Tíminn - 05.01.1989, Blaðsíða 15

Tíminn - 05.01.1989, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 5. janúar 1989 Tíminn 15 IBIllllim MINNING Theodóra Sigurðardóttir fv. forsætisráðherrafrú Fædd 12. des. 1899 Dáin 25. des. 1988 Guðný Theodóra Sigurðardóttir fæddist í Hamarskoti í Hafnarfirði 12. des. 1899. Foreldrarhennarvoru Sigurður Sigurðsson, sjómaður og síðar steinsmiður í Reykjavík, f. 20. febr. 1864 á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal, d. 24. apríl 1942 í Reykja- vík, og k.h. Sigríður Guðmunds- dóttir, f. 27. jan. 1874 í Króki í Grafningi, d. 20. mars 1940 í Reykjavík. Sigurður og Sigríður bjuggu fyrst í Hamarskoti, uppi á Hamrinum í Hafnarfirði. Pau fluttu síðan að Selskarði á Álftanesi, en til Reykjavíkur fluttu þau um 1908. Þar bjuggu þau um skeið á Lauga- vegi 62 og síðar á Smiðjustíg. Þau skildu eftir nokkurra ára sambúð í Reykjavík. Sigríður ól síðan upp börn þeirra sex af miklum dugnaði. Sigurður var sjómaður framan af ævi, en þegar hann eltist vann hann við steinsmíði og múrverk og annað- ist kyndingu. Faðir Sigurðar var Sigurður, f. 3. des. 1832, d. 20. apríl 1912, bóndi á Bakka í Vatnsdal, „sívinnandi dugn- aðarmaður við vefnað, smíðar og heyskap," Sigurðsson bónda í Kár- dalstungu Tómassonar og k.h. Krist- ínar Jónsdóttur. Móðir Sigurðar og kona Sigurðar á Bakka var Una, f. 1831, d. 17. des. 1906, Bjarnadóttir Snorrasonar og Önnu Loftsdóttur bónda á Kötlustöðum Grímssonar. Systkini Sigurðar voru: a) Gunnlaugur, d. 7. júní 1862, á 2. ári. b) Benedikt, f. 18. jan. 1864, drukknaði 6. jan. 1920, sjómaður í Vörum í Garði. Dóttir hans með Pálínu Jósefsdóttur var Bjarnþóra Jóninna, ljósmóðir í Reykjavík. c) Gunnlaugur, f. 4. maí 1865, d. 2. okt. 1944, bóndi og skipasmíður á Eyrarbakka á Svalbarðsströnd. Hann var kvæntur Þuríði Bjarna- dóttur og áttu þau átta börn: Ágústu, húsfreyju á Ölafsfirði og síðar á Akureyri, Ólínu Antoníu á Hvammstanga, Karl Harald, sjó- mann og skipasmið á Eyrarbakka, síðar í Kópavogi, Önnu, húsfreyju í Tungu, Geitafelli og síðast á Bjarmalandi á Hvammstanga, Unni, Ingu, Emmu og Bergþóru, sem dóu ungar. d) Páll, f. 1866, drukknaði 1878 í Vatnsdalsá. e) Margrét, d. 10. júní 1869, á 2. ári. f) Margrét, f. 19. ágúst 1869, lengi vinnukona í Langadal, ógift og barn- laus. g) Steinunn, f. 6. febr. 1870, d. 1947, saumakona í Vatnsdal, lengst heim- ilisföst á Undirfelli. Hún lá úti í byl árið 1902 og var fötluð upp frá því. Börn hennar voru: Una Sigurrós og Haraldur Hjálmsson. h)Guðrún, d. 27. apríl 1874, á2. ári. Faðir Sigríðar var Guðmundur, bóndi á Króki í Grafningi og síðar á Úlfljótsvatni, f. 3. maí 1827 á Úlf- ljótsvatni, d. 11. júlí 1885, Þórðar- sonar bónda á Úlfljótsvatni Gísla- sonar og k.h. Sigríðar Gísladóttur. Móðir Sigríðar og bústýra Guð- mundar var Ingveldur Jóhanna, f. 23. apríl 1843, Pétursdóttir bónda í Helli í Ölfusi Bjarnasonar og k.h. Aldísar Vigfúsdóttur bónda á Fjalli á Skeiðum Ófeigssonar. Albróðir Sigríðar var: a) Jóhann Pétur, f. 26. sept. 1872, smiður í Reykjavík, kvæntur Þor- björgu Eiríksdóttur frá Kirkjuferju í Ölfusi. Eftir lát Guðmundar bjó Ingveld- ur Jóhanna með Guðmundi Magn- ússyni, bónda og hreppstjóra á Úlf- ljótsvatni og áttu þau tvö börn: b) Magnús, f. 24. jan. 1888, skipa- smiður í Reykjavík, átti Kristínu Benediktsdóttur frá Ytrahóli í Fnjóskadal. c) Guðmundur, f. 2. mars 1890, dó innan við tvítugt. Systkini Theodóru voru: 1. Kristín, f. 21. júlí 1898, d. 8. sept. 1979, húsfreyja lengi í Bartelshúsi við Hverfísgötu í Reykjavík, gift Sveini Jónssyni, sjómanni. Börn þeirra: Haukur, bifreiðastjóri í Reykjavík, Sigrún, húsfreyja í Reykjavík, Sveindís, húsfreyja í Reykjavík, Theodóra, húsfreyja í Reykjavík, Haraldur í Reykjavík, Guðrún, húsfreyja í Reykjavík og Konráð Ragnar í Reykjavík. 2. Ingveldur, f. 15. maí 1901 d. 29. maí 1980, átti heima í Reykjavík, ógift og barnalaus. 3. Haraldur, f. 10. júlí 1902, d. 27. apríl 1967, múrarameistari í Reykja- vík, átti Herdísi Guðjónsdóttur. Börn þeirra eru: Sigríður, húsfreyja í Mosfellsbæ, Auður, húsfreyja í Reykjavík og Sigurður, sagnfræð- ingur. 4. Una Sigríður, f. 24. maí 1904, d. 26. apríl 1981, giftist Böðvari Högnasyni, verkstjóra. Börn þeirra eru: Högni, prófessor í Svíþjóð, Hjördís, húsfreyja í Reykjavík og Þórunn, húsfreyja í Reykjavík. 5. Hrefna, f. 13. júlí 1916, lengi skrifstofumaður í Reykjavík. Theodóra ólst upp í Reykjavík. Sumarið 1926 réðist hún í kaupa- vinnu að Hvanneyri í Borgarfirði til ungs búfræðikandidats og kennara þar, Steingríms Steinþórssonar. Með þeim tókust ástir og opinber- uðu þau trúlofun sína á gamlárs- kvöld það ár. 17. júní 1928 giftust þau og um haustið tók Steingrímur við skólastjórn bændaskólans á Hól- um í Hjaltadal. ÞargegndiTheódóra umsvifamiklu húsfreyjustarfi til árs- ins 1935, er Steingrímur tók við embætti búnaðarmálastjóra, en þá fluttu þau til Reykjavíkur, og þar áttu þau heimili æ síðan. Theodóra ávann sér trúnað og traust Skagfirð- inga og naut hún vináttu þeirra ávallt síðan. Gestkvæmt var á Hól- um og var skörungskapur Theodóru rómaður, og heimilinu stóra stjórn- aði hún af frábærum myndarskap. Ekki er ofmælt, að hún hafi verið bæði elskuð og virt af öllum, sem voru hjá henni, meðan þau dvöldu á Hólum. Undir haustið 1935 flutti Stein- grímur með konu og synina þrjá, Steinþór, Hrein og Sigurð Örn suður til Reykjavíkur og bjuggu þau sér heimili á Marargötu 2, og þar fæddist dóttirin Sigrún. Vorið 1939 keyptu þau húsið að Ásvallagötu 60 og bjuggu þar lengst af. Nú fóru í hönd viðburðarík ár. Steingrímur varð þingmaður Skag- firðinga 1931 og ýmis trúnaðarstörf hlóðust á hann. Þessu fylgdi mikill gestagangur og líkt og á Hólum leysti Theodóra húsfreyjustörfin af miklum myndarbrag. Theodóra og Steingrímur eignuð- ust fjögur börn: 1. Steinþór, f. 21. mars 1929, hljóð- færaleikari og myndlistarmaður í Reykjavík, kvæntur Svölu Wige- lund, kaupmanni. Börn þeirra eru: a) Hrefna, f. 1. apríl 1949, útstill- ingahönnuður í Kópavogi. Maður. hennar er Þorsteinn Jónsson. Dætur hennar eru Theodóra Svala og Helga Hrönn. b) Steingrímur, f. 15. jan. 1951, mannfræðingur og kennari á Hvammstanga. Kona hans var Krist- ín Arngrímsdóttir og eiga þau tvö börn: Guðrúnu og Steinþór. c) Pétur, f. 27. mars 1952, rafvirki og flugmaður í Reykjavík. Fyrri kona hans er Jóna Svana Jónsdóttir og eiga þau tvö börn, Elísabetu og Gústav Pétur. Seinni kona Péturs er Helga Matthildur Jónsdóttir og eiga þau eina dóttur. d) Theodóra, f. 14. nóv. 1954, húsfreyja í Bandaríkjun- um, gifti Oddi Bragasyni og eiga þau þrjú börn, Steinþór, Christine og Katrina. e) Guðbjörg, f. 2. júní 1961, húsfreyja í Reykjavík. Fyrri maður hennar er Einar Valur Ein- arsson og eiga þau dótturina Hafdísi Svölu. Seinni maður Guðbjargar er Gottskálk Björnsson. 2. Hreinn, f. 27. nóv. 1930, hljóm- listarmaður og fræðimaður í Reykja- vík, var kvæntur Sigrúnu Gunn- laugsdóttur, teiknikennara og eiga þau eina dóttur: a) Þóra, f. 29. júní 1954, myndlistarnemi í Reykjavík. Fyrri maður hennar er Þorsteinn Eggertsson og eiga þau tvær dætur: Valgerði og Soffíu. Seinni maður hennar er Pétur Rúnar Sturluson. 3. Sigurður Örn, f. 14. nóv. 1932, fiðluleikari, guðfræðingur og próf- essor í Reykjavík. Fyrsta kona hans var Briet Héðinsdóttir, leikkona og eiga þau tvær dætur: a) Sigríður Laufey, f. 10. maí 1955, fiðluleikari í Reykjavík. Maður hennar er Þor- steinn Jónsson frá Hamri. b) Guðrún Theodóra, f. 24. des. 1959, cellóleik- ari í Reykjavík. Dóttir hennar með fyrri manni er Ester Casey, seinni maður hennar er Szymon Kuran, fiðluleikari. Önnur kona Sigurðar var Maja Sigurðardóttir, sálfræðing- ur. Þau eiga einn son: c) Sigurður Andri, f. 3. des. 1962. Þriðja kona Sigurðar er Guðrún Kristín Blöndal, hjúkrunarfræðingur og eiga þau tvö börn d) Theodora Jóna, f. 27. des. 1967 og e) Elsa María, f. 12. jan. 1977. 4. Sigrún, f. 25. júnt' 1936, húsfreyja í Hafnarfirði, gift Bjarna Magnús- syni, bankaútibússtjóra. Þau eiga fjögur börn: a) Dóra Margrét, f. 20. ágúst 1956, fóstrunemi og húsfreyja í Hafnarfirði, gifti Sigurjóni Páls- syni. Þau eiga fjögur börn: Sigrúnu, Pál, Lovísu Lind og Dóru Birnu. b) Ingunn, f. 24. nóv. 1957, húsfreyja í Hafnarfirði, gift Gunnari Rúnari H. Óskarssyni og eiga þau fjögur börn: Margréti Ósk, Óskar Hafnfjörð, Bjarna og óskírða dóttur. c) Magnús, f. 19. ágúst 1963, við- skiptafræðingur í Hafnarfirði. Kona hans er Anna Sveinsdóttir og eiga þau tvö börn: Erlu Karen og Bjarna. d) Steingrímur, f. 14. okt. 1971. Steingrímur lést 14. nóv. 1966. Síðustu árin hélt Theodóra heimili með Hreini syni sínum, sem reyndist henni mikil stoð. Heimili þeirra var miðstöð allrarfjölskyldunnar. Þang- að var alltaf gaman að koma. Theo- dóra fylgdist vel með sínu fólki og hélt hópnum saman. Theodóra var óvenju glæsileg kona, fríð og tíguleg. Glæsileik sín- um og reisn hélt hún til hinstu stundar, það bókstaflega geislaði af persónuleika hennar. Minningin um Theodóru Sigurð- ardóttur mun lifa. Hrefna og Þorsteinn Að leiðarlokum læt ég á blað örfá kveðjuorð til tengdamóður minnar Theodóru Sigurðardóttur, sem andaðist þann 25. desember s.l. Theodóra fæddist í Hafnarfirði á aðventunni fyrir 89 árum síðan. Foreldrar Theodóru fluttust síðar til Reykjavíkur þar sem hún ólst upp. Fyrir nær 35 árum kynntist ég eiginkonu minni Sigrúnu, og hófust þá kynni okkar Theodóru. Ég minn- ist þess með hlýhug og þakklæti hve vinsamlega feimnum pilti úr Hafnar- firði var tekið á heintili þeirra hjóna. Þessar móttökur mótuðu þá þegar vináttu, sem varaði alla tíð. Heimili þeirra Theodóru og Steingríms var miðstöð stórrar fjölskyldu, þar sem gleði og sorg var deilt. Ekkert sem varðaði heill fjölskyldunnar var þeirn hjónum óviðkomandi. Eiginmaður Theodóru, Stein- grímur Steinþórsson, lést þ. 14. nóvember 1966. Theodóra, ásamt Hreini syni sínum, ráku glæsilegt heimili, sem hélt áfram að vera miðstöð fjölskyldunnar. Ávallt var mikill gestagangur á heimili þeirra. Ekki skipti það máli hvort það voru börn, barnabörn eða barnabarna- börn, öllum fannst jafn yndislegt að koma á Holtsgötuna, og var tíminn fljótur að líða í þeim skemmtilega anda sem var ávaílt ríkjandi í kring- um tengdamóður mína. Stundirnar áttu eftir að verða margar áður en yfir lauk, þar sem setið var yfir kaffibolla í eldhúsinu hjá Theodóru og hin ýmsu mál brotin til mergjar. Theodóra var létt í lund, og mikil bjartsýniskona að eðlisfari, og fram til þess síðasta hafði hún alltaf eitthvað markvert til málanna að leggja. Trúin skipaði stóran sess í lífi Theodóru, og vildi hún ávallt framgang þess sem rétt var og af heilindunt unnið. Með virðingu og hlýjar minningar í huga, kveð ég að leiðarlokum tengdamóður mína, sem var sann- kallaður höfðingi og sómakona. Bjarni Magnússon Nú er sumar um sæ og lönd sól á hverjum Ijóra. Rétli ég þér hrjúfa hönd. Heill þér, Theodóra. Pú ert söngvið sumarbarn, sólmánuði borin. Stundum yfir hrím og hjarn hafa legið sporin. Sumarrómi sólskinslag söngstu hríðarbylnum. Fram á lífsins lokadag lumar þú á ylnum. Örn Arnarson Ég kveð ömmu mína með söknuði og virðingu. Theodóra Steinþórsdóttir, Raleigh, North Carolina í Bandaríkjunum BLÖÐ OG TÍMARIT 70 ára Samvinnuskóli Það er orðinn verulega stór hópur fólks sem stundað hefur nám í Samvinnuskólanum, fyrst í Reykja- vík og frá 1955 í Bifröst. Og það leynir sér svo sannarlega ekki að undantekningalítið líta gamlir Sam- vinnuskólamenn aftur til skólaára sinna þar með mikilli hrifningu. Hefur mér virst þetta eiga nokkuð jafnt við hvort heldur þeir hafa stundað námið í Reykjavík eða í Bifröst. Meðal þeirra sem á sínum tíma hafa verið í skólanum hér syðra stafar þetta vafalaust ekki hvað síst af persónulegum áhrifum Jónasar Jónssonar frá Hriflu, sem telja má hafið yfir allan efa að hafi verið einn merkasti skólamaður síns tíma og þar að auki frábær kennari. Meðal eldri hlutans af fyrrverandi nemend- um í Bifröst er þetta svo á hinn bóginn jafn vafalaust þeim hjónum Guðmundi Sveinssyni skólastjóra og Guðlaugu Einarsdóttur að þakka. Það fer ekki á milli mála að þau hjón unnu á sínum tíma einstaklega vel heppnað brautryðjenda- og upp- byggingarstarf í Bifröst, og er það raunar merkari kafli í íslenskri skólasögu en menn hafa kannski gert sér fulla grein fyrir til þessa. Sjálfur hef ég fylgst nokkuð náið með starfi Samvinnuskólans lengi, meðal annars sem kennari við Fram- haldsdeild hans í Reykjavík, og einnig í gegnum margvísleg ánægju- leg kynni við fjölmarga nemendur þaðan, jafnt yngri sem eldri. Nýút- komið afmælishefti af blaði sem nefnist Hermes varð svo enn til að staðfesta þá skoðun mína á skólan- um sem ég var að lýsa. Nú í haust voru liðin 70 ár frá því er skólinn tók fyrst til starfa í Reykjavík og 30 ár frá stofnun Nemendasambands Samvinnuskólans. Nemendasam- bandið gaf hér fyrir eina tíð út lítið blað sem hét Hermes, og í tilefni af þessum afmælum hefur það núna gefið út myndarlegt tímaritshefti með sama nafni, vel yfir hálft annað hundrað blaðsíðna að stærð. Guðmundur R. Jóhannsson, sem er vel þekktur fyrir ritstjórn og ritstörf margs konar innan raða Sam- vinnuskólamanna, hefur haft rit- stjórn þessa afmælisheftis með höndum. Hann hefur valið þá leið að rifja annars vegar upp með viðtöl- um og greinum ýmsa þætti úr sögu skólans, sem og þeirra manna sem hvað mest hafa mótað skólastarfið þar fyrr og síðar. Hins vegar hefur hann svo valið úr listrænni fram- leiðslu gamalla nemenda af hinu margvíslegasta tagi, bæði á sviði bókmennta og myndlistar. Hér er geysimikið efni á ferðinni, og vitaskuld sundurleitt. Að því er Jónas Jónsson varðar þá er þess þó að gæta að tiltölulega stutt er síðan minnst var aldarafmælis hans, meðal annars með útgáfu rækilegrar bókar um ævi hans og störf. Þess vegna kemur hér fátt nýtt fram að því er hann varðar og störf hans sem skóla- manns. Aftur má segja að meiri fróðleik sé hingað að sækja að því er varðar skólastarfið í Bifröst. Ér þar fyrst og fremst að nefna ýtarlega yfirlitsgrein um stefnu skólans fyrstu árin í Bifröst eftir Snorra Þorsteins- son fyrrum yfirkennara þar, svo og fróðlegt viðtal við Guðlaugu Einars- dóttur um starf hennar sem húsmóð- ir í Bifröst. Listaefnið er hér sömuleiðis tals- vert að vöxtum. Ljóð og sögur eru hér allmörg, en sundurleit. Þó eiga ýmsir landskunnir höfundar skáld- skap hérna, svo sem Friðjón Stefáns- son, Helgi Sæmundsson, Guðmund- ur Ingi Kristjánsson og Þorgeir Sveinbjarnarson. Meðal myndlist- armanna, sem stundað hafa nám í Samvinnuskólanum, eru lika ymsir þjóðkunnir, svo sem Jón Engilberts, Svavar Guðnason og Gísli Sigurðs- son. Hér eru myndir af málverkum eftir þá alla, og reyndar eftir ýmsa fleiri góða málara úr þessum hópi, að ógleymdum Herði Haraldssyni kennara í Bifröst, sem eins og kunn- ugir vita er snjall teiknari og listmál- ari. Heftið er þannig efnismikið og flytur mikið af áhugaverðu lesefni af hinu margvíslegasta tagi. Hins vegar er þó að því að gæta að frumbýlings- ár Samvinnuskólans í Bifröst eru nú sem óðast að komast í þá fjarlægð að mögulegt er að verða að skoða þau í sögulegu ljósi. Máski hefði ekki farið illa á því að nota þessi afmæli sem tilefni til að gera einhvers konar sagnfræðilega úttekt á skólanum í Bifröst, þar sem til dæmis hefði verið reynt að meta þýðingu hans fyrstu árin sem nýjungar í íslenska skólakerfinu, svo og að gera grein fyrir stöðu hans sem slíks í íslenskri skólasögu. Hvað sem öðru líður þá vekur þetta hefti athygli á því að slík sagnfræðileg rannsókn er trúlega farin að verða nokkuð tímabær. -esig

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.