Tíminn - 23.12.1988, Blaðsíða 3

Tíminn - 23.12.1988, Blaðsíða 3
Föstudagur 23. desember 1988 Tíminn 3 Þinghaldi lokið fyrir jól: 011 tekjuöflunar- frumvörp samþykkt Ráðherrar sleppa við sektir milli jóla og nýárs. Þinghaldi hefur verið frestað fram yfir áramót. Þinghaldi fyrir jól lauk í gær. Síðustu tekjuöflunarfrumvörp ríkis- stjórnarinnar, frumvarpið um tekju og eignaskatt og frumvarp til laga um vörugjald voru afgreidd sem lög frá þinginu síðdegis. Þá var einnig samþykkt greiðsluheimild til ríkis- sjóðs vegna Atvinnutryggingar- sjóðs. Ekkert þinghald verður á milli jóla og nýárs, eins og útlit var fyrir á tímabili. Áætlað er að þing komi aftur saman 3. janúar á næsta ári og þá munu fjárlög afgreidd og einning lög til staðfestingar bráðabirgða- lögunum frá því í haust. Samið hefur verið um að mál þessi verði afgreidd með hraði á fyrstu dögum janúar- mánaðar, en að því loknu fari þing- menn aftur til síns heima og ljúki sínu jólafríi, en samkvæmt starfs- áætlun þingsins mun þinghald aftur hefjast tuttugasta og þriðja næsta mánaðar. Andrúmsloftið í sölum þingsins hefur verið mjög afslappað eftir að hluti Borgaraflokks gekk til liðs við ríkisstjórnina í atkvæðagreiðslum í fyrradag. Öll mál virðast komin á hreirit og fjost að stjórnin ræður því sem hún vilj. Seinustu dagar hafa verið drjúgir og þannig var til að mynda samþykkt frumvarp um tryggingarsjóð fiskeldis í gær og er það mál sem fiskeldismenn hafa hamrað á í nokkuð langan tíma. Menn velta nú framtíð Borgara- flokksins fyrir sér og þá aðallega hvort hann muni skiptast í tvær fylkingar, annars vegar Albert Guðmundsson, Inga Björn Alberts- son og Hreggvið Jónsson og hins vegar afgang þingflokksins með Júlí- us Sólnes í broddi fylkingar. -ág Leikrit Ragnars Arnalds: Uppreisnin á ísafirði æfð í Skagafirði Nú standa yfir æfingar hjá Leikfélagi Skagafjarðar á leikrit- inu Uppreisnin á ísafirði, eftir Ragnar Arnalds. Verkið er allstórt í sniðum og sviðsskiptingar margar. Upp- reisnin fjallar um frægt sakamál sem upp kom á ísafirði um síð- ustu aldamót. Málaferli sem fylgdu í kjölfar þess og beindust m. a. gegn Skúla Thoroddsen, sýslumanni ísfirðinga, sem ekki þótti hafa látið rannsaka meint morðmál nægilega, vöktu rnikla athygli og harðar deilur á sínum tíma. Leikarar eru-um 30 talsins og koma þeir víða að; frá Sauðár- k/óki og öllum framhreppum Skagafjarðar. Höfundurinn fer með eitt hlutverkanna og er einnig aðstoðarleikstjóri. Áætlað er að frumsýna verkið í félags- heimilinu í Miðgarði, 4. janúar n. k. Ó.Þ. Bækur prentaðar í óvenju stóru upplagi fyrir þessi jól: Konur virðast seljast betur Bókin um forseta vorn, frú Vigdísi Finnbogadóttur, „Ein á forsetavakt" stefnir í það að verða sú söluhæsta fyrir þessi jól. Fast á hæla henni kemur bókin um Leif Muller, „Býr íslendingur hér“. Báðar þessar bækur eru gefnar út af bókaútgáfunni Iðunni og að sögn Jóns Karlssonar forstjóra man hann ekki eftir að nokkur bók hafi verið prentuð í jafn stóru upplagi og bókin um Vigdísi en nú hafa verið prentuð 14.500 eintök af henni. Alls hafa verið prentuð 12.300 eintök af bók- inni um Leif Muller. Jón sagði að þær bækur sem komast inn á lista yfir söluhæstu bækur fyrir jólin seldust til dæmis oft í 4.000 eintökum og undirstrikar það hversu gífurlega upplag bók- anna tveggja sem getið er hér að ofan er stórt. Eyjólfur Sigurðsson formaður Félags íslenskra bókaútgefenda staðfesti það sem að ofan er sagt. Hvað varðaði bókina um Vigdísi sagði Eyjólfur að þar væri örugglega um metsölu að ræða. Hann benti einnig á það að fyrir síðustu jól hefði það verið bókin um Höllu Linker sem sló aðrar út og fyrir nokkrum árum hefði bókin um Áuði Laxness slegið í gegn, segja mætti að það. Athyglisvert væri að bækur um konurseldust svo langtum betur en aðrar. - áma Loðnan og Ástráður í jólafrí Loðnusjómenn og Ástráður Ingv- arsson hjá loðnunefnd eru komnir í jólafrí. Bátarnir voru allir hættir veiðum 21. desember og hefja þeir veiðar aftur þann 27. desember. Þegar hringt er í síma loðnunefnd- ar svarar símsvari Ástráðs og segir: Þar sem loðnuveiðum er lokið fyrir jól, verður skrifstofan lokuð frá 21. desember til 27. desember, báðir dagar meðtaldir. Gleðileg jól. - ABÓ jjtriFRITT Sanitas Sanitas r l' ■ r! .utiik ra KjjBj á 'A

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.