Tíminn - 23.12.1988, Síða 7
Föstudagur 23. desember 1988
Tíminn 7
AÐ UTAN
illlllllllllllli
Gríski forsætisráð-
herrann Andreas Papan
dreou á ólgusjó
Þau eru því af ýmsu tagi vanda-
málin sem Andreas Papandreou
þarf að horfast í augu við þessa
dagana. Nýlega birtist íþýskaviku-
ritinu Der Spiegél grein um ólgu-
sjóinn sem gríski forsætisráðherr-
ann er í þessa dagana og verður hér
á eftir gripið niður í hana.
Gestgjafi Evrópuleiðtoga
í siðferðiskreppu
Nýlega var Papandreou gestgjafi
á fundi leiðtoga Evrópubandalags-
ins á Rhodos og varð það til að
beina sviðsljósinu enn frekar að
honum og þeim aðstæðum sem nú
ríkja í Grikklandi. Fundurinn var
haldinn í kastala sem áður var
aðsetur Jóhannesarriddara, sem í
tvær aldir höfðu yfirráð á rósaeynni
Rhodos. Á fjórða áratug aldarinn- .
ar lét Mússólini lagfæra riddarakas-
talann og gerði hann að embætti-
sbústað fasíska vararæðismannsins
á eynni. Og nú hefur gríska stjórn-
in tekið til hendinni og lagfært
kastalann á ný til að gera hann
sæmandi heimsókn stórmennanna
frá Evrópuráðinu.
Fyrir fundinn þótti gestunum
vissara að búa sig undir alls kyns
erfiðleika. Það þótti t.d. alls ekki
víst að gríski forsætisráðherrann,
sem orðinn er 69 ára, hefði náð sér
svo eftir áföllin að undanförnu að
hann væri fær um að setja fundinn.
Við bættist að þeim var það ljóst
að það yrði ekki eiginkona forsæt-
isráðherrans Margaret, sem þeir
yrðu að sýna virðingu sína, heldur
yrðu þeir að dylja óbeit sína á
Dimitru Liani, 35 ára gamalli fyrr-
verandi flugfreyju hjá Olympic
Airways sem sífellt er í fylgd
Papandreous. Var búist við að
siðprúðum gestum, s.s. Margaret
Thatcher þætti sér nóg boðið.
f ofanálag urðu leiðtogar Evr-
ópubandalagsins að gera ráð fyrir
því að vera misnotaðir eins og
þöglir aukaleikarar í eins konar
kosningabaráttu. Því að búist var
við að gestgjafinn myndi reyna
eftir fremsta mætti að hegða sér
eins og fyrirmyndar stjórnmála-
skörungur á fundinum, með tilliti
til þess að þingkosningar fara fram
í Grikklandi á árinu 1989 og um
þessar mundir virðast grískir kjós-
endur hafa fengið sig fullsadda af
brekum forsætisráðherrans síns.
Evrópubandalagsforingjamir hafa
ekki heldur gleymt því að Grikk-
land er efst á blaði svarta listans í
Brussel, með 77 brot á sameining-
arréttinum.
Efnahagsmál Grikklands
í lamasessi
Aldrei áður hefur forsætisráð-
herra verið flæktur í eins slæm mál
samtímis, bæði einkamál og spill-
ingarhneyksli. Ytri einkenni
kreppunnar í lífi Papandreous eru
þau að í 15. sinn á sjö árum hefur
hann nú endurskipulagt ríkisstjórn
sína.
Umfram allt hefur þessum fyrr-
verandi hagfræðiprófessor mistek-
ist að ná umtalsverðum árangri í að
reisa við efnahag lands síns. Á
fyrstu stjórnarárum hans fældu sós-
íaliskar tilraunir útlendinga frá því
að flytja fjármagn til landsins og
m.a.s. fluttu grískir framkvæmda-
menn fé sitt úr landi til öryggis.
Afleiðingin varð sú að iðnaðar-
framleiðslan féll niður fyrir það
sem hún hafði verið fyrir valdatöku
Andreas Papandreou sér ekkert
nema vandræði þessa dagana,
sama hvert litið er.
Dimitra Liani er fönguleg kona og
Grikkir geta svo sem fyrirgefið
forsætisráðherranum sinum að
geta ekki staðist töfra hennar. En
það kemur fleira til.
Gríski forsætisráðherrann Andreas Papandreou hefur
svo sannarlega verið í sviðsljósinu að undanförnu. Hann
gekkst undir hjartauppskurð í London í sumar og þá kom
fram í dagsljósið ástmær hans, sem sat við rúmstokkinn hjá
sjúklingnum og beið þess að hann hresstist. Eiginkonan,
hin bandaríska Margaret, sat hins vegar heima. Nú nýverið
komst svo upp um stórfellt fjármálahneyksli sem flokks-
bræður hans eru flæktir í og þótti það ekki bæta stöðu
Papandreous, sem kvennamálin höfðu að vísu ekki veikt
að ráði. Efnahagsmál í Grikklandi eru í megnasta ólestri
og hefur það ekki orðið til að auka vinsældir forsætisráð-
herrans.
Papandreous og takmarkalausar
launahækkanir veiktu samkeppnis-
getu grísks iðnaðar.
Tveggja ára aðhaldsáætlun, sem
studd var með öflugri innspýtingu
fjármagns frá Evrópubandalaginu,
gat að vísu forðað landinu frá
gjaldþroti en olli hins vegar vinn-
andi fólki, sem áður hafði notið
dekurs, ómældu fjárhagstjóni.
Þar við bætist að verðbólgan,
rúm 13%, er u.þ.b. fjórum sinnum
meiri en í Evrópubandalags-
löndunum að meðaltali. Á árinu
1988 greinir skýrsla nefndar banda-
lagsins frá því að Grikkland sýni
slakastan árangur bandalagsland-
anna á efnahagssviðinu. Landið er
skuldunum vafið og neyddust yfir-
völd í Aþenu til að leita aðstoðar
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, rétt
eins og ríki Þriðja heimsins.
Stofnar táldregna
eiginkonan eigin stjórn-
málaflokk?
Veikindi forsætisráðherrans
urðu líka til að steypa þjóð hans í
lamandi óvissu. Á meðan hann
dvaldist í 8 vikur á sjúkrahúsi í
London, kom valdabarátta heima
fyrir ekki einungis í veg fyrir að
stjórninni yrði nokkuð úr verki
heldur líka að undirbúningur undir
fund Evrópubandalagsleiðtoganna
gengi skv. áætlun.
_ Samúð grísku þjóðarinnar vegna
veikinda Papandreous gufaði fljót-
lega upp. Hliðarsporin og rifrildin
við Margaret konu hans, sem fóru
fram fyrir opnum tjöldum, urðu
eftirlætisviðfangsefni skopmynda-
teiknara og revíuhöfunda.
Táldregna eiginkonan, sem ekki
vill skilnað í bráð a.m.k., hefur
fengið ýmsa huggun. Hún stýrir
t.d. enn húshaldinu í einbýlishúsi
fjölskyldunnar „Gallini" (Ró).
Ándreas verður að ganga um bak-
dyrnar til að komast í skrifstofu
sína, sem er í garðhýsi, annars býr
hann ýmist hjá Dimitru eða á
strandhóteli. Fjögur börn þeirra
hjóna veigra sér enn við að viður-
kenna hjákonuna sem framtíðar-
maka föður síns.
Hjónabandserjurnar gætu orðið
til þess að Papandreou yrði af
kosningasigri á næsta ári. Margar-
et, sem er bandarfsk að uppruna,
er nefnilega á góðri leið með að
ummynda „Kvenréttindasamband-
ið“ sitt í „Kvenréttindaflokk" í
þeim tilgangi að svipta mann sinn
bráðnauðsynlegum kjósendum af
kvenkyninu. Og á afmælisdegi
stúdentauppreisnarinnar gegn
herforingjastjórninni 17. nóvem-
ber, sem haldinn er hátíðlegur ár
hvert með mótmælaaðgerðum, var
Margaret hvött til aðgerða. „Mar-
garita, steyptu Andreasi,“ æpti
mótmælagangan.
f ofanálag verður Papandreou
að þola ákúrur frá foringja stjórn-
arandstöðunnar, Konstantin Mi-
tsotakis, sem segir að nú sé svo
komið að Grikkland „sé haft að
háði og spotti um víða veröld“
vegna framkomu forsætisráðherr-
ans. Og fjármálaráðherrann fékk
fyrirspurn í þinginu þess efnis úr
hvaða sjóðum væri greitt fyrir uppi-
hald og skartgripi ástkonunnar!
Áhyggjufullir embættismenn og
ráðherrar fylgjast með því hversu
áhrif Dimitru fara vaxandi á
ákvarðanir forsætisráðherrans.
Tveir ráðherrar sem höfðu komist
í ónáð hjá henni hafa þegar fengið
reisupassann.
Hefur fjárglæframaðurinn Georg-
ios Koskotas kverkatak á grískum
stjórnmálamönnum?
Hið illa afl í grískum
stjórnmálum, spillingin,
er ómótstæðileg
Enn meiri vandræði ógna Papan-
dreou vegna „mesta stjórnmála-
og fjármálahneykslis síðustu ára-
tuga“, eins og dagblaðið Elefthero-
typia í Aþenu kallar það, mál
útgefandans og bankastjórans Ge-
orgios Koskotas, sem á dularfullan
hátt tókst að flýja frá Grikklandi,
og hafði reyndar skamma viðdvöl
hér á landi á leið sinni til Brasilíu.
Síðar var hann svo tekinn höndum
í Boston.
Sósíalistastjórnin í Grikklandi,
sem setið hefur við völd síðan
1981, hefur átt álíka erfitt með að
standast hið illa afl í grískum
stjórnmálum, spillinguna og for-
verar hennar. Yfir 200 mútutilfella
hafa skotið upp kollinum á undan-
förnum árum. f flestum tilvikum
höfðu yfirmenn við ríkisfram-
kvæmdir gefið út leyfi til bygginga
og innkaupa, gegn þóknun, eða
voru flæktir í niðurgreiðslusvik
með fjármuni Evrópubandalags-
ins.
Varla nokkurt þessara tilfella
hefur farið fyrir dómstólana. Til-
mælum um að þingnefnd yrði sett
á fót til að kanna slík mál hefur
Papandreou oft og mörgum sinn-
um vísað á bug. Samt sem áður
hefur hann komist persónulega
heill á húfi framhjá hneykslismál-
unum.
Koskotas hótar að
leysa frá skjóðunni
Mál Koskotas aftur á móti hefur
beint grun um spillingu að ráðherr-
um og trúnaðarmönnum Papan-
dreous og hann er nú í þeirri
óþægilegu aðstöðu að verða að
bregða sér í gervi hreingerninga-
mannsins. Endurskoðandinn sem
settur var til að fara yfir reikninga
banka Koskotas á Krít komst að
raun um að auk þess sem yfir 10
milljarða ísl. króna vantaði upp á
að reikningar stæðust, væri þar
líka að finna reikningsfærslu að
upphæð rúmar 900 milljónir króna,
þar sem nafn viðtakanda vantaði
en því er slegið föstu að féð hafi
runnið til stjórnmálamanna, hlið-
hollra stjórninni, og embættis-
manna.
Koskotas hefur látið þau boð út
ganga úr varðhaldinu í Bandaríkj-
unum að hann ætli ekki að halda
hlífiskildi yfir þeim sem sviku hann
í tryggðum og bróðir hans, búsett-
ur í Frankfurt, hefur líka látið til
sín heyra. „Ef Georgios yrði myrt-
ur væri skynsamlegast fyrir marga
mikilsmetandi menn að hverfa frá
Grikklandi, ef þeir vilja ekki eyða
því sem eftir er af ævinni í fang-
elsi,“ segir hann.
Móðurbróðir þeirra bræðra, Ge-
orgios Katsioufis, sem býr í Banda-
ríkjunum, talar ekkert rósamál.
Hann segir, að ef skjöl þau og
hljóðbönd sem Koskotas geymi í
útlöndum, yrðu gerð opinber
hrintu þau þegar í stað af stað
jarðskjálfta!
Papandreou stjórnar
ekki lengur leikreglunum
Hið þrautreynda ráð Papandre-
ous þegar í harðbakkann slær, að
hafa endaskipti á ríkisstjórninni,
hefur tapað gildi sínu. Heiðarlegir
stjórnmálamenn eins og forseti
þingsins Jannis Alevras, Kostas
Simitis fyrrverandi viðskiptaráð-
herra, sem nýtur mikillar virðingar
í Evrópubandalaginu, og fyrir-
rennari hans Apostolos Lazaris,
hafa afþakkað boð Papandreous
um að taka sæti í stjórninni á þeim
forsendum að þeir kæri sig ekki um
að sitja til borðs með mönnum sem
útataðir eru í hneykslismálum.
Gríska blaðið Eleftherotypia segir:
„í fyrsta sinn síðan 1981 stjórnar
Papandreou bersýnilega ekki leik-
reglunum".
í nýju stjórninni hans hefur ráð-
herrum verið fjölgað úr 48 í 58 og
þar kennir enn ýmissa grasa. Þann-
ig varð dómsmálaráðherrann,
Agamemnon Koutsogiorgas, vinur
Papandreous til margra ára og
lögfræðingur hans, æðsti ráðherr-
ann í nýju stjórninni. Koutsogior-
gas hefur ekki bara fengið íbúð
handa konu sinni hjá Koskotas á
hagstæðu verði, heldur á hann líka
að hafa farið fram á að fjármála-
maðurinn, sem þá var lentur í
þrengingum, borgaði 7 milljónir
dollara fyrir að stilla út auglýsingu
fyrir Persil-hreinlætisvörur, að því
er vinstrisinnað blað í Grikklandi
upplýsir.
Flutningaráðherrann Georgios
Petsos varð öryggismálaráðherra í
stað Sechiotis, sem neyddist til að
fara frá embætti eftir að Koskotas
hafði tekist að flýja úr klóm lag-
anna varða í Grikklandi. Þar með
var Petsos kominn í æðsta embætti
rannsóknarlögreglunnar. Að sögn
nánasta samstarfsmanns Koskotas
hefur Petsos fengið „sekki af pen-
ingum“ frá Koskotas.
Georgios, sonur Papandreous,
var dubbaður upp í uppeldismála-
ráðherra. Nafn þessa erfðaprins
fjölskyldunnar er skráð á kvittun
fyrir móttöku peninga frá Kosko-
tas, en þar kann að vera um fölsun
að ræða. En vitað er að hann hélt
mjög nánum tengslum við Kosko-
tas og haft er eftir heimildamönn-
um innan lögreglunnar að þeir hafi
átt a.m.k. 26 fundi saman.
Kýlið enn á sínum stað
Frægur vinur forsætisráðherrans
er tónskáldið Mikis Theodorakis.
Hann hafði skorað á Papandreou
„að grípa til skurðarhnífsins", en
að lokinni endurskipulagningu
stjómarinnar sagði Theodorakis
andvarpandi, að enn væri kýlið á
sínum stað.
Ekki er að vænta nákvæmra
upplýsinga um þetta, né önnur
hneykslismál sem varða ráðamenn
í Grikklandi, hvorki frá rann-
sóknanefnd þingsins, sem Papan-
dreou neitar að skipa, né rann-
sóknarlögreglu, sem er lítt
starfhæf. Hins vegar var vinstri-
sinnaða tímaritið „Anti“, sem
hafði fyrirsögnina „Ríkisstjórn
svindlara" yfir grein sinni um spill-
inguna, kært vegna „meiðyrða í
garð ríkisstjórnarinnar".
Papandreou fullyrðir æ ofan í æ
að hann ætli að taka til á eigin búi.
„Við erurn öll ákveðin í að leggja
okkar af mörkum til hreinsunar,
að svo miklu leyti sem í mannlegu
valdi stendur,“ sagði hann á fyrsta
fundi nýju ríkisstjórnarinnar.