Tíminn - 23.12.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Föstudagur 23. desember 1988
FRÉTTAYFIRLIT
SAMEINUÐU ÞJÓÐ-
IRNAR-Suöur-Afríka, Kúba
og Angóla undirrituðu söguleg-
an samning sem Iryggir sjálf-
stæði Namibíu og ao herlið
Kúbumanna verði kallað heim
frá Angóla. Skugga bar á yfir-
skriftina þar sem Svíinn Bernt
Carlsson sem átti stóran þátt í
samningagjörðinni fyrir hönd
Sameinuðu þjóðanna fórst
með bandarísku Boeing 747
þotunni í Skotlandi. Hann var
á leið til New York til að vera
viðstaddur undirritunina.
WASHINGTON - George
Bush, sem mun taka við forset-
aembættinu í Bandaríkjunum
eftir tæpan mánuð, útnefndi
Louis Sullivan sem heilbrigðis
og félagsmálaráðherra Banda-
ríkjanna í ríkisstjórn sinni.
Sullivan er fyrsti blökkumaður- j
inn sem Bush skipar í ríkis-
stjórn sína.
VARSJÁ - Lech Walesa
leiðtogi hinna óháðu verka-
lýðssamtaka Samstöðu sagði
að leiðtogar kommúnista-
flokksins í Póllandi hafi ekki
gengið nógu langt til móts við
samtökin til að unnt sé að hefja
viðræður um framtíð landsins,
þar sem meðal annars átti að
ræða framtíð Samstöðu.
MADRID - Forsætisráð-
herra Spánar Felipe Gonzales
hugðist hefja viðræður við
verkalýðsfélög um kröfur
verkalýðsfélaganna sem ríkis-
stjórnin var ekki tilbúin til að
samþykkja. Allsherjarverkfall
skall á í síðustu viku og er það
farið að hafa víðtæk áhrif á
Spáni.
Fulltrúar verkalýðsfélaganna
mættu hins vegar ekki á
fundinn. Tvö stærstu verka-
lýðsfélögin á Spáni hafa sagt
að þau muni ekki ræða við
Gonzales.
BELGRAD - Verkalýðs-
leiðtogar í Króatíu, sem er
næst stærsta lýðveldi innan
ríkjasambandsins í Júgó-
slavíu, hafa nú krafist at-'
kvæðagreiðslu um vantraust á
júgóslavnesku ríkisstjórnina
sem þeir saka um ao bera
ábyrgð á því ófremdarástandi
er ríkir í efnahagsmálum
landsins.
ÚTLÖND
Boeing 747 þota Pan American á Keflavíkurflugvelli. Það var svona þota sem fórst í fyrrakvöld í versta flugslysi í Brctlandi.
Boeing 747 þota Pan Am fórst í Skotlandi í fyrrakvöld:
Myrtu hryðjuverkamenn
275 saklausa borgara?
Nær öruggt er að hryðjuverkamenn hafi grandað bandarísku Pan
Am breiðþotunni sem fórst við skoska landamærabæinn Lockerbie
í fyrrakvöld. Alls fórust 275 manns eftir að þotan sprakk í loft upp
í 30 þúsund feta hæð, þar af 15 íbúar Locerbie sem urðu undir braki
þotunnar.
írönsk öfgasamtök hafa lýst verknaðinum á hendur sér og segjast
stolt yfir því að hafa hefnt fyrir írönsku farþegaþotuna sem
Bandaríkjamenn skutu niður yfir Persaflóa í sumar. Með þeirri þotu
fórust 290 manns.
Þotan hverfur af
ratsjárskermum
Boeing 747 breiðþota Pan Am
flugfélagsins hafði flogið frá Frank-
furt til Heathrowflugvallar í London
og hélt þaðan áleiðis til New York.
Með þotunni voru fjölmargir banda-
rískir hermenn og stúdentar á leið til
Bandaríkjanna í jólaleyfi auk ann-
arra farþega. Þotan hóf sig á loft
klukkan 18.25. Klukkan 19.08 hvarf
þotan skyndilega af ratsjárskermum,
en þá var hún í um 30 þúsund feta
hæð. Skömmu síðar bárust fréttir af
mikilli sprengingu og eldsvoða í
skoska þorpinu Lockerbie.
Fljótlega kom í ljós að brak þot-
unnar hafði dreifst víðs vegar um
Lockerbie og að engin von væri um
að einhverjir hefðu lifað af. Þá var
einnig ljóst að einhverjir íbúar
þorpsins hefðu látið lífið því nokkur
hús voru grafin í logandi braki.
Síðar kom í ljós að fimmtán þorps-
búar fórust og tólf aðrir voru fluttir
á sjúkrahús.
Sprenging líklegasta
orsökin
Það var strax ljóst að þotan fórst
ekki vegna mistaka flugmanna held-
ur benti allt til þess að þotan hefði
sprungið í loft upp. Sjónarvottar
skýrðu frá því að þotan hefði komið
í logandi pörtum til jarðar enda
dreifðist brakið og lík farþeganna
yfir nokkurra fermílna svæði. Sér-
fræðingar hafa gefið tvær hugsanleg-
ar skýringar. Annars vegar að þotan
hafi verið sprengd í Ioft upp eða að
skrokkur þotunnar hefði snögglega
gefið sig. Síðari möguleikann af-
skrifaði Pan Am, því þó að þotan
hafi verið byggð árið 1970 þá var hún
endurbyggð og yfirfarin á síðasta ári
svo hún ætti að vera sem ný.
Bandaríkjamenn höfðu
verið aðvaraðir
Þann 5. desember var hringt í
bandaríska sendiráðið í Helsinki og
tilkynnt að hermdarverk yrði unnið
á einhverri þotu Pan Am flugfélags-
ins sem flygi á flugleiðinni Frankfurt
til New York næsta hálfa mánuðinn.
Bandarískum flugmálayfirvöldum
var gert viðvart og voru öll flugfélög
er fljúga milli Evrópu og Bandaríkj-
anna vöruð við. Þetta kom fyrst
fram hjá talsmanni bandaríska
sendiráðsins í Moskvu í gær. Tals-
maður Pan Am flugfélagsins skýrði
frá því að sérstaks öryggis hefði
verið gætt að undanförnu vegna
þessa. Hins vegar væri stefna Pan
Am og flestra annarra flugfélaga að
halda slíkum hótunum leyndum.
frönsk öfgasamtök
lýsa verknaðinum á
hendur sér
í símtali við alþjóðlega fréttaþjón-
ustu í London sagðist skæruliðahóp-
ur er kallar sig „Verði íslömsku
byltingarinnar" bera ábyrgð á því að
þotan fórst. Maðurinn sagði að
verknaðurinn væri hefnd fyrir ír-
önsku farþegaþotuna er Bandaríkja-
menn skutu niður yfir Persaflóa í
sumar. Með þeirri þotu fórust 290
manns. „Við erum mjög stolt,“ sagði
maðurinn.
Þessi sömu samtök eru talin bera
ábyrgð á morðinu á írönskum skop-
myndateiknara og sprengjutilræði
þar sem fyrrum íranskur ráðherra
særðist alvarlega í London í fýrra.
Þá tengjast þau skæruliðasamtökun-
um „Heilagt stríð“ í Líbanon, en
þau samtök eru talin tengjast írönsk-
um stjómvöldum.
írönsk stjómvöld sáu ástæðu til
þess að gefa út yfirlýsingu um að
franar bæm enga ábyrgð á þessu
hryðjuverki.
150 líkfundist
Ekki hafa fundist nema 150 lík
eftir slysið, en líkamspartar dreifð-
ust vítt og breitt yfir Lockerbie
ásamt braki flugvélarinnar. Locker-
bie er eins og eftir loftárás enda
skemmdust rúmlega fjömtíu hús og
fjöldi bíla. Einn partur þotunnar
lenti á bensínstöð og myndaðist stór
gígur við sprenginguna sem varð.
Voru slökkviliðsmenn í fleiri
klukkustundir að ráða niðurlögum
eldsins.
Sprengjan í
handfarangri farþega?
Hafi þotan verið sprengd í loft
upp eins og allt bendir til þá eru allar
líkur á að farþegi hafi borið hana
með sér í handfarangri, vitandi eða
óafvitandi. Talsmaður Pan Am
flugfélagsins í Frankfurt sagði enga
möguleika á að sprengjunni hafi
verið komið um borð með almenn-
um farangri vegna öryggisráðstafana
þar.
Færeyjar og Noregur:
Mannskaðaveður
Svíar sjúkir
í bælum sínum
Mannskaðaveður gekk yfir Fær-
eyjar í fyrrinótt. Einn maður lést í
veðurofsanum sem var svo mikill að
veðurmælingatæki fuku út í veður
og vind. Eignatjón varð gífurlegt og
talið í hundruðum milljóna króna.
Mörg hundruð hús og bátar stór-
skemmdust og eru dæmi þess að
heilu húsin og bátar hafi fokið á haf
út. Sömu leið fóru bílar og annað
lauslegt.
Rafmagnslínur og símalínur slitn-
uðu þannig að rafmagnslaust varð
að mestu í Færeyjum og fjöldi
byggðarlaga slitnaði úr tengslum við
umheiminn.
Syðstu eyjarnar, Straumey, Sand-
ey og Suðurey, urðu einna verst úti.
Rýma þurfti tvær sjúkrahússálmur í
Þórshöfn, en hluti annarrar álmunn-
ar fauk á haf út. Sömu leið fór þakið
.á Hótel Borg, en þar var mannfagn-
aður í fuilum gangi í fyrrinótt.
Gestirnir urðu að leita sér skjóls í
kjallara hótelsins því langferðabílar
áttu enga möguleika að sækja gest-
ina og aka þeim heim vegna veður-
ofsans.
Veðurofsinn gekk niður er líða
tók á daginn og í gærkvöldi var
stinningskaldi í Færeyjum.
Lægðin sem olli ósköpunum í
Færeyjum hélt sem leið lá að strönd-
um Noregs, þar olli hún nokkru
tjóni. Einn maður fórst með bát
sínum og annars er saknað.
Frá Þór Jónssyni í Stokkhólmi
Aldrei fyrr hafa svo margir Svíar
verið veikir í einu og ekki getað
sinnt störfum sínum.
Hálf milljón manna eru nú skráðir
veikir af inflúensu, kvefi eða annarri
óáran.
í leyfi frá störfum til að sinna
sjúkum börnum sínum eru 124.000
manns.
Og handan við húshornið bíður
Taiwanflensa, sem stungið hefur sér
niður í Noregi.
Af sjúkrasögu Svía má líka nefna,
að ellefta fórnarlamb streptokokka-
flensunnar frægu er látið úr sjúk-
dómnum.
Það er svo ekki úr vegi að minna
á, að frá Norðurlöndum flykkjast nú
heim til íslands námsmenn til að
halda jólin hátíðleg í faðmi fjöl-
skyldunnar. Þess er því ef til vill ekki
langt að bíða að hin og þessi pestin
heimsæki Frón.