Tíminn - 05.01.1989, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Fimmtudagur 5: janúar 1989
DAGBÓK
iiiiiiii
iiiiiiiiiiiiiiii
IIIHiiliii
Félag eldri borgara
Árshátíð Félags eldri borgara verður
haldin að Hótel Sögu föstudaginn 6.
janúar. Pantanir óskast sóttar á skrifstofu
félagsins fyrir 5. janúar.
Jólatrésskemmtun
Óháða safnaðarins
Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur
jólatrésskemmtun fyrir börn í safnaðar-
heimilinu Kirkjubæ sunnudaginn 8.
janúar kl. 15:00. Jólasveinar koma í
heimsókn.
Æðardúnsbændur - Æðardúnsbændur
Vantar 100 kg af æðardún til afgreiðslu á Japans-
markað í janúar og febrúar.
Það er mjög áríðandi að hægt sé að senda þessi
100 kg til að halda þessum markaði.
Örugg greiðsla, gott verð.
Þeir sem vilja vera með við að vinna nýjan markað
vinsamlegast hafið samband strax.
E.G. Heildverslun,
Elías Gíslason
Neðstaleiti 14, Reykjavík.
Sími 687685.
t
Minn ástkæri eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Hjalti Benediktsson
fyrrverandi brunavörður,
Bústaðavegi 107, Reykjavík
lést að kvöldi annars janúar á Borgarspítalanum.
Ingibjörg Stefánsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins
látna.
t
Móðir okkar,
Elísabet Gísladóttir
frá Hvarfi, Víðidal
andaðist að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 1. janúar.
Unnsteinn Pálsson
Þórdís Pálsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Guðný Theódóra Sigurðardóttir
Holtsgötu 41, Reykjavík
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 5. janúar kl. 13.30.
Steinþór Steingrímsson Svala Wigelund
Sigurður örn Steingrímsson Guðrún Blöndal
Sigrún Steingrímsdóttir Bjarni Magnússon
Hreinn Steingrímsson Steingrímur Steinþórsson
t
Innilegar þakkir til allra þeirra er vottuðu okkur samúð og vinahug við
andlát og jarðarför þróður okkar,
Gunnars Össurarsonar
húsasmiðameistara,
Kollsvík í Rauðasandshreppi.
Sigurvin Össurarson
Guðrún Össurardóttir
Torfi Össurarson.
Innilegar þakkir sendum við öllum er sýndu okkur samúð og vináttu
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
Margrétar Guðjónsdóttur
Hvitárdal, Hrunamannahreppi
Ásdís Dagbjartsdottir
Jón Dagbjartsson
Gréta María Dagbjartsdóttir
Guðbjörn Dagbjartsson
Sigríður Dagbjartsdóttir
Tómas Antonsson
Guðrún Guðnadóttir
ÞórðurÓlafsson
Þorbjörg Grímsdóttir
Eiríkur Sigurgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Sinfóníuhljómsveit íslands
Fimmtud. 5. jan. verða 6. áskriftartón-
leikar Sinfóníuhljómsveitar íslands í
Háskólabíói og hefjast þeir klukkan
20:30. Guðmundur Magnússon píanó-
leikari leikur þá í fyrsta skipti einleik með
hljómsveitinni á tónleikum í Reykjavík.
Hljómsveitarstjóri verður Páll P. Pálsson.
Á efnisskránni verða þrjú verk: For-
leikurinn að Töfraflautunni eftir Mozart,
Píanókonsert nr. 1 eftir Beethoven og
Sinfónía eftir Stravinskij.
80 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar:
Afmælissýning í Hafnarborg
Liðin eru 80 ár frá því að reglugerð
fyrir Hafnarfjarðarhöfn tók gildi og af því
tilefni hefur verið sett upp afmælissýning
á vegum hafnarstjórnar í Lista- og menn-
ingarmiðstöðinni Hafnarborg i Hafnar-
firði.
Fjöldi ljósmynda, teikninga, yfirlits-
korta, skýringarmynda og málverka lýsa
þróun hafnarsvæðisins undanfarna ára-
tugi. Þá eru á sýningunni ýmsir munir og
minjar sem tengjast á einn eða annan hátt
sögu Hafnarfjarðarhafnar og útgerðar-
sögu bæjarins.
Hluta sýningarsalarins í Hafnarborg
hefur verið breytt í kvikmyndasal og þar
er sýnd nýendurunnin heimildarmynd frá
1950, sem Ásgeir Long kvikmyndagerð-
armaður tók um borð í nýsköpunartogar-
anum Júlí, einu aflasælasta togskipi
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar.
Áfmælissýningin í Hafnarborg verður
opin daglega - nema þriðjudaga - kl.
14:00- 19:00.
Sýningin stendur til 15. janúar.
Kvikmyndahátíð 1989
í Búlgaríu:
Með mannúð til friðar og vináttu
Dagana 27. maí til 4. júní 1989 gengst
Rauði kross Búlgaríu fyrir alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Varna í Búlgaríu.
Hátíðin er haldin undir kjörorðunum:
„Með mannúð til friðar og vináttu'-. Hún
er vinsæl um allan heim, og síðast þegar
slík hátíð var haldin sendu 55 þjóðir og 5
alþjóðleg félög samtals 300 myndir.
Myndirnar mega ekki vera eldri en frá
1. janúar 1987. Pær eiga að fjalla um
Rauðakrossstarf, heilbrigði, vistfræði eða
mannúðarmál. Lengd skiptir ekki máli.
Þátttöku þarf að tilkynna til The Festiv-
al Directorate í Sofia fyrir 1. febr. 1989,
og myndirnar þurfa að vera komnar til
Varna fyrir 25. mars 1989.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrif-
stofu Rauða kross íslands, Rauðarárstíg
18 í síma 91-26722.
BILALEIGA
meö utibú allt í kringu rri
landið, gera þér mögulegt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Alþýðuleikhúsið:
Koss kóngulóarkonunnar
Alþýðuleikhúsið sýnir leikritið Koss
kóngulóarkonunnar eftir Manuel Puig
fimmtudaginn 5. janúar og laugardaginn
7. jan. kl. 20:30 bæði kvöldin. Sýningarn-
ar eru í kjallara Hlaðvarpans, Vesturgötu
3. Miðapantanir í síma 15185 allan sólar-
hringinn. Miðasala í Hlaðvarpanum
14:00-16:00 virka daga og 2 tíma fyrir
sýningu.
Listasafn Einars Jónssonar
- lokað í tvo mánuði
Listasafn Einars Jónssonar er lokað
desember- og janúarmánuði.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla
daga frá kl. 11:00- 17:00.
Lögfræðiaðstoð Orators
Orator, félag laganema veitir ókeypis
lögfræðiaðstoð á fimmtudögum frá kl.
19.30-22.00, í síma 1 10 12.
5VR
Breytingar á ferðum SVR
Mánudaginn 9. janúar verða breytingar
á akstri vagna á leiðum 02 GRANDI-
VOGAR og 15C GRAFARVOGUR-
BREIÐHOLT.
Á leið 02 aka vagnar nú lengur á
kvöldin en áður að Öldugranda og verður
síðasta brottför þaðan 5 mínútur eftir
miðnætti.
Tímajöfnun á kvöldin og um helgar
flyst frá Lækjartorgi að Hlemmi og auð-
veldar það vagnaskipti fyrir farþega á leið
til austurhverfa borgarinnar.
Leið 15C mun eftirlciðis aka að
Hraunsási í Árbæjarhverfi í stað að
Bæjarbraut eins og verið hefur.
Upplýsingar er hægt að fá í síma 82533
og 12700.
ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ
Upp úr 10. janúar hefjast ný ættfræði-
námskeið á vegum Ættfræðiþjónustunnar
í Reykjavík. Námskeiðið stendur í sjö
vikur (eitt kvöld eða síðdegi í viku) og er
ætlað byrjendum. Síðar í mánuðinum
hefst fimm vikna framhaldsnámskeið í
Reykjavík, og einnig er ráðgert að halda
helgarnámskeið á nokkrum stöðum á
Suður- og Vesturlandi á næstu mánuðum.
Skráning er hafin í þessi námskeið hjá
Ættfræðiþjónustunni í síma 27101.
Að hluta til fer kennslan fram f fyrir-
lestrum, en megináherslan er á rannsókn
frumheimilda um ættir þátttakenda
sjálfra. Þátttakendur fá aðgang og afnot
af fjölda heimilda, m.a. öllum manntölum
frá 1703 til 1930, kirkjubókum, íbúa-
skrám og ættfræðiritum.
Auk námskeiðahalds tekur Ættfræði-
þjónustan að sér að rekja ættir fyrir
einstaklinga, fjölskyldur og niðjamót.
Forstöðumaður Ættfræðiþjónustunnar er
Jón Valur Jensson.
Sölustaðir minningarkorta
HJARTAVERNDAR
Reykjavík:
Skrifstofa Hjartaverndar, Lágmúla 9, 3.
hæð, sími 83755 (Gíró)
Reykjavíkur Apótek, Austurstr. 16
Dvalarheimili aldraðra, Lönguhlíð,
Garðs Apótek, Sogavegi 108
Bókabúðin Embla, Völvufelli 21
Árbæjar Apótek, Hraunbæ 102A
Bókabúð Glæsibæjar, Álfheimum 74
Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27
Vesturbæjar Apótek, Melhaga 20-22.
Kópavogur:
Kópavogs Apótek, Hamraborg 11
Hafnarfjörður:
Bókabúð Olivers Steins, Strandg.31
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Kefiavík:
Rammar og gler, Sólvallag. 11
Apótek Keflavíkur, Suðurg. 2
Akranes:
Bókabúð Andrésar Níelssonar, Skóla-
braut 2
Borgarnes:
Verslunin ísbjörninn
Stykkishólmur:
Hjá Sésselju Pálsdóttur, Silfurg. 36
Ísafjörður:
Póstur og sími, Aðalstræti 18
Strandasýsla:
Hjá Ingibjörgu Karlsdóttur, Kolbeinsá,
Bæjarhreppi
Akureyri:
Bókabúðin Huld, Hafnarstræti 97
Bókaval, Kaupvangsstræti 4
Húsavík:
Blómabúðin Björk. Héðinsbr. 1
Raufarhöfn:
Hjá Jónu Ósk Pétursdóttur, Ásgötu 5
Egilsstaðir:
Hannyrðaverslunin Agla, Selási 13.
Eskifjörður:
Póstur og sími, Strandgötu 55
Siglufjörður:
Verslunin Ögn, Aðalgötu 20
Vestmannaeyjar:
Hjá Arnari Ingólfssyni, Hrauntúni 16
Selfosss:
Selfoss Apótek, Austurvegi 44.
Minningarkort
SJÁLFSBJARGAR
í Reykjavík og nágrenni
- fást á eftirtöldum stöðum:
Revkjavík: Reykjavíkur apótek,
Garðsapótek. Vesturbæjarapótek,
Kirkjuhúsið við Klapparstíg, Bókabúð
Fossvogs, Grímsbæ við Bústaðaveg,
Bókabúðin Embla, Drafnarfelli 10,
Bókabúðin Úlfarsfell, Hagamel 67,
Verslunin Kjötborg, Búðargerði 10,
Hafnarijörður: Bókabúð Olivers
Steins, Strandgötu 31.
Kópavogur: Pósthúsiö.
Minningarkort fást einnig á skrifstofu
Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Gíróþjónusta.
Minningarkort Áskirkju
Eftirtaldir aðilar hafa minningarkort
Safnaðarfélags Áskirkju til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir, Austurbrún 37,
sími 681742
Ragna Jónsdóttir, Kambsvegi 17, sími
82775
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27
Helena Halldórsdóttir, Norðurbrún 1,
Guðrún Jónsdóttir, Kleifarvegi 5, sími
681984,
Holtsapótek, Langholtsvegi 84,
Verslunin Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27,
Verslunin Rangá, Skipasundi 56.
Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman-
gengt, kostur á að hringja í Áskirkju,
sími 84035 milli kl. 17:00 og 19:00 og mun
kirkjuvörður annast sendingu minningar-
korta fyrir þá sem þess óska.
Áfangar
4. tbl. 1988
Á forsíðu þessa blaðs er mynd frá
Selárdal í Amarfirði af einu af listaverk-
um Samúels Jónssonar, sem lengi bjó
þar, en nú liggja bæði hús hans og verk
undir skemmdum. Það var Grímur
Bjarnason sem tók myndir þarna fyrir
þáttinn „Ljósopið" í Áföngum.
Ritstjóraspjall er eftir Valþór Hlöðv-
ersson, Björn Hróarsson skrifar um
vetrarferðir, Benedikt Hálfdánarson seg-
ir frá Hornstrandarferð og fylgja margar
myndir. Ritstjórinn Valþór Hlöðversson
skrifar greinina „Græðum Island" og
einnig aðra um Viðey. Þáttur er um
Bláfjöllin og skíðasvæðið þar og margar
myndir. Einnig er Landgræðslan kynnt í
grein Sveins Runólfssonar. Útgefandi er
Frjálst framtak hf.
SKINFAXI
6. tbl. 79. árg.
I þessu blaði Ungmennasambands ís-
lands er m.a. sagt frá Ólympíuleikum
fatlaðra, og er spjallað við þátttakendur
og fararstjóra, þá er viðtal við Iris Grön-
feldt og sagt frá Blakdeild Þróttar í
Neskaupstað.
Ingólfur Hjörleifsson ritstjóri skrifar
forystugrein: Öll gerðu þau sitt besta, en
þar ræðir hann m.a. um Ólympíuleika
fatlaðra og ófatlaðra í Seoul í S-Kóreu.
Þá eru ýmsar félagsfréttir í blaðinu, sagt
er frá róðraræfingum á Héraðsskólanum
að Núpi í Dýrafirði. Skákþáttur er sk-
rifaður af Ásgeiri Þ. Árnasyni og frásögn
af fundi sambandsráðs í Borgarfirði.
Áætlað er að 20. landsmót UMFÍ verði
haldið að Varmá í Mosfellsbæ árið 1990.
Á forsíðu er mynd af íris Grönfeldt, en
ljósm. er Gunnar Sverrisson.