Tíminn - 29.12.1988, Qupperneq 20
FtiKISSKIP'
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/'Tryggvagötu,
® 28822
■ ' Atjan man. binding
^ 7,5% ÞRDSTUR
7 685060
SAMViNNUBANKiNN VANIR MENN
Tímtnn
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir að 1988 teljist ár mikilla umskipta:
Samdráttur minnkar
ekki á komandi ári
„Það sem einkennir þetta ár sérstaklega er að mikil
umskipti hafa orðið á íslenskum þjóðarbúskap á árinu,“
sagði Þórður Friðjónsson, forstöðumaður Þjóðhagsstofn-
unar, þegar Tíminn bað hann að gefa árinu 1988, sem senn
er liðið, stutta umsögn. Sagði hann að framan af hafi gætt
mikillar þenslu, sem minnkaði mjög þegar leið á árið. Á
næsta ári er ekki von á breytingum til batnaðar, að mati
Þórðar, en hann segir fyrirsjáanlegt að samdráttur í
landsframleiðslu haldi áfram og hlé verði enn á hagvexti
síðustu ára.
„Það er nokkuð Ijóst að það
verður samdráttur í landsfram-
leiðslu og þjóðartckjum á árinu
scm er að líða í samanburði við
mikinn vóxt á þcssa mælikvarða á
síðustu þremur árum. Því er óhætt
að scgja að þctta sé ár mikilla
umskipta og breytinga," sagði
Þórður. Hapn vildi ckki kalla það
samdráttarár, þar sem það kemur
í kjölfar gríðarlcga mikils hagvaxt-
ar áranna á undan. „Það lýsir árinu
betur að bera saman þau umskipti
scm orðið hafa frá miklum hagvexti
til tímaskeiðs þar sem cinhver
samdráttur verður og hlc á þessum
mikla hagvexti," sagði hann.
Þjóðhagsspá er nú í stöðugri
cndurskoðun allt árið þó upplýs-
ingar séu sendar út aðeins tvisvar
til fjórum sinnum á ári með form-
legum hætti. Hafa starfsmenn
Þjóðhagsstofnunar lagt aukna
áherslu á að hafa þjóðhagsspá á
borðunum fyrir framan sig sem
vinnudæmi allt árið, til að taka
megi mið af nýjum forsendum um
leið og þær berast hverju sinni. í
fyrstu þjóðhagsáætlun fyrir árið
1988 var gert ráð fyrir að lands-
framleiðsla stæði í stað. Snemma á
þcssu ári var gert ráð fyrir því að
landsframleiðslan drægist saman
um 0,8% á árinu, en í síðustu
vinnudæmum cr gert ráð fyrir sam-
drætti sem nemur 1-1,5%.
Helstu breytingar frá fyrstu gcrð
þjóðhagsspár er sú verðlækkun
scm orðið hetur á sjávarafurðum á
erlcndum mörkuðum og samdrátt-
ur í sjávarafla. Þctta þýðir minni
landsframleiðslu. í krónum talið er
áætlað að citt prósent samdráttur í
landsframleiðslu þýði um tveggja
og hálfs milljarða króna samdrátt.
Aðeins fyrstu einkennin?
„Um og upp úr áramótunum fór
verðlag á sjávarafurðum lækkandi
og hefur sú þróun verið mjög
cinkennandi fyrir allt árið. Ég er
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar.
að vonast til að nú séum við búnir
að sjá botninn í þessari þróun.
Þetta er það sem hefur verið
stærsta frávikið frá upphaflegum
áætlunum. Menn sáu ekki fyrir
þetta mikla lækkun á verðlagi sjáv-
arafurða.
Að öðru leyti hefur þetta ár
verið umhleypingasamt. Það hefur
einkennst af tíðum efnahagsað-
gerðum og talsvert rót og óvissa
hefur fylgt þessum breyttu aðstæð-
um. Þetta umhverfi veldur því að
árið verður að teljast umhleypinga-
samt í efnahagslífinu. Þetta fylgir
aðlögun að lakari ytri skilyrðum,
sem menn hafa ekki gert ráð fyrir,“
segir Þórður.
Stjórnmálaóvissa
hefur ekki hjálpað
En verður óvissa þessi rakin á
beinan hátt til óvissu í stjórnmál-
um?
„Óvissa í stjórnmálum stuðlar
að sjálfsögðu ekki að þvf að draga
úr þeim umhleypingum sem fylgja
breytingum er gengið hafa yfir á
árinu. Ég treysti mér hins vegar
ekki til að meta það í einum hvelli,
hver sé þáttur stjórnmála í um-
hleypingunum sjálfum. En öll
óvissa á vettvangi stjórnmálanna
leiðir eðlilega einnig til óvissu í
efnahagslííinu," sagði forstjóri
Þjóðhagsstofnunar.
Lækkun á verði sjávarafurða og
minnkandi afli hefur jafnframt leitt
til lakari afkomu í sjávarútvegi og
öðrum útflutningsgreinum. Sagði-
Þórður að eðlilega hafi þessir erfið-
leikar sett mikinn svip á atvinnulíf
ársins. Áðurnefndur samdráttur
hefur fyrst áhrif í þessum greinum
og þar verður þjóðin fyrst vör við
minnkandi hagvöxt.
Áfram samdráttur
á næsta ári
En hverju má þá búast við á
næsta ári?
„Það felast nokkuð skýrar vís-
bendingar í þeim ákvörðunum sem
teknar hafa verið í sambandi við
mótun fiskveiðistefnunnar fyrir
næsta ár. Þær benda eindregið til
þess að á næsta ári verði áfram
samdráttur í landsframleiðslu. Mér
finnst við vera að fara núna
gegnum tímabil þar sem hagvöxtur
verður með minnsta móti,“ sagði
Þórður. Það eru semsagt skýrar
vísbendingar um að hlé verði áfram
á þeim mikla hagvexti sem hófst
fyrir um þremur til fjórum árum og
lauk á þessu ári, sem nú er að ljúka.
Verður þetta hlé einkennandi
fyrir alit næsta ár?
„Miðað við þær forsendur sem
menn sjá fyrir sér núna, er sjávar-
aflinn ráðandi afl um hagvöxtinn.
Það sem helst gæti dregið úr
minnkandi landsframleiðslu væri
ef verð á sjávarafurðum hækkar
erlendis að einhverju marki á næsta
ári. Árið 1989 verður samt erfitt ár
í efnahagslegu tilliti,“ var spá Þórð-
ar fyrir næsta ár og sagði hann að
það væri fátt sem breytt gæti þess-
um h.orfum. „Það er ekki hægt að
sjá það í hendi sér núna að á næsta
ári verði nein breyting til batnaðar
í þessu sambandi.“ KB
Fjölskyldupakkarnir okkar
fást ekkí annars staðar
Þú getur valið um þrjár stærðir. Sá minnsti kostar
millistærðin kostar lláiltlii krónur og sá stærsti kostar
Þú borgar minna en í fyrra!
1200-
2500
krónur,
krónur.
OPIÐ: fimmtudag 8-18:30, föstudag 8-21:00 og gamlársdag 9-12:00.
VERIÐ VARKÁR UM ÁRAMÓTIN
Auðvitað tökum við greiðslukort.
Grandagarði 2, sími 28855, Rvík.