Tíminn - 29.12.1988, Blaðsíða 12

Tíminn - 29.12.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn Fimmtudagur 29. desember 1988 FRÉTTAYFIRLIT KHARTUOM - Þúsundir Súdana flykktust út á götur Khartoum og kröfðust þess að ríkisstjórn landsins segði afi sér. Verkalýðsfélög hvöttu tilj allsherjarverkfalls til að mót-: mæla hækkun á verði hrís- grjóna. DH AKA - Grátandi ættingjar fórnarlamba ferjuslyssins við: bæinn Munshiganj í Pakistan; leituðu líka ástvina sinna. Tvö-1 hundruð manns drukknuðu. MOSKVA - Hæstiréttur Sovétríkjanna skipaði undir- réttum sínum að taka hart á forsprökkum kynþáttaólgunnar í Armeníu og Azerbaijan og á þeim er ræna úr rústum bygg- ■ inga á jarðskjálftasvæðunum í! Armeníu. TOKYO - Japanskir fjölmiðl-' ar sögðu að nýr dómsmálaráð- herra landsins Takashi Haseg- awa sem settur var til að kom- \ ast fyrir spillingu í japönskum; stjórnmálum hafi tekið við pen- ingum frá fyrirtæki svo Haseg- j awa hylmdi yfir fjármálaóreiðu i þess. SAO PAULO -Dómsmála- ráðuneyti Brasilíu saaði að lög-, regla hefði handtekið mann er) væri grunaður um morð á vist- fræðingnum Francisco Mend- es sem myrtur var í síðustu viku. S JERÚSALEM - israelskir hermenn skutu tvo unga pal- estínskasteinkastara í atökum er brutust út í kjölfar allsherjar- verkfalls Palestínumanna á hernumdu svæðunum. Leiðtogar bandarískra gyðinga sögðu að Bandaríkjastjórn hafi lofað að beita israela ekki þrýstingi til að fá þá að samn- ingaborðinu með Frelsissam- tökum Palestínu. í Kairó sagði háttsettur egypskur embættis- maður að friðartilboð Israels- manna væri ekki sett fram í alvöru og væri tii þess fallið að fá aiheiminn til að beina augun- um frá raunverulegum ágrein- ingi araba og ísraela. ISLAMABAD - Pakistanar og Indverjar munu að líkindum skrifa undir friðarsamkomulag á næstunni. Þar skuldbinda ríkin sig til þess að ráðast ekki á kjarnorkuver hvors annars. Ríkin hafa fjórum sinnum átt í styrjöld frá því þau fengu sjálf- stæði 1947. ÚTLÖND PLO býður fsraelum á ráðstefnu um hryðjuverk: Israelar drepa þrjá palestínska skæruliða Samskipti Palestínumanna og ísraeia hafa ekki verið til fyrirmyndar. Palestínumenn kasta grjóti í ísraela og ísraelar skjóta Palestínumenn. Þá reyna skæruliðar Palestínumanna að skjóta hermenn fsraela. ísraelskir hermenn drápu þrjá skæruliða Palestínumanna á landa- mærum ísraels og Líbanons, en skæruliðarnir voru að reyna að smygla sér inn fyrir landamæri ísra- els með illt athæfi í huga. Þetta er í annað sinn á þremur dögum sem ísraelskir hermenn lenda í átökum við skæruliða Palestínu- manna. Á mánudag drápu ísraelskir hermenn þrjá palestínska skæruliða í Líbanon rétt við landamærin að ísrael. Að sögn talsmanns ísraelshers hófu ísraelskir hermenn skothríð á skæruliðana er þeir klipptu í sundur gaddavírsgirðingu á landamærun- um. Auknar árásir öfgafullra Palest- ínumanna inn fyrir landamæri ísra- els eiga eflaust eftir að aukast á næstunni í kjölfar þess að Yasser Arafat og PLO viðurkenndi ísrael og hafnaði öllum hryðjuverkum. Sú ákvörðun Arafats fer mjög fyrir brjóstið á harðlínumönnum sem nú vilja allt til þess vinna að slegið verði á sáttarhönd Arafats. Um svipað leyti og Palestínu- mennirnir þrír féllu fyrir kúlum ísraelsku hermannanna bauð PLO ísraelum til ráðstefnu er fjalla myndi um leiðir til að stöðva hryðjuverk. - Við erum reiðubúnir til að halda ráðstefnu um hryðjuverk í Washing- ton eða New York með aðild ísraela svo umræður um það hvernig stöðva megi hryðjuverk fari ekki einungis fram bak við luktar dyr, sagði Said Kamal sendifulltrúi PLO í Kairó í viðtali við dagblað þar. Mikil dulúð hvílir nú yfir einum hóp palestínskra öfgasamtaka, Fatha byltingaráði Abu Nidals hins þekkta hryðjuverkamanns. Samtök- in höfðu sagst ætla að sleppa tveimur frönskum stúlkum úr haldi í gær, en ekkert hefur til þeirra spurst. Þær áttu að vera komnar til Parísar í gærkveldi þar sem faðir þeirra átti að taka á móti þeim. Móðir þeirra verður áfram í haldi, sökuð um njósnir fyrir ísrael. Þær mæðgurnar voru teknar höndum ásamt fimm Belgum er palestínskir skæruliðar hertóku snekkju er þær voru á undan ströndum ísraels í nóvem- bermánuði 1987. Flugslysið við Lockerbie: Sprengja grandaði bandarísku þotunni Nú er nokkuð Ijóst að sprengja grandaði Boeing 747 breiðþotu Pan Ain flugfélagsins sem fórst yfir Skotlandi fyrir jólin með 270 manns innanborðs. Sérfræðingar hafa fund- ið merki þess að sprengja hafi sprungið í ferðatösku einni sem sérstaklega var rannsökuð. Þá hafa málmflísar fundist í nokkrum líkum úr brakinu og útilok- ar það að tæknileg bilun hafi orsakað slysið. Sár þau er finna má á líkunum eftir málmflísarnar benda til þess að þær hafi dreifst um þotuna á sama hraða og ef um sprengju hefði verið að ræða. - Við getum verið 99% öruggir að um sprengju var að ræða, segir Michael Yardley fyrrum liðsforingi í breska hernum sem er sérfræðingur í hryðjuverkum. Hann segir að sprengjan hafi að líkindum verið 10 til 20 kílógramma plastsprengja. Varnarmálaráðuneytið breska hefur ekki viljað tjá sig um fréttir breskra dagblaða um að sérfræðing- ar hafi komist að þessari niðurstöðu. Stjórn Sandínista í Níkaragva: Vilja ræða frið við George Bush Stjórn Sandínista í Níkaragva Bush hefur sagt að stefna Banda- hyggst leggja nýjar friðartillögur fyr- ríkjamanna gegn Níkaragva muni ir George Bush strax og hann mætir ekki breytast þó hann taki við em- í vinnu sem forseti Bandaríkjanna, bætti forseta Bandaríkjanna. Áfram en hann mun sverja embættiseið. yrði þrýst á Sandínista til að ná fram sinn 2Ó. janúar. umbótum í stjórnmálum í landinu. íranskir byltingarverðir í essinu sínu: Fækkuðu eiturlyfjasmyglurum íranskir byltingarverðir drápu hring í þorpum á þessu svæði. tuttugu og sjö eiturlyfjasmyglara í Byltingarverðir handtóku sólarhrings bardaga í fjöllunum nokkra eiturlyfjasmyglara í þorp- suður af borginni Kermann á unum áður en átökin brutust út. sunnudag. Eiturlyfjasmyglararnir Aðgerðum gegn eiturlyfjasmyglur- höfðu leitað sér skjóls í Nask og um á þessu svæði verður haldið Harmak fjöllum 750 km suður af áfram á næstunni ef marka má Teheran eftir að byltingarverðir fréttir IRNA fréttastofunnar sem höfðu lagt til atlögu við eiturlyfja- skýrði frá þessum aðgerðum. Það var varnarmálaráðherra Ník- aragva Humberto Ortega, bróðir Daniels Ortega forseta landsins, sem skýrði frá fyrirhuguðum friðartillög- um Sandínista. Ortega sagði einnig að Sandínistar væru reiðubúnir til að halda áfram viðræðum við Kontra- liða í Managva, en vopnahlé hefur ríkt milli Sandínista og Kontraliða frá því í aprílmánuði. Það er greinilegt að vopnahléð hefur gert sitt gagn þennan tíma þó nokkrum sinnum hafi slegið í brýnu milli Kontraliða og hermanna Sand- ínistastjórnarinnar á þessu tímabili. Á þessu ári hafa um 2200 manns fallið í borgarastyrjöldinni í Nfkar- agva, en árið 1987 féllu 7300 manns. Fyrstu þrír mánuðir þessa árs voru þó mjög blóðugir því þá féllu að meðaltali tuttugu manns á degi hverjum. Selafáriö í Norður-Evrópu gengið yfir að mestu: Dró 75% af sela- stofnum til dauða Þrír af hverjum fjórum selum við strendur Hollands, Danmerk- ur og Vestur-Þýskalands hafa drepist undanfarna sex mánuði vegna veirusýkingar og mengun- ar. Þetta kemur fram í skýrslu hollenskra vísindamanna sem rannsakað hafa selafárið. Selafárið hefur nú gengið yfir við strendur þessara landa, en grasserar nú við strendur Eng- lands og írlands. Selafárið hefur drepið að minnsta kosti 17 þúsund seli við strendur Norður-Evrópu á þessu ári. Átta þúsund selir hafa drepist í Norðursjó, sex þúsund í Eystra- saltinu og að minnsta kosti þrjú þúsund við strendur Englands og írlands. Nú er svo komið að einungis tvöhundruð og fimmtíu selir eru á lífi við strendur Hollands, en fyrir einu ári voru þeir rúmlega eitt þúsund. Talið er að það taki selastofn- inn tíu til fimmtán ár að ná sér eftir selafárið ef skilyrði verða hagstæð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.