Tíminn - 05.01.1989, Blaðsíða 10
HH-
LESTUNARÁÍMUN
Oruggur sigur Stjörnunnar
gegn áhugalausum KR-ingum
!AKI\I IRAUSIRA ILUININTjA
10 Tíminn
Fimmtudagur 5. janúar 1989
Fimmtudagur 5. janúar 1989
Tíminn 11
llllllllllllllllllllllll iÞRrtTTIR lllllllll..............................................III..................................III..........................Ilillll......................................................... IÞRÓTTIR IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIM^^^
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriöjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Gautaborg:
Annan hvern föstudag
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Larvik:
Annan hvern laugardag
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Skip............15/1 ’89
Gloucester:
Skip............20/1 '89
Skip............10/2 '89
New York:
Skip............20/1 '89
Skip............10/2 ’89
Portsmouth:
Skip............20/1 '89
Skip............10/2 ’89
SKJPADEILD
SAMBANDSJNS
LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVlK
SlMI 698100
Á 1 A A Á A Á. i.
Handknattleikur
Stórleikur Guðjóns
gegn KA í gærkvöldi
Frá Jóhannesi Bjarnaaynl.fréttamanni
Timans á Akureyri.
KA-menn komu á óvart er þeir
léku gegn FH ■ seinni leik lióanna
scm fram fór á Akurcyri
í gærkvöldi.
Heiniamenn virtust hafa tryggt
sér öruggan sigur eftir góða byrjun
í upphafi síðari hálfleiks og náðu
þá sex marka forskofi 25-19. En þá
tóku FH-ingar til þess ráðs að taka
tvo lcikmenn KA úr umferð og við
það riðlaðist leikur KA-manna.
FH-ingar gcngu á lagið og náðu að
jafna leikinn.
Undir lok lciksins var mikill
darraðadans en FH-ingar tryggðu
sér sigurinn í lokin og sigruðu
31-33.
Guðjón Árnason var hetja FH-
inga í gær og átti stórleik. Hjá KA
átti Jakob Jónsson góðan dag og
skoraði mörg glæsilcg mörk.
Mörk KA: Jakoh 10, Sigurpáll
7/4, Erlingur5/2, Pétur3, Porleifur
3,Ólafur 2 og Guðmundur 1.
Mörk FH: Guðjón 12/1, Héðinn
7, Gunnar 5, Þorgils 4,Óskar Á
3,Óskar H 1 og Hálfdán 1. JB/FH.
Gylfi Birgisson skorar eitt af sjö mörkum sínum gegn KR.
.. Handknattleikur:
Tímamynd: Pjelur
Framarar urðu Reykjavíkurmeistarar í innanhússknattspyrnu í fyrrakvöld er mótinu lauk í Laugardalshöll. Leikið var eftir nýjuij
stærri mörk, markverðir, engir veggir meðfram vellinum og fl. Framarar sigruðu ÍR í úrslitaleik 7-3. Á myndinni hér að ofanj
Guðmundsson KR-ingur að gera harða hrið að marki Skotfélags Reykjavíkur. KR-ingar voru eina liðið sem hirti stig af Fram'S
en liðin gerðu jafntefli 7-7.
reglum,
:björn
lótinu,
Tímamynd Pjetur.
lokin
aðrir leikmenn voru nánast sem
farþegar í leiknum. Jens Einarsson
stóð í marki Fram í fyrri hálfleik og
varði 7 skot og stóð vel fyrir sínu. í
síðari hálfleiknum kom Þór Björns-
son í markið og varði 4 skot.
Mörkin Fram: Birgir Sigurðsson
6/1, Agnar Sigurðsson 4, Júlíus
Gunnarsson 4, Hermann Björnsson
2/2, Egill Jóhannesson 1 og Tryggvi
Tryggvason 1. Valur: Júlíus Jónas-
son 7/2, Sigurður Sveinsson 6/3,
Jakob Sigurðsson 5, Valdimar
Grímsson 3 og Jón Kristjánsson 2.
BL
Peking. Nú rétt fyrir áramótin
var íþróttamálaráðherra Kína látinn
taka pokann sinn, vegna slælegs
árangurs Kínverja á Ólympíuleikun-
um í Seoul. Á leikunum unnu Kín-
verjar 5 gullverðlaun, en á leikunum
í Los Angeles voru gullin 15 talsins.
Einkum olli það Kínverjum von-
brigðum að fimleikamaðurinn Li
Ning vann engin verðlaun, en hann
vann 3 gull í L.A. Nýi íþróttamála-
ráðherrann, Wu Shaozu, lét hafa
eftir sér þegar hann tók við embætti,
að kínverskir íþróttamenn yrðu að
leggja harðar að sér og tileinka sér
vísindalegri þjálfunaraðferðir.
vann Detroit Pistons 123-104 og
Seattle Supursonics vann Los Angel-
es Lakers 116-106. Sigurganga
Cleveland Cavaliers hélt áfram, liðið
vann 119-98 sigur á Indiana Pacers.
San Antonio Spurs, lið Péturs
Guðmundssonar vann loks leik er
liðið lagði Denver Nuggets óvænt að
velli 129-105. Önnur úrslit urðu
þessi:
N.J.Nets-Charlotte Hornets 109-106
Houston Rockets-Utah Jazz 104-102.
Portland Trailblazers-Miami 119-95
Sacram. Kings-DallasMaver. 123-96
París. ítalinn Klaus Seppi á
Mercedes náði bestum tíma á þriðju-
dag í París-Dakar rallinu. f heildar-
keppninni er Jacky Ickx á Peugeut
405 í fyrsta sæti, annar er Ari
Vatanen á Peugeut 405, en þriðji er
Patrick Tambay á Mitsubishi. Tamb-
ay hefur sótt í sig veðrið að undan-
förnu og Peugeot liðið á nú í vök að
verjast. í 4. og 5. sæti koma Mits-
ubishi bifreiðar, en í 6. kemur To-
yota bifreið, í 7. sæti er Peugeot 205,
í 8. sæti er Nissan bifreið, í því 9. er
Mitsubishi og í því 10. kemur Range
Rover.
New York. Tveir leikir voru í
fyrrakvöld í NFL-íshokkídeildinni.
Philadelphia Flyers unnu New York
Islanders 4-1 og Calgary Flames
héldu uppteknum hætti og sigruðu
Quebec Nordiques 5-1.
Napólí. Læknar hafa ráðlagt
knattspyrnusnillingnum Diego Mar-
adona að taka sér stutta hvíld vegna
bakverkja sem hrjáð hafa kappann.
Maradona verður því illa fjarri góðu
gamni er Napólí leikur gegn Ascoli
í undanúrslitum bikarkeppninnar.
London. Enska knattspyrnu-
sambandið hefur veitt sovéska leik-
manninum Sergei Baltacha leyfi til
að leika með 2. deildar liðinu Ips-
wich Town. Baltacha má leika með
Ipswich að 7 dögum liðnum, en enn
er ekki víst hvenær kappinn kemur
til Englands.
Hið unga og léttleikandi lið Stjörnunnar
vann í gærkvöldi óvæntan sigur gegn
áhugalausu KR er liðin áttust við í Digra-
nesi í gærkvöldi.
Pað var Ijóst strax á upphafsmínútum
leiksins að leikmenn Stjörnunnar ætluðu
ekki að láta söguna endurtaka sig síðan úr
fyrri umferðinni er KR-ingar skoruðu
sigurmark leiksins beint úr aukakasti eftir
að leiktíma lauk.
Stjarnan náði forustu strax í upphafi
leiksins og hélt henni allt til leiksloka.
Jafnt var á öllum tölum þar til átta mín.
voru liðnar af leiknum, þá skoruðu
Stjörnumenn fjögur mörk í röð og náðu
fjögurra marka forskoti. Brynjar Kvaran
varði vel og allt gekk upp í sókninni.
Það sem eftir lifði hálfleiks var leikurinn
að mestu í jafnvægi og í hálfleik hafði
Stjarnan enn fjögurra marka forskot, 14-
10.
Stjörnumenn gepgu ákveðnir til leiks í
seinni hálfleik og ætluðu sér greinilega að
halda fengnum hlut. KR-ingar létu mótlæt-
ið oft fara í taugarnar á sér, enda hafði það
greinilega komið þeim í opna skjöldu.
Um miðbik seinni hálfleiks hafði Stjarn-
an náð7 markaforskoti, 22-15. Þá meiddist
leikstjórnandi Stjörnunnar, Sigurður
Bjarnason, og KR-ingum tókst að minnka
muninn niður í þrjú mörk 23-20, en lengra
komust þeir ekki og Stjarnan seig aftur
fram úr.
Þegar leiknum lauk hafði Stjarnan unnið
öruggan sigur 28-23.
Lið Stjörnunnar kom enn á óvart og
sýndi það að liðið á fullt erindi f-toppbarátt-
una. Gylfi Birgis var feiknagóður í sókn-
inni og skoraði mörg stórglæsileg mörk.
Brussel. Belgíski hjólreiðamað-
urinn Etienne De Wilde hefur verið
dæmdur til 30 daga skilorðsbundinn-
ar fangelsisvistar, en hann féll á
lyfjaprófi í október 1987. í Belgíu er
ólögíegt að hafa hormónalyf í sinni
vörslu.
París. Franska tímaritið France
Football hefur útnefnt enska lands-
liðsmanninn Glenn Hoddle besta
erlenda leikmanninn í frönsku knatt-
spyrnunni. Hoddle er fyrsti Bretinn
sem hlýtur þessa viðurkenningu, en
hún var fyrst veitt fyrir 20 árum.
V-Þjóðverjinn Karlheinz Förster
sem leikur með Marseille og Júgósl-
avinn Mehmed Bazdarevic sem leik-
ur með Sochaux komu í næstu sæti í
valinu. Besti franski leikmaðurinn
var valinn Stephane Paille, framherji
Sochaux.
New York. Michael „,Air“
Jordan leikmaður Chicago Bulls í
NBA-deildinni í körfuknattleik, hef-
ur verið valinn leikmaður desember
mánaðar. Chicago liðið vann 9 af 13
leikjum sínum í desember og Jordan
stóð sig mjög vel. Hann skoraði að
meðaltali 34,3 stig, var með 8,6
fráköst, 5,2 stoðsendingar og stal 3,2
boltum að meðaltali í leik í manuðin-
um. „Hann er stórkostlegur
leikmaður. í vetur hefur hann gert
alja leikmennina í kringum sig betri
og það gera ekki nema sannkallaðir
snillingar." Þetta sagði Doug Collins
þjálfari Bulls um frammistöðu
Jordans.
New York. Áfram meðNBA-
deildina. í fyrrakvöld voru allmargir
leikir. Tveimur þeirra var framlengt.
New York Knicks vann Boston Celt-
ics 109- 107 og Chicago Bulls vann
Los Angeles Clippers 126-121. Þá
bar til tíðinda að Atlanta Hawks
Brynjar varði vel og þó aðallega í upphafi
leiksins er Stjarnan náði 4 marka forskoti
og gerði nánast út um leikinn. Einnig voru
þeir Hafsteinn, Hilmar og Skúli góðir, eins
og í raun allt liðið.
KR-ingar voru alls ekki neitt líkir því
sem þeir hafa verið í vetur. Áhugaleysið
var algjört.
Alfreð stóð þó að venju fyrir sínu og
einnig var Stefán góður í sókninni.
Dómarar voru þeir Óli Ólsen og Gunn-
laugur Hjálmarsson og voru1 þeir ansi
mistækir.
Mörk Stjörnunnar: Gylfi 8/2, Hafsteinn
5, Hilmar 4, Skúli 4, Einar 3, Sigurður 2,
Axel 1 og Þóroddur 1.
Mörk KR: Alfreð 5/1, Stefán 5, Páll 5,
Sigurður 5, Páll 5, Guðm. A.l, Jóhannes
1 og Guðm. P. 1. FH.
SKATTHLUTfALL OG
PERSÓNUAFSLÁTTUR
ÁRÐ 1989
ALMENNT SKATTHLUTFALL
ER37,74%
SKATTHLUTFALL BARNA
UNDIR 16 ÁRA ALDRI ER6%
PERSÓNUAFSLÁTTUR
ER 17.842KR.
SJÓMANNAAFSIÁTTUR
ER 492KR.Á DAG
LAUNAGREÐANDA ER OHEIMILT
AÐ FÆRA ÓNÝTTAN
PERSÓNUAFSLÁTT MILLIÁRA
(Þ.E. FRÁl 988 TIL 1989)
Breyting á almennu skatthlutfalli og persónuafslætti hefur ekki í för með sér að ný
skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Launagreiðanda ber
hins vegar að nota ofangreint skatthlutfall og upphæð persónuafsláttar
við útreikning staðgreiðslu.
Veita skal launamanni persónuafslátt í samræmi við það hlutfall persónuafsláttarsem
fram kemur á skattkorti hans.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Handknattleikur:
Körfuknattleikur:
Israelsk sýning
ísraclsku bikarmcistararnir í
körfuknattleik, Hapoel Galil, sýndu
snilldartakta er þeir unnu stórsigur á
Keflvíkingum í fjáröflunarleik fyrir
íþróttahúsbyggingu í Keflavík í
gærkvöld. Leiknum lauk meö 118-71
sigri gestanna, eftir að staðan í
hálfleik var 61-23.
„Þetta eru hreinir snillingar, stórir
og sterkir. Það var rétt í upphafi að
okkar menn héldu í við þá. Þetta var
skemmtilegur leikur, áhorfendur um
350 og það safnast því góður pening-
ur í byggingarsjóðinn,“ sagði Helgi
Hólm, formaður byggingarnefndar
nýja íþróttahússins.
Þegar staðan var 21-27 í fyrri
hálfleik stungu ísraelarnir hreinlega
af og Keflvíkingar náðu ekki að
skora í nokkrar mínútur.
Stigin gerðu ÍBK: Guðjón Skúla-
son 23, Jón Kr. Gíslason 21, Sigurð-
ur Ingimundarson 12, Nökkvi Jóns-
son 6, Axel Nikulásson 5, Albert
Óskarsson 2-og Egill Viðarsson 2.
Hjá Hapoel voru Bandaríkja-
mennirnir allt í öllu og skoruðu
bróðurpartinn af stigunum. Brad
Leas var þeirra stigahæstur með 38
stig, bakvörðurinn Wayne Freeman
er einhver besti bakvörður sem leik-
ið hefur hér á landi, hann skoraði 18
stig, Steve Malock skoraði einnig 18
stig og fjórði Bandaríkjamaðurinn
Terry Martin gerði 14 stig. BL
Valurslakaðiá
Valsmenn unnu léttan sigur á
Frömurum í 1. deildinni í handknatt-
leik í Laugardalshöllinni í gærkvöld,
23-18, eftir að staðan í hálfleik var
17-6.
Valsmenn voru nánast eina liðið á
vellinum í fyrri hálfleik og náðu
UBK sigur
Breiðablik vann USVH í fyrri leik
liðanna í forkeppni bikarkeppninnar
í körfuknattleik að Húnavöllum í
gærkvöld, 59-47, en í hálfleik var
staðan 35-24 fyrir Breiðablik. Síðari
leikur liðanna verður i Digranesi.
BL
þegar yfirburðastöðu. Þeir komust í
6-1 og síðan í 9-4 og í hálfleik var
staðan eins og áður segir 17-6.
Framarar mættu ákveðnir til leiks
í síðari hálfleik, eða réttara sagt
voru það Valsmenn sem alveg voru
búnir að missa áhugann á leiknum.
Það sést best á því að Framarar unnu
síðari hálfleikinn 12-6. Lokatölur
voru 23-18.
Það hlýtur að vera Valsmönnum
áhyggjuefni hvað liðið er áberandi
slakara í síðari hálfleik, en það er
kannske engin furðu að menn slaki
á með yfirburðastöðu. Það þarf
sálrænan styrk og mikla leikgleði til
að halda áfram á fullu þótt sigurinn
sé í höfn.
Einar Þorvarðarson varði vel í
Valsmarkinu, alls 17 skot og Júlíus
Jónasson var einnig góður. Aðrir
leikmenn Vals gerðu lítið, nema
hvað Jakob Sigurðsson og Sigurður
Sveinsson sýndu annað veifið hvers
þeir eru megnugir.
Hjá Fram var fátt um fína drætti
meðan Valsmenn nenntu að sýna
mótspyrnu. í síðari hálfleik voru
Birgir Sigurðsson, Agnar Sigurðsson
og Júlíus Gunnarsson sprækir, en
I