Tíminn - 23.12.1988, Side 8

Tíminn - 23.12.1988, Side 8
8 Tíminn Timirm MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson EggertSkúlason Steingrímur G íslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldslmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Auglýsingaverð kr. 465,- pr. dálksentimetri. Póstfax: 68-76-91 Bækurogþjóðmenning Það er árátta á ýmsum að óskapast út af bókaflóðinu um jólin ár eftir ár. Undir það skal tekið, að æskilegt væri að bókaútgáfan rynni jafnt og þétt yfir árstíðirnar og mánuðina eins og breið og straumlygn móða sléttulanda og flatlendis í stað þess að æða áfram eins og íslensk jökulsá í þröngu gljúfri. En varla getur þessi íslenski vertíðarbragur á bókaútgáfu verið alvarlegt þjóðfélagsmein. Ef til vill má finna honum sitthvað tii málsbóta. Höfuð- kosturinn kynni að vera sá, að jólabókavertíðin verði til þess að viðhalda þeim góða jólasið að gefa bækur þeim, sem manni er annt um. Þegar fjargviðrast er út af jólagjafabruðli vill það oft gleymast að fjöldi fólks hefur komið sér upp skynsamlegum jólagjafasiðum, sem felast í því að skiptast á eigulegum og gagnlegum hlutum. Oft er hér um bækur að ræða. Eins og flest undanfarin ár hefur bókaútgáfa verið mikil hér á landi á síðustu mánuðum ársins. Þessar bækur eru af margvíslegu tagi og áreiðan- lega misjafnar að gæðum. Og hví skyldi það ekki vera. Það væri í meira lagi vafasöm stefna að ætla sér þá dul að geta dauðhreinsað bókamarkaðinn af vondum bókum. Sú stefna hlyti að verða skrýtin í framkvæmd, - fyrir utan það að vera skrýtin í framan. íslenskir bókaútgefendur standa að mörgu leyti vel að verki og hafa komið frá sér ágætum, sígildum bókum og bókaflokkum. Það hefur orðið á þessu ári eins og oft áður. Allt tal um það að „bókin“ sé að líða undir lok verður að flokkast undir óþarfa svartsýnisspá. Miklu fremur er ástæða til að hlaða undir þá von að „bókin“ standist samkeppni við aðra fjölmiðlun, enda ljóst að enginn hinna nýju birtingarmöguleika og upplýs- ingatækni getur leyst bókina af hólmi. Bókin verður um ókomnar aldir tiltækasta mennta- og upplýsingatæki menningarþjóðfélaga. Hitt er annað mál að í bókaflóði aðventunnar kann að bera meira á minniháttar ritverkum en efni standa til. Margt af því sem merkast er getur orðið undir í auglýsingastríðinu í bili. Eitt þeirra rita, sem ekki virðist fallið til þess að bera hátt í bókaauglýsingum er stórverkið íslensk þjóðmenn- ing sem Bókaútgáfan Þjóðsaga gefur út. Alls er áætlað að bindi þessa ritverks verði níu talsins og tekur mörg ár að gefa út. Af verkinu eru þegar komin á markað tvö bindi. íslensk þjóðmenning er eitt þessara rita, sem lengi hefur verið skortur á. Er furðulegt að ekki skuli fyrir löngu hafa verið ráðist í útgáfu menning- arsögulegs yfirlitsverks af því tagi sem hér um ræðir. Er engu líkara en að söguþjóðin sjálf sé ekki forvitin um þjóðmenningu sína, rætur hennar og jarðveg. Ef þessi ritröð nær tilgangi sínum, eins og til hennar er stofnað, er þess að vænta að hún veki slíka forvitni og verði til þess að örva skilning menntafúsra manna á menningarsögu þjóðar sinnar. Þess er áreiðanlega mikil þörf. Föstudagur 23. desember 1988 GARRI Jólin að koma Nú er Þorláksmessa og jólin þar með nánast komin. í dag eru allir í önnum við að undirbúa hátiðina á morgun. Af þvi tilefni notar Garri tækifærið til að lýsa því yfir að hann vonar svo sannarlega að allir landsmenn megi eiga ánægju- lega hátíð núna um jólin. Ekki bara framsóknarmenn heldur líka allir hinir sem hann hefur verið að hnotabítast út í á árinu sem senn rcnnur nú í aldanna skaut, svo að gripin sé upp gömul klisja. Sérstaklega sér Garri ástæðu til að senda þeim vinum sínum á Morgunblaðinu, Þjóðviljanum og Alþýðublaðinu bestu jólakveðjur. Að ógleymdum þeim á DV. Hvað svo sem segja hefur mátt um blöð þeirra á árinu þá er því ekki að neita að þau hafa lugt honum tii efni í margan góðan pistilinn. Og þegar jólin koma þá eiga menn að brciða yfir allar væringar og takast í hendur. Það vill Garri gera. Sömuleiðis vonar Garri að þessir menn hugsi lika hlýlega til hans yfir jólin. Hann hefur þó hvað sem öðru líður gert sitt besta til að halda þeim við efnið á árinu. Svo má alltaf byrja upp á nýtt eftir áramótln. Ár hinna háu vaxta Ekki ætlar Garri hér og nú að fara að setja sig í neinar lands- föðurstcllingar. En eigi að síður er það Ijóst að ársins 1988 verður lcngi minnst sem árs hinna háu vaxta. Svona svipað og það sem einhvers staðar í mannkynssögunni er kallað nótt hinna löngu hnífa. Það fer ekki á milli mála að á þessu ári hefur verið gengið nær öllum fyrirtækjum i undirstöðu- greinunum en nokkru sinni fyrr. Frjálshyggjan, sem réði hér allt of miklu í pólitíkinni langt fram eftir ári, blóðmjólkaði fyrirtæki á borð við frystihús og verslanir á lands- byggðinni með þeim hætti að langt þarf að leita til samanburðar. Þetta var allt gert undir þvi formerki frjálshyggjunnar að með því að hafa vexti frjálsa myndi skapast hér jafnvægi á milli fram- boðs á fjármagni og eftirspurnar eftir því. Þetta myndi þýða að menn færu ekki út í annan atvinnu- rekstur en þann sem borgaði sig nægilega vel til að standa undir hæfilegri ávöxtun til sparifjáreig- enda í landinu. Eins og allir vita gekk þetta ekki eftir. Mestu réði að menn treystu sér ekki tii þess að láta frjáls- hyggjuna líka ná til gengísskráning- ar á erlendum gjaldmiðlum. Hún var föst, og það þýddi að tekjur fyrirtækja í útflutningi héldust óbreyttar, á sama tíma og þjónustufyrirtækin innanlands hækkuðu gjaldskrár sínar til að hafa á móti vöxtunum. Af því leiddi svo velgengni í þjónustu- greinunum, sem varð til þess að menn sóttust eftir að stofna fyrir- tæki í þeim. Það sprengdi svo enn aftur upp vextina í eftirsókn þjón- ustugreinanna eftir fjármagni. Draga þarf lærdóma Hitt er svo annað mál að þetta skildu sjálfstæðismenn ekki. Þeir ríghéldu sér í frjálshyggjukenning- ar sínar, og af því stöfuðu stjórnar- slitin. Nú hefur nýrri ríkisstjórn þegar tekist að lækka vexti veru- lega, þannig að núna er rekstrar- umhverfi fyrirtækjanna í undir- stöðugreinunum strax orðið allt annað en var. Þessu hljóta allir réttsýnir menn að fagna, en hins vegar stendur núverandi ríkisstjórn svo frammi fyrir því verkefni .að rétta hag þessara fyrirtækja á einhvem þann veg að þau geti starfað áfram á heilbrigðum rekstrargrundvelli. Þar með talið að þau geti greitt laun sem séu sambærileg við það sem gerist í þjónustugreinunum. Til þess að geta þetta þarf stjómin að fá starfsfrið og stuðning á kom- andi misserum. Hitt er svo annað mál að það em ýmsir lærdómar sem við verðum að draga af mistökunum í vaxta- málunum á árinu 1988. Frelsi í viðskiptum er gott og nauðsynlegt. En það dugar ekki að rígbinda einn þáttinn, svo sem gcngið, en gefa allt annað frjálst. Meðan menn kjósa að hafa gengið fast verður líka að hafa í það minnsta einhverja stjóm á hinum þáttunum. Svo sem eins og að setja þak á vextina, þó að þeir séu frjálsir að öðru ieyti. Hér á við það að atvinnurekstur á íslandi er ekki stærri í sniðum en svo að í honum gilda ekki óbreytt öll sömu lögmál og úti í hinum stóra heimi. Við eram of fá til þess að við höfum efni á frumskógalög- málum. Þess vegna þarf að stjórna í landinu og bcita til þess hyggjuviti og skynsemi. Það þurfa þeir á DV og Morgunblaðinu að skilja. Von- andi opnast augu þeirra fyrir þessu með hækkandi sól á komandi ári. Þar sem víðar gildir það að batn- andi mönnum er best að lifa. Að svo mæltu sendir Garri bæði þeim og öðrum lesendum sínum bestuóskirumgleðilegjól. Garri. VÍTT OG BREITT Höfudpáfi viðskipta- lífsins í Undralandi f Undralandinu sem hún Lísa heimsótti hér um árið þótti fígúr- unum sem þar bjuggu ekkert undarlegt við þá siði og háttu sem þar giltu. Hins vegar var Lísa öldungis undrandi á brjáluðum partíum og afkáralegri röksemda- færslu sem þóttu við hæfi í Undra- landi og varð sífellt ruglaðri eftir því sem á ævintýraferð hennar leið og enn hafa ferðafélagar Lísu, sem lesið hafa sér leið um ævintýralend- urnar ekki komist að því hvar Undralandið hennar er eða hverju þeir hafa í raun og veru kynnst. Svipað getur þeim farið sem allt í einu standa frammi fyrir undrum íslensks viðskiptalífs þar sem gild- um og hefðum er snúið á haus og allt er leyfilegt nema rökhyggja og siðrænt mat á undarlegum við- skiptaháttum, þar sem menn vega hver annan í mesta bróðerni. Flókinn einfaldleiki Viðskipti/atvinnulíf er eitt af vikulegum fylgiblöðum Morgun- blaðsins og er leiðsögn um Undra- land athafnafólksins. Svona blað kom út í gær, fimm- tudaginn 22. des. Á annarri síðu er frétt um fjölda krafna sem lýst er í þrotabú Ávöxtunar hf. „Miklum fjölda krafna hefur þegar verið lýst í þrotabú þeirra Péturs Björnsson- ar og Ármanns Reynissonar, en bú þeirra beggja eru nú í gjaldþrota- skiptum, ásamt sameignarfélagi þeirra, Ávöxtun sf.“ Eftirfarandi er haft eftir Sigur- mar Albertssyni hrl. skiptastjóra: „Það er mjög erfitt að átta sig á viðskiptum milli allra þessara aðila sökum þess, hve þau eru flókin og ekki alltaf staðið að þeim sem nákvæmast." Margt fleira er tínt til í fréttinni, sem síst er til þess fallið að auka traust á þeim viðskiptaháttum sem þrotamenn sýnast hafa ástundað. Á næstu opnu, eða á bls. 5 í Viðskipti/atvinnulíf er nýtt fyrir- tæki kynnt. „Ár hf. tekur til starfa. Mun sjá um að miðla þjónustu til almennings." Upphaf fréttarinnar á bls. 5: Ár hf., miðlunarfyrirtæki, tók til starfa um síðustu mánaðamót og er til húsa að Laugavegi 63. Ármann Reynisson forstjóri mun veita fyrir- tækinu forstöðu.“ Þá er farið fögrum orðum um að fyrirtæki „verði með“ vandaða og hagkvæma þjónustu á hvaða sviði sem er, og eru nokkrar greinar upp taldar. Klykkt er út með eftirfar- andi: „Hugmyndin sé að þróa miðl- unina inn á sem flest svið þjónustu. Einnig sé áætlað að veita bók- halds-, endurskoðunar-, lögfræði- og innheimtuþjónustu... “ Mögnuð þjónusta Höfuðpáfi viðskiptalífsins í Morgunblaðinu er auðvitað öðrum færari að veita þá þjónustu sem blaðið auglýsir upp fyrir hann. Um 1,100 manns hafa gert kröf- ur í þrotabú þess fyrirtækis sem Ármann Reynisson veitti forstöðu þar til fyrir nokkrum vikum að Ávöxtun sf var lokað og eru nú fógetar og bústjórar að reyna að komast til botns í þeim viðskipta- háttum sem ástundaðir hafa verið í þessum skika Undralands gráa peningamarkaðarins. Höfuðpáfinn hefur fært sig að- eins neðar á Laugaveginn og stofn- að þar til enn eins Undralandsins á sama tíma og verið er að reyna að koma böndum á hrikalegt gjald- þrot síðasta undraverksins. Þeir fara líkast til ekki í geitarhús að leita ullar sem þangað leita til að kaupa sér þjónustu við endur- skoðun, innheimtu eða lögfræðiað- stoð. En svona er undraveröld við- skiptalífsins skrýtin og skemmti- leg, rétt eins og ævintýraferð Lísu til Undralands. OgMorgunblaðinu er ekkert eðlilegra en að birta hvora á sinni opnunni frétt um gjaldþrot fjármagnsfyrirtækis og mikla kröfugerð á hendur forstjóra þess og hins vegar frétt um að sá hinn sami forstjóri sé búinn að stofna annað fyrirtæki sem m.a. annast bókhald, innheimtur og lög- fræðiaðstoð. Jafnvel brjálaða hatt- aranum í Undralandi hefði ekki dottið svona frábær fáránleiki í hug. En neyslu- og samkeppnisþjóð- félagið á íslandi tekur öðrum Undralöndum fram, enda býr ham- ingjusamasta þjóð í heimi hér. OÓ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.