Tíminn - 29.12.1988, Page 19

Tíminn - 29.12.1988, Page 19
I » Fimmtudagur 29. desember 1988 irxnuu ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ i.kikI'Fiac 2í2 22 KKYKIAVÍKDR ^ SVEITASINFÓNÍA eftir Ragnar Arnalds Stóra sviðið Fjalla-Eyvindur og kona hans leikrit eftir Jóhann Sigurjónsson Leikstjórn: Bríet Héóinsdóttir Leikmynd og býningar: Sigurjón Jóhannsson Tónlist: Leifur Þórarinsson Lýsing: Páll Ragnarsson Sýningarstjóri: Jóhanna Norófjöró Leikarar: Baldvin Halldórsson, Bryndís Pétursdóttir, Erlingur Gíslason, Guðbjörg Þorbjarnardottir, Guðný Ragnarsdóttir, Hákon Waage, Jón Símon Gunnarsson, Jón Júlíusson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Rúrik Haraldsson, Þóra Friiriksdóttir, Þórarinn Eyjfjörð, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Ævar R. Kvaran, Aðalsteinn Jón Bergdal, Þorlelfur Arnarsson, Manuela Ósk Harðardóttir, Helga Þórðardóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir, Heiðrún Jónsdóttir, María Mjöll Jónsdóttir, Hildur Eiríksdóttir o.fl. Tónlist: Atli Heimir Sveinsson Leikmynd og búningar: Sigurjón Jóhannsson Leikstjóri: Þórhallur Sigurösson I kvöld kl. 20.30. Uppselt. Fimmtud. 29.12. kl. 20.30. Orfá sæti laus. Föstudag 30.12. kl. 20.30. Örfá sæti laus. Fimmtudag 5. jan. kl. 20.30 Föstudag 6. jan. kl. 20.30 Laugardag 7. jan. kl. 20.30. Sunnudag 8. jan. kl. 20.30. (kvöld 3. sýning Föstudag 30. des. 4. sýning Þriðjudag 3. jan. 5. sýning Laugardag 7. jan. 6. sýning Þjóðleikhúsið og íslenska óperan sýna Miðasala í Iðnó sími 16620 Miðasalan i Iðnó er opin daglega kl. 14-19 og fram að sýningu þá daga sem leikið er. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Einnig simsala með VISA og EUROCARD á sama tíma. Nú er verið að taka á móti pöntunum til 22. janúar 1989. 3R@xnnfi;rt iboft'martn^ Föstudag 6. jan., fáein sæti laus Föstudag 13. jan. Fáar sýningar eftir. íslenski dansflokkurinn og Arnar Jónsson sýna: Faðir vor og Ave Maria dansbænir eftir Ivo Cramér og Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Sýning í Hallgrímskirkju: ( kvöld kl. 20.30. Síðasta sýning. Miðasala i Þjóðleikhúsinu á opnunartíma og i Hallgrímskirkju klukkutíma fyrir sýningu. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga kl. 13-20. Lokað gamlaársdag og nýjársdag. Símapantanireinnig virka daga kl. 10-12. Sími í miðasölu: 11200. Leikhúskjallarinn er opinn öll sýningarkvöld frá kl. 18.00. Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltið og miði á gjafverði. MAIA S>OH»AMSÍ Söngleikur eftir Ray Herman Þýðing og söngtextar: Karl Ágúst Úlfsson Tónlist: 23 tónskáld frá ýmsum tímum Leikstjórn: Karl Ágúst Úlfsson Leikmynd og búningar: Karl Júlíusson Útsetningar og tónlistarstjórn: Jóhann G. Jóhannsson Lýsing: Egill Örn Árnason Dans: Auður Bjarnadóttir Leikendur: Pétur Einarsson, Helgi Björnsson, Hanna Maria Karlsdóttir, Valgeir Skagfjörð, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Harald G. Haraldsson, Erta B. Skúladóttir, Einar Jón Briem, Theódór Júlíusson, Soffia Jakobsdóttir, Anna S. Einarsdóttir, Guðný Helgadóttir, Andri Örn Clausen, Hallmar Sigurðsson, Kormákur Geirharðsson, Guðrún Helga Amarsdóttir, Draumey Aradóttir, Ingólfur Bjöm Sigurðsson, Ingólfur Stefánsson. Sjö manna hljómsveit valinkunnra hljóðfæraleikara leikur fyrir dansi. Sýnt á Broadway 1. og 2. sýning. 29. desember kl. 20.30. Uppselt. 3. og 4. sýning 30. desember kl. 20.30. Uppselt. 5. og 6. sýning 4. janúar kl. 20.30. 7. og 8. sýning 6. janúar kl. 20.30. 9. og 10. sýning 7. janúar kl. 20.30. Miðasala í Broadway sími 680680 Miðasalan i Broadway er opin daglega kl. 16-19 og fram að sýningu þá daga sem leikið er. Einnig símsala með VISA og EUROCARD á sama tíma. Nú er verið að taka á móti pöntunum til 22. janúar 1989. Phil Collins hefur gert það svo gott sem Buster að hann hyggst nú einbeita sér að kvikmyndaleik í staðinn fyrir tónlistina. Eflaust verða það mörgum vonbrigði en þess má geta að hann hefur árum saman dreymt um að vera heima hjá sér á kvöldin. Nú ætla þau Jill að reyna að eignast barn sem fyrst og til þess þurfa báðir aðilar helst að hittast. Nick Nolte vinnur um þessar mundir að upptökum á nýrri mynd. meðal annars ertekið upp í hinu mjög svo trausta fangelsi á McNeil-eyju. Leikarar og starfslið var beðið að koma alls ekki í kakifatnaði, þar sem fangarnir klæddust slíku. Það var svo vel tekið til greina að hver einasti maður kom í skærlitum og skræpóttum fötum, flestir í bleiku eða ljósbláu. r, r. io Tíminn 19 Vill ætt- leiöa barn Karólína Kennedy, dóttir forsetans heitins lætur til sín taka víða þó stundum fari ekki hátt. Hún og maður hennar, Edwin Schlossberg eignuðust nýlega dóttur, sem var látin heita Rose í höfuðið á langömmu sinni, ættmóður Kennedy-ættarinnar. Um daginn talaði Karólína á kvöldverðarsamkonu sem haldin var til að vekja athygli á því ástandi sem er að skap- ast vegna eyðingar regnskóga heimsins. Góður rómur var gerður að máli hennar. Nú eru þau hjón að hugsa um að ættleiða þeldökkt barn. Karólína hefur aldrei gleymt hvernig faðir hennar útskýrði fyrir henni að öll börn heimsins, gul, rauð og svört, væru systkini hennar. Nú vill hún lofa barni sem fætt er í fátækt og neyð að deila velsældinni með þeim hjónum og Rose litlu. Einka- dóttirin trúlofuð Eina barnið sem Cary Grant eignaðist, dóttirin Jennifer, er nú trúlofuð og hyggst ganga í hjónaband í sumar. Sá heppni heitir Randy Zisk og er sjónvarpsmaður. Ekki verður betur séð en pilturinn sé hinn ljúfmannleg- asti. Jennifer er dóttir Grants úr fjórða hjónabandi hans og móðir hcnnar er Dyan Cannon. Auðævi Grants skiptust jafnt á milli Jennifer og fimmtu konu Grants, Barböru Harris og fékk hvor þeirra um það bil 500 milljónir í sinn hlut. Það var hins vegar Barbara sem fékk bókasafnið, bréf hans, kvikmyndir, skjöl og hljómplötur með öllum réttindum. Jennifer Grant og unnustinn. Litla myndin er af föður hennar. Buster sjálfur Hver skyldi trúa því að þessi hcimilislegi náungi sé sjálfur illræmdi lestarræn- inginn Buster Edwards sem ásamt Ronald Biggs framdi mesta rán aldarinnar í Eng- landi? Meðan kvikmyndin um hann er sýnd víða um heim við góðar undirtektir, stendur aðalmaðurinn og sel- ur blóm í verslun sinni í London. Hann heldur því fram að hann eigi ekki græn- an eyri eftir frá ráninu. Nýlega var sonur félaga hans, Mike Biggs staddur í London þeirra erinda að biðja drottninguna að náða föður sinn, sem er illa haldinn af heimþrá, en hann hefur sem kunnugt er átt hæli í Brasilíu síðan hann slapp úr fangelsinu. Drengurinn Mike er orðinn vinsæll söngvari heima fyrir og vinnur nú fyrir föður sínum. Þeir Mike og Buster hittust og fór vel á með þeim. Raunar vakti koma drengsins til Englands talsverða athygli. Rambo öfundsjúkur Sylvester Stallone tók ný- lega nokkra Rambó-takta á Eddie Murphy og það gerðist ekki í kvikmynd, heldur við upptökur á nýrri mynd um Eddie í Beverly Hills. Syl- vester kom í heimsókn á tökustað einn daginn, þegar Eddie og Brigitte Nielsen, fyrrum kona Sylvesters, voru að æfa sig í skotfimi, en Brigitte leikur með Eddie í myndinni. Eddie leiðbeindi Brigitte dyggilpga í skotfiminni en Sylvester var þeirrar skoðun- ar að hann hefði hendurnar á allt öðrum stöðum en ætlast er til undir þessum kringum- stæðum. Hann ákvað að kenna Eddie að haga sér skikkanlega og gerði það með því að grípa byssuna hans og slá henni í koílinn á honum. -Ég sló ekkert fast, en samt seig hann niður eins og kart- öflupoki, útskýrði Sylvester eftir á. -Við höfum lítið talað saman síðan, viðurkennir hann. -Brigitte vissi vel hvað klukkan sló hjá Eddie en hún var ekki að mótmæla því, bætti hann gramur við.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.