Tíminn - 05.01.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 5. janúar 1989
FRÉTTAYFIRLIT
PEKING - Hundruö
námsmanna af afrísku bergi •
brotin hófu mótmæli í skólumi
sínum í Kína í gær. Segjast
námsmennirnir vera fórnar-
lömb ofbeldis lögreglu í Nan-
king og halda því fram aö í
Kína sé rekin aðskilnaöar-
stefna svipuð þeirri sem viö-
gengst í S-Afríku nema hvað í
Kína sé reynt að dulbúa hana.
Stjórnvöld í Kína hafa á hinn
bóginn ekkert látið í sér heyra ■
þrátt fyrir alþjóðlega gagnrýni
sem fram hefur komið á stefnu
þeirra gagnvart þeldökku fólki
af afrísku þjóðerni
JERÚSALEM - Leiðandi j
menn úr hópi Palestínumanna |
og vinstrisinnaðir Israelar hafa i
tilkynnt að þeir muni eiga fund I
með forystumönnum PLO og '
nokkrum þingmönnum ísraela!
í New York og í sameiningu j
muni þeir leita leiða til að liðka .
fyrir framgangi friðarumræðna!
í Miðausturlöndum. Ekki mun |
þó verða þrýst á að fá heimild
fyrir Yasser Arafat til að koma
til þessa fundar.
MARRAKESH - I Mar-
okkó hafa nú fulltrúar stjórn-
valda og Pólisaríó skærulið-
ahreyfingarinnar þreifað fyrir
sór um sættir áður en Hassan
konungur hittir formlega leið-
toga skæruliðanna sem staðið
hafa í 13 ára sjáfstæðisbar-
áttu.
ISLAMABAD Sovéski
samningamaðurinn og sátta-
semjarinn, Yuli Vorontsov,
kom í gær til Pakistans til
viðræðna við leiðtoga afg-
anskra uppreisnarmanna.
JÓHANNESARBORG-
Suður-afríska nýnasistahreyf-
ingin, ABW, hefur nú klofnað
vegna ástarsambands leið-
toga þeirra við frjálslynda
blaðakonu. Hafa fjórir áhrifa-
miklir meðlimir hreýfingarinnar
krafist þess að leiðtoginn segi
af sér.
MOSKVA - Þrjár ji
brautalestir sem útbúnar eru ,
sem sjúkrahús verða senda til
jarðskjálftasvæðanna í Arm-
eníu til þess að reyna að bæta
læknisþjónustuna á svæðinu
að sögn Tass fréttastofunnar.
ÚTLÖND ■ ..
Átök milli Bandaríkjamanna og Líbýumanna í gær:
Tveimur líbýskum
flugvélum grandað
Bandaríkjamenn skutu í gærniður
tvær líbýskar herflugvélar
undan ströndum Líbýu þar sem sögð
er alþjóðleg flugleið.
Bandaríkjamenn segja að þarna
hafi verið um sjálfsvörn að ræða, en
þó eru ekki allir á eitt sáttir með þá
skýringu. Ástæðan er sú að Banda-
ríkjamenn hyggjast á sama tíma og
þetta gerist, ráðast til atlögu við
verksmiðju í Líbýu sem þeir telja að
framleiði efnavopn en Líbýumenn
segja vera einhverskonar plastverk-
smiðju.
Þetta er ekki í fyrsta og ekki
annað sinn sem Bandaríkjamenn
ráðast gegn Líbýumönnum í stjórn-
artfð Ronalds Reagans fráfarandi
forseta.
Árið 1981 skutu þeir niður tvær
líbýskar herþotur yfir Sirtu-flóa
(Gulf of Sirte) sem Bandaríkjamenn
segja opinn fyrir alþjóðlegri umferð
en Líbýumenn telja sína eign. í mars
árið 1986sökktu þeir tveimur líbýsk-
um herskipum. í fyrra skutu þeirsvo
niður líbýska farþegaþotu þar sem
tæplega 250 manns fórust. Það var
reyndar útskýrt sem mistök af hálfu
Bandaríkjamanna.
í fréttskeytum er það haft eftir
breskum hermálasérfræðingi að
mjög ólíklegt sé talið að þessi árás
nú hafi verið með vilja gerð. Einkum
vegna þess að slíkt hefði verið mun
áhættuminna í skjóli nætur en um
hábjartan dag. Þá er því og lýst að
Bretar vonist til að hér sé ekki um
að ræða hefnd Bandaríkjamanna
vegna sprengingarinnar í amerísku
Pan Am þotunni sem fórst yfir
Skotlandi fyrir skömmu, enda hafi
Líbýumenn ekki lýst ábyrgð þeirrar
sprengingar á hendur sér. - áma
Ummæli Gaddafis:
Látum ekki
undan hryðju-
verkum BNA
Gaddafi, leiðtogi Líbýu, sakaði
Bandaríkin um hryðjuverk eftir að
tvær líbýskar herþotur höfðu verið
skotnar niður í gær. Gaddafi sagði
ennfremur að árásarinnar yrði
hefnt.
í ávarpi til þjóðar sinnar sagði
Gaddafi m.a.: „Þrátt fyrir aukin
opinber hryðjuverk af hálfu
Bandaríkjanna mun byltingarfólk
Líbýu ekki lúta höfði og afneita
sannfæringu sinni og markmiði.
Áskoruninni mun verða mætt með
áskorun. Sagan ber þess vitni að
stórveldi sem beita stefnu útþenslu
og harðstjórnar hafa lotið í lægra
haldi fyrir byltingarsinnum og vilja
fólksins.“
Gaddafi hefur sakað Bandaríkin um hryðjuverk.
Banamenn Indiru Gandhi
hengdir á f östudaginn
Morðingi indiru Gandhi og fyrr-
verandi embættismaður sem talinn
er hafa skipulagt morðið verða
hengdir n.k. föstudag.
Morðinginn, sem nú er 24 ára
gamall, var einn af lífvörðunt
Gandhi er hann myrti hana í október
1984. Hann hefur ekki neitað aðild
sinni en hefur stöðugt barist fyrir að
aftökunni verði frestað.
Kehar Singh, sá sem talinn er hafa
skipulagt morðið, hefur hinsvegar
ætíð haldið fram sakleysi sínu. Upp-
haflega átti aftakan að fara fram í
síðasta mánuði en lögfræðingi Singh
tókst að fá henni frestað. Lögfræð-
ingurinn hefur m.a. reynt að fá því
framgengt að rannsókn verði hafin á
hugsanlegri aðild eins meðlims í
aðskilnaðarhreyfingu Síkha sem nú
er í varðhaldi og sagt er að hafi játað
að hafa skipulagt morðið.
ísraelar brjóta
Genfarsáttmálann
Alþjóða Rauði krossinn hefur sak-
að ísraela um að hafa brotið alþjóða-
lög og Genfarsáttmálann þegar
þrettán Palestínumönnum var vísað
úr landi á sunnudaginn var. Rauði
krossinn hefur áður mótmælt við
ríkisstjórn ísraela þegar Palestínu-
mönnum af hernumdu svæðunum
hefur verið vísað úr landi.
- Alþjóðadeild Rauða krossins
hefur enn á ný farið fram á það við
ísraelsk stjórnvöld að þau bindi
enda á slíkar brottvísanir og annað
er brýtur í bága við fjórða Genfar-
sáttmálann, sagði í yfirlýsingu
Rauða krossins.
Brottvísun Palestínumannanna
brýtur í bága við ákvæði Genfarsátt-
málans er fj alla um réttindi óbreyttra
borgara á stríðstímum og þá á her-
numdum svæðum. fsraelsmenn eiga
aðild að Genfarsáttmálanum.
Þrír Norðmenn handteknir með fimm
kíló af dínamíti í fórum sínum:
Grunsemdir um
skipulagningu
sprengjuárásar
Norsk lögregluyfirvöld hafa kært
þrjá Norðmenn fyrir að hafa verið
að undirbúa sprengjutilræði við
innflytjendur er fara huldu höfðu í
Noregi. Þremenningarnir höfðu
fimm kíló af dínamíti í fórum
sínum og telja lögregluyfirvöld að
þeir hafi ætlað sér að sprengja í loft
upp íbúð, þar sem landflótta fólk
fór huldu höfði.
Talsmaður norsku lögreglunnar,
Finn Steinkopf, greindi frá því að
einn mannanna sem handteknir
voru í Arendal í S-Noregi, væri
fyrrum Ieiðtogi pólitískra samtaka
sem beittu sér gegn síauknum
fjölda innflytjenda í Noregi.
Þyngsti dómur sem Norð-
mennirnir þrír geta átt yfir höfði
sér er sex ára fangelsi.
Minnsta
flugvél í
heimi?
Sovéskur hönnuður segist hafa
hannað minnstu flugvél í heimi til
þessa, sem stjórnað er af flugmanni.
Sovétmaðurinn Dmitriev mun opin-
bera gripinn á flugsýningu í Le
Bourget í Frakklandi í júní. Sovéska
fréttastofan Tass skýrði frá þessu í
gær, og gat þess að vélin vegi
einungis 47 kíló, hún sé metri á hæð
og.þrír metrar á lengd. Hámarks-
hraði ku vera 130 kílómetrar á
klukkustund og hefur Tass eftir
hönnuðinum að vél þessi geti lent
þar sem finna má þrjátíu metra
langa slétta braut gerða af malbiki,
grasi eða möl.
Haft hefur verið eftir Dmitriev að
flugkríli þetta geti gagnast, bændum,
landfræðingum og kúrekum. Vélin
er afskaplega sparneytin og talið að
hún eyði ekki nema þremur lítrum á
klukkustund.
Ertu hættulegur
f UMFERÐINNl ö
áil þess að vita það?
Morg lyf hafa svipuö áhrif
ogáfengi
Kynntu þér vel lyfiö
sem þú notar