-19.00 Sími623610

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.